25.02.1969
Sameinað þing: 32. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 2001 í B-deild Alþingistíðinda. (2159)
Efnahagsmál
Benedikt Gröndal:
Herra forseti. Þessar umr. hófust á því, að hæstv. forsrh. gaf ítarlega og glögga skýrslu um efnahag þjóðarinnar og þá erfiðleika, sem að henni hafa steðjað undanfarið. Skýrsla þessi var gefin samkv. ósk stjórnarandstöðunnar, og fólust í henni nýjustu upplýsingar, sem sérfræðingar þjóðarinnar hafa fram að færa um þessi mál. Kjarni þess, sem fram kom í upplýsingunum og forsrh. lagði áherzlu á, var, að þjóðarframleiðslan hafi á örfáum síðustu árum lækkað um rúmlega 17%, aflabrögð hafi farið stórminnkandi, alveg sérstaklega síldaraflinn, sem var uppistaða í velmegun áranna 1964–1966, og að lokum, að verðlag á íslenzkum afurðum hafi farið lækkandi á alþjóðamörkuðum allt upp að og yfir 50%.
Nú hafa borizt þær fréttir, að gengið hafi verið frá nýjum viðskiptasamningum við Sovétríkin, en þau eru eitt af beztu viðskiptalöndum okkar og kaupa íslenzkar afurðir fyrir yfir 500 millj. kr. á ári. Hingað til hafa þessi viðskipti verið talin tryggari en á hinum frjálsa markaði, hvað verðlag snertir, en nú fylgir það fréttinni, að verð á frystum fiski, sem fer til Sovétríkjanna, muni einnig lækka, þó að nokkur hækkun verði á verði síldarafurða, sem því miður er mjög lítið af um þessar mundir. Þetta er tilefni til þess að minna okkur enn þá á þær grundvallarstaðreyndir, sem efnahagsvandræði þjóðarinnar byggjast á. Sovétríkin hafa í vaxandi mæli fylgt þróun verðlags á hinum frjálsu mörkuðum, og getum við að sjálfsögðu ekki deilt um þá stefnu. En afleiðingin er sú hin sama og áður, að nýir samningar eru gerðir fyrir vörusölu upp á ½ milljarð kr. og enn eru að koma fram verðlækkanir, eins og dunið hafa yfir okkur s. l. tvö ár eða svo.
Ég minni á þetta atriði enn einu sinni vegna þess, að ég tel það vera höfuðgalla á öllum málflutningi stjórnarandstæðinga, að þeir taka ekki fullt tillit til þessara staðreynda. Þeir segja að vísu hér og þar í ræðum sínum til þess að vera sanngjarnir í eigin augum, að þeir viðurkenni, að þjóðin hafi orðið fyrir miklum áföllum. Síðan halda þeir áfram að tala eins og þessi áföll hafi ekki dunið yfir og kenna ríkisstj. um allt það, sem gengið hefur á móti þjóðinni nú undanfarið. Ég tel, að þessi málflutningur stjórnarandstæðinga sé hættulegur. Þeir reyna að blekkja íslenzku þjóðina með því að tala þannig, að heildarmyndin af málflutningnum gefur til kynna, að ríkisstj. og stjórnarstefnan beri meginábyrgð á því, sem komið hefur fyrir. Ég tel, að stjórnarandstæðingar séu einnig að blekkja sjálfa sig með þessum áróðri. Reynslan sýnir okkur, að stjórnmálamönnum hættir til að trúa sínum eigin áróðri. Og það getur verið, að þessi málflutningur, sem stjórnarandstöðuflokkarnir hafa valið sér — að leggja svo mikla áherzlu á stjórnarstefnuna, en taka svo lítið tillit til afla og verðlags, — reyndist þeim hættulegur, ef þeim yrði að óskum sínum um að taka við stjórn landsins. Ég er hræddur um, að þá mundu þeir skyndilega breyta um tón. Þá mundu þeir skyndilega tala öðruvísi við þjóðina en þeir gera í dag.
