24.02.1969
Sameinað þing: 31. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 2104 í B-deild Alþingistíðinda. (2175)
Utanríkismál
Benedikt Gröndal:
Herra forseti. Ég hef mál mitt á sama hátt og tveir hv. síðustu ræðumenn með því að þakka hæstv. utanrrh. fyrir að hafa breytt meðferð utanríkismála á þann hátt sem raun ber vitni og þó alveg sérstaklega fyrir þá skýrslu, sem hann hefur flutt hér í dag. Samt sem áður leyndi það sér ekki, að hv. 6. þm. Reykv. er enn ekki alls kostar ánægður og vill fá meira en ráðh. hefur gert í þessum efnum.
Ég vil minna á, að um þá meðferð, sem utanríkismál hafa hlotið hér undanfarin 20–30 ár, ber ekki sízt að kenna ráðamönnum Sameiningarflokks alþýðu — Sósíalistaflokksins, eins og hann hét áður, og Alþýðubandalaginu síðar. Menn muna þá tíð fyrir 20 árum, þegar rætt var um inngöngu Íslands í Atlantshafsbandalagið og leiðtogi kommúnista á Íslandi stóð í þessum sal og ögraði íslenzku þjóðinni með valdi hins kommúnistíska heims, en grjótið dundi á húsinu að utan. Slíkir viðburðir eru ekki líklegir til þess að stuðla að málefnalegum umræðum um utanríkismál, enda var erfitt að koma á æskilegri meðferð mála í þá tíð. Sem betur fer hefur þróunin orðið sú nokkur undanfarin ár, að öldurnar hefur lægt og gagnkvæm tortryggni hefur minnkað, svo að unnt hefur verið að bæta meðferð utanríkismála, gera hana málefnalegri og eðlilegri, eins og hér kemur fram. Ég vil vænta þess, að þróun utanríkismála haldi áfram á þeirri braut, en við eigum ekki eftir að lifa aftur tímabil eins og sum þau, sem eru í fersku minni.
Hv. stjórnarandstæðingar hafa báðir, sem hér hafa talað, ráðizt á afstöðu ríkisstj. í sambandi við aðild Kína að Sameinuðu þjóðunum. Ég vil láta í ljós undrun yfir því, að bæði ræðumenn Alþb. og Framsfl. skuli mæla fyrir því, að eðlilegt sé að útiloka frá þátttöku í Sameinuðu þjóðunum ríkið á Formósu, þar sem búa 12–14 millj. manna, ríki, sem hefur verið í Sameinuðu þjóðunum frá upphafi og er einn af stofnendum þeirra. Deilan um þátttöku Kína í Sameinuðu þjóðunum er eitt af stærstu átakamálum milli stórveldanna í heiminum, og eru flestir að komast á þá skoðun nú, að það sé mjög óeðlilegt, að meginlands-Kína, sem kommúnistar ráða yfir, skipi ekki sæti Kína hjá Sameinuðu þjóðunum. Hins vegar hafa ýmsar þjóðir reynt að ganga á milli öfganna í þessu máli og beita sér fyrir einhverri þeirri lausn, sem gæti orðið til þess að höggva á hnútinn og koma á samkomulagi, sem væntanlega byggðist þá á því, að bæði meginlands-Kína og Formósa gætu verið áfram í Sameinuðu þjóðunum. Mér þykir mjög eðlilegt, að Ísland skuli skipa sér í hóp þeirra ríkja, sem hafa reynt að koma á samkomulagi og eðlilegri lausn á þessu máli. Ég undrast það að vísu ekki frá Alþb. hálfu, en ég vil biðja framsóknarmenn að íhuga sína stöðu í þessu máli og sjá, hvort þeir komast ekki að þeirri niðurstöðu, að eðlilegra sé, að Íslendingar reyni heldur að fylla flokk þeirra þjóða, sem ganga á milli og reyna að finna sanngjarna lausn á svo erfiðu vandamáli.
Í sambandi við þá spurningu, hvort það geti með tímanum orðið tvö kínversk ríki í Sameinuðu þjóðunum, finnst mér, að við ættum ekki að útiloka slíkan möguleika. Mér finnst heldur óeðlilegt og ekki stuðla að því, að Sameinuðu þjóðirnar nái auknum árangri, að t. d. Þjóðverjar skuli ekki eiga neina fulltrúa þar. Þeir hafa þar sendinefnd, sem hefur enga opinbera stöðu, en fylgist aðeins með málum. Að sjálfsögðu er illmögulegt eða óhugsandi að annað hvort þýzka ríkið fengi sæti í Sameinuðu þjóðunum, en ekki hitt. Sama staða er í Kóreu. Þar búa tugir millj. manna, en landinu er skipt í N.- og S.-Kóreu, og þessi stóra þjóð getur ekki vegna þessa pólitíska klofnings, sem er afleiðing af stríðinu, verið með í starfi Sameinuðu þjóðanna. Enn er sömu sögu að segja í Víetnam: Ég hygg því, að við eigum ekki að taka svo einstrengingslega afstöðu, að það sé útilokað, að tvö ríki geti við slíkar aðstæður verið aðilar að Sameinuðu þjóðunum, þó að við vonum að sjálfsögðu í flestum tilfellum, að slík aðild yrði aðeins tímabundin, þangað til tækist að finna einhverja varanlegri og betri lausn á stjórnskipan þessara þjóða.
