19.12.1968
Neðri deild: 25. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 351 í C-deild Alþingistíðinda. (2587)
71. mál, félagsmálaskóli verkalýðssamtakanna
Flm. (Hannibal Valdimarsson):
Herra forseti. Frv. um félagsmálaskóla verkalýðssamtakanna er að þessu sinni flutt af hv. 9. landsk. þm., Braga Sigurjónssyni, og hv. 10. þm. Reykv., Pétri Sigurðssyni, ásamt mér. Frv. hefur verið flutt nokkrum sinnum áður á Alþingi, og er það í þetta sinn að meginefni í samræmi við það form, sem það hefur haft, þegar það hefur verið flutt áður. Þó eru í því nokkur nýmæli, frá því að það var flutt síðast.
Efni frv. er í sem skemmstu máli það, að stofna skuli og halda skóla, er nefnist félagsmálaskóli verkalýðssamtakanna. Gert er ráð fyrir, að hann starfi 6 mánuði á ári yfir vetrarmánuðina, frá 1. nóv. til 1. maí, en þessu námstímabili megi þó skipta í tvennt, þannig að skólahaldið verði í tveimur þriggja mánaða námskeiðum. Einnig er í 1. gr. frv. heimilað að hafa styttri fræðslunámskeið, og er þá hugsunin sú, að kennsla fari á þeim aðallega fram í fyrirlestrum og með starfi námshópa.
Námsgreinar eru nú í frv. ákveðnar með mjög svipuðum hætti og í fyrri frv. um þetta mál, en þó eru nokkur atriði nú, sem ekki voru í fyrri frv., en það er einkum um kennslu, sem skuli fara fram í fyrirlestrum, um framleiðnimál og atvinnulýðræði, hagræðingarmál, vöruvöndun og endurhæfingu starfsmanna og þar á meðal um kjararannsóknir. En aðalnámsgreinar skólans skulu vera: íslenzk tunga og bókmenntir, Íslandssaga, einkanlega þó saga atvinnuveganna, og þjóðfélagsfræði, einnig skal veita ýtarlega fræðslu um sögu, stjórn og störf verkalýðsfélaga, samvinnufélaga og um samtök atvinnurekenda, svo og meginatriði íslenzkrar félagsmálalöggjafar, tryggingalöggjafar, öryggismálalöggjafar ýmiss konar, og þarf ekki að telja það upp nánar. Þá skal og kenna í þessum skóla fundarreglur og fundarstjórn og leiðbeina nemendum um að setja hugsanir sínar fram skipulega í ræðuformi. Enn fremur á að kenna þarna bókfærslu og undirstöðuatriði í vinnurannsóknum. Heimilt er svo, en ekki skylda, að kenna eitt Norðurlandamál í skólanum.
Skilyrði fyrir skólavist eru aðeins þau, að nemendur séu fullra 16 ára minnst, hafi óflekkað mannorð, séu ekki haldnir smitandi sjúkdómi og séu félagsmenn í verkalýðsfélagi.
Í 4. gr. er ákvæði um stjórn skólans, og er gert ráð fyrir, að 4 skólanefndarmenn skuli vera kosnir eða tilnefndir af miðstjórn A. S. Í., en félmrh. tilnefni 5. manninn og sé hann formaður skólanefndar. Stjórn skólans er sem sé hugsuð í höndum 5 manna skólanefndar. Skólanefndinni er ætlað það hlutverk að ráða skólastjóra og kennara.
Félmrn. gefur síðan út reglugerð um starfsemi skólans að fengnum till. skólanefndar.
Þá á ríkið einnig að sjá skólanum fyrir húsnæði. Um það eru nokkru vægari ákvæði en voru í fyrra frv. Nú segir í 4. gr.: „Ef byggja þarf nýtt skólahús, greiðist kostnaður við það úr ríkissjóði, eftir því sem fé er veitt til þess á fjárlögum. Svo greiðir hann og allan árlegan kostnað við rekstur skólans.“ Það er hugsanlegt, að þessi skólastofnun, sem er brýn þörf fyrir, hefji starf sitt nú fljótlega, ef frv. yrði að lögum. Má þá gera ráð fyrir, að það byrjaði smátt og þyrfti kannske ekki annað húsnæði en eina kennslustofu eða svo, og þess vegna er þetta sett þannig fram, því menn vita, að nóg er á könnu ríkissjóðs um þessar mundir og hans geta ekki allt of mikil til þess að taka á sig nýjar fjárhagslegar byrðar. Við höfum því sett þetta þannig fram: „Ef byggja þarf nýtt skólahús“ o. s. frv. Þá er í frv. gert ráð fyrir, að lögin komi til framkvæmda á skólaárinu 1969–1970.