Við höfum ýmis dæmi fyrir okkur, sem koma fram í hugann, þegar hlustað er á ræður eins og þær, sem fluttar hafa verið bæði í dag og við fyrri hluta þessarar umr. Ef við tökum Framsfl., þá er þetta ekki í fyrsta skipti, sem hann hefur haldið uppi hörðum kröfum um, að ríkisstj. fari frá, þegar Framsfl. hefur verið í andstöðu. Hvernig var það veturinn 1950? Var þá ekki meginkrafa Framsfl., að ríkisstj., sem leyfði sér að flytja frv. um gengislækkun, færi frá? Í það skiptið tókst að koma ríkisstj. frá. En hvað gerðist? Framsfl. tók saman höndum við flokkinn, sem hafði staðið að þeirri ríkisstj. Strax og framsóknarmenn voru komnir í stólana, gerðu þeir það sama, sem þeir höfðu fordæmt nokkrum dögum áður. Þá tóku þeir upp stefnu þeirrar ríkisstj., sem þeir heimtuðu skilyrðislaust að færi frá. Þetta er að vísu 18–19 ára gamalt dæmi, en það er ein af hinum klassísku sögum úr íslenzkum stjórnmálum, sem menn ekki geta gleymt, enda eru sömu menn við völd í þingflokki framsóknarmanna í dag og voru þá.
Hvernig er það með Alþb.? Það hefur átt aðild að ríkisstj., fékk hana sumarið 1956, þegar vinstri stjórnin var mynduð. Þá voru líka efnahagsörðugleikar, að vísu ekki líkt því eins miklir og við höfum átt við að glíma nú undanfarin tvö ár. En hvað var það fyrsta, sem þessi nýja ríkisstj. gerði með þátttöku Alþb.? Það voru ráðstafanir til þess, að launþegar skyldu fórna nokkrum vísitölustigum. Það var fyrsta bjargráðið, sem Alþb. kom auga á, þegar það fékk valdaaðstöðu. Og ef menn vildu þreyta þá þm., sem nenna að sitja hér í salnum og hlusta á þessar umr., með löngum upplestrum, þá væri enginn vandi að fletta þingtíðindunum og sýna dæmin úr ræðum Alþb.-þm. frá þessu hausti, þegar þing kom saman, þar sem þeir beinlínis telja alþýðu landsins trú um, að það sé hennar hagsmunamál að gefa eftir hluta af vísitöluuppbótum. En það er annar tónninn í þessum flokki, þegar hann er í algerri stjórnarandstöðu, og í dag fylgir hann ólíkri stefnu þeirri, sem hann greip til, þegar hann komst til valda fyrir fáum árum. Nei, það er varhugavert af stjórnarandstöðunni að gera lítið úr þeim erfiðleikum, sem dunið hafa á þjóðinni vegna aflaleysis og lækkandi afurðaverðs, en gera svo mikið úr því, að stefna ríkisstj. eigi sök á erfiðleikunum.
Hv. stjórnarandstæðingar hafa bent á nokkur meginatriði, sem þeir telja, að hafi verið röng í stefnu stjórnarinnar. Það má deila um þessi atriði hvert og eitt. Sum þeirra eru stór stefnuatriði og verður sjálfsagt ekki samkomulag um þau. Önnur eru smærri atriði, eins og að leiðrétta tryggingakerfi bátanna eða jafnvel gera vaxtabreytingar, sem geta ráðizt eftir aðstæðum, eru raunar mál, sem ólíklegt er, að langvarandi ósamkomulag þurfi að vera um.
En við skulum athuga tvö meginatriði í málflutningi stjórnarandstæðinga. Þeir halda því fram, að ríkisstj. hafi svikizt um að koma á einhvers konar innflutningshöftum eða stjórn á innflutningnum, eins og þeir orða það. Vegna þess að ekki hafi verið stjórn á innflutningnum, sé ástandið orðið eins alvarlegt í gjaldeyris- og viðskiptamálum og raun ber vitni. Stjórnarflokkarnir hafa haldið fram, að þetta sé alröng túlkun og ástandið í gjaldeyrismálunum mundi án efa vera mjög svipað því, sem það er í dag, ef ekki nákvæmlega eins, þó að hér hefðu verið höft svipuð því, sem við þekkjum svo vel af reynslu. En ef menn vilja taka nokkurt tillit til fenginnar reynslu, verða þeir að viðurkenna, að fullkomin innflutningshöft, sem við höfðum fyrr á árum, dugðu ekki til að tryggja þjóðinni greiðslujöfnuð, þó að við hefðum svo að segja alvaldar n., sem skömmtuðu hvern eyri af gjaldeyri. Þær gátu samt sem áður ekki tryggt greiðslujöfnuð. Þetta tókst ekki á árunum fyrir stríðið, það tókst ekki á árunum eftir stríðið og það tókst ekki á árunum 1950–60.
