13.03.1969
Efri deild: 58. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 99 í C-deild Alþingistíðinda. (2409)

134. mál, leiklistaskóli ríkisins

Einar Ágústsson:

Herra forseti. Þar sem ég er 1. flm. að því frv., sem hér er til umr., um leiklistarskóla ríkisins, þá finnst mér það vel við hæfi, að ég kveðji þetta hugarfóstur mitt hinztu kveðju nú, þegar það á að leggjast á skrifborð ráðh. til varðveizlu, eins og mörg önnur mál, sem þar bíða úrlausnar. Ég vil þakka hv. minni hl. menntmn. þessarar hv. d. fyrir það, að hann vill, að þetta frv. nái fram að ganga, og sérstaklega hv. frsm. fyrir ágæta og skilmerkilega ræðu, sem hann hélt þessu máli til stuðnings núna áðan. Ég þakka út af fyrir sig hv. meiri hl. það, að hann vill þó afgreiða málið, þó að ég verði að segja, að ég er mjög óánægður með þá afstöðu meiri hl. að vísa þessu máli til ríkisstj. Mér finnst, að hv. meiri hl. láti enga skoðun uppi um það, hvort hann telji þörf á því, að lagaákvæði um leiklistarskóla ríkisins verði sett eða ekki. Ef hann hefur einhverja skoðun á því máli, kemur hún ekki fram af nál. á þskj. 340.

Það þykir mér galli á störfum n., sem fær mál til meðferðar, að hún skuli ekki treysta sér til að láta í ljós skoðun um þingmál, heldur vísa því til annarra að hafa skoðun á þeim. Þetta leiðir huga minn a. m. k. að hlutverki Alþingis. Hvert er hlutverk Alþingis? Hvers konar stofnun er Alþingi? Ja, ég las það í lögfræðibókunum í gamla daga, að Alþ. ætti að setja lög og vera löggjafaraðilinn í þessu þríþætta stjórnkerfi, sem við búum við. Ég tel, að Alþingi eigi að rækja þetta hlutverk. Alþ. á að eigin frumkvæði að setja lög um þau tilefni, sem gefast hverju sinni, en ekki fela það öðrum, hæstv. ríkisstj. og sérfræðingum úti í bæ, og að gerast eingöngu afgreiðslustofnun á þeim verkefnum, sem hingað er vísað frá öðrum. Hér í þessu tilfelli er um lagafrv. að ræða, sem talsverð vinna hefur verið lögð í að móta, ekki bara af mér og hv. meðflm., heldur af sérfróðum mönnum um þessi mál, færum leikurum og leikstjórum, sem ég hirði ekki um að telja upp nöfnin á, en hafa lagt í þetta þá þekkingu og reynslu, sem þeir hafa aflað sér á löngum starfsferli að þessum málum. Og mér finnst, þegar svona frv. eru lögð fyrir Alþ., að þá sé það skylda Alþ. að mynda sér skoðun á því máli, sem hér er hreyft. Ég geri í þessu tilfelli mikinn mun á þáltill., sem margar hverjar eru aðeins fyrsta skref, þar sem verið er að hreyfa málum, án þess að menn hafi raunverulega gert sér grein fyrir í öllum tilfellum, hvernig taka beri á þeim, annars vegar og svo hins vegar frv., sem eru samin lið fyrir lið og reynt að ná til alls viðfangsefnisins, og það finnst mér að sé lágmarkskrafa, að hv. Alþ. leggi á það efnislegan dóm.

Ég er ekkert að halda því fram, að það frv., sem hér er til umr., sé alfullkomið, og ég hef alltaf reiknað með því, að það mundi taka breytingum í meðförum nefndar. Ég gat þess hér í minni framsöguræðu við 1. umr. þessa máls, að vitanlega værum við flm. albúnir til þess að vera til viðtals og samninga um þær breytingar, sem hv. n., væntanlega þá í samráði við þá, sem hún kallaði til ráðuneytis, vildi gera á frv. Það hefði ég talið eðlilega málsmeðferð og þá jafnframt, ef sú n., sem hæstv. menntmrh. skipaði, þyrfti langan tíma til þess að átta sig á þessu máli, sem ég satt að segja skil nú ekki, að þurfi, þá mátti að mínum dómi bíða eitthvað fram eftir þingi með það að afgreiða málið. En þessa afgreiðslu hefði ég kosið, að frv. fengi.

Ég hef áður orðið fyrir því, að frv. frá mér hefur verið vísað til hæstv. ríkisstj. til athugunar, vegna þess, að því er sagt var, að þau mál væru þar til meðferðar og athugunar. Ég skal ekki vera að telja upp langan lestur um það. Ég nefni bara það síðasta. Það er frv., sem ég flutti um byggingarsamvinnufélög ásamt öðrum hv. þm. Því var vísað til hæstv. ríkisstj. á þeim forsendum, að öll heildarlöggjöf um húsnæðismál væri þar til endurskoðunar. Það hefur ekkert spurzt til þessa frv. né neinnar endurskoðunar á húsnæðismálalöggjöfinni síðan, og þó að gerðar hafi verið fsp. um það hér á hv. Alþ. af mér, þá hefur ekkert verið á þeim svörum að græða, ekki nokkurn skapaðan hlut. Það er alveg nákvæmlega jafnmikil óvissa um það, hvenær sú heildarlöggjöf kemur, núna, eins og var, þegar t. d. þessu frv. var vísað til hæstv. ríkisstj.

