14.04.1969
Neðri deild: 76. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 484 í C-deild Alþingistíðinda. (2734)
206. mál, útsvars- og skattfrádrátt aldraðra manna
Flm. (Ingvar Gíslason) :
Herra forseti. Ég hef leyft mér ásamt hv. 2. þm. Reykn., Jóni Skaftasyni, að flytja þetta frv., sem hér er til umr. Vandamál aldraða fólksins eru gjarnan til umr., og aðbúnaður að öldruðu fólki er mikið félagslegt verkefni og á margan hátt erfitt úrlausnar, og margir velta því fyrir sér, hvað hægt sé að gera því til hagsbóta. Ég skal ekki fara langt út í það mál, en benda á það, að þar er um ýmsar leiðir að velja. Yfirleitt á það hljómgrunn hjá öllum ráðamönnum, að vinna skuli sem ötullegast að því að byggja dvalarheimili fyrir aldrað fólk, og í þeim efnum hefur mjög mikið áunnizt. En hins vegar mega menn ekki líta mjög einhliða á þetta mál og telja, að öllu sé borgið með því, að sem mest sé byggt af dvalarheimilum fyrir aldrað fólk. Ég hygg, að það þurfi einnig að hugsa fyrir því að gefa öldruðu fólki kast á því að vera sem lengst sjálfs sín ráðandi, ef svo má segja, vera á heimilum sínum sem allra lengst, því að væntanlega er um verulega röskun á heimilishögum að ræða, þegar aldrað fólk flyzt á elliheimili, og ekki ástæða til þess að gera það oftar en þörf krefur. Og ætla ég ekki að segja beinlínis að svo sé. Ég hygg þess vegna, að það þurfi að hafa í huga að reyna að búa svo um hnútana, að aldrað fólk geti verið sjálfs sín sem allra lengst, dvalizt á heimilum sínum og haldið hópinn, t. d. hjónin, og að því sé stuðlað með þeim ráðum, sem tiltæk kunna að vera.
Þetta frv., sem hér er til umr., leysir að sjálfsögðu ekki allan vanda aldraðs fólks, en það er þó nokkur réttarbót eða kynni að verða nokkur réttarbót fyrir vissan hóp aldraðs fólks. Það er viss réttarbót í því fólgin fyrir vinnufær gamalmenni, sem eru að leitast við að sjá sér farborða. Frv. gerir í aðalatriðum ráð fyrir því, að það fólk, sem hefur náð 70 ára aldri, njóti alveg sérstakra skattfríðinda, eða, ef svo mætti segja, það nyti sérstaks ellifrádráttar í sköttun og útsvari. Þó að aldrað fólk hljóti oft og einatt að draga sig í hlé frá almennum vinnumarkaði eftir 70 ára aldur, m. a. af heilsufarsástæðum og svo af því, að því eru tryggð lífvænleg eftirlaun, þá gildir þetta alls ekki um allt fólk. Allmargir menn eru vel vinnufærir eftir sjötugt, a. m. k. í nokkur ár, og vilja vinna fyrir sér, enda hafa þeir margir hverjir engin eftirlaun önnur en ellilífeyrinn frá almannatryggingunum, sem er svo naumur, eins og menn vita, að af honum verður ekki lifað eðlilegu lífi heilbrigðs og sjálfbjarga fólks, og þetta skyldu menn hafa í huga. Ég sé því ekki, að þjóðfélagið eigi yfirleitt að leggja neina hindrun í veg aldraðs fólks um það, t. d. aldraðra verkamanna, sem vilja vinna fyrir sér, og ég held ekki, að þetta sé yfirleitt gert, enda alls ekki mannúðlegt að gera slíkt. Og ég hygg, að oft hafi vinna aldraðra verið mjög vel þegin, þegar vinnuaflsskortur hefur sagt til sín, og það eru mörg störf, sem aldraðir menn einir hafa fengizt til að sinna, og stundum eru það erfið verk og óþrifaleg verk, sem aðrir hafa ekki viljað leggja sig niður við. En verkamenn og aðrir, sem vinna sem daglaunamenn af handafla sínum eða á annan hátt, geta því haft nokkrar vinnutekjur eftir 70 ára aldur, ef þeir hafa heilsu til að vinna. Þeir geta því orðið skattskyldir, en þó fyrst og fremst útsvarsskyldir, og eru ýmis dæmi þess, að gamalmenni, sem eru að eyða síðustu æviárum sínum og áreiðanlega síðustu leifum starfsorku sinnar, slíkir menn hafa oft greitt jafnvel tugi þúsunda í opinber gjöld einstök ár, og slíkt er auðvitað fullkomlega löglegt. En ég held, að þetta sé mjög hæpið, m. a. frá mannúðarsjónarmiði, og að líkindum óskynsamlegt, þegar á allt er litið, frá almennu þjóðfélagslegu sjónarmiði. Við flm. teljum, að það sé tæpast forsvaranlegt að skattleggja þurftarvinnutekjur aldraðra verkamanna, og teljum heppilegra að leyfa þeim að halda tekjum sínum óskertum og gefa þeim möguleika á því að leggja fyrir til allra síðustu ára sinna, þegar starfsævi hlýtur að ljúka, enda augljóst, að lítið er eftir af starfsævinni, eftir að komið er yfir 70 ára aldur, þó að einstöku maður kunni að hafa slíkt þrek, að hann geti unnið nokkuð, eftir að þeim háa aldri er náð. En ívilnun sem þessi er einnig sanngjörn með tilliti til hinnar miklu rýrnunar sparifjár. Hin öra og langvarandi verðbólguþróun hefur komið harðast niður á sparifjáreigendum. En ég hygg, að mikill meiri hluti sparifjáreigenda sé gamalt fólk. Það er því verið að rýra eignir gamla fólksins meira en allra annarra, með sífelldum gengisfellingum og rýrnandi peningagildi. Fólkið, sem hefur sparað til elliáranna, er þannig rúið eignum sínum. Sparsemin, sem prédikuð hefur verið sem mikil og góð dyggð, er beinlínis svívirt með slíkum aðförum, og það er sannarlega þörf á því, að þjóðfélagið og þá ekki sízt Alþ. geri sitt til að bæta fyrir slíkt.