Menn gagnrýna það, að flutt sé inn mikið af óþarfa vöru. Það er nokkuð til í því. Samkvæmt því verzlunarfrelsi, sem ríkt hefur, hefur verið hægt að flytja inn óþarfavöru, ef einhver hefur viljað kaupa hana hér heima. En við skulum ekki gleyma því, að þegar við höfðum fullkomin innflutningshöft og alvaldar n. á þessu sviði, þá var líka fluttur inn óþarfi. Ef þeir menn, sem skemmta sér bezt við að tala um tertubotna, muna nokkur ár aftur í tímann, hljóta þeir að hafa heyrt glerkýr nefndar, því að á haftatímabilinu var nákvæmlega sams konar gagnrýni uppi um allt land. Af hverju erum við að flytja inn ýmiss konar óþarfa, spurðu menn, þegar við höfum takmarkaðan gjaldeyri?
Hvernig stendur á því, að n. við Skólavörðustíginn, sem getur ráðið þessu, leyfir, að inn eru fluttar glerkýr og annað slíkt? Á þessu var skýring. Hún var sú, að ríkissjóður þurfti að fá tolltekjur, og það varð þess vegna að flytja inn svo og svo mikið magn af þeirri lúxusvöru, sem var í hæsta tollaflokki og líklegt var talið að fólk mundi kaupa. Þess vegna leyfi ég mér að fullyrða, að jafnvel alvöld n. við Skólavörðustíg hefði ekki forðað íslenzku þjóðinni frá tertubotnunum. Innflutningur á ýmissi óþarfa- og lúxusvöru tíðkaðist, þegar innflutningshöft voru í almætti, og er því ekki við því að búast, að hann legðist alveg niður, þegar innflutningurinn var að verulegu leyti gefinn frjáls.
Að mörgu leyti er sömu sögu að segja um stjórn á fjárfestingu. Ríkisstj. hefur verið gagnrýnd mjög fyrir það, að undanfarin ár hafi verið óeðlileg og oft óhagkvæm fjárfesting. Nú skal ég játa það, að þetta er að nokkru leyti rétt. Íslendingar hafa sett fé á óhyggilegan hátt í fyrirtæki, sem hafa gefið slæma raun. En eru nokkrar líkur til þess, að við hefðum forðazt þessi mistök, sem því miður eru alltof algeng hjá okkur, þó að við hefðum haft opinbert fjárfestingareftirlit? Við höfðum þetta eftirlit allt fram undir 1960 að einhverju leyti, þó það færi minnkandi. Reynslan sýndi, að fjárfestingareftirlitið réð ekki heildarmagni fjárfestingar, en gat stundum haft örlítil áhrif á flokkun fjárfestingar. Hins vegar skulum við minnast þess, að það var á þessu fjárfestingarhaftatímabili, sem við byggðum upp svo að segja tvöfalt kerfi frystihúsanna um allt land, sem nú er svo mjög gagnrýnt. Fátt af þessum húsum hefur orðið til á allra síðustu árunum, þegar fjárfestingin hefur verið að miklu meira leyti frjáls. Ég vil minna á það, að meðan fjárfestingin var háð verulegum höftum, þá var reist hin fræga glerverksmiðja, einhver mestu mistök í iðnaðaruppbyggingu, sem hér hafa orðið. Þá voru gerðar framkvæmdir eins og Örfiriseyjarverksmiðja og Hæringur, sem árum saman voru notuð sem tákn um vanhugsaða eða misheppnaða fjárfestingu. Þannig gæti ég lengi talið til sönnunar því, að það eru engar líkur á, að opinbert eftirlit með fjárfestingu hefði forðað okkur frá skyssum eins og t. d. þeim síldarverksmiðjum, sem byggðar voru eftir að síldin var gengin hjá og hafa engin verkefni fengið.
Ég skal játa, að við eigum mikið eftir að læra í fjárfestingarmálum. Við verðum að losna við þá pólitísku ásókn, sem virðist vera jafnsterk á banka- og lánastofnanir til þess að koma vissum fyrirtækjum upp og hún var, þegar til n. varð að sækja um leyfi. Ég skal játa, að þær stofnanir, bankar og sjóðir, sem lána fé til fjárfestingar, þurfa að hafa miklu betra eftirlit með þeim fyrirtækjum, sem lánað er til, og gera miklu strangari kröfur um, að þeir, sem fá sparifé landsmanna til uppbyggingar á fyrirtækjum, geti sýnt fram á, að fyrirtækin séu nægilega vel undirbúin, að þeir hafi það eigið fé, sem lofað er o. s. frv. En að ástand þjóðarinnar mundi vera að verulegu leyti betra, þó við hefðum haft fjárfestingareftirlit undanfarin ár, það get ég ekki viðurkennt. Ég tel mikinn misskilning að reyna að telja almenningi trú um, að það séu slíkar ástæður, sem valda vandræðum okkar, en ekki minnkandi afli eða lækkandi verð á afurðum.
