12.05.1969
Neðri deild: 93. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 181 í C-deild Alþingistíðinda. (2457)

83. mál, greiðslufrestur á skuldum vegna heimila

Magnús Kjartansson:

Herra forseti. Ég hafði farið þess á leit við hæstv. félmrh., að hann yrði viðstaddur þessa umr., og hann hafði heitið mér því að gera það. Mér þætti vænt um, ef hæstv. forseti vildi láta hann vita, að ég hefði hug á því að beina til hans smávægilegri fyrirspurn.

Þegar ég flutti þetta mál hér á þingi fyrir 5 mánuðum rúmum, gerði ég grein fyrir því, af hvaða ástæðum það væri flutt. Það væri flutt vegna þess, að launafólk hefði tekið á sig mjög þungbærar fjárhagsskuldbindingar, sem augljóst væri, að það mundi ekki geta staðið undir nema að hluta vegna gerbreytts ástands á vinnumarkaðinum og gerbreyttra tekna, sem menn hafa fengið að undanförnu. Ég lýsti því þá yfir, að ég gerði mér fullkomlega ljóst, að þetta frv. væri ekki nein heildarlausn á þessum vanda, og ég væri til viðtals um það að hafa annan hátt á, ef mönnum sýndist, að það mætti betur fara að breyta þessu fyrirkomulagi eða bæta við það í n. Því miður hefur ekki verið að þessu máli staðið á þann hátt í hv. n., þó að ég vilji færa henni þakkir fyrir, að hún hefur þó afgreitt málið samkv. beiðni, sem ég bar fram fyrir nokkru.

Því miður hefur aðeins einn nm, mælt með því, að frv. yrði samþ. í þeirri mynd, sem það er lagt fyrir. 2. minni hluti í n., fulltrúar Framsfl., virðist telja, að þetta vandamál sé minna en ég taldi. Þótt hv. frsm. minni hl. hafi að vísu sagt hér áðan, að þetta frv. væri borið fram af ærnu tilefni, þá leggur þessi minni hl. engu að síður til, að aðgerðirnar verði þrengdar til mikilla muna og efnislega verði aðeins fallizt á 2. gr. frv., þar sem fjallað er um þá, sem skráðir hafa verið atvinnulausir. Mér finnst þessi afstaða hv. framsóknarmanna bera anzi mikinn keim af hátterni þeirra oft og einatt, að hafa allstór orð um ýmis þjóðmál, en breyta ekki í samræmi við þau orð, þegar kemur að framkvæmdum.

Fulltrúar hæstv. ríkisstj. leggja til, að þessu frv. verði vísað til ríkisstj. Þeir segja, að í því séu atriði, sem rétt sé að skoða nánar. Og nú langar mig til þess að fá vitneskju um, hvað í því kann að felast að vísa máli eins og þessu til hæstv. ríkisstj. Mér er að vísu ljóst, að þetta er alkunn aðferð og venjulega notuð til þess að svæfa mál, þótt í því felist að vísu næsta takmörkuð virðing við hæstv. ráðh. En ég hef ástæðu til að ætla, að það verði dálítið erfitt að svæfa þetta mál í hæstv. ríkisstj., ekki vegna þess, að þetta er frv., sem ég flyt, — ég geri ekki ráð fyrir, að ég njóti neins sérstaks stuðnings í hæstv. ríkisstj., — heldur vegna þess, að það er mikill þrýstingur á hæstv. ríkisstj. að leysa þessi vandamál.

Þegar þetta mál var lagt fyrir á sínum tíma, tók ég dæmi af íbúunum í Breiðholti. Þar er flutt inn í nær 300 íbúðir, og greiðslur þessa fólks féllu í gjalddaga 1. maí s. l. Þar var um að ræða mikla upphæð, 20–30 millj. kr. En ástandið varð þannig, að 5 af hverjum 6 í Breiðholti gátu ekki staðið við þessar skuldbindingar. Og nú blasir það vandamál við: Á þetta fólk, sem flutt var inn í Breiðholtsíbúðirnar, sem átti að byggja til þess að leysa sérstaklega úr húsnæðisvandamálum þeirra, sem erfiðasta aðstöðu hafa í þjóðfélaginu, að missa íbúðirnar umsvifalaust aftur? Eða á að gera eitthvað til að leysa þennan vanda? Mér er kunnugt um, að um þetta hefur verið rætt margsinnis við hæstv. félmrh. á undanförnum mánuðum, og verkalýðsfélögin, sem höfðu forustu um þessar framkvæmdir, hafa beitt sér fyrir tilteknum ráðstöfunum til aðstoðar þessu fólki. 28. jan. s. l. skrifaði n. sú, sem ráðstafaði íbúðum í Breiðholti, bréf til húsnæðismálastjórnar um þetta vandamál, en í n. eru Sigfús Bjarnason, varaformaður Sjómannafélags Reykjavíkur, Magnús L. Sveinsson, varaformaður Verzlunarmannafélags Reykjavíkur, og Guðmundur J. Guðmundsson, varaformaður Dagsbrúnar. Í þessu bréfi var m. a. komizt svo að orði, með leyfi hæstv. forseta:

„Þegar n. gerði till. um úthlutun, reyndi hún, eins og henni var frekast unnt, að velja þá, er mesta þörf hefðu og bjuggu við erfiðastar aðstæður. Jafnvel þótt n. hefði í huga, að hluti umsækjenda mundi ekki hafa minnstu möguleika af fjárhagsástæðum eða af skorti á vinnu, sem og fleira þess háttar til þess að standa í skilum, og sleppti þeim í till. sínum af þessum ástæðum, þá gerði hún sér ljóst, að hún fór í till. sínum út á yztu nöf hvað viðvék greiðslugetu íbúðareigenda. Rétt er að geta þess strax, að áætlað verð íbúðanna við úthlutun reyndist mun lægra heldur en raun varð á, sér í lagi gilti þetta um einbýlishús. Það er þegar ljóst, að allstór hópur íbúðarhafa, sennilega mikill meiri hl. þeirra, varð að fá víxla til að inna aðra greiðslu af hendi, og fjölmargir höfðu ekki greitt víxla frá fyrstu greiðslu. Óþarft er að útskýra, að atvinnuástandið hefur verið mun verra í ár en að undanförnu og eftirvinna dregizt mjög saman, en greinilegt er, að fjöldi íbúðareigenda treysti á mikla yfirvinnu, einnig er nokkur hópur þeirra atvinnulaus og hefur orðið að lífa á atvinnuleysisbótum. Okkur virðist því einsýnt, að meiri hl. íbúanna lendi í vanskilum og missi íbúðir sinar, ef lánakjör og greiðsluskilmálar verða þeir, sem ákveðnir voru við afsal.

Ef vextir af ódýrustu og þar með minnstu 2 herb. íbúðum væru reiknaðir í heilt ár (en það er ekki heilt ár í flestum tilfellum), þá næmu afborganir og vextir um 73 þús. kr. (afborgun 40083 kr., vextir 32 þús. kr. Af stærri gerð einbýlishúsa mundi heildargreiðsla á ári nema röskum 143 þús. kr. (afborgun 79 þús. kr., vextir 64 þús. kr.). Af 4 herb. íbúðum næmu vextir og afborganir um 105 þús. til 106 þús. kr. (eða vextir röskar 46 þús., og afborgun 60 þús. tæpar). Það er því ljóst að breyta verður greiðsluskilmálum, ef meiri hl. íbúanna á ekki að missa íbúðir sínar á vori komanda.“

Síðan ber þessi n. fram sínar hugmyndir um það, hvernig hægt sé að breyta þessum greiðsluskilmálum til þess að koma í veg fyrir, að þetta fólk verði flutt út úr íbúðunum, sem það er nýlega flutt inn í. 17. marz s. l. sendu þessir 3 menn bréf til hæstv. félmrh. og sendu honum þar með afrit af þessu bréfi, sem ég var að gera grein fyrir, og þar fóru þeir fram á það, að hæstv. félmrh. hlutaðist til um, að greiðsluskilmálar þessir verði teknir til athugunar og endurskoðunar hið allra fyrsta. Mér er einnig kunnugt um það, að í framhaldi af þessu hafa fulltrúar íbúanna í Breiðholti átt fundi með hæstv. ráðh., og mér er kunnugt um það, að hæstv. ráðh. viðurkenndi á þessum fundum, að hér væri um að ræða augljóst vandamál, og þeim gat ekki annað skilizt en hæstv. ráðh. hefði vilja á að leysa þennan vanda. Það er af þessum ástæðum, sem ég spyr, hvað í því kunni að felast, að máli sem þessu sé vísað til hæstv. ríkisstj. Má vænta þess, að hæstv. félmrh. framkvæmi á einn eða annan hátt þær hugmyndir, sem í þessu frv. felast, m. a. gagnvart íbúunum í Breiðholti?