13.03.1969
Efri deild: 58. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 95 í C-deild Alþingistíðinda. (2407)
134. mál, leiklistaskóli ríkisins
Frsm. meiri hl. (Auður Auðuns):
Herra forseti. Menntmn. d. hefur haft þetta mál til athugunar. Eins og fram kemur í nál. á þskj. 340, hefur n. ekki orðið sammála um afgreiðslu málsins.
Það var, eins og fram kemur í nál., upplýst í n., að menntmrh. hefur þann 20. jan. s. l. skrifað tilteknum aðilum, þ. e. a. s. þjóðleikhúsráði, Leikfélagi Reykjavíkur, Félagi ísl. leikara og Reykjavíkurborg, og farið þess á leit, að þessir aðilar tilnefndu fulltrúa af sinni hálfu til þess að taka sæti í n., sem hefði það verkefni að athuga og gera till. um sameiningu þeirra tveggja leiklistarskóla, sem leikhúsin tvö, Þjóðleikhúsið og Leikfélag Reykjavíkur, nú reka, og n. einnig falið f því sambandi að gera áætlun um stofn- og rekstrarkostnað.
Ég hef út af fyrir sig ekki miklu við þetta að bæta, enda kemur þetta fram í nál. meiri hl. En meiri hl. leggur til með vísun til þessarar nefndarskipunar hæstv. menntmrh., og ég ætla, að þessir aðilar, sem hann hafi skrifað, hafi tilnefnt fulltrúa, — með tilvísun til þessarar nefndarskipunar leggur meiri hl. menntmn., við, sem stöndum að nál. á þskj. 340, til, að málinu verði vísað til ríkisstj.
Að sjálfsögðu hefur minni hl. svo skilað séráliti.