04.11.1968
Neðri deild: 9. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 285 í C-deild Alþingistíðinda. (2536)
25. mál, þingsköp Alþingis
Lúðvík Jósefsson:
Herra forseti. Ég var einn þeirra alþm., sem voru í þeirri mþn., sem undirbjó þetta frv., og vildi því segja hér örfá orð um þær aths., sem hér hafa komið fram, einkum frá hæstv. forsrh. Mér finnst afstaða hans til þessa frv. vera furðulega neikvæð, og ég skil ekki í raun og veru hans afstöðu, því að ég held, að það verði erfitt að deila um það, að í frv. eru ýmis ákvæði, sem ég ætla, að nálega allir þm, hljóti að vera sammála um, að séu mjög til bóta frá því, sem er að finna í gildandi þingsköpum, atriði, sem mundu greiða fyrir þingstörfum á ýmsan hátt, gera þau hraðvirkari og eðlilegri. Þessi atriði er öll hægt að afgreiða og sjálfsagt að afgreiða og engin ástæða til þess að draga hér þing eftir þing að afgreiða a. m. k. þau atriði úr þessu frv.
En þá vildi ég víkja að þeim aths., sem einkum hafa komið hér fram frá hæstv. forsrh., sem varða m. a. útvarpsumr. frá Alþ. Það er rétt, að eins og segir í grg. frv., eru þessar till. miðaðar við það, að þær nái aðeins að því marki, sem hægt var að fá fullt samkomulag um innan n., og ég tók svo eftir, að hæstv. forsrh. væri í raun og veru á þeirri skoðun líka, að það væri varla rétt, a. m. k. ekki á fyrsta stigi málsins, að ganga öllu lengra til þess að breyta þingsköpum varðandi þetta mikilvæga atriði en að því marki, sem flokkarnir gætu fallizt á. En þá er aðeins um það að spyrja: Eru þá þessar till. ekki í rétta átt einnig varðandi þetta atriði, um útvarpsumr. frá Alþ.?
Í frv. er lagt til að leggja niður þær útvarpsumr. frá Alþ., sem skyldaðar eru samkv. þingsköpum, sem eru fjárlagaumr., þegar fjárlagafrv. í byrjun þings er lagt fram, sem alveg tvímælalaust eru þær umr. eins og nú er komið, sem eru óeðlilegastar sem útvarpsumr. frá Alþ. Þær eru þannig, að fjmrh. flytur þá jafnan langa skýrslu, einn klukkutíma eða 1½ klukkutíma, mikið talnaflóð, og síðan koma ræður frá hverjum þingflokki, hálftíma ræða frá hverjum þar á eftir og síðan 15 mínútna svarræða aftur frá fjmrh. Þetta eru mjög langdregnar umr., þunglamalegar, og ég hygg, að flestallir þm., ef ekki allir, séu á þeirri skoðun, að það beri að breyta þessum umr. Þetta urðum við sammála um í þessari n., að leggja til að fella þær umr. niður. Þetta tel ég fyrir mitt leyti spor í rétta átt. Hins vegar töldum við ekki óeðlilegt, m. a. vegna þess háttar, sem þá hafði verið tekinn upp á nokkrum þingum, að það yrðu stuttar útvarpsumr. í upphafi hvers þings, þar sem m. a. forsrh. gerði í stuttu máli grein fyrir stefnu ríkisstj. og aðrir þingflokkar fengju þar stuttan tíma til þess að lýsa afstöðu sinni. Þetta sýndist okkur vera mjög eðlilegt, að í upphafi hvers þings færu fram svona tiltölulega stuttar umr. í útvarpi frá þinginu. Og ég er enn á þeirri skoðun, að það sé varla hægt að ganga lengra en svo, um leið og þær umr., sem nú hafa verið lengi sem útvarpsumr. frá þinginu, fjárlagaumr., eru lagðar niður, að þá sé rétt, að svona stuttar umr. komi í staðinn.
