09.05.1969
Neðri deild: 91. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 529 í C-deild Alþingistíðinda. (2810)
251. mál, Kvennaskólinn í Reykjavík
Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):
Herra forseti. Í frv. um menntaskóla, sem lagt var fyrir þessa hv. deild og hún samþ. fyrir skömmu shlj., var orðalag 5. gr. þannig, að höfundar frv. töldu, að samkvæmt henni mundi vera heimilt að veita Kvennaskólanum í Reykjavík leyfi til þess að brautskrá stúdenta og væri þá á valdi ráðh. hvort hún notaði þá heimild eða ekki. Ég hafði hugsað mér að nota þá heimild á þann hátt að leggja til við hið háa Alþ., að á næsta hausti yrði í fjárlagafrv. tekin upp fjárveiting til þess að kosta menntadeild við Kvennaskólann í Reykjavík og leggja þannig í reynd á vald Alþ., hvort það væri þessari ráðstöfun samþykkt eða samþykkt ekki, vegna þess að ég taldi ráðh. ekki eiga að nota sér heimild þessarar 5. gr., ef Alþ. kynni að vera á móti slíkri ráðstöfun. Fyrir þessu hafði ég gert höfundum menntaskólafrv. grein, og þeir höfðu ekkert haft við þessa málsmeðferð að athuga, og að þessu vék ég einnig í framsöguræðu minni fyrir frv.
Þegar málið kom til meðferðar í hv. menntmn. þessarar deildar, reyndist það skoðun hennar, að það væri ekki eðlilegt, að 5. gr. væri túlkuð þannig, að ráðh. veitti samkvæmt henni Kvennaskólanum slík réttindi sem hér er um að ræða, og ritaði n. menntmrn. um málið og tjáði því skoðun sína í þessu efni. Ég gat fyrir mitt leyti á þá skoðun n. fallizt, að það væri eðlilegra, að Alþ. tæki afstöðu til þess máls með því að taka afstöðu til sérstaks frv. um þetta efni, og ríkisstj. féllst á þetta. Þess vegna skrifaði menntmrn. menntmn. þessa skoðun ríkisstj. og samdi nokkru síðar Frv. um þetta efni og sendi hv. menntmn. til flutnings. Það er þetta frv., sem hér hefur verið lagt fyrir hv. Nd. Efni þess er mjög einfalt. Það er heimild til menntmrn. um að veita Kvennaskálanum í Reykjavík rétt til að starfrækja menntadeild fyrir stúlkur og lokapróf úr menntadeild á að vera stúdentspróf og veita sömu réttindi til inngöngu í Háskóla Íslands með þeim takmörkunum, sem settar eru í lögum hans og reglugerð, og enn fremur tekið fram, að námskröfur til stúdentsprófs frá Kvennaskólanum skuli sambærilegar kröfum til stúdentsprófs menntaskólanna, samkvæmt því sem nánar er ákveðið í reglugerð.
Mér er kunnugt um það, að nokkuð skiptar skoðanir eru meðal þm. um þetta mál og afstaða til þess fer engan veginn eftir skiptingu í stjórnmálaflokka. Mér hefur frá upphafi verið um þetta kunnugt, frá því að málið kom á dagskrá, og þess vegna hafði ég upphaflega hugsað mér að hafa þann hátt á, sem ég lýsti áðan, að binda notkun heimildarinnar við það, að fjárveiting vari fyrir hendi, sem raunar er nauðsynlegt og sjálfsagt, þannig að þingviljinn í þessu máli kæmi fram í atkvgr. um fjárlög.
Málið hefur sem sagt snúizt inn á þá braut, að samkomulag hefur orðið um að afgreiða málið á þann hátt að um málið sé flutt sérstakt frv., þannig að afstaða þm. til efnis málsins komi fram í afstöðu til þessa frv. Tel ég það út af fyrir sig ekki vera óeðlilegt, eins og málum er komið.