Það eru mörg önnur dæmi um þessi vinnubrögð, sem mér finnst vera orðin allt of algeng hérna. Það var t. d. í þingbyrjun lagt fram frv. um breytingu á lausaskuldum bænda í föst lán. Þetta frv. hefur legið hjá n. til athugunar, og ég hef ekki séð nál. um það frv. Hins vegar hef ég séð núna fyrir eitthvað tveim dögum nýtt frv. um sama efni, sem hæstv. ríkisstj. flytur. Það má segja, að það sé út af fyrir sig gott, að komið sé til móts við kröfuna í frv. hv. 1. þm. Vesturl. o. fl. En eðlilegri vinnubrögð eru það að mínum dómi að taka frv., sem lögð hafa verið fram, og endurskoða þau og breyta þá og samþykkja í breyttu formi, ef menn geta ekki fellt sig við upphaflega formið, og allt annað verð ég satt að segja að nefna skrípaleik. En hitt vil ég undirstrika og endurtaka, að mér finnst það allt of ríkjandi skoðun hér, að Alþingi afsali sér því frumkvæði, sem það á að hafa, bæði samkv. eðli málsins og stjórnarskrá landsins, til þess að setja lög um margvísleg málefni. Það er jafnvel gengið svo langt hér síðustu daga, að menn hafa fundið að því, að dm. hér í hv. d. væru yfirleitt nokkuð að ræða mál. Menn virðast sumir hverjir hafa þá skoðun, að við eigum bara að þegja og rétta svo upp höndina, þegar að okkur er borið mál, sem aðrir hafa undirbúið. Þessa skoðun felli ég mig ekki við. En það er auðvitað þýðingarlaust fyrir mig að vera að ræða þetta í löngu máli.

Það er séð að öllum líkindum, hver örlög þessa frv. verða. Ég vona, að hæstv. ríkisstj. setji þetta frv. eða þetta mái ekki í glatkistuna, því að hér er að mínum dómi um talsvert þýðingarmikið mál að ræða fyrir menningarlíf hinnar íslenzku þjóðar, eins og hv. 2. þm. Austf. útlistaði skilmerkilega hér áðan. Efnahagsmálin eru vissulega mikilvæg. Sízt ætla ég að bera á móti því. En á fleira er að líta. Íslenzk menning er og verður það, sem gerir okkur kleift að vera sjálfstæð þjóð. Leikhúsin eru snar þáttur í mótun þeirrar menningar. Þess vegna verður að búa vel að þeim mönnum, sem á þeim vettvangi starfa, búa þá þannig undir lífsstarf sitt, að þeir flytji okkur góð verk á fögru máli og með fyllstu þekkingu á því, sem þeir eru að starfa að.

Ég tek undir það, sem hv. 2. þm. Austf. sagði hér áðan um það, að þessari breytingu ætti ekki að þurfa að fylgja verulegur kostnaðarauki. Það hefur verið fjárhagsleg byrði að reka tvo leiklistarskóla hér í borginni. Sá halli, sem á þessari starfsemi hefur verið, er borinn uppi af ríkinu að því er snertir leiklistarskóla Þjóðleikhússins og raunar af samfélaginu líka að því er snertir leiklistarskóla Leikfélags Reykjavíkur, þar sem það félag nýtur opinbers stuðnings, eins og allir hv. þm. þekkja. Ég held, að það þurfi ekkert að verða dýrara að reka einn góðan skóla heldur en reka tvo skóla, sem samkv. dómi þeirra, sem bezt þekkja til, eru ekki nægilega góðir og eru ekki og hafa ekki reynzt vandanum vaxnir.

Eins og segir í grg. frv., hafa þessi mál verið tekin til gagngerðrar endurskoðunar á öðrum Norðurlöndum á þann veg, að þar sem fleiri leiklistarskólar voru fyrir hendi, hafa þeir bæði í Danmörku og Noregi verið sameinaðir í einn, en að vísu eru enn þá þrír skólar í Svíþjóð, og Finnar eru með svipað fyrirkomulag og við enn þá, en hyggja á breytingar. Og ég get ekki með nokkru móti skilið, að það sé unnt fyrir okkur að reka tvo leiklistarskóla hér með okkar fámennu þjóð, þegar bræðraþjóðir okkar á hinum Norðurlöndunum hafa eftir athugun komizt að þeirri niðurstöðu, að þeir séu aðeins færir um að reka einn.

Það eru vissulega mörg atriði í þessu frv. matsatriði, og ég hefði vonazt til þess, að við gætum borið saman bækur okkar um það hér í hv. d. og á hv. Alþ., hvernig ýmsum atriðum skyldi fyrir komið. Það er væntanlega alveg þýðingarlaust fyrir mig að gera þetta mál nú frekar að umtalsefni, og ég skal þá ekki heldur gera það. En ég endurtek það, að þetta frv. var af okkar hendi aldrei hugsað það fullkomið, að ekki kæmi til neinna breytinga, og eins og ég sagði í minni frumræðu, hefðum við verið meira en fúsir til samstarfs við alla þá, sem þessu máli vildu leggja lið, og ekkert hörundsárir fyrir því, þó að ýmsum liðum þyrfti að breyta, en nú er þess væntanlega ekki kostur að ræða þetta frekar hér. Ég harma það, en læt í ljós þá ósk að lokum, að sú n., sem hæstv. menntmrh. hefur skipað nú fyrir rúmum mánuði, starfi vel og dyggilega að þessu máli, þannig að af hennar starfi megi gott leiða, og vænti þess, að þetta frv. geti þá orðið nokkurt veganesti fyrir þá n., því að um það hafa, eins og ég áður sagði, fjallað hæfir kunnáttumenn, þó að ég telji mig ekki í þeirra hópi.