Þannig mætti telja fleiri af þeim málum, sem stjórnarandstaðan teflir fram, og eru þau, sem á eftir koma, öll minni í vöfum heldur en þau, sem ég hef nefnt, og hafa þar af leiðandi minni þýðingu. Ég tel því auðvelt að sýna fram á, að þau mál, sem stjórnarandstaðan teflir fram og telur ríkisstj. til ávirðingar, hefðu ekki ráðið úrslitum. önnur meðferð þeirra hefði ekki getað hindrað, að þau vandræði skyllu yfir, sem við eigum nú við að glíma. Þetta er kjarni málsins. Af þeim sökum vil ég endurtaka, að ég tel mjög varhugavert fyrir stjórnarandstöðufl. að leggja slíka megináherzlu á það í áróðri sínum að telja þjóðinni trú um, að ríkisstj. beri alla sök á þessum vandræðum, en aðrar utanaðkomandi aðstæður litla sem enga.
Í umr. um efnahagsmál undanfarna daga hafa komið fram tvö sjónarmið, sem menn gjarnan staðnæmast við. Einn af ræðumönnum framsóknarmanna hélt því fram, að ráðh. núv. ríkisstj. væru beztu menn, sem vildu vel, en væru svo ófærir til starfa sinna, að þeim hefði misheppnazt stjórn landsins og þeir hafi óviljandi leitt þjóðina út í hinar mestu ógöngur. Þetta er ákaflega furðuleg kenning. Þegar menn, sem halda þessu fram, krefjast, að ríkisstj. fari frá til að geta sjálfir tekið við af henni, þá er ekki hægt að draga aðra ályktun en þeir telji þann mannakost, sem stjórnarandstaðan hefur á þingi, standa ráðh. og forustumönnum stjórnarfl. svo mjög framar að öllu leyti, að það gæti bjargað þjóðinni. Ég efast um, að nokkur hugsandi maður mundi skrifa undir þessa kenningu, ef hann áttaði sig á því, hvert hún leiðir.
Annar ræðumaður kom fram, kommúnisti, og hélt fram kenningu, sem er ákaflega kommúnistísk. Hann hélt því fram, að ráðh. vissu mætavel, hvað þeir væru að gera. Þeir væru vísvitandi að flytja 2–3 þús. millj. kr. til í þjóðfélaginu, frá hinum vinnandi launþegum til einhverra annarra. Þarna er verið að taka núverandi efnahagsvandræði íslenzku þjóðarinnar og hnoða þau til, eins og þegar menn búa til mynd úr leir, til þess að láta myndina falla inn í heildarkenningu kommúnismans um þjóðfélagslega þróun. Það eru hinir vondu kapítalistar, sem ráða öllu hér vestan tjalds og eru að beita völdum sínum til þess að kreista blóðið úr saklausri alþýðunni. Þessar kenningar þekkjum við vel. Það vill svo til, að talan, sem þessi ræðumaður nefndi að væri verið að stela frá vinnandi fólki í landinu, 2–3 þús. millj., eru nálægt því að vera sama upphæð sem gjaldeyristekjur okkar af útflutningsframleiðslu hafa lækkað frá beztu árunum, til dæmis frá 1965 og fram til 1968. Það er ekki tilviljun, að maðurinn fær út úr gengislækkunardæminu svipaða tölu og þá, sem Hagtíðindi, er liggja á borðum þm., sýna okkur svart á hvítu, að er það fé, sem við höfum tapað vegna minnkandi sjávarafla og lækkandi verðlags, og þar af leiðandi er það fé, sem vantar inn í ríkisbú okkar.