Þá er haldið því atriði, að hægt sé að krefjast þess, að það fari fram útvarpsumr. um mál, sem lagt er fram í þinginu, en ræðutími er styttur frá því, sem verið hefur. Ég fyrir mitt leyti er ekki á þeirri skoðun, að við eigum að fella niður þann rétt þm. og þingflokka, að þeir geti óskað eftir því, að útvarpað verði umr. frá Alþingi um tiltekin mál, sem lögð eru fyrir þingið. Þetta er mjög þýðingarmikill réttur, að þegar mál er lagt fyrir þingið, þá sé hægt að fá umr. um það tiltekna mál, og reynslan hefur verið sú, að það er ekki beðið um slíkar umr., nema um býsna stór mál sé að ræða. En hins vegar varð n. sammála um það að stytta þennan umræðutíma í útvarpi frá því, sem verið hefur. Er t. d. hæstv. forsrh. á þeirri skoðun, að það ætti að taka þennan rétt af með öllu, að þm. eða þingflokkar hafi ekki áfram rétt til þess að óska eftir útvarpsumr. um tiltekin mál, sem lögð eru fyrir þingið, að það ætti að fella þetta alveg niður? Ég er ekki í neinum vafa um það, að þeir þm. eru býsna margir, sem telja þetta ekki fært. Við komumst að þeirri niðurstöðu, eftir að hafa rætt málið allmikið í þessari mþn., að það væri ekki fært að taka þennan rétt af þm. eða þingflokkum.
Það er svo ekkert um það að villast, að í okkar till. er miðað við það að gera t. d. hinar löngu eldhúsdagsumr., sem þingflokkar geta krafizt að séu í framkvæmd miklu lengri en þær hafa verið í reynd nú um langan tíma, — við vildum breyta þingsköpum þannig, að þessum umr. yrði breytt í almennar stjórnmálaumr., sem færu fram á seinni hluta þings, og styttar til mikilla muna frá því, sem verið hefur, eða m. ö. o. að gera ráð fyrir þessu, að í byrjun þings færu fram stuttar umr. í stað langra, sem nú eru, og að á seinni hluta þings eða í þinglok færu fram almennar stjórnmálaumr., líka miklu styttri en eldhúsdagsumr. eru nú, og áfram yrði haldið þessum rétti fyrir þm. og þingflokka, að biðja um útvarpsumr. eða fá útvarpsumr. um málefni, sem lögð eru fyrir þingið, en þó væri sem sagt umræðutíminn miklu styttri en hann hefur verið.
Ég efast um, að það sé auðvelt að fá hér sæmilegt samkomulag á Alþ. um að ganga öllu lengra en þetta í þessa átt, a. m. k. á fyrsta stiginu. Það kann að vera, að þessu verði þá aftur breytt, áður en langt um líður, en það er þá líka auðvelt fyrir Alþ. að breyta þessum þingsköpum, þegar skoðanir eru orðnar uppi um annað.
Þá var annað atriði, sem hæstv. forsrh. gerði hér nokkuð að umtalsefni, en það eru ákvæði í þingsköpum um fsp. á Alþingi. Ég held, að það sé enginn vafi á því, að þær breytingar, sem n. leggur til, að teknar verði upp varðandi fsp. á Alþ., eru mjög til bóta. Með þessu er gert ráð fyrir því að flokka þetta meira niður í tvær óskyldar aðferðir til þess að afla upplýsinga á Alþ. Annars vegar er gert ráð fyrir stuttum og hnitmiðuðum fsp., sem ætlazt er til beinlínis samkv. þingsköpum að ráðh. eigi að geta svarað í örstuttu máli, og hann fær ekki nema stuttan ræðutíma til þess að svara, hann fær enga aðstöðu til þess að halda þar langa ræðu. Hins vegar er gert ráð fyrir því, m. a. í samræmi við þá reynslu, sem hér hefur orðið, að ráðh. geti flutt Alþ. skýrslu um heilan málaflokk. Ef t. d. ráðh. vill flytja Alþ. skýrslu, eins og komið hefur fyrir, við skulum segja um ástand almennt í fræðslumálum landsins, sem er ekkert smáræði að ræða um, þá sé gert ráð fyrir því, að ráðh. geti gefið slíka skýrslu, og þá verði ekki tekin um hana nein sérstök ákvörðun undir þeim dagskrárlið. Og einnig er þá gert ráð fyrir því, að alþm. geti, ef þeir setja fram kröfur um það nægilega margir, óskað eftir því, að ráðh. geri þinginu grein í skýrsluformi fyrir slíkum stærri málaþáttum. M. ö. o.: nokkrir þm. geta óskað eftir því, að ráðh. gefi þinginu skýrslu um heilan málaflokk, en það sé ekki verið að blanda þessu saman, eins og nú hefur orðið í framkvæmd, inn í hinn almenna fsp.-tíma. Það er kannske af hálfu þm. spurt þannig, að það er ekki auðvelt að svara því í hnitmiðuðu máli, en ráðh. virðist gjarnan grípa tækifærið og flytja sem svar við fsp. í fsp.-tíma langa almenna grg. eða ræðu.
