17.04.1969
Neðri deild: 78. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 2170 í B-deild Alþingistíðinda. (2210)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir

Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. Ég bið hv. þm. enn eins og í gær afsökunar á því, hvað mér liggur lágt og illa rómur sökum lasleika í hálsi. En ástæða þess, að ég kveð mér hljóðs, er sú, að á fundi sameinaðs Alþingis í gær var beint til ríkisstj. fsp. um komu bandarísks kafbáts til Hvalfjarðar til þess að taka olíu. Fyrirspyrjandi gaf í skyn, að hér væri um óvenjulegan atburð að ræða og bæri sérstakan vott um hagnýtingu Hvalfjarðar í sambandi við stríðsundirbúning. Mér var laust eftir hádegi í gær ekki kunnugt um þennan atburð og gat því sagt það eitt, að ég skyldi athuga þetta mál, en gerði hins vegar ráð fyrir því, að hér væri um venjulega afgreiðslu á eldsneyti til erlends herskips að ræða, en um nauðsynleg formsatriði í því sambandi fjölluðu embættismenn án þess að gera ráðh. aðvart.

Athugun málsins hefur leitt í ljós, að tilgáta mín var rétt, og er það nánast spaugilegt, að atburður sem þessi sé gerður að sérstöku umræðuefni á Alþingi Íslendinga. Í varnarsamningnum milli Íslands og Bandaríkjanna frá 1951 er gert ráð fyrir því, að skip varnarliðsins geti fengið eldsneyti á Íslandi, og hefur mér vitanlega aldrei verið fundið að þessu ákvæði sérstaklega, svo sjálfsagt sem það er út af fyrir sig. Síðan árið 1951 hefur Olíufélagið h.f. geymt fyrir varnarliðið varabirgðir af olíu í olíustöðinni í Hvalfirði. Herskip hafa komið í Hvalfjörð að jafnaði einu sinni til tvisvar á ári frá þessum tíma. Auk þess hafa ýmiss konar herskip, þ. á m. kafbátar, verið afgreiddir í Reykjavíkurhöfn. Hefur brezki flotinn einnig samning við Olíufélagið h.f. um afgreiðslu á olíu, og aðrar þjóðir hafa samning við hin olíufélögin um afgreiðslu á olíu til herskipa sinna. Í samræmi við þá samninga, sem ég hef nú nefnt, og í framhaldi af hliðstæðum afgreiðslum á undanförnum áratugum var eldsneyti afgreitt frá Olíufélaginu h.f. í Hvalfirði til kafbáts á vegum varnarliðsins í gær. Kafbáturinn hafði fengið heimild íslenzkra stjórnvalda til þess að koma inn í íslenzka landhelgi, en herskip annarra þjóða verða jafnan að sækja um slíka heimild. Er því augljóst, að hér var ekki um neitt frávik að ræða frá fyrri reglum eða framkvæmd í þessum efnum. Nauðsynleg formsatriði voru afgreidd af hlutaðeigandi embættismönnum, og engin ástæða til þess að skýra ráðh. frá þeim.

Skip varnarliðsins hafa á grundvelli varnarsamningsins um langt árabil fengið afgreitt eldsneyti úr birgðastöðinni í Hvalfirði og í öðrum íslenzkum höfnum, kafbátar jafnt sem önnur skip. Eru því fullyrðingar um, að hér sé um einhverja stefnubreytingu að ræða af hálfu íslenzkra stjórnvalda í þessum efnum, algerlega úr lausu lofti gripnar.

Loks má geta þess, að samkv. alþjóðareglum fá öll erlend herskip nauðsynlega afgreiðslu í íslenzkum höfnum, hverrar þjóðar sem þau eru. Þannig var t.d. sovézkt herskip tekið til viðgerðar í skipasmíðastöð á Seyðisfirði fyrir fáum árum, og þótti engum tíðindum sæta. Það má og enn fremur geta þess t.d., að í fyrravor sótti pólskt herskip um leyfi til þess að koma inn í íslenzka landhelgi til þess að fá vatn og vistir, fékk að sjálfsögðu leyfið og var afgreitt í Reykjavíkurhöfn, án þess að fréttnæmt þætti. Ef hingað kæmi sovézkur kafbátur og óskaði eftir því að kaupa olíu af íslenzku skipafélagi, mundi honum eflaust verða veitt slík heimild. Högg það, sem reitt var til hér á Alþingi í gær, hefur því reynzt vindhögg af skýrustu gerð.