19.12.1968
Neðri deild: 38. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 70 í C-deild Alþingistíðinda. (2389)
12. mál, þóknun fyrir innheimtu opinberra gjalda
Gunnar Gíslason:
Herra forseti. Það kom mér sannarlega ekki á óvart, að hv. 1. þm. Norðurl. v. kynni gullvægu regluna. Ég vissi það vel, að hann kunni hana, og hann er kirkjurækinn maður, ég þekki það, og ég efast heldur ekkert um það, að allir hv. meðnm. mínir í fjhn. kunna þessa reglu, og þess vegna er ekkert vandaverk, sem bíður mín að kenna þeim hana. En ég vil benda þessum hv. aldna þingskörungi á það, að það bíður hans mikið verkefni, og það er að fá sína eigin flokksmenn til þess að fallast á allar sérvizkutill., sem hann flytur hér í þinginu.