25.04.1969
Neðri deild: 81. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 518 í C-deild Alþingistíðinda. (2776)

230. mál, Iðnlánasjóður

Flm. (Þórarinn Þórarinsson) :

Herra forseti. Eins og rakið er í grg. þessa frv., hefur iðnaðurinn búið við mjög vaxandi lánsfjárskort á undanförnum árum þrátt fyrir það að nokkur aukning hafi orðið á Iðnlánasjóði. Þessu valda margar ástæður. Ein er sú, að vélvæðing fer stöðugt vaxandi og henni fylgir það, að iðnfyrirtækin þurfa miklu meira fjármagn til stofnkostnaðar en áður. Sama gildir um ýmsa hagræðingu. Þá hafa gengisfellingarnar farið mjög illa með eigin sjóði iðnfyrirtækja, eins og rakið var, í umr. áður, og rýrt mjög möguleika iðnfyrirtækjanna til þess að endurnýja tæki sín. Þá má nefna sparifjárbindinguna, sem hefur þrengt mjög möguleika lánastofnana til þess að mæta aukinni þörf iðnfyrirtækjanna fyrir meira rekstrarfé, sem m. a. hefur hlotizt af því hvað rekstrarkostnaður hefur stóraukizt sökum gengislækkana.

Með þessu frv. er stefnt að því með tvennum hætti að auka nokkuð starfsfé Iðnlánasjóðs.

Í fyrsta lagi er lagt til, að ríkisframlagið til sjóðsins verði jafnhátt og nemur tekjunum af gjaldi iðnaðarins til hans. Þetta mundi tvöfalda ríkisframlagið eða rúmlega það, en það er í fjárl. þessa árs um 10 millj. kr.

Þá er í öðru lagi lagt til að tvöfalda þær lántökuheimildir, sem sjóðurinn hefur í lögunum, annars vegar vegna venjulegra lána og hins vegar vegna hagræðingarlána. Samkvæmt lögum hefur sjóðurinn heimild til að taka 300 millj. kr. lán. sem nota má til venjulegra lána, og 100 millj. kr. lán, sem nota má til hagræðingarlána. Lagt er til í þessu frv., að þessar upphæðir verði tvöfaldaðar, eins og ég áður gat um.

Þriðja breyt. á lögunum, sem felst í þessu frv., snertir ekki aukin fjárráð sjóðsins, heldur hitt, hvernig því fé er varið, sem stjórn Iðnlánasjóðs fær til ráðstöfunar. Það er að sjálfsögðu mjög mikið vandaverk að ráðstafa þessu fé. Það þarf að skipta því á milli margra iðngreina, og þess vegna þarf sjóðsstjórnin að hafa gott yfirlit yfir það, hvaða iðngreinar eigi að ganga fyrir á hverjum tíma eða mest ástæða sé til að efla. Þetta getur verið talsvert vandasamt mat. Og þá þarf sjóðsstjórnin jafnframt að taka réttmætt tillit til þeirra ýmsu umsækjenda, sem sækja um lán í hverri einstakri iðngrein, og reyna að gera það með þeim hætti, að þeir gangi fyrir, sem eðlilegast er að njóti slíkra lána. Sjóðsstjórn, sem þarf að annast slíkt vandamál, verður að hafa sem bezt aðhald, og það teljum við flm. að sé m. a. hægt að tryggja með því, að árlega sé birt skrá um útlán sjóðsins og jafnframt skrá um heildarlán sjóðsins til einstakra lántakenda.

Ég vil benda á það í þessu sambandi, að ríkisreikningunum fylgir skrá um allar ríkisábyrgðir, þannig að menn geta fylgzt með því, hverjir njóta þeirra forréttinda á hverjum tíma að fá ábyrgð ríkisins á lánum. Þá hafa þm. a. m. k. nú á þessu þingi fengið skýrslu um lánveitingar Atvinnujöfnunarsjóðs, og þess vegna geta menn haft aðgang að því, hvernig fjármunum hans er ráðstafað. Ég álít að þetta sé mjög góð regla og henni verði að halda áfram. Í framhaldi af því verður að telja sjálfsagt, að opinberlega verði birt skrá um þau lán, sem verða veitt úr hinum nýja Atvinnubótasjóði ríkisins. Þetta þarf að taka upp varðandi fleiri opinbera sjóði, og gæti jafnvel komið til athugunar, hvort það væri ekki rétt að gera þetta gagnvart bönkunum að einhverju leyti, t. d. að menn hefðu vitneskju um, hverjir það væru, sem væru þar stærstir, lántakendur.

Ég vil segja það að síðustu, að sú stefna á vaxandi hljómgrunn víða erlendis og svo hlýtur einnig að verða hér, að almenningi verði gefin sent bezt aðstaða til að fylgjast með því, hvernig þeir, sem beita valdinu, fara með það. Og í nútímaþjóðfélögum eru í raun og veru fáir, sem hafa meira vald í höndum heldur en þeir, sem ráðstafa fjármagninu. Því er nauðsynlegt, að þeim sé skapað sem bezt aðhald, og það verður vafalaust ekki gert öllu betur með öðrum hætti en þeim að almenningur fái sem bezta aðstöðu til að fylgjast með störfum þessara manna og meta þau.

Ég sé svo ekki ástæðu til að fjölyrða meira um þetta mál að sinni, en leyfi mér að leggja til, að því verði vísað til iðnn. að lokinni þessari umr.