16.04.1969
Sameinað þing: 40. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 2169 í B-deild Alþingistíðinda. (2209)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir

Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. Í tilefni af ummælum hv. þm. um heræfingar, sem fyrirhugaðar eru, er það að segja, að þær hafa verið leyfðar og fara fram með fullu samþykki og fullu leyfi réttra íslenzkra stjórnarvalda, og munu verða framkvæmdar undir löglegu eftirliti þeirra. Að því er snertir furðu hans á því, að íslenzka ríkisstj. skuli ekki hafa vitað um töku erlends kafbáts á einhverju magni af olíu í Hvalfirði nú í morgun, þá geri ég ráð fyrir því, að ástæða þess sé einvörðungu sú, að hér sé um svo einfaldan atburð að ræða, að hlutaðeigandi embættismenn, sem um málið hafi fjallað, hafi ekki talið ástæðu til þess að gera ríkisstj. grein fyrir málinu, enda eins og ég sagði áðan algengt, að olía sé afgreidd úr þeim olíugeymum, sem um er að ræða. Vitneskjuskortur minn eða annarra ráðh. — ég veit ekki, hvort öðrum ráðh. hefur verið kunnugt um þetta — vitneskjuskortur minn, sem eigandi að hafa samband við utanrrn. varðandi slík mál sem stendur eða það við mig, geri ég ráð fyrir, að stafi af því einu, að hér sé talið um svo smávægilegan og lítilfjörlegan atburð að ræða, að ekki hafi þótt ástæða til þess að trufla viðtalstíma ráðh. eða matartíma hans til þess að skýra honum frá því, sem hér hefur verið að gerast. En ég endurtek það, að ég skal að sjálfsögðu skoða, hvað hér hefur verið á ferðinni og gera þm. og, ef ástæða þykir til, þingheimi grein fyrir málavöxtum.

Hér er að sjálfsögðu hvorki staður né stund til þess að hefja almennar umr. um utanríkismál, en að gefnu tilefni frá hv. þm. skal ég taka fram, að ríkisstj. er reiðubúin, er mjög reiðubúin, til þess hvenær sem er að efna til almennra umr. um utanríkismál, og þarf ekki annað en ósk um það að koma fram frá þessum hv. þm. eða öðrum þm., og þá mun ríkisstj. samþykkja það og óska eftir því gagnvart hæstv. forseta, að til slíkra umr. verði efnt. Við höfum ekkert að óttast í þeim efnum og engu að leyna.