Ég vil taka undir það, sem hér hefur komið fram, að við Íslendingar verðum að líta á utanríkismálin af raunsæi. Þegar við ræðum um Atlantshafsbandalagið, koma fram tvær mismunandi skoðanir á því, hvers konar bandalag það sé. Annars vegar er lögð á það áherzla, að flestar þjóðir bandalagsins — þó ekki allar — hafi lýðræðislega stjórnskipan og vilji verja það frelsi einstaklinga og þjóða, sem við metum svo mikils. Alþb.-menn draga þetta mjög fram, þegar þeir vilja ná sér niðri á Atlantshafsbandalaginu fyrir aðild Grikklands og Portúgals. Ég vil leggja á það áherzlu, að þjóðskipulag flestra NATO-ríkjanna, og það er ríkjandi hugsun í bandalaginu, byggist á frelsi og lýðræði, sem við aðhyllumst. Þegar hv. Alþb.-menn hneykslast svo mjög á því, að það skuli vera í bandalaginu eitt ríki, þar sem herforingjaklíka hefur tekið sér einræðisvald, eins og í Grikklandi, má minna á önnur alþjóðasamtök, sem Alþb.-menn á Íslandi eru algjörlega reiðubúnir til að taka þátt í og þar sem þeir vilja gjarnan fá að sitja fundi, þar sem þó nokkuð er af ríkjum, sem hafa einvalda herforingjastjórn. Við vitum, að Alþb. fagnar því, að það skuli fá að senda fulltrúa til Sameinuðu þjóðanna, og það styður, að við séum í því bandalagi. En við hliðina á íslenzku sendinefndinni þar sitja fulltrúar Ungverja. Við vorum ekki hrifnir af stjórnarfarinu þar í landi fyrir rúmlega 10 árum, þegar byltingin var brotin á bak aftur. Rétt hjá Íslendingum sitja í sölum Sameinuðu þjóðanna fulltrúar ríkja eins og Íraks, þar sem er einhver versta herforingjaharðstjórn, sem nokkurs staðar situr í dag, og hengir menn á götum úti um þessar mundir. Rétt hjá íslenzku sendinefndinni sitja fulltrúar ríkis eins og Indónesíu. Ekki veit ég betur en þar sé og hafi verið allhörð herforingjastjórn, sem fyrir fáum árum lét sig hafa það að drepa um 300 þús. kommúnista. Ég tek þetta sem dæmi um, að í alþjóðasamtökum þýðir ekki að setja algjöran mælikvarða.
Hv. 6. þm. Reykv. réðst, eins og Alþb.-mönnum er títt, mjög á sumar Atlantshafsbandalagsþjóðirnar fyrir það, að þær væru gömul nýlenduveldi og hefðu háð grimmileg nýlendustríð. Það er meginatriði í þessu efni um þær allar, nema Portúgali, að þær er gömul nýlenduveldi, þær eru fyrrverandi nýlenduveldi, sem einmitt á undanförnum 20–25 árum hafa gefið tugum þjóða frelsi, hundruðum millj. manna. Á sama tíma hafa heilar þjóðir verið innlimaðar í kommúnismann þegjandi og hljóðalaust, eins og það var einu sinni orðað, en Alþb.-menn minnast sjaldan á það.
Ég vil taka fram, að bæði stuðningsmenn ríkisstj. hér á Íslandi og stuðningsmenn lýðræðisflokkanna á öðrum Norðurlöndum, raunar einnig í Bretlandi, Niðurlöndum og víðar innan Atlantshafsbandalagsins, hafa ráðizt harkalega á stjórnarfar í Grikklandi og haldið uppi svo sterkum andróðri gegn því, að grísku stjórninni er ekki um sel. Á sama hátt hafa þessar þjóðir haldið uppi baráttu gegn nýlendukúgun Portúgala, og ég veit ekki betur en Íslendingar hafi hvað eftir annað greitt atkv. í sölum Sameinuðu þjóðanna með till., sem miðað var gegn Portúgölum og öðrum nýlendukúgunarþjóðum í S.-Afríku.
Við getum litið á Atlantshafsbandalagið frá þeim sjónarhóli, að þjóðirnar, sem í því eru, berjist flestar fyrir ákveðnu stjórnarfari. Við getum líka verið raunsæir og játað, að í Atlantshafsbandalaginu eru 15 þjóðir, sem hafa sameiginlegra hagsmuna að gæta og hafa gert samtök til þess að vernda þessa hagsmuni. Við vitum úr mannkynssögunni, að jafnan hafa hagsmunir öllu meiri áhrif en hugsjónirnar. Það er þetta, sem fyrst og fremst hefur valdið því, að innan Atlantshafsbandalagsins eru bæði sannar lýðræðisþjóðir og þjóðir með annað stjórnskipulag.
