04.11.1968
Neðri deild: 9. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 297 í C-deild Alþingistíðinda. (2540)

25. mál, þingsköp Alþingis

Flm. (Sigurður Bjarnason):

Herra forseti. Ég skal ekki lengja þessar umr. Ég leyfi mér að þakka hæstv. forsrh. og hv. þm., sem hafa tekið þátt í þessum umr. Í ræðum þeirra hafa komið fram ýmsar gagnlegar ábendingar og hugmyndir, sem hv. allshn., sem væntanlega fær þetta mál til afgreiðslu, getur haft hliðsjón af. En það voru fyrst og fremst fsp. hv. 1. þm. Norðurl. e., sem urðu tilefni þess, að ég segi hér örfá orð.

Hv. þm. sagði, að mþn. hefði verið falið að endurskoða gildandi lög um þingsköp Alþingis, og spurði í framhaldi af því, hvort þessi almenna endurskoðun þingskapa hefði þá ekki farið fram. Þessu er bezt svarað með því að vísa til grg. frv., en þar segir: „Varð nefndin sammála um að taka þingsköpin í heild til almennrar endurskoðunar.“ N. þykist því hafa unnið starf sitt í samræmi við þáltill., sem hv. þm. nefndi. Að sjálfsögðu má alltaf deila um það, hvort ekki hefði mátt taka fleiri atriði til athugunar og endurskoðunar en n. hefur gert, en það, sem í þessu frv. felst, er það, sem n. varð sammála um, eins og ég gat um í framsöguræðu minni.

Þá spurði hv. þm. í öðru lagi, hvort ekki hefðu komið fram fleiri till. en þær, sem samkomulag varð um. Ég gat þess í framsöguræðu minni fyrir frv., bæði í fyrra og nú við þessa umr. í hv. þd., að það hefðu ýmsar aðrar till. komið fram, og ég tel alveg sjálfsagt, að allshn. þessarar hv. þd. fái aðgang að gerðabók mþn., þannig að hún fái fulla vitneskju um það, hvaða till. aðrar hafa komið fram, enda þótt ég fullyrði ekki um, að hver og ein hugmynd, sem þar var hreyft, hafi verið færð þar til bókar.

Í þriðja lagi benti hv. 1. þm. Norðurl. e. á það, að hann saknaði þess t. d., að engar till. hefðu verið teknar upp í frv. nefndarinnar t. d. um samvinnunefndir, en um þær skorti ákvæði í þingsköpum, skildist mér á hv. þm. Það er rétt, þetta kom aðeins til umr. í hv. mþn., en í þingsköpum eru reglur um samvinnunefndir, að vísu mjög fábrotnar og skematískar. Í 16. gr., þingskapa segir svo, með leyfi hæstv. forseta:

„Til fastanefndanna getur hvor þd. vísað þeim þingmálum, sem fyrir d. eru lögð og þörf þykir að n. íhugi, og skal þá að jafnaði vísa hverju máli til sömu fastanefndar í báðum deildum. Það er samvinnunefnd, ef samkynja fastanefndir beggja d. vinna saman.“ Í 16. gr. þingskapa er þannig ótvíræð heimild og ákvæði um það, að samkynja nefndir beggja d. geti unnið saman, enda gera þær það oft og iðulega.

Ég hygg þá, að ég hafi svarað þeim fsp., sem hv. 1. þm. Norðurl. e. beindi til mín. Ég vil svo aðeins segja það út af því, sem hæstv. forsrh. sagði um, að mþn. hefði átt að taka þetta frv. til meðferðar að nýju vegna þeirra ábendinga, sem fram komu hér í hv. þd. á s. l. ári, að ég hygg, að það sé ekki venjulegt, að mþn. taki þannig mál upp að nýju, eftir að þær hafa lokið störfum, enda sýnist þá í þessu tilfelli langsamlega eðlilegast, að hv. þn., sem fær málið til álíta og afgreiðslu, geri þær breytingar, sem nauðsynlegar eru frá till. mþn., og taki þá m. a. til greina þær ábendingar, sem fram koma í umr. á Alþingi. Ég vona, að hv. allshn., sem fær þetta mál væntanlega til meðferðar, hafi einmitt þennan hátt á, hún leggi ekki aðeins til grundvallar það frv., sem mþn. hefur gengið frá og liggur hér fyrir, heldur einnig þær margvíslegu og nytsamlegu ábendingar, sem komið hafa fram frá einstökum þm. og hæstv. forsrh.

Ég vænti þess eindregið, að Alþ. afgreiði nú þetta frv. Það er þörf á ýmsum breytingum á þingsköpum, þeim sem lagt er til að gerðar verði í þessu frv., og áreiðanlega ýmsum öðrum, og ég hygg, að það muni ekki standa á okkur nm. í mþn. að fylgja ýmsum skynsamlegum till., sem fram kynnu að koma frá öðrum hv. þm. um þetta mál. En umfram allt: Alþ. þarf ekki að veita þessu máli fyrir sér, breytingu á sínum eigin þingsköpum, svo að árum skiptir. Á því er full nauðsyn, að þingsköp séu endurskoðuð í ljósi reynslunnar og í samræmi við nýjar kröfur og óskir um bæt og breytt vinnubrögð þingsins.