28.04.1969
Efri deild: 79. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 602 í C-deild Alþingistíðinda. (2889)
141. mál, sala Holts í Dyrhólahreppi
Pétur Benediktsson:
Herra forseti. Þegar ég sá nál. um frv. það, sem hér liggur fyrir, kom mér fyrst í hug, hvort hér væri um að ræða eitt af þessum frægu aprílgöbbum, sem nú eru komin svo mjög í tízku hér í sveit. Þarna sé ég nál. frá mínum kæru og mikilsvirtu flokksbræðrum, þar sem þeir vilja vísa frá með rökstuddri dagskrá frv., sem mikilsmetnir flokksbræður okkar hafa flutt tvö undanfarin þ. í Nd., þ. á m. sá þm., sem á síðari þingum hefur verið langkunnugastur staðháttum á þessum slóðum. Ég á þar að sjálfsögðu við Ragnar Jónsson, fyrrv. alþm. Og þetta er rökstutt með því, að það samræmist ekki hagsmunum ríkisins, minnir mig að standi, að láta verða af þessari sölu. Á hinu leitinu standa sameiningarpostularnir og þeir menn, sem ég hefði sízt haldið, að ég ætti samleið með um þjóðjarðir, og skrifa ágætt álit og halda eins frábæra ræðu um rétt einstaklingsins og helga erfðarétti fjölskyldunnar til landsins, sem í marga ættliði hefur verið í hennar eign, eins og við nú heyrðum hv. 6. þm. Sunnl. gera. Og það verð ég að segja, að ólíkt betri áhrif hafði ræða hans á mig heldur en það, að nú eigi að fara að skipta landareignum eftir því, hve fallega þær líti út úr lofti, hvort þær brjóti línu ríkiseignanna á einhvern óþægilegan hátt fyrir augað, þegar á það er litið ofan frá.
Þetta varð til þess, að þegar ég hafði lesið þessi tvö nál., þá fannst mér, að þarna hlyti að vera eitthvað einkennilegt á ferðinni. Ég fór að kynna mér sögu málsins, og upplýsingar þær, sem mér tókst að afla mér, eru að mestu samhljóða því, sem hv. 6. þm. Sunnl. hefur sagt um málið. Þó var hann, svo sem vænta mátti í hinu nýja gervi sem hann hefur tekið sér, aðeins of mildur og sanngjarn í garð þeirra, sem þarna vilja sýna yfirganginn. Ef heimildarmenn mínir hafa sagt mér rétt, þá er það ekki aðeins það, að Þorsteini heitnum Einarssyni væri tjáð, að jörð hans væri undir hættu frá hinu nýja samvinnufyrirtæki Klifandi og Hafursár um að brjóta landið, heldur var honum synjað um lán úr opinberum sjóðum til endurbyggingar á húsakosti jarðarinnar, og þar sem þarna er um stórhuga fólk að ræða, þá ætlaði það ekki að fara að hírast í gömlum hreysum, þangað til Hafursá eða Klifandi, ég veit ekki, hvort nafnið þessi sameining hefur í dag, tækist að brjóta seinustu þúfurnar undan þeim í túninu; nei, þau hjónin útveguðu sér aðra mæta og merka jörð, Nikhólinn, sem margir merkir menn hafa setið, og hófu búskap þar. Jafnframt seldu þau ríkinu jörðina, en fengu að halda nytjum hennar, væntanlega um óákveðinn tíma að því sinni, sem sagt á meðan hún biði dauðadómsins. Nú varð ekki úr framkvæmdum hjá þessum tveim ám með skemmdarverkin, en þá kom líka nýtt upp. Þá fór jarðeignadeild ríkisins af stað og ætlaði að reka gömlu konuna burt af jörðinni, eða frá jarðarnytjunum. Höfðingjarnir úr Reykjavík létu sér sæma að reyna að taka jörðina af þessari gömlu konu, en það er eins og forðum var sagt, að guði sé lof að til er hæstiréttur. Hann verndaði þarna lítilmagnann gegn stjórnarráðsfulltrúunum og hinum ágjörnu, og það varð ekki úr brottrekstrinum, heldur fékk hún að halda sinni jörð til ævilangrar ábúðar og nytja.
Nú er eins og mönnum hafi orðið litið í manntalið og séð, að kannske ætti þessi góða kona ekki of langt ólifað, og þá yrði enn tækifæri til að koma þessu fólki í burtu. Um svona aðferðir verð ég að segja, að mér finnst þær óskemmtilegar og ósæmandi. Ég álít, að þegar þetta fólk, þessi ætt, hrekst burtu af sínu gamla óðali vegna opinberra aðgerða, þá sé það sjálfsögð skylda að leyfa þeim að kaupa jörðina aftur, þegar þau eru til þess fáanleg. Það er ekki það sama, eins og einhver stakk upp á — ekki hér í d., heldur annars staðar — að bjóða Nikhólsfólkinu nú einhverja aðra af þessum þremur ríkisjörðum, sem þarna standa í röð, svo að ábúandinn eða sá, sem er að sækjast eftir þessari samfelldu röð, gæti fengið tvær jarðir saman.
En það er bara ekki sama tilfinningin að fá að nytja sitt gamla óðal og að fá það aftur inn í sína ætt, eins og að fá eitthvert nágrannabýli í skiptum. Í dag eru ekki horfur á því, að Holtið yrði endurbyggt sem sjálfstætt býli, ekki á allra næstu tímum, en það kom einnig fram í þeim upplýsingum, sem mér tókst að afla mér, að þetta fólk, sem áður bjó í Holti, er að almannadómi einhverjir þeir mestu myndarbændur, ekki aðeins hreppsins, heldur jafnvel allrar þessarar ágætu sýslu, er í hópi alfremstu bænda og fáar jarðir betur nytjaðar. Bóndinn í Nikhól er mér sagt að sé einhver bezti gjaldandi síns sveitarfélags og maður sem á — eins og móðir hans og eins og faðir hans heitinn — allt gott skilið af hinu opinbera, en ekki að verða fyrir hrakningum, eins og þessi gamla kona á að verða, ef till. hv. meiri hl. er fylgt, nú rétt áður en hún kemst á grafarbakkann. Ég vil því taka undir með hv. minni hl. n. og skora á hv. þd. að samþ. þetta frv. Hvort brtt. er felld eða samþ., upp úr því legg ég ekki neitt. Ég hefði verið fús til að samþ. hana til samkomulags, en mér finnst svona frekar lakara að hafa hana í frv. heldur en ekki, en ef það getur hvatt nokkurn mann, sem ella væri á móti frv., til að fylgja því, þá er ég fús til að hliðra til með mína skoðun á því sviði.