Það, sem gerðist, var, að sigurvegararnir í síðasta heimsófriði gátu ekki komið sér saman um að finna friðinn, sem átti að koma á eftir ófriðnum. Þeim tókst ekki að finna þá skipan mála í Evrópu, sem tryggði þar frið og öryggi. Því kom tímabil skömmu á eftir, þegar upplausn var um alla álfuna og komið var á kommúnistísku stjórnskipulagi í mörgum löndum í skjóli Rauða hersins. Að sjálfsögðu kallaði þetta á mótaðgerðir, Marshall-aðstoð, Truman-kenningu og síðan Atlantshafsbandalagið. Við stofnun Atlantshafsbandalagsins og Varsjárbandalagsins hefur tekizt eftir upplausnina, sem fylgdi í kjölfar stríðsins, að koma á valdajafnvægi í Evrópu, og þetta valdajafnvægi er undirstaða þess, hve friðsamlegt hefur verið í álfunni undanfarin 20 ár.
Það er rétt, að framan af þessum tveimur áratugum var staða Bandaríkjamanna mjög óvenjuleg, því að þeir voru langöflugasta þjóðin, en höfðu jafnframt orðið fyrir litlu tjóni í ófriðnum, áttu borgir sínar og verksmiðjur heilar, og gátu þar af leiðandi komið Evrópu til hjálpar. Staða Bandaríkjamanna var því mun sterkari en allra hinna til samans. Síðan Evrópuþjóðirnar hafa byggt upp borgir og framleiðslu, hefur þetta breytzt; viðhorf þeirra hafa breytzt og styrkleikahlutföll á milli Evrópuþjóða og Bandaríkjanna hafa þó nokkuð jafnazt, þó að langt sé frá, að það sé hægt að kalla jafnt. Frakkar hafa gengið lengst í að ýta á eftir, að Vestur-Evrópuþjóðir taki sjálfstæðari stöðu gagnvart Bandaríkjunum en verið hefur. Þeir ganga raunar miklu lengra en það, því að stefna Frakka hefur undanfarin misseri mótazt öllu meira af hugmyndum De Gaulles um glæsileik og sjálfstæði Frakklands en að reyna að jafna metin gagnvart Bandaríkjamönnum.
Það er forvitnilegt, að ræðumaður Alþb. skuli lýsa hér nákvæmlega og af mikilli velþóknun sjónarmiðum Frakka í deilum þeirra við hin Atlantshafsbandalagsríkin, og var ekki annað á honum að heyra en hann hefði fyllstu samúð með þeim sjónarmiðum franskra stjórnarvalda, að það sé óþolandi, að eingöngu Bandaríkin og Sovétríkin hafi kjarnorkuvopn, heldur þurfi fleiri að hafa þau. Ég vona, að ég hafi misskilið hv. ræðumann, og það sé ekki skoðun hans, að ástæða sé til að dreifa kjarnorkuvopnum til fleiri þjóða en hafa þau í dag. Það getur verið erfitt fyrir smáþjóðir, og jafnvel það, sem einu sinni voru kölluð stórveldi, að una því, að tvö risaveldi á þessari litlu jarðkringlu hafi gnægð kjarnorkuvopna. Ég hygg þó, að það sé betra, að þau hafi þessi vopn aðeins tvö en að þessi sömu ógnarvopn dreifist á margar hendur. Þá fyrst verður hætta á, að eitthvað af þessum sprengjum springi og valdi tjóni, þegar ýmis minni ríki, sem minni ábyrgð bera, komast yfir sprengjurnar.
Þegar Atlantshafsbandalagið var stofnað, stóðu Íslendingar andspænis mikilli ákvörðun, um það hvort þeir ættu að ganga í bandalagið eða ekki. Við höfum enn heyrt talað um það af mikilli vanþóknun, að Ísland skuli leyfa sér að ganga í það, sem kallað er hernaðarbandalag. Að sjálfsögðu er hernaður og allt, sem honum tilheyrir, fjarlægt okkur, vegna þess að við höfum verið vopnlaus þjóð í margar aldir. En ef við viljum vera sjálfstæð þjóð, verðum við að líta á þetta af raunsæi. Við verðum að gera okkur ljóst, að svo að segja allar aðrar þjóðir eru vopnaðar. Þær hafa vopn til að geta gripið til þeirra, ef þær geta ekki leyst deilumál sín og náð tilgangi sínum í utanríkismálum á annan hátt. Við verðum að búa eins og á bæ er títt sagði Jón Sigurðsson einhvern tíma, undan því verður ekki komizt. Ég tel, að við Íslendingar verðum að horfast í augu við það, að við getum ekki hjá því komizt að ganga í ýmiss konar samtök, þar sem hernaður kemur til sögunnar, og er þar fyrst að nefna sjálfar Sameinuðu þjóðirnar, sem eru, eins og hv. utanrrh. benti á í framsögu sinni, fyrst og fremst hernaðarbandalag sigurvegaranna úr annarri heimsstyrjöldinni. Megintilgangur Sameinuðu þjóðanna er að beita vopnum gegn hverri þeirri þjóð, sem vogar sér að gera árás á aðra. Það má rekja nánar, ef mönnum sýnist svo, hvernig það hefur komið fram, að Sameinuðu þjóðirnar eru að verulegu leyti hernaðarbandalag. Hitt er svo annað mál, að þjóð eins og við Íslendingar sinnir meira öðrum þáttum í starfi þeirra, og við eigum engar óskir heitari en hernaðarhlutinn fari minnkandi, en annað samstarf vaxandi.
Eins er með öryggismálin í nágrenni við okkur. Svæðabandalög eru leyfð samkvæmt sáttmála Sameinuðu þjóðanna og hafa verið mynduð víða í heiminum. Þegar þær þjóðir, sem við búum í nágrenni við, telja sig þurfa að taka höndum saman til að tryggja öryggi sitt, þá er erfitt fyrir okkur Íslendinga að stinga höfði í sandinn.
