04.12.1968
Sameinað þing: 17. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 425 í C-deild Alþingistíðinda. (2659)

95. mál, Útgerðarstofnun ríkisins til atvinnujöfnunar

Flm. (Ragnar Arnalds):

Herra forseti. Ég hef leyft mér að flytja hér frv. til l. um Útgerðarstofnun ríkisins til atvinnujöfnunar. Frv. þetta á þskj. 119 hefur einkum tvenns konar tilgang. Annars vegar er hugsunin sú, að unnt verði með þessu átaki að efla togaraútgerð í landinu, en hún hefur heldur dregizt saman á undanförnum árum, eins og flestum er kunnugt. Hinn megintilgangurinn er sá að fá þarna upp stofnun, sem til þess sé fallin að miðla hráefni til frystihúsa víða um land og bæta með því rekstur þeirra. Það er sérstaklega til þess ætlazt, að þeir staðir víðs vegar um land, sem búa við lélegt atvinnuástand á hverjum tíma, verði einkum fyrir valinu. Þessi megintilgangur frv. kemur skýrt fram í 1. gr. þess, þar sem segir, að Útgerðarstofnun ríkisins sé sjálfseignarstofnun, sem lúti sérstakri stjórn og sé hlutverk hennar að annast útgerð togara og báta og miðla hráefni til þeirra staða, þar sem atvinnuástand er lélegt og verkefni skortir. Þessum tilgangi er ætlunin að ná á þann hátt, að ríkisstj. taki sér fyrir hendur að kaupa allt að 5 skuttogara 1500–2000 smálestir að stærð og allt að 5 báta af stærðinni 250–400 rúml. og þeir verði afhentir Útgerðarstofnun ríkisins. Er sérstaklega ætlazt til þess, að stærri skipin séu búin fullkomnum tækjum til að heilfrysta fisk, en eins og kunnugt er, hefur rutt sér til rúms ný tækni á því sviði, sem er í því fólgin, að aflinn er heilfrystur um borð og síðan verða frystihús í landi að hafa sérstök tæki til þess að þíða aflann og fullvinna.

Það er óþarfi að rekja það hér, að hagur togaraútgerðar hefur verið heldur lélegur á liðnum árum, og það á nú reyndar við um flestar tegundir sjávarútvegs, ef síldin er undanskilin. Það er svo, sérstaklega með togaraútgerðina, að þar eru miklir fjármunir í veði, og reynslan hefur verið sú, að fjárvana bæjarfélög og einstaklingar hafa ekki ráðið við það til langframa að standa undir slíkum rekstri, þegar um það hefur verið að ræða, að hann hefur verið rekinn með tapi um nokkurra ára skeið, og þess vegna hefur togurunum stöðugt verið að fækka. En ég geri ráð fyrir, að þeir, sem einhvern ofurlítinn skilning bera á hagfræði og hagvísindi, viti það, að fyrirtæki getur verið rekið með miklum halla til langframa, enda þótt það sé þjóðhagslega mjög nauðsynlegt, og fer það fyrst og fremst eftir því, hvernig búið er að því, bæði hvað snertir gengisskráningu, vaxtabyrði, lánaaðstöðu og margt, margt fleira. Og þess vegna liggur það í augum uppi, að það má ekki afskrifa togaraútgerðina í landinu á þeim forsendum einum, að þar hafi verið um taprekstur að ræða. Það verður að gera ráðstafanir til að efla togaraútgerð á Íslandi að nýju. Það er sem sagt annar megintilgangur þessa frv., að ríkisvaldið hlaupi undir bagga í þessum efnum og gerist virkur þátttakandi í atvinnulífinu, þar sem svo stendur á, að einstaklingar hafa ekki ráðið fullkomlega við þennan atvinnuveg. Ef við lítum t. d. á stórfyrirtæki eins og Sementsverksmiðjuna, mun það sanni næst, að engum hafi dottið í hug á sínum tíma, að hún yrði reist af einstaklingum. Ástæðan er auðvitað fyrst og fremst sú, að einstaklingar réðu ekki við slíkt stórfyrirtæki, og það voru allir sammála um það, hvort sem þeir voru að stjórnmálaskoðun hægri menn eða vinstri menn, að slíkt stórátak yrði aðeins gert með sameiginlegu átaki þjóðarinnar allrar og fyrir forgöngu ríkisvaldsins. Og ég held, að menn eigi á sama hátt að geta verið sammála um það, að þegar um það er að ræða, að ein mjög mikilvæg atvinnugrein hjakkar í sama farinu árum saman eða er jafnvel stórum að dragast saman, þá dugir alls ekki að vera með neina fordóma gagnvart ríkisafskiptum eða ríkisrekstri á slíku sviði. Þá eiga menn ekki að láta kreddukenningar um það, að ríkisvaldið megi ekki koma nálægt atvinnurekstri, hafa áhrif á sig.

