26.02.1969
Sameinað þing: 33. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 2195 í B-deild Alþingistíðinda. (2258)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

forseti (BF):

Svo hljóðandi bréf hefur borizt: „Reykjavík, 25. febr. 1969.

Sigurður Bjarnason. 2. þm. Vestf., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sótt þingfundi næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og, með skírskotun til 138. gr. 1. um kosningar til Alþingis, að óska þess, að 1. varamaður Sjálfstfl. í Vestfjarðakjördæmi, Ásberg Sigurðsson bæjarfógeti, Reykjavík, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt.

Benedikt Gröndal,

forseti neðri deildar.

Til forseta sameinaðs Alþingis.“

Ásberg Sigurðsson bæjarfógeti, Reykjavík, hefur áður tekið sæti á Alþingi sem varamaður og kjörbréf hans verið rannsakað. Ég leyfi mér að bjóða hann velkominn til þingstarfa á ný.