02.05.1969
Neðri deild: 87. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 256 í C-deild Alþingistíðinda. (2507)
232. mál, lax- og silungsveiði
Landbrh. (Ingólfur Jónsson):
Herra forseti. Frv. það, sem hér er um að ræða, er flutt af n., sem skipuð var 1. ágúst 1967. Laxveiðilögin, sem núna eru í gildi, eru frá árinu 1957. Laxveiðilöggjöfin er mjög viðkvæm, og um hana standa stöðugt deilur. Þess vegna var m. a. skipuð n. 1963 til þess að endurskoða þessi lög, þótt þau væru ekki þá nema 6 ára gömul. Sú n. skilaði áliti 1965, og var það frv. lagt fyrir Alþ. með nokkrum breytingum frá rn., og það var endurflutt 1966, þá um haustið. Frv. þetta var sent búnaðarþingi, og gerði það ýmsar brtt. um málið, og sýnt þótti, eftir að það hafði komið frá ýmsum umsagnaraðilum, að þetta frv. mundi ekki geta orðið lögfest, og varð því að ráði að skipa n. til þess að semja nýtt frv.
Í því frv., sem hér er um að ræða, eru nokkrar breytingar frá gildandi lögum, sem eru allveigamiklar N, sem fjallaði um frv. og endurskoðun á laxveiðilöggjöfinni, var nokkuð fjölmenn, 9 manna n., en í þeirri n. voru Gizur Bergsteinsson hæstaréttardómari, formaður, Bjartmar Guðmundsson alþm., Guðmundur J. Kristjánsson deildarstjóri, Gunnlaugur E. Briem ráðuneytisstjóri, dr. Halldór Pálsson búnaðarmálastjóri, Jakob Hafstein lögfræðingur, Þórir Steinþórsson fyrrv. skólastjóri og Þór Guðjónsson veiðimálastjóri. Og 22. ágúst 1967 var einum manni bætt við í n., Jóni Ármanni Héðinssyni alþm., sem starfaði svo með n. eftir það. N. hélt marga fundi og fékk fjölda bréfa frá veiðibændum og veiðimönnum og samtökum þeirra. N. varð ekki sammála, en að því frv., sem hér er flutt, stendur meiri hl. n., þeir Gizur Bergsteinsson, formaður n., Gunnlaugur E. Briem, Þór Guðjónsson og Þórir Steinþórsson, enn fremur Bjartmar Guðmundsson og Halldór Pálsson, en þessir tveir síðast töldu nm. styðja þó frv. með fyrirvara, sem a. m. k. annar þessara manna gerir grein fyrir, en þeir voru báðir í aðalatriðum fylgjandi því frv., sem hér er um að ræða.
Helztu nýmæli í frv. þessu má nefna aukna friðun fyrir netaveiði um 12 stundir á viku. En það er einmitt netaveiðin, sem virðist vera ákaflega viðkvæm. Veiðibændur, sem netaveiðar stunda, eru vitanlega á móti styttingu á veiðitímanum, en þeim, sem búa ofar við árnar, finnst, að netaveiðin taki oft of mikið af veiðinni, og kenna því jafnvel um, að þess vegna veiðist ekki ofar í ánum eða í hliðarám, sem renna í aðalána. Sumir hv. nm. vildu ganga mun lengra í friðuninni en þetta, en meiri hl. n. leggur til, að friðunin verði aukin um 12 stundir. Þetta er vitanlega alltaf álitamál og verður vitanlega til athugunar bæði í þeirri n., sem þetta frv. fær, og meðal alþm., hvort nauðsyn þyki bera til að stytta friðunartímann eða hvort of skammt er gengið í friðuninni með þessu. Það hlýtur að vera matsatriði og til nánari athugunar.
Aðrar merkar nýjungar í frv. eru m. a. breytingar á félagslegu skipulagi veiðimála. Lagt er til, að fiskiræktarfélög verði lögð niður, enda er talið, að þau hafi eigi náð þeirri hylli eða útbreiðslu, sem vænzt var í upphafi. Ætlazt er hins vegar til, að veiðifélög verði starfandi samkv. l. við öll fiskihverfi landsins, m. a. á afréttum, þar sem slík félög geti náð yfir fleiri en eitt fiskihverfi eftir aðstæðum. Það er fyrirhugað að breyta þeirri tilhögun, sem nú er, þ. e. að veiðifélög starfi við sum fiskihverfi og eigi við önnur, enda er stjórn og rekstur veiðimála í góðu lagi, þar sem veiðifélögin starfa, til mikils gagns og hagsbóta fyrir veiðibændur. En þar sem veiðifélög eru eigi starfandi, er skipulagsleysi ríkjandi og fiskirækt vart hugsanleg vegna skorts á samstarfi.
Í frv. er gert ráð fyrir stofnun fiskræktarsjóðs, sem hafi það hlutverk að efla fiskrækt og fiskeldi í landinu með beinum styrkjum og lánum. Með fiskræktaraðgerðum, eins og t. d. með fiskvegagerð og með því að sleppa seiðum, má auka veiði í ám og vötnum til mikilla muna frá því, sem nú er, og að því er vitanlega stefnt. Nútíma fiskrækt byggist að verulegu leyti á fiskeldi, þar sem aliseiðum af mismunandi stærðum er sleppt í veiðivötn. En fisk má enn fremur ala upp til neyzlu, og má gera fiskeldið þannig að sérstakri framleiðslugrein.
