17.12.1968
Neðri deild: 31. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 2147 í B-deild Alþingistíðinda. (2193)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir

Jónas Árnason:

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðh. upplýsingarnar. Hann segir, að þessu hafi verið kippt í lag. Það er að vísu ekki ljóst, á hvern hátt þessu hefur verið kippt í lag. Jafnframt segir hann, að þessi maður sé nýr og hann hafi gert þetta af ókunnugleika einum. Ég vil þá beina því til hæstv. utanrrh., að hann geri yfirmönnum á Keflavíkurflugvelli ljóst í eitt skipti fyrir öll, að við Íslendingar ætlum okkur að halda áfram að tala móðurmál okkar hver við annan.