29.10.1968
Neðri deild: 7. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 224 í B-deild Alþingistíðinda. (228)
22. mál, stofnskrá Alþjóðagjaldeyrissjóðsins
Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):
Herra forseti. Í júnímánuði 1944 var haldinn merkur og örlagaríkur fundur í Bretton Woods í Bandaríkjunum. Þar gerðu ýmsar þjóðir, sem fulltrúa áttu á fundinum og þar á meðal Ísland, samþykkt um að koma á fót alþjóðagjaldeyrissjóði til þess að stuðla að jafnvægi og öryggi í gjaldeyris- og peningamálum aðildarríkjanna og enn fremur koma á fót alþjóðabanka. Í desember 1945 var íslenzku ríkisstj. heimilað af Alþ. að staðfesta, að Ísland gerðist stofnaðili að sjóðnum og hefur það verið aðili að honum síðan ásamt Alþjóðabankanum. Samkv. l. um Seðlabanka Íslands, sem sett voru 1961, er Seðlabanki Íslands nú fjárhagslegur aðili að Alþjóðagjaldeyrissjóðnum fyrir Íslands hönd, og fjallar Seðlabankinn nú um öll viðskipti Íslands og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Hlutverk Alþjóðagjaldeyrissjóðsins er m.a. að stuðla að alþjóðasamvinnu á sviði peninga- og gjaldeyrismála, að stuðla að vexti frjálsra alþjóðaviðskipta og stöðugu gengi gjaldeyris. Í þessu skyni getur sjóðurinn veitt aðildarríkjum fjárhagsaðstoð, en þau ríki, sem eiga aðild að Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, leggja fram í sameiginlegan sjóð hluta af gulleign sinni, hinn svo nefnda gullkvóta, og einnig þrefalda fjárhæð hans í eigin gjaldeyri, og er sú fjárhæð geymd í seðlabanka aðildarríkisins. Ef aðildarríki á í gjaldeyriserfiðleikum, getur það fengið yfirdráttarlán hjá sjóðnum, og er venjan sú, að þau endurgreiðast á 3–5 árum. Framlag Íslands til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins er nú 15 millj. dollara, þar af 3.75 millj. dollara í gulli og 11.25 millj. dollara framlag í krónum. Auk þessa eiga aðildarríkin rétt á sérstökum jöfnunarlánum hjá gjaldeyrissjóðnum, allt að hálfu heildarframlaginu, ef miklar sveiflur verða á útflutningstekjum. Á ársfundi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, sem haldinn var í Rio de Janeiro í septembermánuði 1967, voru samþykktar till., sem lengi höfðu verið í undirbúningi, um að koma á fót kerfi sérstakra yfirdráttarréttinda hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum milli seðlabanka eða hliðstæðra stofnana aðildarríkja hans. Og jafnframt var ákveðið að gera endurbætur á reglum og starfsháttum sjóðsins á grundvelli þeirrar þróunar í efnahagsmálum heimsins, sem orðið hafði, svo og reynslu sjóðsins síðan stofnskrá hans var sett árið 1945. Þetta nýja kerfi yfirdráttarréttinda, sem mjög hefur verið rætt í hinum alþjóðlega fjármálaheimi undanfarin ár og nú er lagt til, að komið verði á fót, er ætlað að vera í megindráttum í beinu framhaldi af núverandi starfsemi sjóðsins, en er samt ólíkt því kerfi, sem nú gildir í ýmsum mikilvægum atriðum. Til viðbótar heimildinni til þeirra almennu yfirdráttarlána, sem nú eru í gildi og beitt hefur verið í allríkum mæli, er nú lagt til, að aðildarríkin fái svo nefnd sérstök yfirdráttarréttindi hjá sjóðnum. Reglur um notkun þessara nýju sérstöku yfirdráttarréttinda eru talsvert rýmri en hinna almennu yfirdráttarlána, sem nú eru í gildi, og endurgreiðsluskilmálar hagstæðari. Má því með sanni segja, að óhætt sé að líta á hin nýju fyrirhuguðu sérstöku yfirdráttarréttindi sem hluta af gjaldeyrisvarasjóði þeirra ríkja, sem eiga aðild að Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Þátttaka í kerfi hinna sérstöku yfirdráttarréttinda leggur jafnframt þá kvöð á aðildarríkin, að aðildarríki með hagstæða gjaldeyrisstöðu eru skyldug til þess að láta af hendi gjaldeyri gegn sérstökum yfirdráttarréttindum, sem svarar til allt að tvöfaldri fjárhæð þeirra yfirdráttarréttinda, sem því hefur verið úthlutað frá upphafi. Gert er ráð fyrir því, að hinum nýju sérstöku yfirdráttarréttindum verði því aðeins úthlutað til aðildarríkja, að yfirgnæfandi meiri hl. þeirra telji, að þörf sé aukins framboðs alþjóðlegs gjaldmiðils til þess að tryggja eðlilega efnahagsþróun. En það hefur einmitt verið höfuðáhyggjuefni alþjóðlegra fjármálafræðinga og bankamanna, að það mundi á næstu árum og áratugum standa þróun alþjóðaviðskipta fyrir þrifum, að ekki sé tryggt aukið framboð alþjóðlegs gjaldmiðils til þess að greiða fyrir alþjóðlegum viðskiptum, þar eð aukning á gullforða heimsins, sem hingað til hefur verið aðalgjaldmiðillinn í alþjóðaviðskiptum, sé mun minni en fyrirsjáanlegt sé að þróun alþjóðaviðskipta verði. Náist samkomulag um úthlutun hinna nýju og sérstöku yfirdráttarréttinda, verður yfirdráttarheimildunum úthlutað með jöfnum fjárhæðum á 5 ára tímabili og munu skiptast milli aðildarríkja í hlutfalli við framlag þeirra til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, eins og það er nú. Fróðir menn telja ólíklegt, að aukning gjaldeyrisvarasjóða yrði nokkurn tíma meiri frá ári til árs af þessum sökum en 1–2% að meðaltali. Slík fjárhæð mundi ekki skipta miklu máli fyrir ríki, sem væri í sérstökum gjaldeyriserfiðleikum, enda er tilgangur kerfisins ekki sá að leysa úr gjaldeyrisvandræðum einstakra ríkja, heldur að skapa almenn skilyrði til efnahagslegra framfara og heilbrigðra utanríkisviðskipta í veröldinni og draga þannig úr hættu á því, að til alþjóðlegrar viðskiptakreppu geti komið. Gera má ráð fyrir því, að enn taki nokkurn tíma, kannske 1–2 ár, þar til öll aðildarríki Alþjóðagjaldeyrissjóðsins samþykki þessar nýju reglur, en þau eru nokkuð á annað hundrað, en við þetta nýja kerfi eru miklar vonir bundnar og það var samþykkt á fundinum í Rio de Janeiro samhljóða, þó að enn hafi þó verið ágreiningur um víss framkvæmdaatriði, sem stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins var falið að greiða fram úr og reyna að stuðla að samkomulagi um. Við þetta nýja kerfi eru þannig miklar vonir bundnar, og telur ríkisstj. rétt, að tími sé til þess kominn fyrir Íslendinga að staðfesta aðild sína að þessari nýju skipan, enda getur hún aldrei orðið til annars en hagræðis fyrir Íslendinga að því er gjaldeyrisviðskipti þeirra og þátttöku þeirra í alþjóðaviðskiptum snertir.
Að svo mæltu leyfi ég mér, herra forseti, að leggja til, að málinu verði vísað til 2. umr. og hv. fjhn.