24.02.1969
Sameinað þing: 31. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 2122 í B-deild Alþingistíðinda. (2179)
Utanríkismál
Jónas Árnason:
Herra forseti. Ég vil, vegna þess að ég hef venjulega tekið þátt í umr. um utanríkismál hér á hinu háa Alþ. aðeins leyfa mér að segja þetta, áður en þessari umr. lýkur:
Ég hafði hugsað mér að halda hér ræðu, alllanga ræðu í kvöld, en ég hef verið að bíða eftir því, að fjölgaði í þingsalnum — árangurslaust. Hér hafa í kvöld, — ég vildi gjarnan taka það fram, til þess að það komist 1 þingskjöl, þingtíðindi — hér hafa í kvöld, meðan til umr. hafa verið örlagaríkustu mál Íslendinga og alls mannkynsins, verið staddir á þingfundi þetta 9–11 þm. Og ég verð að segja okkur Alþb.-mönnum til hróss, að þriðjungur þessara þm. er okkar lið. Það væri betur, að hlutfallið væri oftar þannig, t. d. við þýðingarmestu atkvæðagreiðslur. Ég hef, eins og ég sagði, hætt við að flytja þá ræðu, sem ég hafði hugsað mér að flytja hér í kvöld, það verður tækifæri til þess síðar. En ég má til með að taka það fram, svo að það komist líka í þingskjöl og þingtíðindi, að hér hefur verið allmargt manna á áheyrendapöllum, og má mikið vera, ef einhverjir þeirra eiga ekki meira erindi hingað niður á stólana en þeir, sem hafa hér atkvæðisrétt og málfrelsi.