Af því, sem ég nú hef sagt, er það ljóst, að tilgangur með slíku skólahaldi er auðvitað sá að skapa starfandi og verðandi forustumönnum verkalýðshreyfingarinnar, áhugasömum mönnum um hennar störf og hverjum félaga hennar, sem vill njóta möguleika til haldgóðrar fræðslu í þessum efnum, kennslumöguleika í þessum skóla, þ. e. a. s. þjálfa þá til starfa í þjónustu alþýðusamtakanna.
Þær þjóðir, sem okkur eru skyldastar, hafa fyrir löngu, fyrir áratugum, komið á fót slíkum skólum, það hafa Norðmenn gert og Danir, og það hafa Svíar og Finnar gert einnig. Allar Norðurlandaþjóðirnar nema Íslendingar hafa sína verkalýðsskóla, og hver þjóðin um sig þó fleiri en einn. Þetta eru viðurkenndar stofnanir og þykja inna af hendi nauðsynlega fræðslu og efla menn til félagslegs þroska. En þjóðfélagið á ekki svo lítið undir því, að þeir menn, sem starfa fyrir verkalýðshreyfinguna, kunni góð skil á þeim vandasömu málum, sem þar er nú fjallað um og snerta þjóðfélagið ærið oft og tíðum.
Það er vissulega full þörf á því, bæði fyrir verkalýðssamtökin og vinnuveitendasamtökin og þjóðfélagið, að þeir menn, sem fást við samningagerðir verkalýðsfélaganna og hafa afskipti af því að ákveða um kjör og vinnuskilyrði fólksins, kunni til verka. Þetta eru orðin mjög vandasöm viðfangsefni, eins og ég áðan sagði, og þó að menn að sjálfsögðu læri af reynslunni við að fást við þessi mál, eru þau nú orðin svo margbrotin og flókin, að ekki veitir af því, að menn eigi kost á þjálfun í skóla, í menntastofnun, til þess að ná fullum tökum á þessum vandasömu málum.
Menn kynnu að spyrja: Er það nú sanngjarnt, að þjóðfélagið kosti slíkt skólahald? Ég held, að þjóðfélagið eigi svo mikið undir því, að þessum málum sé vel og viturlega og af fullri þekkingu ráðið til lykta, að af þeirri ástæðu einni sé það sjálfsagt. En einnig má benda á það, að aðrar stéttir hafa notið um langan tíma þess hagræðis, að þjóðfélagið kostaði skóla fyrir stéttirnar. Þannig heldur ríkið uppi fræðslustofnunum fyrir bændastéttina, bændaskólunum, fyrir sjómannastéttina, sjómannaskólanum, og fyrir fámennar undirstéttir, það er rekinn matreiðslu- og þjónaskóli, og það eru vélstjóraskólar reknir. Þannig eru margir stéttarskólar reknir af ríkinu, og sýnist ekki vera nema algerlega hliðstætt, að ríkið reki einnig skóla fyrir verkalýðsstéttina henni til þjálfunar og menningarauka, og þá sérstaklega trúnaðarmönnum hennar á vinnustöðvunum og stjórnendum verkalýðsfélaganna, en það eru mörg hundruð manns, sem að þessum störfum vinna á ári hverju í þágu þjóðfélagsins.
Ég hef svo ekki fleiri orð um þetta frv. Það hefur oft verið kynnt áður og nú verið gerð grein fyrir þeim breytingum, sem á því hafa orðið frá síðasta flutningi. Ég legg því til, herra forseti, að þegar þessari umr. er lokið, verði málinu vísað til 2. umr. og hv. menntmn.