25.04.1969
Neðri deild: 81. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 511 í C-deild Alþingistíðinda. (2769)

220. mál, leigunám fyrirtækja vegna verkbannsaðgerða

Flm. (Magnús Kjartansson) :

Herra forseti. Þetta var nú eins og að fá heimsókn frá fortíðinni. Ég hef hlustað á umr. hér á þingi allmörg undanfarin ár og sá tónn, sem þessi hv. þm. tamdi sér, hefur sem betur fer ekki heyrzt hér í þingsölum, enda á þessi umræðutónn lítið skylt við málefnalegar deilur eða málefnalegar umr. Hann er fremur í stíl við taugaveiklun, einhvern innri veikleika, heldur en alvarlegar umr. um þjóðmál. Þessi tónn tíðkaðist hér áður fyrr, þegar kalda stríðið stóð sem hæst, en sem betur fer hafa menn fellt hann niður, og þessi hv. þm. er mjög einangraður hvað þetta snertir. Hann er raunar einangraður á fleiri sviðum.

Það er dálítið fróðlegt að rifja það upp, að hér rétt áðan flutti hæstv. landbrh. framsögu fyrir frv. um að gera Áburðarverksmiðjuna að ríkiseign. Þegar heimild til þess var borin fram á Alþ. í fyrra, kom fram eitt mótatkv., atkv. þessa hv. þm. Hann er jafneinangraður í sínum flokki og annars staðar. Hann er fortíðarfyrirbæri, sem er raunar furðulegt að skuli hafa komið inn á Alþingi Íslendinga. Og það er fleira furðulegt í því sambandi. Mér finnst það einnig furðulegt, að þessum hv. þm. skuli vera falið að stjórna Morgunblaðinu, áhrifamesta og víðlesnasta blaði þjóðarinnar. Afskipti hans af því blaði hafa orðið til þess, að skrif þess blaðs um þjóðmál einkennast miklu meir af taugaveiklun og ofstæki en almennur málflutningur og almenn afstaða leiðtoga Sjálfstfl. Þessi maður stendur á allt öðru stigi en Íslendingar standa yfirleitt, þegar verið er að ræða um stjórnmál. Menn hafa getað ræðzt hér við af fullri alvöru og fullri einlægni, þó að þá greini á um marga hluti, og án þess að þurfa að kasta óhreinindum hver framan í annan í annarri hverri setningu.

Raunar var það dálítið leiðinlegt fyrir þennan hv. þm., að hann var búinn að semja fyrir fram svarræðuna við framsögu minni, sem ég flutti hér áðan, og hin tilbúna svarræða, sem var samin fyrir fram, passaði ekki ýkja vel við það, sem ég sagði í minni ræðu, þannig að þm. var með alls konar staðhæfingar, sem hann gat ekki fært nein rök fyrir. Engu að síður var mjög skemmtilegi að fá einmitt þennan hv. þm. hér upp í ræðustólinn til þess að ræða um þessi mál.

Það ástand, sem nú er á Íslandi, er afleiðing af þeirri viðreisnarstefnu, sem upp var tekin 1960. Sú stefna var byggð á tilteknum hugmyndum um hagfræði, hugmyndum, sem einmitt þessi hv. þm. gerðist alveg sérstakur talsmaður fyrir. Ég skal ekki draga í efa, að forustumenn Sjálfstfl. og ríkisstj. hafa gert sér vonir um, að þessar hagfræðikenningar mundu duga, þær mundu geta orðið til þess að leysa þau vandamál sem hér er við að etja. En reynslan hefur aðeins sannað, að þessar kenningar hafa ekki hentað aðstæðum Íslendinga, vegna þess að kenningarnar eru sóttar til milljónaþjóðfélaga, margfalt stærri þjóðfélaga, þar sem iðnþróun er á mjög háu stigi og þar sem vandamál þau, sem við er að etja, eru allt önnur en vandamálin hér. Við getum aldrei leyst þessi mál nema við séum menn til að hugsa úrræðin út frá okkar eigin forsendum.

