13.03.1969
Neðri deild: 64. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 207 í C-deild Alþingistíðinda. (2471)
166. mál, menntaskólar
Sigurður Bjarnason:
Herra forseti. Það er ekki ætlan mín að hefja hér almennar umr. um skólamál við 1. umr. þessa frv. um menntaskóla. Ég get hins vegar ekki látið hjá líða að gera við það stutta athugasemd og þá fyrst og fremst við 1. gr. frv., sem hæstv. menntmrh. gaf nú ákveðnar skýringar á, sem ég kem aðeins að síðar. En ég tel einnig nauðsynlegt, að það komi fram, að frv. þetta var ekki rætt í þingflokki sjálfstæðismanna, áður en það var lagt hér fram í hv. þingdeild, að því er mér er kunnugt.
Í 1. gr. þessa frv. segir, að menntaskólar skuli vera svo margir sem þörf er á að dómi menntmrh. Hér er um að ræða breytingu frá núgildandi l., sem mörgum hlýtur að koma mjög á óvart, en í l. frá 1965 um breyt. á l. nr. 58 1946, um menntaskóla, segir m. a. á þessa leið, með leyfi hæstv. forseta:
„Menntaskólar skulu vera 6, tveir í Reykjavík, einn á Akureyri, einn á Laugarvatni, einn á Ísafirði og einn á Austurlandi. Heimilt er að stofna fleiri menntaskóla í Reykjavík eða nágrenni. Menntaskólar utan Reykjavíkur og nágrennis skulu vera heimavistarskólar. Heimilt er að koma framangreindum skólum á fót í áföngum bæði að því er varðar kennslu og byggingu húsnæðis fyrir þá. Heimilt er menntmrn. að koma á fót kennslu í námsefni 1. bekkjar menntaskóla við gagnfræðaskóla, þar sem nemendafjöldi og önnur skilyrði gera slíka ráðstöfun eðlilega og framkvæmanlega.“
Hæstv. menntmrh. sagði í framsöguræðu sinni, að óþarfi væri að óttast þá breyt., sem þetta frv. fæli í sér á þessum ákvæðum, ákvæði 1. gr. l. frá 1965 yrðu enn þá í fullu gildi, eftir að búið væri að afnema þau! En ef engin breyt. átti að felast í 1. gr. þessa frv., hvers vegna er þá verið að fella niður ákvæðin frá 1965 um tölu og staðsetningu menntaskóla? Ég leyfi mér að beina þeirri spurningu til hæstv. ráðh. Það sé svo fjarri mér að tortryggja hæstv. menntmrh. í þessu efni að einu né neinu leyti. En mér sýnist, að einfaldast sé að láta ákvæði 1. gr. laganna frá 1965 standa óbreytt og taka efni hennar upp í 1. gr. þessa frv., og vænti ég þá, að allir hv. þingmenn með hæstv. menntmrh. í broddi fylkingar megi vel við una, ef engu átti í raun og sannleika að breyta með þessari nýju og að mér virðist nokkuð annarlegu 1. gr. þessa frv., sem hér liggur fyrir.
Í lagaákvæðunum frá 6. maí 1965 fólst fyrst og fremst sú breyt. á menntaskólalögunum frá 1946, að ákveðið var, að stofnaðir skyldu menntaskólar á Ísafirði og á Austurlandi. Í framhaldi af þessari lagasetningu hefur svo Alþ. veitt árlegar fjárveitingar til byggingar menntaskóla á Ísafirði og Austurlandi. En nú leggur hæstv. menntmrh. hins vegar til, að þetta lagaákvæði verði fellt niður og dómur menntmrh. skuli einn ráða því, hvar menntaskólar skuli vera í landinu og hversu margir þeir skuli vera. Ég tel þetta ákvæði með öllu fráleitt og algerlega óþarft, einnig eftir yfirlýsingu hæstv. ráðh., og ég tel mig knúðan til að lýsa því yfir, að ég geti ekki fylgt þessu frv. óbreyttu, enda þótt í því felist að öðru leyti ýmsar athyglisverðar nýjungar, sem tvímælalaust horfa til bóta, eins og hæstv. menntmrh. leiddi gild rök að. Með fyrrgreindum ákvæðum í 1. gr. frv. er að mínu viti of mikið vald lagt í hendur menntmrh. Hann á einn að ráða því, hvar menntaskólar skuli vera, hve menntaskólar skuli vera margir o. s. frv. Enda þótt núv. hæstv. menntmrh. hafi margt vel gert í sinni löngu embættistíð sem menntmrh., treysti ég honum trauðla til þess að fara með þetta vald. Ég tel, að löggjafarvaldið eigi nú eins og áður að kveða á um fjölda menntaskóla og staðsetningu þeirra.
Í 2. málsgr. 1. gr. frv. segir, að heimilt skuli sveitarfélögum og einstaklingum, að fengnu leyfi menntmrn. og samkv. reglum, er það setur hverju sinni, að stofna og starfrækja menntaskóla á eigin kostnað. Í sambandi við þetta nýmæli vil ég aðeins segja, að mjög ólíklegt verður að telja, eins og nú horfir í okkar þjóðfélagi og að öllum líkindum á næstunni, að einstök sveitarfélög eða einstaklingar taki sig fram um að stofna og starfrækja menntaskóla á eigin kostnað. Mér þætti æskilegt, að hæstv. menntmrh. gæfi frekari skýringu á þessu en kom fram í frumræðu hans. Hefur ef til vill eitthvert sveitarfélag eða einstaklingur eða einhver stofnun önnur óskað slíkrar heimildar? Í sambandi við þetta mál vil ég leyfa mér að beina þeirri fsp. til hæstv. menntmrh., hver sé afstaða hans til þeirra óska, sem fram komu í bréfi Ísfirðinga og þm. Vestf. 26. jan. s. l. um framkvæmdir við menntaskóla á Ísafirði, en í bréfi þessu sagði á þessa leið:
„Bæjarstjórn Ísafjarðar kaus þann 13. marz s. l. n. til að vinna að því, að lögin um menntaskóla á Ísafirði komi til framkvæmda sem fyrst. Í dag boðaði n. til fundar með þm. Vestf. og bæjarstjórn Ísafjarðar til umr. um menntaskólamálið. Á þeim fundi lagði n. fram eftirfarandi áætlun um framkvæmdir í málinu:
1) Skólameistari verði skipaður frá og með 1. okt. 1969.
