12.05.1969
Neðri deild: 93. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 179 í C-deild Alþingistíðinda. (2454)
83. mál, greiðslufrestur á skuldum vegna heimila
Frsm. meiri hl. (Matthías Á. Mathiesen):
Herra forseti. Fjhn. þessarar hv. d. hefur haft þetta frv. til athugunar, en eins og fram kemur, hefur n. ekki orðið sammála um afgreiðslu málsins. Meiri hl. n. hefur á þskj. 571 lagt til, að málinu verði vísað til ríkisstj. til nánari skoðunar. Hins vegar leggur 1. minni hl. til, að frv. verði samþ., og 2. minni hl., að það verði samþ. með breytingum.
Eins og fram kemur í nál. meiri hl. fjhn., telur meiri hl., að ef frv. yrði samþ., mundi slík lagasetning geta haft mjög víðtækar og ófyrirsjáanlegar afleiðingar. Það er augljóst mál, að það yrði röskun á fjárhag ýmissa aðila, sem eiga slíkar skuldarviðurkenningar, sem hér er lagt til að greiðslufrestur verði veittur á, en slíkt gæti haft mjög afdrifaríkar afleiðingar, eins og áður sagði. Hitt vill svo meiri hl. n. um frv. segja, að í því eru atriði, sem rétt er að skoða nánar, og þess vegna leggur meiri hl. til, að frv. verði vísað til ríkisstj.