17.05.1969
Neðri deild: 97. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 2209 í B-deild Alþingistíðinda. (2304)
Starfslok deilda
forseti (SB):
Þar sem þetta er væntanlega síðasti fundur hv. þd. að þessu sinni, leyfi ég mér að þakka öllum hv. þdm. góða og ánægjulega samvinnu og umburðarlyndi við mig sem forseta á liðnum vetri. Sérstaklega vil ég þakka hv. þdm. samvinnulipurð þeirra og þolgæði síðustu daga, sem hafa verið óvenjulegir annatímar, er lagt hafa mikla vinnu á hv. þm. Jafnframt leyfi ég mér að óska hv. þdm. og fjölskyldum þeirra alls velfarnaðar. Utanbæjarþm. óska ég góðrar heimferðar og heimkomu. Að lokum vil ég láta þá ósk í ljós, að vér megum allir heilir hittast á nýju þingi.