En það er nú ekki svo, að þetta frv. sé fyrst og fremst flutt vegna togaraútgerðarinnar almennt, þó að það sé að vísu annar tilgangur þess. Það má segja, að megintilgangur þessa frv. sé að reyna að leysa atvinnuvandamál ýmissa staða úti um land. Við vitum, að í flestum sjávarþorpum víðs vegar um landið hafa verið byggð frystihús. En það nægir ekki að byggja frystihús, ef hráefni eru ekki til staðar, og það hefur víða verið aðalvandinn, sem við hefur verið að glíma að hráefni hefur skort. Hér er sem sagt ætlunin að reyna að leysa þetta vandamál, a. m. k. að einhverju leyti, og þá einkum þar sem atvinnuástand er lélegast, með því að ríkisvaldið komi þarna beinlínis til skjalanna. Ég vil taka það fram, að frv. eins og þetta er ekki neitt algert nýmæli hér á Alþ., þó að það hafi að vísu ekki komið fram núna um alllangt skeið, en mér er nær að halda, að svo sem fyrir 20 árum hafi hugmyndir eins og þessar átt miklu fylgi að fagna, og frv. eins og þetta var stutt af Alþfl. bæði á áratugnum milli 1930 og 1940, og svo er mér kunnugt um, að svo var í kringum 1950, en þessi hugmynd hefur ekki komið fram hér núna í seinni tíð, og ég persónulega hef verið þeirrar skoðunar, að þarna væri um nokkra lausn að ræða, og þess vegna hef ég flutt þetta frv.

Að öðru leyti sé ég ekki ástæðu til að gera frekari grein fyrir þessu frv. Ég vildi þó geta þess, að stjórn þessarar stofnunar er ætlað að vera samkv. 4. gr. skipuð 7 mönnum og 7 til vara til þriggja ára. Það hefur verið algengast um stofnanir, sem ríkið hefur sett á fót, að menn í stjórn slíkra stofnana væru kjörnir á Alþ. og þá að hver stjórnmálaflokkur ætti sinn fulltrúa í slíkum stofnunum. Ég verð að segja það, að ég hef ekki verið algerlega sáttur við þessa skipan mála og aldrei talið þetta hina einu eðlilegu lausn. Ég hef ævinlega talið, að fyrst og fremst þeir, sem mestra hagsmuna hefðu að gæta varðandi viðkomandi stofnun, ættu að eiga fulltrúa í stjórn fyrirtækisins, og í þessu tilfelli finnst mér alveg sjálfsagt, að slík sjónarmið séu afgerandi við val manna í stjórn. Ég hef þess vegna lagt til, að ráðh. skipi menn í þessa stjórn og þar af séu tveir tilnefndir af áhöfnum skipanna og öðru starfsliði stofnunarinnar, en tveir af frystihúsaeigendum, og eru þeir nefndir þarna sérstaklega vegna þess, að þeir hafa óneitanlega mestra hagsmuna að gæta. Um það, hvernig þessu verður fyrir komið, hvernig tilnefningin á sér stað, verður auðvitað að setja sérstakar reglur, og er ætlazt til þess, að ráðh. setji þær reglur. Það er einnig gert ráð fyrir því, að ráðh. setji nánari ákvæði um framkvæmd laganna.

Ég vil svo leyfa mér, herra forseti, að leggja til, að þessu frv. verði vísað til 2. umr. og hv. sjútvn.