02.05.1969
Neðri deild: 87. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 242 í C-deild Alþingistíðinda. (2488)

166. mál, menntaskólar

Forsrh. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Enginn efi er á því, að þetta frv. markar merkilegt spor í okkar skólamálum og greiðir fyrir því, að menn fái alhliða menntun í þeim skólum, sem hér er um fjallað. Ég vil einungis láta það uppi, að skoðun mín er sú, að þó að menntaskólar séu að vissu marki til undirbúnings fyrir háskólamenntun, þá er það síður en svo, að að því þurfi að stefna eða æskilegt sé, að allir stúdentar þurfi að sækja háskóla, og þess vegna sé fyrst og fremst í þessum skólum miðað við undirbúning undir framhaldsnám. Enginn efi er á því, að það verður þörf fyrir alhliða menntun í öllum stéttum þjóðfélagsins, eftir því sem tímar líða, og það má síður en svo koma þeim skilningi inn hjá alþjóð og þá allra sízt hjá æskulýð, að það sé nokkur uppgjöf eða hálfmenntun, þó að menn hverfi frá námi að stúdentsprófi loknu. Það er mjög mikilsvert, að menn hafi á þessu réttan skilning. Einmitt þess vegna er æskilegt, að í menntaskólunum séu möguleikar til menntunar á fleiri en einn veg, ef svo má segja.

Um hitt má svo deila, hvort þetta frv. þurfi frekari íhugunar við heldur en hefur gefizt á þeim tiltölulega stutta tíma, sem það hefur verið hér til meðferðar, einmitt vegna þess, hve merkilegar nýjungar það hefur í sér fólgnar. En ef Alþ. getur gefið sér tíma til þess að skoða málið ofan í kjölinn og afgr. það nú á þessu þingi, er að sjálfsögðu ekki nema gott um það að segja. En hitt ber einnig að hafa í huga, að stórmál, slík sem þetta, hafa oft gott af því að meltast nokkuð með mönnum.

Ég staðfesti það, sem hæstv. menntmrh. sagði, að ríkisstj. hefur eftir atvikum orðið því samþykk, að flutt yrði sérstakt frv. um heimild Kvennaskólans í Reykjavík til þess að útskrifa stúdenta. Sjálfur hefði ég þó talið eðlilegra, og ég vil, að það komi hér fram, að í þessu frv. sjálfu væri skýr heimild til þess og ákvæði um það, með hverjum hætti mætti veita skólum slík réttindi. Þetta hefur stundum áður verið gert án nokkurrar lagaheimildar. Nú er talað um, að það sé tvísýnt, hvort ákvæði frv. heimili þetta eða heimili þetta ekki. Ég mundi telja æskilegra, að um þetta væru alveg skýr ákvæði í frv., með hvaða skilyrðum menntmrh. væri heimilt að veita slík réttindi. Þetta krefst að sjálfsögðu vinnu. En er þá ekki eðlilegra, úr því að verið er að setja heildarlöggjöf um menntaskólana, að þá séu öll ákvæðin um þá í einu frv., heldur en við nú alveg samtímis þessu frv. förum að afgr. annað frv. um einn anga málsins? Úr því að menntmn. þessarar hv. deildar hefur talið annan hátt réttari, þá tel ég ekki ástæðu til að beita mér á móti því, að þvílíkt frv. yrði samið og samþ., enda hafa auðvitað allir heimild til að flytja slík frv. En úr því að málið er hér til umr. og ég hér staddur, finnst mér þó rétt að fá nánari rök fyrir því, af hverju menn vilja ekki setja um þetta skýr ákvæði í frv. sjálft. jafnframt vil ég lýsa því sem minni skoðun, að ég er mjög eindregið fylgjandi því, að kvennaskólinn fái þessa heimild. Það er enginn efi á því, að það hefur greitt fyrir menntun fjölda manna og ekki orðið ríkissjóði og ríkisvaldinu til neins baga, þó að verzlunarskólinn fengi slíka heimild, og eins á að vera hægt að setja fullnægjandi fyrirmæli um þessi efni varðandi kvennaskólann.

Varðandi 1. gr. frv. og eftir brtt. hv. n., sem mér skilst að taki til allrar 1. gr., sýnist mér þar dálítið óljóst til orða tekið. Með leyfi hæstv. forseta, hljóðar brtt. n. á þessa leið:

„Menntaskólar skulu vera svo margir sem þörf er á, þ. á m. 2 í Reykjavík, 1 á Akureyri, 1 á Laugarvatni, 1 á Ísafirði og 1 á Austurlandi. Kostnaður við stofnun og rekstur menntaskóla greiðist úr ríkissjóði, eftir því sem fé er veitt til á fjárl.“

Hver á að taka ákvörðun skv. þessu um fjölda menntaskóla? Er ætlunin sú, að um það sé sett sérstök löggjöf hverju sinni? Er það nóg, að það sé veitt fé til þess á fjárl., og er þá menntmrh. skyldugur til þess að stofna skóla, jafnvel þó að hann sé því andvígur? Eða getur menntmrh. stofnað skóla, en það bíði þó að komast í framkvæmd, þangað til fé sé veitt á fjárl.? Mér skilst, að ef ætlunin sé, að samþykki beggja þurfi að koma til eða ákvörðun beggja, bæði menntmrh. og fjárveitingarvaldsins, þurfi að taka það skýrt fram, að menntmrh. geti fjölgað menntaskólum, þegar veitt sé til þess fé á fjárlögum, eins og þarna stendur. Helzt ber að skilja þetta svo nú, að fjárveitingarvaldið eitt, án atbeina menntmrh., geti stofnað slíkan skóla, en það er væntanlega ekki meiningin.

Þetta finnst mér ekki nógu ljóst, og ég hygg, að það sé mjög eðlilegt, einmitt í sambandi við þetta frv., að þá geri menn hug sinn upp um það, hvaða skólar eigi að hafa réttindi til þess að útskrifa stúdenta. Á að kveða á um það í löggjöf hverju sinni, á að kveða á um það í fjárl., eða á menntmrh. að hafa valdið? Vel er hægt að hugsa sér þann hátt á, og mér finnst ekki betra að tala um það í sambandi við neitt annað mál en þetta, að greina þarna á milli: annars vegar menntaskóla, sem ríkissjóður stendur undir að öllu, og svo skóla eins og kvennaskólans, sem heldur áfram að vera ungmennaskóli með sama hætti og verið hefur, en ríkið tekur ekki á sig byrðina eitt, nema þá eingöngu að því er varðar stúdentsdeildina. Mig minnir, að verzlunarskólinn standi einn undir byrðinni og þeir, sem bera kostnað af honum, — er það ekki svo? (GÞG: Jú.) — og einungis sá almenni styrkur, sem er veittur skólanum. Hér eru nokkuð misjafnar reglur, og mér finnst vera eðlilegast, að menn geri sér grein fyrir þessu öllu, samtímis því sem verið er að setja löggjöfina. Ég játa þó, að ég er fylgjandi því, að Kvennaskólinn í Reykjavík fái þessi hlunnindi og vil styðja það frekar en að málið falli niður, að um það sé sett sérstakt frv. En ég tel og vildi benda á, að þetta sé svo veigamikill hluti málsins, að menn eigi að gera sér grein fyrir því, samtímis því sem þetta frv. er afgreitt, og hafa það sem einn hluta þess.