16.05.1969
Neðri deild: 95. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 63 í C-deild Alþingistíðinda. (2375)

207. mál, eyðing svartbaks

Frsm. (Bjartmar Guðmundsson):

Herra forseti. Frv. þetta er flutt af tveim hv. þm. úr Vestfjarðakjördæmi að ósk nokkurra varpeigenda þar.

Eins og öllum hv. þm. mun vera kunnugt, er veiðibjöllu eða svartbak öðru nafni alltaf að fjölga hér í landi eða hér við land og vörp hafa mjög farið minnkandi hin síðustu ár vegna ágangs af þessum fugli. Það hefur lengi verið erfiðleikamál, hvernig hægt væri að varðveita æðarvörp fyrir vargi, og nú virðist horfa þannig, að víðast hvar á landinu sé svo til ómögulegt að verja vörpin fyrir honum.

Landbn, fékk til viðtals við sig veiðistjóra, Svein Einarsson, og í öðru lagi dr. Finn Guðmundsson fuglafræðing til skrafs og ráðagerða um þetta frv., þegar það hafði borizt n. til umsagnar. Það, sem farið er fram á í frv., er það, að varpeigendum sé heimilað, sem nú er ekki, að nota svæfilyf eða deyfingarlyf til þess að bera út fyrir þennan fugl á vorin, þegar varptíminn er, og einnig fyrst eftir að unginn gengur út úr hreiðrunum. Það kom í ljós í viðtali við dr. Finn Guðmundsson, að fuglafriðunarnefnd og menntmrn. og landlæknir höfðu um skeið haft til athugunar að gera reglugerð samkv. 25. gr. fuglafriðunarlaganna, sem gekk yfir þetta atriði, sem frv. fjallar um. Og með tilliti til þess, að fuglafriðunarlögin þrengja mjög að öllum framkvæmdum í þessu efni og gera ráð fyrir, að um þetta atriði verði samin reglugerð og sett, þá varð niðurstaða landbn., að á þessu stigi málsins mundi vera rétt að gera ekki frekara í þessu máli en að fá þessa reglugerð staðfesta nú þegar, og það hefur verið gert. Þess vegna leggur landbn. til, að þetta mál verði afgreitt með svofelldri rökstuddri dagskrá:

„Þar sem menntmrn. hefur nú staðfest reglugerð samkv. lögum um fuglafriðun frá 1966, sbr. 7. og 25. gr., og með hliðsjón af lögum um eyðingu svartbaks frá 1965, 4. gr., sem heimilar varpeigendum að nota svæfingarlyfið phenemalnatrium til að verja varplönd á vori fyrir vargi, þ. e. hrafni og veiðibjöllu, telur d. ekki tímabært að breyta l. um eyðingu svartbaks, meðan ekki er fengin reynsla af verkunum lyfsins, og tekur því fyrir næsta mál á dagskrá.“

Undir þessa ályktun rita allir þeir landbn.- menn, sem staddir voru á þeim fundi, þegar málið var afgreitt úr n.

Ég vil taka það fram að lokum, að ég álít, að þetta sé eðlileg leið, eins og sakir standa, þó að ég sé hins vegar alls ekki viss um, að þessi heimild komi að nægilega miklum notum til að draga úr þeim ágangi, sem þessi fugl veldur í varplöndum. En ég tel hiklaust rétt að gera tilraun með þetta, og þeir hv. þm., sem fluttu frv. að ósk varpeigenda, hafa sætt sig við þessa afgreiðslu á málinu, og eftir atvikum munu þeir vera sæmilega ánægðir með þessa lausn í bili.