Það er þetta tap, sem veldur vandræðunum. En svona er farið að. Efnahagsvandræði, sem eru augljós og má lesa út úr óvefengjanlegum skýrslum, eru ýmist teygð í þá furðukenningu, að landinu sé stjórnað af skussum, sem vita ekki, hvað þeir eru að gera, eða í þá kommúnistísku kenningu, að landinu sé stjórnað af ræningjum, sem séu að flytja nokkra milljarða til á milli landsmanna. Ég tel, að báðar þessar kenningar séu ómerkar og til þess eins gerðar að draga athygli þjóðarinnar frá staðreyndum málsins. Ég ítreka það, að hv. stjórnarandstæðingar munu iðrast þess að hafa talað þannig. Ef það á fyrir þeim að liggja að taka við stjórn landsins, mun fara eins fyrir þeim og fór fyrir framsóknarmönnum veturinn 1950, þegar þeir voru búnir að koma minnihluta ríkisstj. frá og það fyrsta, sem þeir gerðu, þegar þeir komust í stólana, var að taka upp sömu stefnu og ríkisstj. hafði fyrr. Það er hætt við, að það færi alveg eins fyrir Alþb. og fór fyrir því 1956, þegar það komst til valda. Það varð að byrja á að gera það, sem verkalýðsflokkum er verst við af öllu að þurfa að gera, að taka vísitöluuppbætur af launþegunum.
Hv. 11. þm. Reykv. hefur nýlokið langri og mikilli ræðu og kom víða við, en engin ástæða er til að tína margt til úr máli hans. Þó vildi ég drepa á 2–3 atriði. Hann byrjaði á því að ráðast á viðskmrh. og halda því fram, að ráðh. hefði sagt í ræðu sinni um daginn, að viðreisnarstefnan hefði yfirburði yfir allar aðrar efnahagsstefnur í austri og vestri. Mér kemur ræða ráðh. þannig til hugar, að hann hafi í þetta skipti, eins og svo oft fyrr og síðar í ræðum um efnahagsmál, reynt að sýna fram á, að viðreisnarstefnan hafi verið og sé, sama stefna sem fylgt er í aðalatriðum í öllum nágrannalöndum okkar, þar sem efnahagskerfið er nokkurn veginn frjálst. Það er mikill munur á þessu. Ráðh. hefur hvað eftir annað reynt að sýna fram á, að grundvallaratriðin í stefnu núv. ríkisstj. síðan 1960 hafi verið hin sömu sem fylgt er t. d. í nálega öllum löndum Vestur-Evrópu, og er þá sama, hvort það eru lönd, sem sósíaldemókratar hafa stjórnað um áratugi, eða lönd, sem miðflokkar eða hægri flokkar stjórna. Hvað grundvallaratriðin snertir, eru megineinkennin hin sömu, þó að áherzlumunur sé nokkur. Hæstv. ráðh. hefur líka reynt að sýna fram á, hvað eftir annað, að sú stefna, sem stjórnarandstæðingar boða, að krefjast innflutningshafta og fjárfestingarhafta, er stefna, sem aðrar þjóðir fylgdu í lok síðasta heimsófriðar og nokkur ár þar á eftir, en hafa, að ég hygg undantekningarlaust, allar horfið frá. Þess vegna sé það spor aftur á bak að boða íslenzku þjóðinni, að hún eigi að hverfa til þessarar stefnu á nýjan leik.
Hv. þm. réðst harkalega á ríkisstj., eins og raunar flokksmenn hans allir gera, fyrir þá verðbólguþróun, sem verið hefur undanfarin ár, og þá staðreynd, að ríkisstj. hefur ekki getað ráðið við verðbólguna. En hafa hv. framsóknarmenn með stefnu sinni undanfarin ár barizt fyrir því, að spyrnt væri fæti gegn verðbólgunni? Hafa þeir ekki, framsóknarmenn, ár eftir ár heimtað hærra búvöruverð, hærri álagningu, frjálsa álagningu? Hafa ekki framsóknarmenn heimtað stóraukin útlán á öllum sviðum? Hafa þeir ekki heimtað hærra kaupgjald við hvert tækifæri? Hafa þeir ekki heimtað stóraukin ríkisútgjöld og hafa þeir ekki heimtað stórauknar framkvæmdir á öllum sviðum? Þetta eru allt góð málefni, ef hægt er að framkvæma þau. En getur nokkur heilvita stjórnmálamaður sagt, að þetta sé barátta gegn verðbólgu? Getur nokkur maður annað en játað, að öll þessi atriði, þegar þau eru tekin saman í heild, séu eins og olía á eld verðbólgunnar? Ef stjórn landsins hefði farið eftir þessum kröfum framsóknarmanna um að hækka verðlag á öllum afurðum, um að hækka laun og álagningu við hvert tækifæri, um að stórauka útlán á öllum sviðum, um að stórauka opinberar framkvæmdir og aðrar framkvæmdir, ef allt þetta hefði verið gert undanfarin ár, þá hefði verðbólgan hér á landi aukizt stórkostlega. Allt eru þetta liðir í því, sem við köllum verðbólgu, þegar afleiðingar þess verða þær, sem verið hefur undanfarið. Það er því furðulegt, að framsóknarmenn skuli leyfa sér að standa upp og ráðast á ríkisstj. fyrir verðbólguþróun undanfarinna ára, þegar það er skjalfast, að þeir hafa sjálfir krafizt aftur og aftur á öllum sviðum ráðstafana, sem hefðu magnað þessa verðbólgu, en ekki dregið úr henni.
