24.02.1969
Sameinað þing: 54. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 2195 í B-deild Alþingistíðinda. (2257)
Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa
forseti (SB):
Forseta hefur borizt svo hljóðandi bréf: „Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sótt þingfundi næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og, með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis, að óska þess, að 1. varamaður Sjálfstfl. í Reykjaneskjördæmi, Axel Jónsson fulltrúi, Kópavogi, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.
Matthías Á. Mathiesen,
1. þm. Reykn.“
Kjörbréf Axels Jónssonar hefur áður verið rannsakað, og býð ég hann velkominn til starfa í hv. þd.