2) Húsameistari verði ráðinn frá og með 1. jan. 1970.
3) Stefnt verði að því, að skólinn geti tekið til starfa 1. okt. 1970.
4) Byggingarframkvæmdir við menntaskólann á Ísafirði verði teknar inn á framkvæmdaáætlun ríkisins árið 1971.
5) Stefnt verði að því að ljúka 1. áfanga byggingarframkvæmdanna fyrir haustið 1972. Framangreind áætlun hlaut einróma stuðning allra fundarmanna, segir í bréfinu, og áfram: „Er það von undirritaðra, að rn. geti fallizt á þessa framkvæmdaáætlun og verði unnið að framvindu málsins í samræmi við hana. Leyfum við okkur að vænta þess, að starf skólameistara verði nú þegar auglýst og við það miðað, að hann geti tekið til starfa 1. okt. n. k. Við viljum leggja sérstaka áherzlu á, að væntanlegur skólameistari geti notað næsta vetur til að skipuleggja skólastarfið í samráði við fræðsluyfirvöld og byggingarframkvæmdir í samráði við arkitekt skólans. Væntum stuðnings hins háa ráðuneytis um þetta erindi.“
Hér lýkur bréfi fulltrúa bæjarstjórnar Ísafjarðar og þm. Vestf. til hæstv. menntmrh. Ég tel mjög mikilvægt, að hæstv. menntmrh. gefi skýr og glögg svör við þessu erindi. Því er ekki að neita, að það svar, sem fljótt á litið a. m. k. felst í 1. gr. frv. þess, er hér liggur fyrir, verður ekki talið fullnægjandi. Með henni er samkv. orðanna hljóðan lagt til, að slegið skuli striki yfir þá stefnu, sem Alþ. hefur áður markað með ótvíræðum hætti.
Í sambandi við fyrirhugaðan menntaskóla á Ísafirði er nauðsynlegt, að það komi fram, að honum er ekki ætlað að vera fyrst og fremst og eingöngu skóli fyrir Vestfirðinga. Hann á að vera menntaskóli í þágu þjóðarinnar allrar eins og aðrir menntaskólar, sem nú eru í landinu. Það er engin röksemd gegn menntaskóla á Ísafirði, þó að henni hafi heyrzt haldið fram, að fáir nemendur hafi undanfarið sótt menntaskóladeild, sem rekin hefur verið við gagnfræðaskóla bæjarins. Meðan þar er einungis kostur á kennslu í einum bekk, leita auðvitað langsamlega flestir nemendur á Vestfjörðum áfram til gömlu menntaskólanna. Sama gildir um menntaskólanemendur úr öðrum landshlutum.
Kjarni málsins er, að menntaskólum verður að fjölga. Jafnframt verður að auðvelda æskunni aðgang að þessum skólum. Fram hjá þeirri staðreynd verður ekki gengið opnum augum, að landsprófið er gallað og breytingar á framkvæmd þess þola ekki bið. En í þessu frv. felast engar tilraunir til þess. Ég tel einnig rétt að láta þá skoðun koma fram, að eðlilegt sé, að Kvennaskólinn í Reykjavík, sem er gömul og merk menningarstofnun, fái réttindi til þess að brautskrá stúdenta. Í þessu frv. er ekki lagt til, að svo verði gert.
Alþingi markaði árið 1965 þá stefnu, að stofnaðir skyldu tveir nýir menntaskólar, á Ísafirði og á Austurlandi. Þessa stefnu ber að framkvæma, ekki einhvern tíma um næstu aldamót, heldur á þeim grundvelli, sem lagður er með framkvæmdaáætlun þeirri, er hæstv. menntmrh. hefur verið send, að því er varðar menntaskóla á Ísafirði. 4 ár eru liðin, síðan ákveðið var, að fyrrgreindir tveir menntaskólar skyldu stofnaðir. Það verður þess vegna ekki sagt með sanni, að krafa um óhóflegan hraða felist í framkvæmdaáætlun Ísfirðinga og Vestfjarðaþm. Þvert á móti er hér um að ræða sanngjarnar og hófsamar óskir. Það vona ég einnig, að hæstv. menntmrh., sem sjálfur beitti sér fyrir lögfestingu menntaskólasetranna árið 1965, og á fyrir það miklar þakkir skildar, geri sér ljóst ekki síður nú en þá.
Á undanförnum árum hefur margt verið gert til umbóta í íslenzkum skólamálum. Fjölmargt er þar þó enn þá ógert, eins og að líkum lætur. Meginmáli skiptir nú, að lokið verði hið fyrsta við heildarendurskoðun á sjálfu skólakerfinu. Meðan þeirri endurskoðun er ekki lokið, verður erfitt um vik að gera einstökum þáttum þess skapleg skil. Þess vegna er hætt við því, að það frv., sem hér liggur fyrir um menntaskóla, verði að takmörkuðu gagni, þótt að lögum yrði, sem þó getur ekki orðið að minni hyggju nema með verulegum breytingum.