Við höfðum gert okkur vonir um það eftir 1944, þegar við endurreistum lýðveldið, og í lok ófriðarins, að Sameinuðu þjóðirnar mundu nægja til að veita okkur og öðrum þjóðum, sem við erum sambærilegir við, það öryggi, sem við óskum eftir. En reynslan sýndi, að Sameinuðu þjóðunum tókst þetta ekki og tekst það ekki enn, þó að við getum vonað, að það muni takast í framtíðinni. Í öðru lagi vissum við af reynslu, að hlutleysi mundi ekki duga okkur, heldur kalla yfir okkur þær hættur, sem við vildum allra helzt forðast. Ef við værum hlutlausir, allslausir og einir, þegar til ófriðar drægi, ef svo hörmulega kynni að fara, þá má heita öruggt, að stríðsþjóðir mundu keppast um að komast hingað, og við mættum þakka fyrir, ef þeim ekki lenti saman einmitt á þessum hólma. Í þriðja lagi sýndi síðasti ófriður, að lega Íslands er þannig, að við getum ekki látið sem við vitum ekki af nágrenni við aðrar þjóðir eða þýðingu landsins hernaðarlega og fyrir samgöngur á friðsamlegan hátt.
Til viðbótar við þetta má nefna, að það er mikil fjarstæða, að lítil þjóð eigi að forðast að ganga í alþjóðleg samtök. Þvert á móti held ég, að lítil þjóð hafi miklu meira við það að vinna að vera í alþjóðlegum samtökum en þær stærri, sérstaklega þegar um er að ræða litla þjóð, sem er fyrrverandi nýlenda, eins og við erum, og unir ekki þeirri skipan mála, sem hún hefur hlotið í arf, heldur vill breyta heiminum í kringum sig, eins og við höfum viljað gera til dæmis í landhelgismálum. Þegar við höfum mál að sækja gagnvart öðrum þjóðum, er okkur hagur að því að vera í félagsskap, því að við getum oft fundið í félaginu einhverja, sem eru sammála okkur og við getum beitt gegn þeim, sem eru á móti okkur. Þessa höfum við nú þegar notið í mun ríkara mæli en menn gera sér almennt grein fyrir, og nægir að benda á meðferð landhelgismálanna í því sambandi. Það var því eðlilegt fyrir Íslendinga, þó að það væri mikið skref, að ganga í Atlantshafsbandalagið, þegar það var stofnað.
Við heyrðum það fullyrt hér fyrr í dag, að það hefði aldrei verið borið undir íslenzku þjóðina, hvort þetta hafi verið rétt ákvörðun hjá meiri hluta Alþ. Ég vil mótmæla þessari skoðun, vegna þess að í henni kemur fram vanmat, að ég ekki segi fyrirlitning, á því stjórnskipulagi, sem við höfum. Það vildi meira að segja svo til, að það voru alþingiskosningar haustið 1949, aðeins fáeinum mánuðum eftir að við gengum í Atlantshafsbandalagið. Það er því ómögulegt að segja, að þjóðin hafi ekki, mjög fljótlega eftir að þessi ákvörðun var tekin, fengið tækifæri til þess að kveða upp sinn dóm. Tækifærin komu hvert af öðru í kosningunum þar á eftir. Enginn getur neitað því, að Atlantshafsbandalagsmál, sérstaklega varnarliðið, skiptu verulegu máli í kosningunum 1953, og það eru, að ég hygg, einu kosningarnar, þegar þeir flokkar, sem studdu og styðja aðild Íslands að Atlantshafsbandalaginu, fóru niður fyrir 80% kjósenda. Þessi mál voru mjög til umræðu í kosningunum 1956, og síðan hafa kosningar verið hverjar á fætur öðrum. Samt sem áður hefur þjóðin ekki valið þann kost að taka fylgi sitt frá þeim flokkum, sem stóðu að ákvörðuninni um aðild Íslands að Atlantshafsbandalaginu. Það er því ekki hægt að draga aðra ályktun af stjórnmálaþróun síðustu 20 ára í þessu landi en þá, að þjóðin hafi hvað eftir annað staðfest með miklum meiri hluta, sem við allar kosningar nema einar var yfir 80%, að hún er sammála þeirri ákvörðun Alþ., að Ísland skyldi verða aðili að Atlantshafsbandalaginu.
Hv. 6. þm. Reykvíkinga varpaði fram þeirri spurningu, hvers vegna ofurkapp var lagt á, að Ísland gengi í Atlantshafsbandalagið 1949. Þegar þrír ráðherrar höfðu farið til Washington og rætt við ráðamenn þar, aðallega við Dean Acheson utanríkismálaráðherra, og Ísland tók ákvörðun eftir miklar umræður, þá kom greinilega í ljós, hvaða hernaðarlegar hugmyndir stofnendur bandalagsins höfðu í sambandi við Ísland. Það fylgdi með yfirlýsingum um þessi mál, að bandalagið gerði sér vonir um að fá, ef til nýs ófriðar drægi, svipaða aðstöðu á Íslandi og það hafði í síðasta heimsófriði. Á þeim grundvelli voru gefnar þær yfirlýsingar, sem þá voru birtar.