Og hver hefur afleiðingin orðið? Þessi hv. þm. sagði, að ég vildi íslenzka atvinnuvegi feiga og ég talaði hér glottandi um vanda íslenzkra atvinnuvega. Ég hef ekki gert neitt slíkt. Hins vegar hefur þessi stefna leitt feigð yfir ýmsar greinar í íslenzkum atvinnuvegum. Allir vita, hvernig togaraflotinn er nú kominn. Það er ekki til helmingur þeirra skipa, sem eitt sinn voru, og þessi skip, sem eftir eru, fullnægja engan veginn þeim kröfum, sem maður gerir nú til togara. Þessi mikilvægi þáttur í atvinnuvegum okkar hefur verið á niðurleið og það er sáralítið eftir af honum. Ef svo heldur áfram eitt, tvö, þrjú ár í viðbót, er engin íslenzk togaraútgerð eftir.

Mér dettur ekki í hug, að neinn forustumaður hæstv. ríkisstj. glotti að þessu eða fagni því, eins og þessi hv. þm. heldur að aðrir geri. En vel má vera, að þessum hv. þm. þyki þetta litlu máli skipta, því að hann hefur haft ákaflega lítið álit á þeim atvinnuvegum, sem Íslendingar sjálfir hafa byggt upp og rekið í landi sínu. Áhugi hans beinist allur að öðru. Þessi hv. þm. virðist ímynda sér, að hægt sé að leysa vandamál Íslendinga með því að fela erlendum auðfyrirtækjum að koma hér upp atvinnurekstri og að hann geti tekið af okkur sjálfum það verkefni að halda uppi atvinnu á Íslandi. Þetta er háskalegasta kenning, sem nokkurn tíma hefur verið boðuð hér, og engin önnur kenning er jafnmikið tilræði við íslenzka atvinnuvegi og þessi.

Ég hef rakið það hér áður á þingi, hvað felst í þeim erlendu stóriðjufyrirtækjum, sem menn eru nú með áform um, ef komið verður upp nýjum stórvirkjunum á Þjórsársvæðinu og samið við alúmínhringa eða aðra tiltekna aðila, sem stofna sams konar fyrirtæki og í Straumi. Þessi fyrirtæki geta aðeins tekið við litlu broti af þeirri mannaflaaukningu, sem verður á Íslandi á næstu áratugum, — örlitlu broti af henni. Jafnvel þótt menn hafi fulla trú á þessum erlenda atvinnurekstri, leysir það okkur ekki undan þeirri skyldu, að við verðum sjálfir að vera menn til þess að starfrækja okkar eigin atvinnuvegi og sérstaklega íslenzkan iðnað. En ástæðan fyrir því, að þessi hv. þm. lítur svona á málin, er sú, að honum finnst hann ekki sérstaklega eiga heima á Íslandi. Hann á heima í stærri veröld. Honum finnst þetta barnaleikur hér, þau átök, sem hér kunna að vera milli flokka og milli verkalýðssamtaka og atvinnurekenda. Honum finnst þetta vera smáræði. Honum finnst hann vera riddari í einhverri stórri baráttu á milli kapítalisma og kommúnisma. Hann heldur, að hann sé að gera alþjóðakommúnisma einhverja skráveifu með því að skamma mig hér úr þessum ræðustól. Þetta er alger misskilningur hjá hv. þm.

Hv. þm. er svo lítill og ég er svo lítill líka, að það hefur ekki nokkur hugmynd um það utan landsteinanna, að við séum til. Og það, sem við kunnum að segja, og það, sem við kunnum að gera hér á Íslandi, breytir ekki nokkrum sköpuðum hlut í sambandi við þróun kapítalisma og kommúnisma. Okkar vandi er allur annar. Okkar vandi er að leysa okkar eigin vandamál hér á Íslandi, og mismunandi skoðanir okkar um það efni eru alveg eðlilegar. Auðvitað lærum við af vandamálum annarra og kenningum annarra. En þá fyrst erum við stjórnmálamenn á Íslandi, þegar við reynum að melta þær kenningar og beita þeim á hinn íslenzka veruleika. Ef við erum ekki menn til þess, þá eigum við að fást við einhver önnur verkefni.

