24.02.1969
Efri deild: 50. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 9 í C-deild Alþingistíðinda. (2332)

103. mál, tekjustofnar sveitarfélaga

Frsm. meiri hl. (Jón Þorsteinsson):

Herra forseti. Þessu frv. var að lokinni 1. umr. vísað til heilbr.- og félmn. Nefndin tók frv. til meðferðar og hefur nú afgr. málið, en varð ekki sammála um afstöðu til frv. Meiri hl. n., sem ég mæli hér fyrir, leggur til, að frv. verði fellt, en minni hl. leggur til, að það verði samþ. með tiltekinni breytingu.

Í þessu frv. felst heimild til handa sveitarstjórn að ákveða lægra fasteignaskattsálag á meðalíbúð til eigin afnota, en meðalíbúðarhúsnæði skal það teljast, sem ekki fer yfir 80 þús. kr. að fasteignamati. Í l. um tekjustofna sveitarfélaga er heimild til að leggja skatt á fasteignir, sem mig minnir að megi vera 1% af fasteignamatsverði, enn fremur heimild fyrir sveitarstjórn til þess að leggja allt að 200% álag á þessa fasteignaskatta, þannig að segja má, að gjöld af fasteignum til sveitarfélaganna geti numið 1–3% eftir ákvörðun sveitarstjórnar. En það hefur verið litið þannig á, að þessi fasteignagjöld af húsum og mannvirkjum þyrftu að vera hin sömu af öllum tegundum húseigna og ekki væri heimilt að mismuna þannig, nema sérstök lagaheimild komi til, og mun þetta frv. flutt í því skyni að veita lagaheimild til þess að hafa hlutfallslega lægri gjöld á tilteknum tegundum íbúða.

Þetta frv. var af hálfu n. sent til umsagnar til tveggja aðila, annars vegar til Sambands ísl. sveitarfélaga, en stjórn Sambands ísl. sveitarfélaga segir í bréfi sínu til n.: „Á fundi sambandsstjórnar í gærdag“, — en þetta er skrifað 4. febr. — „var mál þetta tekið fyrir. Var það einróma álit stjórnarinnar, að hún gæti ekki mælt með samþykkt frv., ekki sízt vegna hins mikla misræmis á fasteignamati eftir því, hvar fasteignirnar eru á landinu samkvæmt núgildandi fasteignamati.“ Það var enn fremur sent til umsagnar Gjaldheimtunnar í Reykjavík. Umsögn Gjaldheimtunnar er nokkuð löng, en ég ætla samt, vegna þess að ég tel, að hún skipti nokkru máli, að kynna hana fyrir hv. þm. og vildi — með leyfi forseta — lesa hér meginhluta hennar. En í umsögn Gjaldheimtunnar segir svo:

„Gjaldheimtan sem slík er ekki réttur aðili til að taka efnislega afstöðu til frv. þessa, þar sem hennar hlutverk er í þessu sambandi einvörðungu að innheimta álögð fasteignagjöld í umboði borgarstjórnar Reykjavíkur. Formaður n. hefur hins vegar látið í ljós þá ósk, að af hálfu Gjaldheimtunnar væri gerð nokkur grein fyrir reglum um álagningu fasteignagjalda í Reykjavík almennt.

Auk fasteignaskatta þeirra, sem II. kafli laga nr. 51 1964 fjallar um, innheimtir Gjaldheimtan vatnsskatt, aukavatnsskatt, tunnuleigu, lóðaleigu og brunabótaiðgjöld. Þessi gjöld eru innheimt sameiginlega, þannig að húseigandi eða húsfélag fær árlega sendan gjaldseðil, þar sem öll þessi gjöld eru sundurliðuð. Slíkir gjaldseðlar og tilsvarandi greiðslukort í spjaldskrá Gjaldheimtunnar eru nú í ár 10104. Þessi tala samsvarar engan veginn tölu íbúða í Reykjavík, en þær eru samkvæmt upplýsingum byggingarfulltrúa taldar vera rúmlega 23000. Þessi mismunur stafar af því, að fasteignir eru í mörgum tilvikum metnar fasteignamati í stórum einingum. Þannig eru fjölbýlishús jafnan metin sem ein heild og skattur lagður á samkvæmt heildarfasteignamati. Af gögnum matsins kemur aðeins fram ein stærð og ein fjárhæð, og getið er aðeins eins eiganda, þó að fleiri séu, eins og fram kemur í meðfylgjandi endurriti bóka fasteignamatsins í Reykjavík. Í einu og sama húsi kunna að vera margar misstórar íbúðir, og verður ekki séð af matinu, hver er eigandi hverrar einstakrar. Í samræmi við þetta eru gjöldin innheimt þannig, að litið er á hverja slíka einingu sem einn og sama gjaldanda, enda segir í 7. gr. l., að fasteignaskattinum fylgi lögveð í fasteigninni, sem hann er lagður á. Er í þessu sambandi einnig minnt á ákvæði l. nr. 19 1959, um sameign fjölbýlishúsa, einkum 14. gr.

