04.11.1968
Neðri deild: 9. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 300 í C-deild Alþingistíðinda. (2542)
25. mál, þingsköp Alþingis
Gísli Guðmundsson:
Herra forseti. Ég vil þakka hv. formanni mþn. fyrir greið svör við fsp., sem ég bar fram til hans. Ég vil taka undir það með honum, að mér virðist, að það eigi að stefna að því að afgreiða þetta mál í þinginu á einhvern hátt, og fyrir mitt leyti vil ég stuðla að því, að svo verði. Til þess eru mál lögð fyrir Alþ., að Alþ. afgreiði þau, og á það raunar við um fleiri mál en þetta. Og ég minnist þess í sambandi við þessi ummæli, að á síðasta Alþ. og mörgum öðrum þingum hefur komið fram fjöldi mála, jafnvel í byrjun þings, sem enga afgreiðslu hafa hlotið á þingi. Slíkt er auðvitað ekki eins og það á að vera, og er gott að ræða um þetta við hv. þm., sem sjálfur er forseti annarrar þd.
Hv. þm, benti á það, að í 16. gr. þingskapanna væru ákvæði um samvinnunefndir. Þar segir svo, eins og hann las upp: „Það er samvinnunefnd, ef samkynja fastanefndir beggja deilda vinna saman.“ Ég hygg, að þetta ákvæði 16. gr. taki alls ekki til þess efnis, sem ég ræddi hér áðan. Þetta ákvæði á við það, þegar þeirri vinnuhagræðingu er beitt í flóknu máli, sem menn vilja ekki að tefjist um of, að þegar það er í fyrri d., komi n. beggja d. saman til þess að ræða málið og afgreiða það í raun og veru. Þessar samvinnunefndir fjalla þannig eingöngu um deildamál. En það tilvik, sem ég var hér að ræða um, er það, að n., sem kosnar eru í d. og starfa í d., taka sér fyrir hendur að starfa í Sþ., þegar sérstaklega stendur á, og gefa út nál. í Sþ. Þetta tel ég, að samrýmist ekki þingsköpum og að hér eigi að taka upp annan hátt á, annaðhvort þann að hafa ákvæði um það í þingsköpum, að deildanefndirnar skuli koma þarna til sögu, sem virðist reyndar vera ástæðulaust, eða taka upp ákvæði um sérstaka n. í Sþ., sem hafi það hlutverk, sem þessar nefndir hafa haft í Sþ., og skili um það áliti og e. t. v. um fleiri mál. Í því sambandi mætti á það benda, að til allshn. Sþ. er vísað á hverju þingi mörgum málum, sem varða samgöngur, og ef samgmn. væri til í Sþ., þá væri auðvitað eðlilegt að vísa þeim til hennar.
Ég ætla ekki að ræða frekar um þetta atriði. Ég nefndi það aðeins í ræðu minni áðan sem dæmi. Um þær umr., sem hér hafa farið fram um það, hvernig útvarpið flytji pólitískar fréttir, skal ég ekki vera margorður. En ég hef gert ráð fyrir því, að þau mistök, sem þar hafa orðið, séu ekki á ábyrgð ráðh. eða þeim að kenna, heldur sé það hið pólitíska útvarpsráð, sem fyrst og fremst ber ábyrgð í þessu efni, og þá kannske sérstaklega formaður útvarpsráðsins á hverjum tíma, sem eins og aðrir útvarpsráðsmenn er kjörinn pólitískri kosningu hér á Alþingi.