18.12.1968
Neðri deild: 34. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 242 í B-deild Alþingistíðinda. (272)
14. mál, ferðamál
Frsm. (Friðjón Þórðarson):
Herra forseti. Samgmn. hefur haft frv. þetta um ferðamál til athugunar og rætt það á nokkrum fundum. Einnig hefur frv. verið sent allmörgum aðilum til umsagnar, eins og getið er um í nál. Ýmis sjónarmið hafa komið fram, bæði hjá nm. og í aðsendum umsögnum, en nm. urðu að lokum sammála um að mæla með því, að frv. verði samþ. óbreytt, en hver einstakur nm. hefur þó áskilið sér rétt til að fylgja brtt., sem fram kunna að koma.
Lög um ferðamál eru nú á fimmta ári, nr. 29 frá 30. apríl 1964, og skiptast þau í 5 kafla.
1. kafli fjallar um almennar ferðaskrifstofur,
2. um Ferðamálaráð,
3. um Ferðaskrifstofu ríkisins,
4. um Ferðamálasjóð og
5. um ýmis ákvæði.
Það er aðeins í kafli 1., ákvæði 1.–10. gr. um almennar ferðaskrifstofur, sem talin er nú þörf á að endurskoða og breyta. Í aths. við frv., eins og það var lagt fyrir Alþ. í fyrra, segir svo m.a.:
„Rekstur ferðaskrifstofu er að því leyti frábrugðinn annarri atvinnustarfsemi, að viðskiptamaðurinn greiðir oft fyrirfram þá þjónustu, sem ferðaskrifstofan veitir. Af því leiðir, að viðskiptavinurinn á þá undir heiðarleika ferðaskrifstofunnar fyrst og fremst, hvort hann fær þá þjónustu fyrir greiðslu sína, sem til er ætlazt og um var samið. Þegar við þetta bætist, að ferðaskrifstofur fá í langflestum eða öllum tilfellum gjaldfrest hjá skipafélögum, flugfélögum, hótelum og greiðasölustöðum, liggur í augum uppi, að starfsemi ferðaskrifstofa krefst ekki mikils rekstrarfjár. Nokkur freisting er því fyrir hendi fyrir einstaklinga til að hefja rekstur ferðaskrifstofu í skjóli þessa, án þess að ráða yfir nægilegu fjármagni til þess að mæta óvæntum áföllum.“
Í umsögnum þeirra aðila, sem svarað hafa og sagt álit sitt á þessu frv., gætir að sjálfsögðu ýmissa sjónarmiða. Þar er fyrst að drepa á umsögn Ferðamálaráðs. Þess má geta fyrst, að aðalatriði þessa frv. er það að breyta nokkuð til um skilyrði til að öðlast leyfi til að reka ferðaskrifstofu, og í öðru lagi er tryggingarfjárhæð sú, sem ferðaskrifstofu er ætlað að setja, hækkuð úr 350 þús. upp í 11/2 milljón.
Í umsögn Ferðamálaráðs er fyrst tekið fram, að það telur ástæðu til þess að lækka aldursskilyrðið úr 25 árum niður í 21 ár. Að öðru leyti tekur Ferðamálaráð fram, að fyrir því vaki fyrst og fremst það, að þröngar skorður verði ekki reistar fyrir því, að einstaklingur geti öðlazt þetta leyfi, en Ferðamálaráð og ráðuneyti eigi þess kost að meta hæfileika umsækjenda hverju sinni. Í öðru lagi bendir Ferðamálaráð á, að það sé nauðsynlegt að endurskoða einnig aðra kafla þessara laga um ferðamál en fyrsta kaflann, sem hér hefur verið gerður að umtalsefni. Umsögn Flugfélags Íslands og Eimskipafélags Íslands snúast á svipaða sveif og Ferðamálaráðs.
Þá er hér umsögn Sambands matreiðslu- og framreiðslumanna. Þeir eru hlynntir frv., en taka fram, eins og hér var raunar nefnt áðan, að þeir vilji gjarnan gerast aðilar að Ferðamálaráði, þar sem hér sé um veigamikið atriði í ferðamannaþjónustu að ræða.
Síðan er umsögn Ferðaskrifstofu ríkisins, en hún telur þvert á móti, miðað við það, sem ég áðan sagði, að það sé varhugavert að lækka aldursskilyrðið úr 25 árum niður í 21 árs aldur.
Loks eru umsagnir frá ýmsum ferðaskrifstofum, svo sem eðlilegt er. Það má heita sameiginlegt þeim umsögnum, að þær eru ekki mjög hrifnar af því, að tryggingarféð skuli hækkað með þessu frv. úr 350 þús. upp í 11/2 millj., en geta þó ýmissa atriða, sem gera þetta eðlilegt. Hér segir t.d. í einni umsögninni:
„Óeðlileg samkeppni hefur ríkt á athafnasvæði íslenzkra ferðaskrifstofa undanfarin ár með þeim afleiðingum, að tvö fyrirtæki hafa orðið gjaldþrota með skömmu millibili. Hefur það valdið þessari atvinnugrein miklu tjóni og íslenzkum ferðamálum álitshnekki, sem seint verður bættur.“
Það er náttúrlega ástæða til þess, að þær ferðaskrifstofur, sem starfað hafa undanfarin ár með prýði, séu ekki sérlega hrifnar af þessu ákvæði, eins og t.d. kemur fram í bréfi frá ferðaskrifstofu, sem rekur aldur sinn 112 ár aftur í tímann. Segir svo í því bréfi:
„Ferðaskrifstofa mín, sem er framhald af starfsemi, sem hófst fyrir 112 árum, er Geir Zoëga útgerðarmaður hóf 1856 móttöku erlendra ferðamanna, hefur ávallt verið rekin á þann hátt, að forðast hefur verið að taka að sér áhættusamar skuldbindingar, enda hafa meginviðskipti okkar ætíð verið móttaka erlendra ferðamanna, en þau viðskipti má áætla að séu áhættulaus.“
Þannig mætti rekja þessar umsagnir áfram, en ég sé ekki ástæðu til að fara lengra út í þær.
Við vitum það, að ferðamannaþjónusta á nútímavísu er ung atvinnugrein hér á landi, sem flestir eru sammála um að styrkja beri og efla á allan veg. Ísland hefur örugglega upp á margt að bjóða sem ákjósanlegt ferðamannaland, svo sem bent hefur verið á af mörgum aðilum við ýmis tækifæri og nú síðast í Sþ. í dag. En eitt meginskilyrði þess, að slík þjónusta nái að þróast og dafna með eðlilegum hætti er það, að ferðafólkið sjálft, innlent og erlent, svo og aðrir viðsemjendur, geti notið öryggis í skiptum sínum við trausta aðila, sem skipuleggja og annast þessi mál hérlendis. Að því miða ákvæði þessa frv. og hefur samgmn., eins og áður segir, lagt til, að frv. verði samþ. óbreytt.