Þá mátti heyra á verulegum hluta af ræðu hv. 11. þm. Reykv., að honum er hvað mest áhugamál, að gáttir Seðlabankans verði opnaðar til fulls og þaðan streymi stórum meira fé en streymt hefur út í gegnum bankakerfið og út til þjóðarinnar. Slík stefna í peninga- og lánamálum er auðvitað ekki til þess fallin að draga úr verðbólgu. Hún er beinlínis til þess fallin að auka verðbólgu. Og ástæðan til þess, að Seðlabankinn og ríkisstj. hafa ekki veitt miklu meira fé út í efnahagslífið undanfarin ár og allt til þessa dags, er ekki mannvonzka, heldur óttinn við, að stóraukin útlán muni enn auka verðbólguna.
Því hefur verið haldið fram af stjórnarfl., að þegar spenna sé mikil í efnahagslífinu, verði að halda fastar um öll þessi atriði, sem ég taldi, en hins vegar sé ástæða til að slaka á, þegar á móti blæs, atvinnan minnkar og framleiðslan minnkar. Þetta hefur ríkisstj. gert og er að gera, enda þótt stjórnarandstæðingum þyki hún ekki gera nóg. Hv. þm. játaði, að Seðlabankinn hefði létt fyrir viðskiptabönkunum. Ríkisstj. hefur aukið eða fengið Seðlabankann til að auka útlán til íbúðabygginga um 100 millj. kr. Ríkisstj. tilkynriti strax samtímis gengislækkuninni breytingar á almannatryggingum, sem þýða það, að nú á næstunni verður byrjað að dæla út í efnahagskerfið upp undir 200 millj. kr. Þar eru 15–20 þúsund launþegar, sem munu fá verulega vernd gegn þeim erfiðleikum, sem þjóðarheildin á við að stríða. Ríkisstj. hefur lofað og er að byrja að undirbúa 300 millj. kr. lánveitingar til atvinnuaukningar, og mætti þannig lengi telja. Þessi stefna er í framkvæmd að svo miklu leyti sem unnt er í dag.
Hv. 11. þm. Reykv. var önugur út í Fríverzlunarbandalagið, EFTA, og hafði allt á hornum sér varðandi hugsanlega afstöðu Íslendinga til þess. Ég vil þó minna á, að Alþ. hefur samþ. að kanna, með hvaða kjörum við kynnum að geta gengið í EFTA og ákvörðun um að ganga í þetta bandalag verður ekki tekin fyrr en þær upplýsingar liggja fyrir. Hann talaði um, að íslenzkur iðnaður þyrfti að búa sig undir útflutning, og ég get verið honum sammála um það, að sá undirbúningur hefði mátt vera meiri undanfarin ár. En sá undirbúningur er á vegum iðnrekenda- og samvinnusamtakanna, og er því ekki nema að takmörkuðu leyti við ríkisstj. að sakast um það. En hann talaði um, að nú væri runnin upp ellefta stund iðnaðarins. Það er of djúpt í árinni tekið, vegna þess að gengjum við í EFTA um næstu áramót, þá eru í dag upp undir 11 ár, þangað til við yrðum búnir að létta af þeim tollum, sem við mundum létta af í sambandi við inngöngu í EFTA, ef kröfu ríkisstj. verður framfylgt. Þar er reiknað með því, að við fáum 10 ára aðlögunartímabil varðandi þau tollahlunnindi, sem við mundum þurfa að veita, en það eru þau, sem snerta iðnaðinn. Það er því talað þarna um 10 ára aðlögunartímabil, svo að enn er ekki öll von úti.
