09.04.1969
Sameinað þing: 39. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 2197 í B-deild Alþingistíðinda. (2265)
Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa
Forseti (BF):
Svo hljóðandi bréf hefur borizt: „Reykjavík, 8. apríl 1969.
Formaður þingflokks Alþfl. hefur í dag ritað mér á þessa leið:
„Þar sem Emil Jónsson, 3. þm. Reykn., mun ekki geta sótt þingfundi næstu vikur vegna veikinda, leyfi ég mér samkv. beiðni hans að biðja um fjarvistarleyfi og, með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis, að óska þess, að 1. varamaður Alþfl. í Reykjaneskjördæmi, Ragnar Guðleifsson kennari, taki sæti á Alþingi í forföllum hans.“
Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um, að þér látið fram fara í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.
Sigurður Bjarnason,
forseti neðri deildar.
Til forseta sameinaðs Alþingis.“
Fyrir liggur kjörbréf Ragnars Guðleifssonar, útgefið af yfirkjörstjórn Reykjaneskjördæmis, og vil ég biðja hv. kjörbréfanefnd að taka kjörbréfið til rannsóknar. Á meðan verður gert fundarhlé. — [Fundarhlé.]