Hv. þm. fullyrti, að Bandaríkjamenn hafi frá upphafi ætlað sér að fá herstöðvar hér á Íslandi og framkvæmt þá áætlun á liðlega 2 árum, eftir að bandalagið var stofnað. Ég tel, að þetta sé alröng túlkun, og skal færa nokkur rök að því. Það hafa verið til í sögunni mörg varnarbandalög, og þau hafa undantekningarlaust byggzt á þeirri grundvallarreglu, að sé ráðizt á einn aðila í bandalaginu, jafngildi það árás á þá alla og komi þá hinir til hjálpar. Yfirleitt hefur verið talið, að þetta loforð um hjálp, ef á einhvern yrði ráðizt, væri nóg til að hindra hugsanlega árás. Þegar Atlantshafsbandalagið var stofnað, höfðu menn þessar sömu hugmyndir, hvernig bandalagið ætti að starfa. Þegar bandalagið varð til, var ekki sett upp allt það varnarskipulag, sem síðar hefur orðið til. Það var ekki fyrr en nokkru síðar, þegar líður á árið 1950, að upp komu hugmyndir um það í V.-Evrópu, að þessi gamla tegund af bandalagi dygði ekki lengur. Hv. 6. þm. Reykvíkinga sýndi Frökkum mikið traust í máli sínu og virtist taka mark á því, sem þeir segja. En það vill svo til, að það voru einmitt Frakkar, sem tóku forystu um það innan Atlantshafsbandalagsins 1950, að bandalagið gerði meira en að gefa þetta undirskrifaða loforð um gagnkvæma hjálp. Á fundum Atlantshafsbandalagsins í London í maí 1950, lagði Robert Schuman, sá mikilsvirti utanrrh., sem allra manna mest hefur unnið að því að sameina V.-Evrópu, fram kröfu við Bandaríkjamenn um að gera þetta bandalag að veruleika. Upp frá því hófust viðræður um það, sem í fyrstu var kallað „sameiginleg herstjórn“. Allmörgum mánuðum síðar varð þessi sameiginlega herstjórn að veruleika, og þá fer fyrst að komast skriður á að mynda það skipulag sameiginlegra varna með herstjórn, sem er tilbúin á friðartímum, er einkennir Atlantshafsbandalagið. Þessi hugmynd fæddist ekki fyrr en eftir að Atlantshafsbandalagið er orðið til.
Um svipað leyti og þessi breyting varð á skipun Atlantshafsbandalagsins og Bandaríkjamenn juku mjög herstyrk sinn í V.-Evrópu fyrst og fremst samkvæmt kröfu Frakka, þá þótti líka eðlilegt að styrkja varnir Grænlands, Íslands og Azoreyja á Atlantshafi. Þessir þrír staðir fylgdust nokkurn veginn að, og finnst mér það gefa til kynna, að Bandaríkjamenn hafi ekki haft í huga, að þátttaka Íslands væri eingöngu til þess gerð, að þeir gætu komið sér hér upp hernaðarbækistöð.
Ef íhugað er, hver raunveruleg hernaðaraðstaða Íslands hefur verið og er, komast menn fljótlega að þeirri niðurstöðu, að gagnvart nágrönnum okkar á Bretlandseyjum og í N.-Ameríku er hernaðarleg aðstaða landsins fyrst og fremst neikvæð. Þeir hafa, eins og hv. 6. þm. Reykv. benti á, fjölmargar aðrar bækistöðvar við Atlantshaf, sem þeir geta notað til hvers, sem þurfa þykir. En þeir hafa áhuga á því, að hugsanlega fjandsamlegar þjóðir nái ekki aðstöðu á Íslandi. Þegar Winston Churchill kom til valda, rétt um það leyti sem brezki herinn kom hingað og rauf hlutleysi Íslands með hernámi, sagði Churchill ekki, að það væri kominn her til Íslands til að verja landið, heldur sagði eitthvað á þá leið, að nú hefði verið hindrað, að Þjóðverjar gætu tekið landið.
Það hefur verið fullyrt af að a. m. k. tveimur hv. ræðumönnum, að hernaðarleg þýðing Íslands hafi minnkað. Ísland hafi verið mikilvæg flugstöð milli Ameríku og Evrópu, en nú geti flugvélarnar flogið alla þessa leið án viðkomu. Síðan hafi komið eldflaugar og kjarnorkuvopn, sem breyti þessu öllu. Það er rétt, að hernaðarþýðing sú, sem mest var fyrr á árum, hefur minnkað. Ísland hefur ekki sömu þýðingu sem lendingarstöð flugvéla; það hefur ekki sömu þýðingu fyrir samgöngur milli N.-Ameríku og V.-Evrópu. En það hafa komið önnur atriði í staðinn, sem ég met svo, að hernaðarleg þýðing landsins sé ekki minni en hún hefur verið.
Fyrsta atriðið er, að þegar eldflaugar komu í vaxandi mæli til sögunnar, jókst þýðing radarvarna mjög verulega, og Atlantshafsríkin byggðu samfellda keðju radarvarnastöðva yfir N.-Ameríku, Grænland, Ísland og Færeyjar til Skotlands. Þetta er nýtt atriði, sem hefur mjög mikla hernaðarlega þýðingu, og Ísland er hlekkur í þessari keðju. Mátti heyra það, t. d. á ræðu hv. 4. þm. Reykv., Þórarins Þórarinssonar, hve radarstöðvarnar eru mikill þáttur í starfi varnarliðsins.