Hv. þm. sagði, að við þyrftum að vita, hvað við hefðum upp úr þátttöku, en ekki að lifa í voninni einni. Auðvitað eru allir þessu sammála. Það hefur ekki hvarflað að nokkrum manni, að við færum að ganga í þetta bandalag án þess að vita nákvæmlega, hvað við höfum upp úr því og hvað við þurfum að leggja fram á móti. Til þess eru þær athugunarviðræður, sem nú standa yfir, og ég get fullvissað hv. þm. um, að ákvörðun um inngöngu í EFTA, sem raunar verður ekki tekin annars staðar en hér á Alþ., verður ábyggilega ekki tekin án þess að við vitum í fyrsta lagi, hvað við fáum, og það geri okkur hugsanlegu þátttöku hagkvæma. Ég held, að það ætli sér enginn að ganga inn í þetta bandalag, hvað sem það kostar, heldur því aðeins að fyrir því séu yfirgnæfandi líkur og að verulegu leyti vissa, að það muni styrkja okkar hag efnahagslega.
Það hefur mikið verið deilt á ríkisstj. fyrir þær gengislækkanir, sem hafa verið óhjákvæmileg afleiðing af stórminnkandi aflabrögðum og lækkandi verðlagi á afurðum nú á nokkrum síðustu árum. Gengislækkanirnar hafa því ekki verið að frumkvæði ríkisstj., heldur óhjákvæmileg viðbrögð við atburðum, sem gerzt hafa og komið hafa utan að frá. Ríkisstj. gerði nokkrar hliðarráðstafanir þegar með gengislækkuninni, og vil ég telja þar til fyrst 200 millj. kr. aukningu á almannatryggingum. Ríkisstj. gerði það lýðum ljóst, sem það vildu vita, að hún hugsaði sér að taka upp viðræður og samstarf við launþegasamtökin og gera hliðarráðstafanir að eins miklu leyti og unnt er í samvinnu við þau. Nú má segja, að það sé einkennilegt, að ríkisstj. ætli að gera hliðarráðstafanir í samvinnu við þessi einu samtök, en við skulum gera okkur ljóst, hver tilgangurinn er. Hann er að reyna að auka líkur á vinnufriði, og möguleikar þjóðarinnar til að hafa fullt gagn af þeim ráðstöfunum, sem nauðsynlegt hefur verið að gera, byggjast að verulegu leyti á að það takist að halda vinnufriði. Þess vegna er þessi stefna ríkisstj. eðlileg.
Hv. framsóknarmenn eru duglegir við að flytja till., en þeim hættir til að halda, að þegar þeir eru búnir að setja einhverja hugmynd á blað og fá það prentað í Gutenberg með númeri þskj., þá séu þeir orðnir höfundar að því máli. Í sambandi við till. þeirra með fjárlögum um, að 300 millj. skuli veita til atvinnuaukningar, þá er að sjálfsögðu rétt að benda á, að sú till. er engin sönnun fyrir því, að þeir hafi fundið upp þá hugmynd, að ríkisvaldið geti veitt fé til þess að auka atvinnu. Þó að þeirri till. væri ekki tekið betur á þeim stað, þýðir það ekki, að ríkisstj. hafi þar með hafnað því, að hið opinbera geti lagt fé til atvinnuaukningar. Till. er góðra gjalda verð og vafalaust vel hugsuð, en það var ætlun ríkisstj., eins og þegar hafði verið yfir lýst, að reyna að leysa þessi mál í samvinnu við verkalýðshreyfinguna, og viðræður um það voru að hefjast fyrir hátíðir. Áætlunin um atvinnunefndir og nýjar 300 millj. er til orðin upp úr því samstarfi. Ríkisstj. leggur mikið upp úr því, að þessar ráðstafanir verði gerðar í samstarfi við launþegasamtökin. Það er þess vegna, sem hún gerir þetta eftir viðræður við Alþýðusambandið í jan., en lét hjá líða að samþ. till., sem framsóknarmenn fluttu rétt fyrir jólin. Þetta er fullkomlega eðlileg skýring.