Ég tek það fram, að ég persónulega er því fylgjandi, að þetta frv. nái fram að ganga, og mun greiða því atkv. Ég tel, að þetta mál sé sama eðlis í raun og veru og menntaskólafrv. og eigi þess vegna að verða samferða því. Ég vil því mjög beina því til hv. menntmn., sem þekkir allt efni málsins og hefur rætt það, að hún afgreiði málið frá sér sem allra fyrst, þannig að það geti, ef meiri hl. er fyrir málinu hér í hv. Nd., komizt til hv. Ed. og í n. þar, þannig að þetta mál fái athugun í hv. Ed., í menntmn. þar, ásamt menntaskólafrv. og geti þess vegna orðið samhliða því. Það var ætlun mín og ríkisstj. í upphafi í sambandi við skilninginn á 5. gr. menntaskólafrv., sem ég hef áður lýst, að svo yrði, og ég tel, að þessi formsbreyting, sem orðið hefur á meðferð málsins, eigi ekki að raska þeirri meðferð á efni málsins, að þingið taki afstöðu til beggja frv. samhliða.
Að lokum vil ég aðeins geta þess til þess að girða fyrir hugsanlegan misskilning, sem ég vona þó að ekki sé um að ræða hjá nokkrum hv. þm., að hér er ekki um það að ræða að breyta Kvennaskólanum í menntaskóla. Kvennaskólinn verður eftir sem áður gagnfræðaskóli lögum samkvæmt og verður starfræktur samkvæmt lögum, sem hann hefur verið starfræktur samkvæmt undanfarið. Hér er um það að ræða, að hann fær rétt til að taka upp nýja deild, við hann verður bætt nýrri deild með hliðstæðum hætti og menntadeild var á sínum tíma bætt við Verzlunarskólann. Verzlunarskólinn er ekki menntaskóli, fyrstu fjórir bekkir hans eru verzlunarskóli, sem lýtur sérstakri reglugerð, og er í rauninni einkaskóli, en ekki skóli í ríkiskerfinu. Kvennaskólinn er aftur á móti gagnfræðaskóli í ríkiskerfinu, en mundi að þessu leyti fá hliðstæða stöðu og Verzlunarskólinn, að við hann er bætt ríkisskóla, hreinum ríkisskóla, þ. e. menntadeildinni, og mundi ríkissjóður að sjálfsögðu bera allan kostnað af menntadeild Kvennaskólans, en mundi ásamt Reykjavíkurborg hér eftir sem hingað til bera allan kostnað af Kvennaskólanum sjálfum samkvæmt reglum þeim, sem gilda um stofnun og rekstur gagnfræðaskóla. Þetta vildi ég að kæmi skýrt fram til að girða fyrir allan hugsanlegan misskilning í þessu efni.
Menntadeild Verzlunarskólans var á sínum tíma stofnuð með einfaldri reglugerð. Um það atriði hefur síðan nokkuð verið deilt og var raunar deilt þá, hvort fyllilega fengi staðizt. Ekki hefur þó þótt ástæða til þess síðar að gera breytingu á þeirri stjórnarráðstöfun, sem þá var gerð, en ég hef aldrei viljað taka hana til fyrirmyndar í þessu máli. Raunar hef ég ekki talið mér heimilt að gefa út reglugerð um stofnun menntadeildar við Kvennaskólann og vona, að það sé ágreiningslaust, að til þess hef ég ekki haft heimild, heldur hef ég talið, að um þetta yrði að vera fyrir hendi skýlaus lagaheimild. Ég tel að hún hafi verið fyrir hendi í menntaskólalögunum, en fyrst það var véfengt, að svo væri, eða menn töldu heppilegra, að heimildin væri skýrari, hef ég ekkert við það að athuga, og þess vegna er þetta frv. fram borið.
Ég endurtek ósk mína til hv. menntmn. um það, að hún hraði afgreiðslu málsins sem mest, til þess að það geti komizt sem fyrst í hendur menntmn. hv. Ed. Að svo mæltu leyfi ég mér að óska þess, herra forseti, að málinu verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. menntmn.