Ég held, að menn muni komast að þeirri niðurstöðu við nánari athugun, að þessar till. mþn. til breytinga á þessum málaflokki eru mjög til bóta frá því, sem verið hefur. Það getur vel verið, og ég efast ekkert um það, að það megi bæta þarna enn um, en það ætti ekki að vera þá ofvaxið fyrir þær þn., sem fjalla hér um málið, að bæta þarna nokkuð úr. Mér finnst því, að þær aths., sem ég hef hlustað hér á frá hæstv. forsrh. við þessi tvö meginatriði, séu ekki þess eðlis, að þær séu sannfærandi til þess, að við eigum að láta málið niður falla eða láta það liggja, eins og gert hefur verið.
Þá hefur hæstv. forsrh. einnig minnzt á það í þessu sambandi, — ég skildi hann eiginlega þannig, að hann vildi eiginlega helzt af öllu láta taka það skýrt fram, að fsp. utan dagskrár, sem hér hafa þekkzt um langan tíma, væru þá aflagðar með öllu, þær væru nánast bannaðar. Það tel ég fyrir mitt leyti alveg óeðlilegt. Hinar skriflegu fsp., sem lagðar eru fyrir ráðh., eru allajafna og eðli málsins samkv. til þess að fá upplýsingar um einhver tiltekin atriði, sem ráðh. fær þá venjulega úr sínu rn., en fsp., sem gerðar eru utan dagskrár, eru um einhver málsatvik, sem orðið hafa til skyndilega og eru þess eðlis, að það þarf að fá upplýsingar um þau strax á stundinni eða svo að segja. Gerist einhver stórþýðingarmikill atburður hér í kringum okkur, þá er ekki nema eðlilegt, að alþm. hafi rétt til þess utan dagskrár á þingi að spyrja ríkisstj. um það eða viðkomandi ráðh., hvað sé fyrirhugað að gera í tilefni af einhverju slíku, en alveg óeðlilegt að fara að flytja um það skriflega fsp., sem síðan á að þvælast í þinginu í marga daga eða heila viku. Þessi réttur hefur verið veittur þm. hér í framkvæmd um langan tíma, og það hefur alltaf þótt eðlilegt, að það mætti spyrja ráðh. eða ríkisstj. í slíkum tilfellum, og ég fyrir mitt leyti er því algerlega andvígur, að það séu sett inn einhver ákvæði í þingsköp um að banna það með öllu, enda held ég, að það væri alveg þýðingarlaust, því að ég held, að slíkar fsp. mundu þá bara koma fram í ræðum manna svo að segja í gegnum hvaða mál sem væri á dagskrá fyrir.
Ég get sem sagt vel skilið það, ekki sízt þegar ég hugsa til þeirra umr., sem fóru fram hjá okkur í þessari mþn. um þessi mál, að hæstv. forsrh. o. fl. komi margt í hug í sambandi við þessi mál og þeim detti í hug, að það mætti skipa þarna ýmsum málum á annan veg en okkur hefur sýnzt í n., að bezt væri. Það get ég mætavel skilið og efast ekkert um það, að hann og fleiri þm. geta komið með ýmsar ábendingar, sem gætu gert þingsköpin betri en hér er lagt til að gera þau. En ég sé ekki, að þessar aths., sem fram hafa komið, séu þess eðlis, að það sé ástæða þeirra vegna að hverfa frá því, að þetta frv. geti fengið hér eðlilega afgreiðslu í þinginu og það verði samþ. a. m. k. þær breytingar á gildandi þingsköpum, sem greinilegur vilji alþm. er fyrir að gera. Ég fyrir mitt leyti mæli því með því, að sú þn., sem fær þetta mál til athugunar, ef málið fer hér til sérstakrar n. til athugunar, sem það hlýtur að gera, að hún reyni nú að þoka þessu máli áfram, svo að hægt verði að afgreiða það á þessu þingi.