Í öðru lagi hafa komið til skjalanna nýjar tegundir kafbáta, sem flytja kjarnorkuflugskeyti. Þessir kafbátar eru nú orðnir þýðingarmikill þáttur í árásargetu risaveldanna, bæði Sovétríkjanna og Bandaríkjanna. Getur hver maður séð með því að líta á kort, að bæði risaveldin hljóta að senda þessa kafbáta um sundin á milli Grænlands og Íslands og Íslands, Færeyja og Bretlandseyja. Þetta veitir Íslandi óhjákvæmilega aukna hernaðarlega þýðingu, og þarna er þýðing Íslands í beinu samhengi við hin ægilegu árásarvopn risaveldanna. Sem betur fer hefur engum komið til hugar að nota landið sem bækistöð, enda er þess ekki þörf. Lega þess í N.-Atlantshafi gerir óhjákvæmilegt, að landið hefur fengið nýja þýðingu í sambandi við kafbátaflotana. Eftir því sem mér skilst, munu Sovétríkin eiga um 50 slíka kafbáta og Bandaríkin líklega um 75, svo að hér er um allmikinn flota að ræða báðum megin.
Í þriðja lagi vil ég benda á hina miklu flotauppbyggingu Sovétríkjanna, sem hefur gerzt á tiltölulega fáum árum. Sovétríkin hafa komið sér upp geysiöflugum nútímaflota, sem hefur látið til sín taka á öllum heimshöfum í stórvaxandi mæli. Þegar við lítum á ástandið í heiminum, þar sem tvö risaveldi, Sovétríkin annars vegar og Bandaríkin hins vegar, standa hvort andspænis öðru og tefla hvort við annað með heimsfriðinn að veði, þá sjáum við, að eftir síðari heimsstyrjöldina voru Bandaríkin mikið flotaveldi, en Sovétríkin áttu mjög lítinn flota. Það er allra hluta eðlilegast, að Sovétríkin hlutu að reyna að jafna þessi met. Það eru þau nú að gera. Mest hefur borið á flotauppbyggingu Sovétríkjanna á Miðjarðarhafi. Þar hefur Rauði flotinn engar fastar bækistöðvar utan Svartahafs, en þar eru svokölluð hlutlaus ríki eins og Alsír og Egyptaland, sem hafa léð flotanum meiri eða minni aðstöðu í höfnum. Þessi flotauppbygging hefur haft meiri háttar áhrif á valdajafnvægi í Mið-Austurlöndum, þar sem nú er talin mest hætta á, að heimsfriðurinn kunni að rofna.
Allt bendir til þess, að nákvæmlega hið sama sé að gerast á N.-Atlantshafi og hefur þegar gerzt á Miðjarðarhafi. Sovétríkin senda herskip sín út á hafið í vaxandi mæli. Þau hafa haldið flotaæfingar á milli Íslands og Noregs. Þau hafa nú nýlega sent herskip, sem sigldi umhverfis Ísland og lögðu greinilega áherzlu á, að eftir því væri tekið. Þá hefur könnunarflug Sovétríkjanna yfir N.-Atlantshaf og nágrenni Íslands aukizt verulega.
Eins og ég sagði áðan, er þessi þróun mála eðlileg, og við henni mátti búast. Það er raunar ekki nýtt, að Sovétríkin séu mikið sjóveldi, því að alla 19. öldina voru þau 3. mesta flotaveldi á jörðinni, en þau hlutu að gera ráðstafanir gegn hinum mikla flotastyrk Bandaríkjamanna. Þessar gagnráðstafanir koma fram á því hafi, N.-Atlantshafinu, sem liggur á milli þéttbýlustu og mestu iðnaðarríkja veraldarinnar, en einmitt á þessu svæði erum við Íslendingar. Hér er í uppsiglingu einn þáttur í valdaátökum Sovétríkjanna annars vegar eða Varsjárbandalagsins og Bandaríkjanna hins vegar eða Atlantshafsbandalagsins. Þessi átök gerast í næsta nágrenni við okkur, og það er ómögulegt að halda fram, að þetta skipti Íslendinga engu máli.
Ég tel, að ég hafi sýnt fram á, að veigamikil atriði hafi komið fram á síðustu árum, sem hafa aukið aftur hernaðarlega þýðingu Íslands, jafnframt því sem hin gömlu atriði, sem giltu í síðasta heimsófriði, hafa haft minni þýðingu.
Á það er bent, að nú sé hægt að eyðileggja Keflavíkurflugvöll og önnur varnarmannvirki hér á landi með flugskeytum úr kafbátum eða annars staðar að. Ég vil minna menn á, að það er enginn staður á allri jörðinni, sem ekki er hægt að skjóta á flugskeytum í dag. Það er ekkert sérstakt við Reykjanesið, hvað þetta snertir.
Þegar rætt er um varnarmál Íslands, hættir mönnum oft til að tala um hugsanlega innrás í landið. Meðan heimsstyrjöldin var enn fersk í minnum manna, var ef til vill ekki óeðlilegt, að menn hugsuðu þannig. Þó hygg ég, að það sé rétt, sem kom fram hjá hv. 6. þm. Reykv., að slíkir viðburðir verði að teljast harla ólíklegir. Við verðum að gera ráð fyrir, að einhverjar aðvaranir mundu berast, áður en til slíkra ótíðinda drægi, og mjög þyrfti heimsástand að versna frá því, sem nú er, ef nokkrum manni ætti að detta innrás alvarlega í hug.
