13.05.1969
Neðri deild: 94. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 545 í C-deild Alþingistíðinda. (2819)
251. mál, Kvennaskólinn í Reykjavík
Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason) :
Herra forseti. Hv. þm. spurði, hvort ríkisstj. hefði tekið ákvörðun um það, eins og hann orðaði það, að stöðva menntaskólafrv. Ríkisstj. hefur enga slíka ákvörðun tekið. Enginn ráðh. né ríkisstj. í heild hefur beint nokkrum tilmælum um þetta efni til hv. menntmn. Ed., sem hefur menntaskólafrv. til afgreiðslu. Það er nefndarinnar sjálfrar, sem hefur málið til meðferðar, að taka ákvörðun um það, hvaða afstöðu hún tekur til þess. En það er rétt, að ég láti þess getið, að mér vitanlega hafa ekki komið fram neinar efnisaths. við menntaskólafrv. af hálfu nokkurs þingflokks eða nokkurra þeirra manna, sem sérstaklega hafa látið það mál til sín taka, og á ég þar sérstaklega við menntmn.-menn. Hitt er annað mál, að um kvennaskólafrv. sem hér er til umr., hefur mér verið tjáð, að sé meiri ágreiningur en ég átti von á, og hafði ég þó tekið fram í upphafi, bæði í framsögu minni fyrir menntaskólafrv. sjálfu og framsögu fyrir þessu frv. hér í hv. Nd., að ágreiningurinn um það mál væri enn meiri en ég hafði gert ráð fyrir. Hafði ég þó tekið fram, að mér væri kunnugt um ágreining um það mál í öllum flokkum þingsins. Hv. þm. hefur gerzt sérstakur talsmaður fyrir þessum ágreiningi í þessari hv. deild.
Ég tók undir þá skoðun, sem fram kom af hálfu eins menntmnm. hér í þessari hv. d., að ég teldi eðlilegt, að þessi tvö frv. yrðu samferða, og þess vegna óskaði ég þess hér við 1. umr., að nefnd og deild hröðuðu afgreiðslu þessa máls sem mest til þess að það gæti sem fyrst komizt í hendur menntmn. Ed., sem þegar er að fjalla um menntaskólafrv.
Nú hefur þessi hv. þm. efnt til deilna um þetta mál hér og undirstrikað sérstaklega þann skoðanamun, sem ég vissi vel, að var fyrir hendi um kvennaskólafrv. Ég vil aðeins segja það, að þetta verður ekki til þess að flýta fyrir menntaskólamálinu, að harðvítugar deilur verði um kvennaskólafrv. En hitt er annað mál, að ég tel rétt, eins og ég segi, ég óska enn eftir því, að þetta frv. komist út úr þessari d. og til Ed. og til þeirrar n., sem um menntaskólafrv. er að fjalla þar.