Þótt í litlu sé, þá er þetta frv. spor í þá átt að koma til móts við þarfir allstórs hóps aldraðs fólks. Að áliti okkar flm. er sú réttarbót, sem frv. gerir ráð fyrir, útlátalítil fyrir hið opinbera. Ákvæði frv. ná ekki til þess fólks, sem telja má að hafi góð afkomuskilyrði í ellinni. Það er útilokað, að verulegir efnamenn nytu óverðskuldaðra fríðinda, ef þetta frv. verður að lögum, en það gæti hins vegar hjálpað mörgum bjargálnamönnum og þeim, sem eru verr á vegi staddir, til þess að sjá sér lengur farborða á eigin spýtur en ella mundi.
Ákvæði þessa frv. ná ekki til þeirra, sem njóta lífeyrissjóðsréttinda, né til þeirra, sem hafa með höndum sjálfstæðan atvinnurekstur, eins og segir í 1. gr. frv. Okkur flm. þótti rétt að slá slíkan varnagla. Þó má vel vera, að þessi ákvæði þurfi frekari athugunar við. Það er engan veginn víst, að rétt sé að setja alla sjálfstæða atvinnurekendur undir sama hatt.
Við flm. sjáum ekki, að samþykkt þessa frv. hafi neina verulega þýðingu fyrir tekjuöflunarmöguleika hins opinbera, því að hvort tveggja er, að ekki er hægt að reisa umtalsverða tekjuvon í skattlagningu þurftarlauna gamalmenna, sem eru steinsnar frá grafarbakkanum, auk þess sem slíkur stuðningur við sjálfsbjargarviðleitni hinna öldruðu dregur úr þörfinni á beinni opinberri aðstoð við aldrað fólk, þ. e. a. s. aldraða, en þó vinnufæra fólkið getur lagt meira til hliðar af tekjum sínum og þarf því síður og síðar á því að halda að leita á náðir hins opinbera um aðstoð í ellinni fram yfir það, sem felst í hinum lögboðna ellilífeyri.
Við flm. lítum á þetta mál sem sérstakt form fyrir félagslegum aðgerðum í þágu aldraðs fólks. Okkur er ljóst, að það nær ekki og á ekki að ná til allra, sem náð hafa 70 ára aldri. Það er aðeins viss hópur, sem réttinda mundi njóta samkvæmt þessu frv. Frv. er hugsað sem liður í því að jafna kjör aldraðs fólks, að svo miklu leyti sem þess er kostur eftir þessari leið.
En ég vil benda á, að kjör aldraðs fólks verða þó aldrei jöfnuð og aldrei réttlát, nema til komi lífeyrissjóðsréttindi, sem veita forsvaranlegar framfærslutekjur í ellinni. En meðan það mál hefur ekki verið endanlega og fullkomlega til lykta leitt, þá teljum við flm. ákvæði þessa frv. til réttarbóta fyrir margt aldrað fólk. Þess vegna berum við það fram hér í hv. Alþ. og væntum þess, að þessi hv. þingdeild taki því vel og veiti því greiðan stuðning, þannig að málið geti fengið afgreiðslu á þessu þingi. Ég hygg, að þessu máli sé svo farið, að eðlilegast sé, að það fari til heilbr.- og félmn. Hér er miklu fremur um útsvarsmál og um félagsmál almennt að ræða heldur en um skattamál og því er það till. mín, herra forseti, að þessu máli verði að lokinni umr. nú vísað til 2. umr. og heilbr.- og félmn.