En hver er þá tilgangur þeirra, sem mest berjast fyrir því, að draga Ísland út úr Atlantshafsbandalaginu, og hvað ætla þeir sér? Þeir ætla sér að gera Ísland hlutlaust og algjörlega varnarlaust. Ég get ímyndað mér, að ef þeim tækist að koma Íslandi á einhvern hátt út úr Atlantshafsbandalaginu og gera það hlutlaust, mundi sú stjórn, sem stæði að slíkri breytingu í utanríkismálum, fljótlega þurfa að sýna hlutleysið í verki með því að leyfa sovézkum herskipum að koma í íslenzkar hafnir og fá hér sömu þjónustu og herskip Atlantshafsríkjanna hafa fengið undanfarin ár; geta tekið hér olíu og vistir og fengið smávægilegar viðgerðir. En það er slík aðstaða, sem Rauði flotinn er einmitt að leita eftir svo að segja um allan heim í dag. Yfirflotaforingi hans var í fyrra í heimsókn í Indlandi einmitt til þess að reyna að fá slík réttindi. Þetta væru að vísu ekki meiri réttindi en brezk og norsk og bandarísk herskip hafa hér í dag, svo að það yrði enginn vandi að telja mönnum trú um, að þetta væri aðeins jafnræði, þegar að því kæmi. En hlutlaust Ísland, þar sem slíkar heimsóknir færu að gerast tíðar, mundi þegar hafa þau áhrif á nágrannalönd okkar, að þessu yrði mætt með aukinni uppbyggingu af hálfu NATO-ríkjanna, eftir að við værum farnir úr bandalaginu. Þau mundu styrkja bækistöðvar í Grænlandi og Færeyjum og Skotlandi og jafnvel auka herskipastyrk sinn hér á hafinu. Þegar Atlantshafsbandalagið tæki að auka viðbúnað í kringum Ísland, mundi Varsjárbandalagið auðvitað svara í sömu mynt. Þannig gæti ég vel ímyndað mér, að án þess að um dramatísk stórtíðindi yrði að ræða, væri Ísland búið að kalla fram vígbúnaðarkapphlaup á hafinu í kringum okkur og hernaðarlega spennu. Ég hygg, að það sé varla hægt að hugsa sér neitt, sem við höfum minni not fyrir en slíkt ástand í kringum okkur.
Þessar vangaveltur gefa mönnum dálitla hugmynd um það, hvers konar munur er á því fyrir þjóð eins og okkur að hafa vinsamlegt samband um öryggis- og varnarmál við þær þjóðir, sem eru okkur skyldastar og búa næst okkur, eða á hinn bóginn að brjótast út úr slíkum samtökum, taka aðra stefnu en grannar okkar, vinir og frændur fylgja og tefla það tafl, sem því mundi fylgja.
Atlantshafsbandalagið mun vafalaust halda áfram störfum. Það er þegar ljóst. Það mun halda áfram störfum vegna þess, að það hefur náð tilgangi sínum undanfarin 20 ár. Það hefur skapað jafnvægi á móti Varsjárbandalaginu í Evrópu, og þetta jafnvægi er undirstaða friðar og velmegunar, sem verið hefur í álfunni. En við skulum minnast þess, að alvarlegustu öryggisvandamálin í Evrópu, sérstaklega í Mið-Evrópu, eru enn þá óleyst. Þýzkalandsmálið hefur í marga mannsaldra verið eins konar púðurtunna. Þýzkalandi er enn skipt í tvö ríki, en Berlín er eins og við vitum, og einmitt þessa dagana eru deilur og vandamál þar ytra. En vegna þess að kjarninn í öryggismálum meginlands Evrópu, sem er Þýzkaland, skipan þess og landamæri, er óleyst mál, þá væri fásinna að leysa upp þau tvö bandalög, sem hafa skapað jafnvægi á þessu svæði, a. m. k. þangað til við höfum annað og betra öryggiskerfi til að taka við.
Viðburðirnir í Tékkóslóvakíu sýndu að vissu leyti veikleika Varsjárbandalagsins, eins og hv. 6. þm. Reykv. benti á. En þeir sýndu líka styrk þess. Þeir sýndu, hve vald Sovétríkjanna yfir þessu bandalagi er mikið. Og þeir sýndu, að ákveðinn vilji og ákveðin stefna ráða í þessu bandalagi. Þetta er styrkur. Þeir sýndu þann styrk, að Sovétríkin gátu fengið smáþjóð eins og Ungverja, þjóð eins og Pólverja með sína sögu að baki, til að ráðast inn í Tékkóslóvakíu. Þetta sýnir styrk, og má draga þá ályktun af Tékkóslóvakíu, að viðburðirnir þar séu enn ein sönnun fyrir því, hversu varhugavert væri að leysa upp það öryggisjafnvægi, sem er í Evrópu, a. m. k. þangað til annað betra sér dagsins ljós. Ég tel því eðlilegt, að Atlantshafsbandalagið starfi áfram og Íslendingar verði áfram aðilar að því.