Hv. þm. sagði, að hér hefði verið allt of mikið af sósíalisma á Íslandi á undanförnum áratugum og það væri meinsemdin. Ekki veit ég, hvað hv. þm. heldur að sósíalismi sé. En sósíalismi hefur sannarlega ekki verið á Íslandi. Hins vegar hafa verið hér félagsleg sjónarmið. Og þau sjónarmið eru sprottin upp úr þeirri staðreynd, að það eru ekki nema nokkrir áratugir síðan Íslendingar urðu að takast sjálfir á við það verkefni að byggja upp sína eigin atvinnuvegi. Þeir lutu áður erlendri forsjá, en urðu nú sjálfir að taka málin í eigin hendur. Og eina leiðin til þess að gera það í þjóðfélagi eins og því íslenzka var að taka upp samvinnu og samhjálp. Á þennan hátt höfum við fyrst og fremst þróað atvinnuvegi okkar.

Það er vissulega staðreynd, að hinn félagslegi þáttur í atvinnurekstri á Íslandi er miklu meiri en í nokkru öðru landi Vestur-Evrópu. En þetta er enginn sósíalismi. Þetta er afleiðing af hinum sérstæðu aðstæðum á Íslandi. Til þess að leysa okkar vandamál urðum við að beita þeim úrræðum, sem við höfðum sjálfir. Við verðum að beita bæjarrekstri í ýmsum bæjarfélögum vegna þess, að það er lífsnauðsyn fólks að hafa atvinnu á þeim stöðum. Og við verðum að beita ríkisrekstri, þegar við viljum koma upp stórfyrirtækjum, þegar við viljum virkja fljótin okkar, þegar við viljum koma upp verksmiðjum eins og sementsverksmiðju, áburðarverksmiðju o. s. frv. Og þetta hefur verið sameiginleg stefna allra flakka á Íslandi, hvaða grundvallarkenningar sem menn hafa aðhyllzt, vegna þess að ábyrgir menn hafa vitað, að það væri ekki hægt að leysa vandamálin á annan hátt en þennan.

Hið háskalega við viðreisnina var það, að þar var reynt að höggva á þennan félagslega þátt af hreinu pólitísku ofstæki af mönnum, sem skildu ekki, að þeim bar að hugsa eins og Íslendingar um íslenzkan veruleika, en héldu sig vera einhverja umboðsmenn einhverrar alþjóðlegrar kapítalískrar stefnu, eins og þessi hv. þm. Og einmitt þessi afstaða, þetta bann við félagslegum sjónarmiðum leiddi til þess, að okkar eigin atvinnuvegum hrakaði. Ég nefndi togarana áðan. Það er einnig hægt að nefna þann hluta bátaflotans, sem stundað hefur bolfiskveiðar. Það er hægt að nefna þá staðreynd, að freðfiskframleiðsla okkar dróst saman um þriðjung á sama tíma og hún tvöfaldaðist og þrefaldaðist hjá keppinautum okkar. Það er hægt að nefna, hvernig fór fyrir ýmsum þáttum í íslenzkum iðnaði. Þetta stafaði allt af því, að nú mátti ekki beita hinum félagslegu sjónarmiðum, og lausnarinn mikli átti að vera erlendir aðilar, sem tækju við þeim verkefnum, sem við Íslendingar höfðum gefizt upp við að leysa.

Ég er alveg sannfærður um það, að jafnt innan stjórnarflokkanna sem innan atvinnurekendasamtakanna er vaxandi skilningur. á því, að þessir aðilar hafa ekkert að læra af ofstækismönnum eins og hv. þm. Eyjólfi Konráði Jónssyni. Hvergi á ofstæki verr við en hér á Íslandi. Við erum lítið þjóðfélag. Hér þekkja allir hverjir aðra, hér þurfa menn að kunna að vinna saman og hér hafa allir kunnað að vinna saman. Hér hafa allir stjórnmálaflokkar getað unnið saman við vissar aðstæður. Og menn, sem halda, að hægt sé að rjúfa þessa hefð, eru að vinna íslenzku þjóðfélagi mikið ógagn.

Hv. þm. vék að fjölmörgu, sem ég hef satt að segja heldur lítinn áhuga á að ræða við hann, vegna þess að sá umræðutónn, sem hv. þm. ástundar, er fjarskalega leiðinlegur. Það er dálítið erfitt að svara honum í alvöru og ég a. m. k. nenni ekki að svara í sama tón, þannig að ég held, að ég láti þessar almennu hugleiðingar nægja.