25.04.1969
Efri deild: 78. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 583 í C-deild Alþingistíðinda. (2858)

126. mál, dragnótaveiði í fiskveiðilandhelgi Íslands

Frsm. minni hl. (Jón Árm. Héðinsson) :

Herra forseti. Það má nú sjálfsagt spjalla um þetta mál fram og aftur. Menn munu seint komast að hinu alsanna í þessu, varðandi veiðiskap eins og ævinlega. Það er ekki ný bóla, að mikið sé deilt um dragnót hér á hinu háa Alþ., og enginn okkar, eins og frsm. meiri hl. tók fram, ætlar okkur þá dul, að við getum verið alvitrir í þessu. Ég vil heldur ekki undirstrika það, að það séu bara óvitrir menn eins og hann gaf í skyn, sem gerðu sér ekki grein fyrir því, að dragnótin væri gott veiðarfæri. Hún er gott veiðarfæri. En hreyfingin á dragnótinni í afla upp og niður byggist ekki á því, að hún drepi allt. Það eru mörg önnur atriði, sem koma til, og ég vil spyrja hv. frsm., hver var aflahreyfingin öll í Faxaflóa, t. d. s. l. 3 ár, sem dragnótin var leyfð? Minnkaði aflinn alls í flóanum eða voru menn að fara yfir á aðrar veiðiaðferðir? Það er kjarni málsins. Ég er enginn talsmaður dragnótar út í neinar öfgar til eða frá. Ég er alinn upp við flóa, þar sem dragnótin hefur verið bönnuð yfirleitt alltaf. Ég er alinn upp við það að róa á línu og handfæri, en alls ekki á dragnót nema mjög takmarkað og er ekki talsmaður dragnótarinnar út af fyrir sig. Það, sem skiptir máli, er, með hvaða hætti við viljum veiða fiskinn á viðkomandi svæði. Hér er lagt til, að eitt svæði við landið sé tekið út úr og l. sé breytt, þó að s. l. ár sýni okkur það, að 6–8 bátar hafi verið á dragnótinni á þessu svæði og veitt tæp 700 tonn. Nú vita það auðvitað allir menn, að ef þessir bátar hefðu verið gerðir út á eitthvað annað en dragnót, þá hefðu þeir vonandi fiskað líka, annaðhvort með handfærum eða á línu og þá auðvitað drepið eitthvað af litlum fiski, kannske undir 60 cm meira eða minna. Við erum því að slást um mjög óverulega hluti að mínu mati, mjög óverulega hluti og alveg hleypidómalaust, og þess vegna gef ég það í skyn, að engin spákonusjónarmið mættu koma hér til greina, engan veginn. Þau voru uppi hér áður fyrr, og þau eiga ekki að skjóta upp kollinum aftur í þessu sambandi. Menn greinir auðvitað á um dragnótina alveg eins og hann tók fram um Þorstein Gíslason. Þorsteinn Gíslason er síldveiðiskipstjóri af fyrstu gráðu, en ég veit ekki, hversu mikill dragnótarmaður hann er. Það hefur orðið breyting á í dragnótinni undanfarin ár, frá því að l. tóku gildi. Ég hef hér yfirlit yfir 1964. Þá voru menn mjög á því að friða fyrir dragnót víðast hvar um allt land, bæði hér í Faxaflóa og annars staðar, en svo fóru menn að fika sig hægt og rólega áfram, sérstaklega fyrir Norðurlandi og á öðrum svæðum hérna. Það eru margir aðilar, sem koma til og segja já eða nei. Þetta fólk úti um allt land hefur vonandi ekki verið að snúa snöru á eigin háls með því að leyfa auknar togveiðar. Það breytir til um veiðihætti vegna nauðsynjar á að fá fisk í land, þegar minna er um síldveiði, til þess að hafa atvinnu. Auðvitað viljum við allir, að við drepum skynsamlega mikið af fiskinum, ef við getum sett orðið skynsamlega þannig fram, að við vitum nákvæmlega, hvað er rétt og rangt. Það er það, sem við erum að keppa að.

Ég er ekki talsmaður þess að halda við dragnótalögunum óbreyttum, ef við erum hræddir um það, að dragnótin eyði fiski til vandræða, alls ekki. Það er auðvitað sjálfsagt að loka vissum fjörðum og flóum, og ég vil undirstrika það og ég gæti sýnt það hérna, hef kort um það hér að stór hluti Faxaflóa hefur ekki verið opnaður fyrir dragnótinni eða ákveðin svæði hans. Að öðru leyti er flóinn mjög verndaður fyrir dragnót af náttúrunnar völdum líka. Það, sem við erum að deila um, er raunverulega þetta:

Eigum við að drepa 600 tonn af fiski meira eða minna með dragnót eða ekki? Svo vitum við, því miður, að bátar sóttu á tog vegna þess, að þeim leiðst það s. l. ár að misnota togveiðilögin og fara lengra inn en mátti, án þess að vera teknir. Þetta hafði þau áhrif, að bátar, sem höfðu áhuga fyrir dragnótinni, fóru yfir á togveiðar, þannig að fækkunin sýnir ekki aðeins það, að það hefur verið allur fiskur dauður undan dragnótinni, heldur voru aðrar aðstæður, sem drógu úr áhuga á dragnótinni yfir í trollið. Einnig má benda á það, að á dragnótinni eru skiptakjör gagnvart útvegsmanninum eða útgerðinni sjálfri óhagstæðari en á hinum veiðunum. Það er einn þátturinn líka. Það, sem mér finnst réttast í þessu, væri að athuga dragnótarlögin í heild um allt land og kanna það rækilega, hvað er rétt og æskilegt að nota dragnótina mikið hringinn í kringum landið til að draga fisk á land á ódýran hátt, því að það ber mönnum saman um, að dragnótin gerir, og sjá, hvaða atvinnu hún getur veitt fólkinu um allt land og einnig hér við Faxaflóa. Það eru mjög víða mikilvæg kolamið, sem þarf að athuga. Þau eru hérna fyrir vestan, að norðan og austan, og þessi kolamið eru lítið nýtt í dag, nýtast helzt í gegnum dragnót og hugsanlega tog, og sé um minni bolfiskafla að ræða, og ég tala nú ekki um á þeim svæðum, þar sem síldin hefur stungið af og kemur ekki í land, þá er óneitanlega óhjákvæmilegt, það er mín skoðun, að við athugum það alvarlega, hvort við getum ekki notað þessi veiðarfæri, sem fara með botni og ná kolanum, þannig að þau auki verðmæti í þjóðarbúinu, þó vitanlega, og það vil ég undirstrika, án þess að valda tjóni á okkar fiskistofnum.