Framangreindar athugasemdir sýnast leiða til þess, að skattlagning samkv. þeim reglum, sem frv. gerir ráð fyrir, sé naumast framkvæmanleg eftir þeim gögnum, sem nú eru fyrir hendi, og það sama á við um innheimtuna. Forsenda þess, að hægt sé að leggja á skatta og innheimta þá eftir reglum frv., virðist vera sú, að lagt sé fasteignamat á hverja íbúð sem sjálfstæða einingu, en það leiðir aftur hugann að því, að einn maður getur átt margar íbúðir, og jafnvel þótt þær væru af sömu stærð, gætu fasteignaskattar orðið mismunandi háir, þar sem frv. gerir ráð fyrir, að skattívilnanir komi aðeins til greina um íbúðir til eigin nota. Þegar svo er komið, má segja, að fasteignaskattur sé raunverulega orðinn persónuskattur, gagnstætt því, sem nú er, þ. e. a. s. hann er lagður á tiltekna eign sem skattandlag.“

Þetta var umsögn Gjaldheimtunnar í Reykjavík um frv.

Eins og sjá má af þessum umsögnum, þá er stjórn Sambands ísl. sveitarfélaga andvíg frv., fyrst og fremst á þeim grundvelli, að það sé mikið misræmi ríkjandi í fasteignamatinu enn þá, og Gjaldheimtan, sem að vísu tekur ekki efnislega afstöðu, bendir þó á margháttaða örðugleika, sem yrðu í sambandi við álagningu og innheimtu fasteignagjalds, ef frv. yrði samþykkt.

Hv. flm. þessa frv. virðist grundvalla þessar till. sínar á því, að hér sé um nauðþurftarhúsnæði að ræða, að hér sé um svo litlar íbúðir að ræða, sem ekki fari yfir 80 þús. kr. að fasteignamati, að það verði að jafna því við nauðþurftarhúsnæði, svo að þess vegna sé sanngjarnt, að fasteignaskatturinn sé hlutfallslega lægri á slíkar íbúðir til eigin nota heldur en aðrar og þá fyrst og fremst stærri íbúðir. Nú er það að vísu svo, eins og fram kemur hjá Sambandi ísl. sveitarfélaga, að það er mikið misræmi í fasteignamatinu. Það hefur, held ég, ekkert fasteignamat verið gert síðan 1942, en 1955, að mig minnir, voru sett lög um samræmingu á mati fasteigna, þó að það heiti sé naumast réttnefni á þeim l., en eftir þeim l. var heimilt að hækka fasteignamatið í einstökum sveitarfélögum, mjög misjafnt, ég hygg, að í Reykjavík hafi verið hækkað þá um 400%, en í nágrannabæjunum eitthvað lægra, og í bæjarfélögum úti á landi mun minna, þannig að þær íbúðir, sem í dag eru að fasteignamati 80 þús. kr., geta verið mjög mismunandi að stærð. Og ég hygg, þó að það sé e, t. v. ekki hægt að draga alveg skýr mörk, þá mundi hér í Reykjavík meðalíbúð, 3 herbergja og jafnvel minni 4 herbergja íbúðir, verða undir 80 þús. kr. að fasteignamati.

Út af fyrir sig væri hægt að bæta úr þessum annmörkum frv. að miða stærð íbúðanna við ákveðna fjárhæð fasteignamats. Það hefði verið hægt að miða í staðinn við fermetrafjölda íbúðarinnar eða kúbikmetrafjölda eða eitthvað slíkt. En það er að dómi okkar, sem meiri hl. skipum, ekki nægjanlegt, vegna þess að ef ætti hér að mismuna, þá væri eðlilegast, að það væri mismunur eftir því, sem kalla má húsnæðisaðstöðu hvers og eins. Það þarf alls ekki að vera, að fólk, sem býr í lítilli íbúð eða meðalstórri íbúð, það búi út af fyrir sig þrengra en fólk, sem býr í stórri íbúð, vegna þess að í miðlungsíbúð eða í lítilli geta t. d. búið barnlaus hjón, og það getur verið mjög rúmt húsnæði. Aftur í stórri íbúð getur búið fjölmenn fjölskylda, þannig að það sé þrengra um hvern fjölskyldumeðlim í stórri íbúð heldur en lítilli, og til þessara atriða tekur þetta frv. ekki. Það gerir engan greinarmun á því, sem maður getur kallað húsnæðisaðstöðu manna. Það virðist ganga út frá því sem algildri reglu, að þeir, sem búa í litlum íbúðum, búi yfirleitt þröngt og hinir þá rýmra, sem í stórum íbúðum búa. En ég álít, að slíkt mat sé ákaflega handahófskennt, og slíkt réttlæti, sem væri verið að leita eftir, mundi í mörgum tilfellum verða að ranglæti.

Á þessum forsendum fyrst og fremst telur meiri hl. n. ekki fært að mæla með því, að þetta frv. verði samþ., eða telur fært að gera viðunandi brtt. við það, og leggur því til, að frv. verði fellt.