Þá eru í frv. till. um breytt skipulag í sambandi við eftirlit með fisksjúkdómum og gerð till. um skipun sérfræðinganefndar til að fylgjast með og vinna gegn fisksjúkdómum, sem kynnu að koma upp í landinu, en með aukinni fiskrækt og fiskeldi er aukin hætta á, að fisksjúkdómar komi upp.
Verðmæti lax og silungs hefur vaxið mjög hin síðari ár og ásækni manna aukizt í að veiða þessar fisktegundir ólöglega. Ber því nauðsyn til að vernda þær í vaxandi mæli gegn ólöglegri veiði og auðvelda, að komið sé fram viðurlögum við brotum gegn laxveiðilöggjöfinni. Í frv. eru ákvæði um að létta eftirlitsmönnum leit að ólöglegu veiðifangi, að Landhelgisgæzlan taki að sér veiðieftirlit úr lofti og sérstakur veiðidómari rannsaki og dæmi veiðilagabrot. Þá hefur refsimörkum verið breytt og þau gerð víðtækari og sektir fyrir laxveiði í sjó verið hækkaðar verulega.
Frv. þetta var lagt fyrir síðasta búnaðarþing, og samþykkti búnaðarþing frv. í aðalatriðum, og nokkrar brtt. þingsins eru teknar upp í frv.
Eins og ég hef þegar tekið fram, er það meiri hl. n., sem stendur að þessu frv., og minni hl. styður það einnig í aðalatriðum. Þótt hann vildi ganga lengra í breytingum á nokkrum atriðum, t. d. með því að tryggja fiskræktarsjóði fjárframlög úr ríkissjóði og stofnfé, þá var minni hl. í aðalatriðum á sömu bylgjulengd og meiri hl., þótt hann vildi á ýmsum sviðum ganga nokkru lengra. Og ég tel sjálfsagt, að álit minni hl. komi til þeirrar nefndar, sem fær þetta mál til meðferðar, og einnig að öðrum hv. alþm., sem þess óska, verði gefinn kostur á að kynna sér álit minni hl.
Minni hl. gerði ákveðnar till. um auknar tekjur fyrir fiskveiðasjóð og breytingu á skipulagi við stjórn veiðimálanna. Enn fremur gerði minni hl. till. um meiri friðun fyrir netaveiði heldur en öll n. gat fallizt á eða meiri hl. hennar. Það er enginn vafi á því, að nú í seinni tíð er orðinn mjög aukinn áhugi á fiskrækt, og með tilkomu fiskeldisstöðvarinnar í Kollafirði er vitanlega stigið stórt spor í þá átt að koma hér upp fiskeldi í landinu. Til fiskeldisstöðvarinnar í Kollafirði hefur nú þegar verið varið allmiklum fjármunum, bæði í stofnkostnaði og rekstri í seinni tíð. Og nú mun fiskeldisstöðin í Kollafirði hafa mikið af gönguseiðum, sem flýtir mjög fyrir fiskræktinni. Vona allir, að fiskeldisstöðin í Kollafirði, sem er í senn fiskræktarstöð og tilraunastöð, sem allir, sem að fiskeldi vilja vinna, geta notið góðs af, geti orðið til þess að ýta þessum málum áfram. Margir einkaaðilar hafa þegar hafið fiskrækt hér syðra og á Vesturlandi, Norðurlandi og jafnvel á Vestfjörðum, og fleiri munu á eftir koma. Okkar straumvötn og stöðuvötn eru vel til þess fallin, að þau séu fyllt af fiski, og að því ber að stefna, og sá áhugi, sem nú þegar er fyrir hendi hjá öllum almenningi, mun vitanlega styðja það bezt og miklu fremur en aukin fjárframlög úr ríkissjóði, sem þó kunna að vera nauðsynleg til þess að þoka þessum málum áfram.
Herra forseti. Ég tel ekki ástæðu til að svo stöddu að hafa þessi orð öllu fleiri. Ég geri ekki ráð fyrir, að þetta frv. nái fram að ganga nú á þessu þingi, en þótti eigi að síður eðlilegt að sýna það, til þess að hv. alþm. gætu gert sér ljóst, hvað í frv. felst, og tekið það til athugunar. Það verður svo að sjálfsögðu endurflutt á næsta þingi, því að nauðsyn þykir bera til að gera breytingar á núgildandi laxveiðilögum. Og mér er alveg ljóst, að ýmislegt, sem í frv, er, geti orkað tvímælis og eðlilegt, að hv. Alþ. geri sér grein fyrir því, hvort halda ber sig við það, sem í frv. felst, eða gera nokkrar breytingar þar á. Og ég vil segja það, að ég er til viðtals um það að taka ýmis atriði frv. til nánari athugunar.
Ég legg svo til, herra forseti, að að lokinni þessari umr. verði málinu vísað til 2. umr. og hv. landbn.