Síðasti ræðumaður lét í ljós þá ágætu hugmynd, að Íslendingar ættu að mæta þeim erfiðleikum, sem að steðja, með því að leita sameiginlegra ráða, og ég vil taka mjög undir það. Það er í raun og veru þjóðarharmleikur, þegar slíka erfiðleika ber að garði, að þá skuli magnast sundrung og stéttaátök í landinu, en þjóðin ekki bera gæfu til þess að sameinast í átökum gegn þeim erfiðleikum, sem við er að etja. Að þessu leyti er ég sammála hv. þm. En ef við tökum aftur upp hinn pólitíska þráð, þá er það trú okkar stjórnarsinna, að ríkisstj. hafi með þeim viðræðum, sem hún stofnaði til s. l. haust, rétt út höndina og skapað möguleika fyrir því að mynda pólitíska samstöðu um þessa baráttu. Við lítum svo á, að viðræðurnar hafi leitt í ljós, að samstaða væri ekki fyrir hendi. Stjórnarandstæðingar virtust ekki reiðubúnir að ganga inn í samsteypustjórn til að mæta þessum erfiðleikum, og þeir, sem tóku fyrir flokkana þátt í þessum umr., komu sér þegjandi og með ágætum saman um, að það væri ekki grundvöllur undir því samstarfi, sem þeir ætluðu að tala um. Þetta er veigamikil pólitísk staðreynd, og við lítum þannig á, að það sem á eftir kom, verði að skoðast í ljósi þess, að alvarleg tilraun til þess að skapa sameiningu allra stjórnmálaflokkanna tókst ekki. Eftir að sú tilraun fór út um þúfur, var ekki annað fyrir stjórnarflokkana að gera en að leggja til atlögu við örðugleikana eða hlaupa af hólmi. Stjórnarflokkarnir gerðu það, sem þeir urðu að gera. Þeir lögðu til atlögu við erfiðleikana og hafa síðan gert margar ráðstafanir, sem eru öllum stjórnmálamönnum og stjórnmálaflokkum ógeðfelldar, af því að þær eru erfiðar og hljóta að verða óvinsælar. En það varð að gera þær, og stjórnarflokkarnir tóku á sig þá ábyrgð, sem því fylgir, og verða að standa eða falla með henni.
Það er mikið talað um, að útflutningur nokkurra tuga manna til Ástralíu sé slæmt merki um ástandið á Íslandi, og má vel vera, að svo sé. Í þessum efnum hefur aðstaða okkar jafnan verið betri en aðstaða flestra annarra landa, því að það er talið eðlilegt í nágrannalöndum okkar, að eitthvað af fólki fari jafnan í burtu. Hér hefur það jafnan verið talið til stórtíðinda, ef alþýðufólk tekur sig upp og fer til útlanda, en það gegnir öðru máli, ef það eru háskólamenntaðir menn, sem þjóðin hefur eytt mörgum hundruðum þús. kr. í að skóla. Það þykir sjálfsagt, að tugir þeirra fari úr landi. Ég skal ekki draga úr því, að þetta sé óheppileg þróun fyrir okkur, og ég vil láta í ljós von um það, að hún verði ekki langlíf. En ég tel ástæðulaust að draga af þessu þá ályktun, að þjóðin sé að fyllast vantrú. Sérstaklega tel ég ástæðulaust að halda fram, að þetta stafi af sérstakri vantrú á stjórnarflokkunum og leiðtogum þeirra. Ef um einhverja slíka vantrú er að ræða — þjóðin er jafnan gagnrýnin, þegar á móti blæs, það þekkjum við, menn eru hvassyrtir í garð þeirra, sem stjórna, þegar erfiðleika ber að höndum, það þekkjum við líka — en ef um raunverulega vantrú er að ræða á leiðtogum þjóðarinnar, þá vil ég leyfa mér að fullyrða, að trúin á stjórnarandstæðingum og leiðtogum þeirra sé sízt meiri en á aðra. Ef þeir halda það sjálfir, að þeir njóti trausts eða trúar, en stjórnarflokkarnir njóti vantrúar, þá vaða þeir villu og reyk.
Ég vil að lokum enn láta í ljós þá von mína, að þótt ekki tækist s. l. haust að skapa sameiginlega afstöðu flokkanna til að ráðast gegn erfiðleikunum, þá muni þjóðinni samt auðnast að yfirvinna sundrungardrauginn og standa í grundvallaratriðum saman um það, sem hún verður nú að gera, sem er að auka framleiðslu, auka útflutning, endurbæta atvinnuvegi og styrkja þannig fjárhag sinn, svo að við komumst yfir erfiðleika þessara ára og getum á ný sótt fram til betri lífskjara og betra lífs.