Ég vil að lokum minna á eina staðreynd, sem ég held, að hafi ekki komið fram í kvöld eða hefur þá farið fram hjá mér. Hún er sú, að eftir að 20 ára tímabilið er liðið, sem bundið var í Atlantshafssamningnum, geta þjóðirnar á hverju ári sagt samningnum upp. Það kemur ekki annað 20 ára tímabil, heldur eru nú möguleikar til uppsagnar á hverju ári. Að sjálfsögðu verðum við að hafa vakandi auga á því, hvað þátttaka okkar þýðir. Við verðum að gæta hvers smáatriðis í sambandi við varnarliðið, og einmitt í sambandi við það tel ég, að þessi nýja uppsagnaraðstaða veiti okkur visst öryggi. Ef þróun mála hér snýst til verri vegar, eigum við þessa útleið.
Ég tel eðlilegt, að við endurskoðum þessi mál í huga okkar og rannsökum þau nálega stöðugt. Það hefur komið fram, að ríkisstj. hefur pert þetta og vill gera áfram. Ég tel rétt að íhuga vel till. framsóknarmanna um, að Íslendingar taki smám saman að sér meira og meira af störfum varnarliðsins. Þetta eru till., er Alþfl.menn fluttu á sínum tíma, eins og hér var bent á. Hins vegar vil ég minna á, að það er alls ekki eins einfalt mál og menn e. t. v. halda að taka við störfum varnarliðsins. Ræðumaður Framsfl. benti sérstaklega á það, að við ættum sjálfir að stjórna radarstöðvunum og reka þær. Ég veit ekki, hvort hann gerir sér ljóst, að radarstöðvar eins og þær, sem hér eru, ná ekki tilgangi sínum nema til staðar séu orrustuflugvélar eða aðrar jafnhraðfleygar flugvélar til þess að fara upp í loftið og athuga, hvað það er, sem radartækin sýna, ef eitthvað óvenjulegt kemur í ljós. Ef um geysistóran flugflota væri að ræða, sem allt í einu kæmi yfir landið, væri ekki vafamál, hvað væri á ferðinni. Það, sem gerist og hefur gerzt nú undanfarin ár, er, að öðru hverju koma fram á radartækjunum ókunnar flugvélar. Hér eins og um allan heim, bæði austan og vestan járntjalds, fara eftirlitsflugvélar á loft til að athuga, hvað er á ferðinni. S. l. ár þurftu orrustuflugvélarnar á Keflavíkurflugvelli að fara að meðaltali á loft annan hvern dag til að kanna slíka hluti. Og það kom í ljós, að flug sovézkra flugvéla hafði aukizt stórkostlega yfir landinu miðað við árin á undan. Þetta hefði ekki sézt í radartækjunum einum, heldur var aðeins hægt að komast að raun um það með gæzluflugvélum. Ég hygg, að framsóknarmenn muni, eins og fleiri, hika við, að Íslendingar taki að sér þann hluta af starfinu, sem felst í því að fljúga orrustuflugvélum og athuga, hvað það er, sem kann að vera á leiðinni inn yfir landið. Með því að kanna, hvað radartækin sýndu, kom í ljós þessi aukni rússneski áhugi á Íslandi. Það er pólitísk staðreynd, sem við þurfum að vita um og er hluti af því, sem ég nefndi áður, hinni auknu starfsemi Sovétríkjanna á hafinu. Ég álít, að það væri mjög óheppilegt, ef við vissum ekki um slíka þróun, sem er að gerast rétt í kringum okkur, án þess að menn þurfi að gera of mikið úr því, eða hræðast á nokkurn hátt.
Hér komum við enn að höfuðvandamáli íslenzkra öryggismála, því, sem hefur gert þau erfið viðfangs allt síðan Íslendingum fyrst kom til hugar að gerast sjálfstæð þjóð. En það er vopnleysi okkar. Vopnleysið gerir þetta vandamál eins erfitt úrlausnar og raun ber vitni. Að vísu er rétt, að við séum raunsæir í þessu eins og öðru og gerum okkur það ljóst, að við erum ekki alveg vopnlausir, þó að við þykjumst vera það. Það eru um 400 lögreglumenn á Íslandi, en mikill hluti þeirra er þjálfaður í meðferð léttra skotvopna, og þau skotvopn eru til, þótt þau hafi sem betur fer aldrei verið notuð nema við æfingar. Og það eru rúmlega 100 manns í landhelgisgæzlu okkar, en af þeim eru allir yfirmenn á skipunum þjálfaðir í meðferð skotvopna.
Ég nefni þetta aðeins til þess að benda á, að hér er um flókið mál að ræða. Við verðum að skoða það ofan í kjölinn og megum ekki hafa neina hleypidóma, því að við verðum í framtíðinni að beita raunsæju mati á stöðu okkar í varnar- og utanríkismálum. Við verðum að taka ákvarðanir með skynsamlegum niðurstöðum af þeim staðreyndum, sem við komumst að sjálfir. Við höfum gert þetta hingað til, tekið raunhæfar, þýðingarmiklar ákvarðanir, og ég hygg, að þeim ríkisstj., sem setið hafa undanfarin 20 ár, hafi tekizt að sjá öryggi þjóðarinnar vel borgið. Ég vona, að það takist einnig í framtíðinni.