Ég skal allra manna síðastur gerast talsmaður þess, að við eigum að stunda hér ofveiði. Afstaða mín á móti frv. byggist á þeirri skoðun, að ég tel óeðlilegt að taka einn þátt út úr þessu núna í þetta skiptið. Ég vil miklu fremur, að við athugum dragnótavandamálið að nýju í reynslu þeirra 8 ára, sem l. hafa gilt, og við breyttar aðstæður. Það er meira að segja kominn upp áhugi á Norðurlandi, á Skjálfanda og í Eyjafirði og jafnvel víðar fyrir því að opna núna af illri nauðsyn, sem þeir kalla, vegna þess að það er ekki sama atvinna við síldina eins og var, og þá verða menn að hafa eitthvað að gera. Og komi dragnótin með flatfisk eða annan bolfisk að landi án þess að vera að spilla heildarstofninum við landið, sé ég ekki, hvað á að vera því til fyrirstöðu að ná í þann fisk. Við leituðum umsagnar hjá Hafrannsóknastofnuninni og Fiskifélaginu. Báðar þessar stofnanir leggjast eindregið á móti samþykkt frv. nú, og þeir færa til þess mörg rök, sem væri hægt að lesa hér. En ég vil ekki tefja tímann, þar sem orðið er mjög áliðið tímans og auk þess var svo rausnarlega gert af meiri hl. að prenta nú þessar umsagnir í heild sinni með, en þar tekur Jón Jónsson fiskifræðingur greinilega fram, að reynslan af dragnótinni er sú, að hún er ekkert meira gereyðingartæki en mörg önnur veiðarfæri. Það sýnir reynslan. Það þýðir ekkert að vera með nein spákonusjónarmið í þessu efni. Það er alveg tilgangslaust, og þess vegna setti ég þetta orð hér fram. Ég ætlast til þess, að menn tali við marga menn, heyri hvað þeir segja. Skoðanir eru mjög skiptar og við hlítum þeim úrskurði, sem reynslan sýnir. Ef við förum með dragnótina inn á hættuleg svæði, þar sem hún gerspillir, þá eru hvorki ég eða aðrir talsmenn þess að nota hana á því svæði, síður en svo. En ég tel þetta mál meira en það, að það sé hægt að breyta lögum á mjög takmörkuðu svæði nema að undangenginni rækilegri athugun á því, hvaða áhrif það hafi á marga báta og atvinnulíf og þar fram eftir götunum. Málið er það mikið, að það eru vel rök fyrir því, að það sé athugað og þá lagt nýtt frv. fram í haust varðandi þessi mál.

Um þetta mætti spjalla mikið, miklu meira. En ég vil aðeins benda á það, af því að ég hef hér um það aflaskýrslur, hvernig aflinn var eftir veiðarfærum á þeim stöðum, sem þetta mál snertir. Í Keflavík gaf dragnótin 351 tonn, botnvarpan 4800 tonn. Síðan kom humarvarpan með 1400 tonn. Ætli hún gæti ekki verið nokkuð hættulegri í sumum tilfellum, eftir því sem sumir segja? Garðurinn var ekkert með í dragnótina, hann var hins vegar með botnvörpu upp á 2500 tonn og humarvörpu upp á 700 tonn. Hafnarfjörður var með 3 tonn í dragnót en 1600 tonn tæp í botnvörpu. Svona mætti telja lengur upp. Ég tel það rétta meðferð málsins að athuga þetta gaumgæfilega, og komumst við að þeirri niðurstöðu, að það sé æskilegt fyrir alla veiði í Faxaflóa að stöðva dragnótaveiðina, þá tel ég rétt að gera það. En það verður ekki gert nema með því að athuga þetta mjög gaumgæfilega, hvað sem líður öllum kenningum um gildi Faxaflóa sem friðunarstöðvar og uppeldisstöðvar og þar fram eftir götunum. Um það deila menn ekki. Hann er mikilvægur staður og blessunarlega hefur hann fengið náttúrlega vernd á mjög stóru svæði fyrir botnveiði, þar sem kunnugt er, að 70–80% af flóanum er með hraunbotnlagi, þar sem botnveiðarfæri, dragnót og tog, verða ekki notuð. Þess vegna eru ákjósanleg skilyrði hér í flóanum fyrir ungviði, þó að það sé tekið fram í grg. Jóns Jónssonar, að víða við land séu skilyrði ekki verri, ekki eftir því, sem þeir hafa rannsakað og gefa upp. Mín niðurstaða varð því sú, að hleypidómalaust eigum við ekki að samþykkja frv. nú, miklu fremur að athuga þessi mál gaumgæfilega sem eina heild og taka afstöðu eftir það.