03.03.1969
Efri deild: 53. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 2196 í B-deild Alþingistíðinda. (2261)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

forseti (JónÁ):

Svo hljóðandi bréf hefur borizt frá Karli Guðjónssyni, 6. þm. Sunnl.:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sótt þingfundi næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og, með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis, að óska þess, að 1. varamaður Alþb. í Suðurlandskjördæmi, Björgvin Salómonsson skólastjóri, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“

Kjörbréf Björgvins Salómonssonar hefur áður verið rannsakað, og tekur hann því sæti hér í hv. d. samkv. þessu bréfi. Ég býð hann velkominn til starfa.