25.04.1969
Neðri deild: 81. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 514 í C-deild Alþingistíðinda. (2770)
220. mál, leigunám fyrirtækja vegna verkbannsaðgerða
Eyjólfur H. Jónsson:
Herra forseti. Ég skal ekki draga þessar umr. á langinn, ekki fara út í almennar stjórnmálaumr., eins og hv. síðasti ræðumaður þó hefði getað gefið tilefni til. En mig langar aðeins til að vekja á því athygli, að þessi maður sagði, held ég, einum 10–20 sinnum í ræðu sinni, — kannske er það nú eitthvað of í lagt, en alloft talaði hann um „ofstæki“ og að ég væri þessi mikli „ofstækismaður“. Ég held, að þessi maður ætti ekki að taka sér þetta orð í munn, a. m. k. ekki í sambandi við alþjóðamál, hvað sem líður innanlandsmálum. Við skulum ekki fara lengra út í þá sálma.
Mergurinn málsins er sá, að þessi maður svaraði ekki spurningu minni, sem ég lagði mjög mikla áherzlu á að væri svarað, þeirri, hvort hann, flm., eða ritstjóri Þjóðviljans hefði rétt fyrir sér að því er varðar fjármögnun fyrirtækja. Annar heldur því statt og stöðugt fram, að bankar og ríkisstj. hindri eðlilegar lánveitingar til fyrirtækja. Hinn heldur því mjög eindregið fram að svo miklu fé sé ausið í atvinnulífið, að þar sé raunverulega um miklu meira fjármagn úr bönkum og sjóðum að ræða heldur en svari til eigna fyrirtækjanna, þau séu meira og minna gjaldþrota öllsömun.
Ég veit ekki, hvernig menn lesa orðalag grg., hvort þeir lesa út úr því, að höfundur hafi glott, þegar hann skrifaði það, að íslenzk atvinnufyrirtæki væru öllsömun gjaldþrota. Ég gat ekki annað en lesið það milli línanna, enda finnst mér mjög skiljanlegt, að þessi maður, sem hefur það að meginkappamáli að brjóta niður það skipulag, sem er á íslenzkum atvinnumálum, séreignarskipulagið, — maður, sem óneitanlega vill fá sósíalisma á Íslandi, þótt hann nú í dag skammist sín fyrir að vera kommúnisti og vilji ekki viðurkenna það hér í stólnum, — hann vill þó óneitanlega sósíalisma, hann hlýtur að vilja brjóta niður það kerfi atvinnulífsins, sem hér er, og hann vinnur líka dyggilega að því ár og síð með öllum þeim mætti, sem hann hefur. Sem betur fer er sá máttur orðinn heldur lítill, og a. m. k. minni innan hans flokks en ókunnugir menn skyldu halda, sem sjá hann hér í pontunni um hvert einasta mál reynandi að gera sig að leiðtoga þess flokks, sem ekki vill hafa með hann að gera sem slíkan. Það reynir hann í hverju einasta máli og notar málgagn sitt óspart í því efni. Ég vildi óska þess, að hann yrði leiðtogi þessa flakks. Ekkert betra gæti hent okkar Ísland, sem hann vildi þó helzt ekki leyfa mér að búa á eða a. m. k. hélt fram, að ég væri lítill Íslendingur. Ég hélt, að ég hefði sagt hér í ræðustólnum áðan, að Ísland væri bezta land í heimi. Ég vil búa í bezta landi í heimi. En sem sagt, ég skal ekki draga þessar umr. lengur, enda má ég til með að hverfa af fundi, en vona, að spurningunni verði svarað.