05.05.1969
Efri deild: 85. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 613 í C-deild Alþingistíðinda. (2915)

238. mál, Húsnæðismálastofnun ríkisins

Flm. (Björn Fr. Björnsson) :

Herra forseti. Ég ætla ekki, varðandi það frv., sem hér liggur fyrir, að ræða almennt um húsnæðismálin, eins og þó væri verðugt og nauðsynlegt í þeirri sjálfheldu, sem þau sýnast nú vera. Það er liðið mjög á tíma þingsins að þessu sinni, og fjöldi aðkallandi mála liggur fyrir til afgr. Er þess vegna ekki þess að vænta, að nýmæli eins og felst í þessu frv. geti fengið afgr. á þessu þingi og síðar verði tækifæri til þess að íhuga hina margvíslegu þætti húsnæðismála í sambandi við þann þátt, sem sérstaklaga verður af minni hálfu tekin hér til umr. samkv. því, sem segir frekar í frv. En áður en ég tek að ræða efni frv. vil ég þó fáum orðum fara almennt um húsnæðisvandann.

Í nútímaþjóðfélagi eru, eins og alkunnugt er, húsnæðismálin mjög ákvarðandi um lífskjör fólksins. Hér hjá okkur hefur líka mikilvægi þessa málaflokks verið óumdeilt. Gott og hentugt íbúðarhúsnæði er frumskilyrði og ekki sízt hér hjá okkur, eins og veðurfari og loftslagi er háttað. Það er því sífelld nauðsyn að endurnýja byggingar og fást við nýbyggingar. Því er það eitt af höfuðverkefnum hins opinbera að sinna þessum málum og bæta jafnt og þétt úr brýnni þörf fólksins, eftir því sem framast er kostur. Í húsnæðismálalöggjöf okkar eru stefnumið sett og ýmsar leiðir markaðar, sem mega leiða til nokkurrar úrlausnar, en á hitt hefur að mínu og margra annarra áliti skort, að framkvæmd þessara mála hafi verið sem skyldi, og hjá okkur er því þannig farið, að kostnaður við byggingar hefur orðið með sígandi hraða undanfarin ár nærri óhóflegur, en aftur á móti kaupmáttur og greiðslugeta alls almennings í öfugu hlutfalli við kostnaðinn. Með skipulegri efnahagsþróun hefði aldrei leitt til þessa. Þegar meta skal, hvað helzt skal til ráða, í fyrsta lagi til lækkunar á byggingarkostnaði og í öðru lagi, hvernig standa beri að aukningu fjármagns, kemur að sjálfsögðu margt til athugunar, og hefur ýmislegt fram að þessu verið athugað. Í 3. gr. 1. um Húsnæðismálastofnun ríkisins eru ákvæði, sem lúta að því, hvernig sú stofnun skuli vinna að umbótum í byggingarmálefnum og m. a. gera till. um það hverju sinni, svo sem kostur er á, til að draga úr kostnaði. M. a. segir í 3. gr. um þessa skyldu stjórnar stofnunarinnar: Hún á að vinna að því með því að gera sér grein fyrir, hver sé raunveruleg þörf landsmanna fyrir íbúðarbyggingar á hverjum tíma og gera till. og áætlanir um, hvernig þeirri þörf verði fullnægt á sem hagkvæmastan hátt og með sem minnstum tilkostnaði. Með því að fylgjast nákvæmlega með byggingarkostnaði í því skyni að finna, hverjir byggi ódýrast húsnæði og hvaða gerðir íbúðarhúsnæðis reynist beztar. Einnig með því að setja þau skilyrði fyrir lánum, að byggðar verði fyrst og fremst hagkvæmar íbúðir af hóflegri stærð, og með því að beita sér fyrir því að vinna við íbúðarhúsabyggingar verði sem samfelldust árið um kring og jöfnust frá ári til árs. Hér eru mikilvæg atriði, sem Húsnæðismálastofnuninni og yfirstjórn hennar hefur verið skylt og er skylt að vinna að. Nú er spurningin þessi, hefur þessarar skyldu verið gætt sem bar og nauðsynlegt var? Reynsla margra undanfarinna ára og áratuga hefur vissulega fært okkur heim sanninn um margt, sem betur mætti fara í þessu efni. Og af reynslunni getum við dregið margvíslegan lærdóm. Hefur það verið gert sem skyldi? Fyrir fáum árum mun hæstv. félmrh. hafa falið n. manna að endurskoða allt húsnæðismálakerfið. Hvað hefur komið fram við þá athugun? Hvað hefur verið gert til þess, almennt séð, að koma í veg fyrir dýrin og óhentugan byggingarmáta? Hér er og hefur lengi verið um gífurlega umfangsmikið verkefni að ræða, sem vinna þarf að með mikilli festu og með það fyrir augum, að í framtíðinni verði sem mest og bezt haldið á þessum málum í samræmi við efnahagsgetu einstaklinga og þjóðarinnar í heild. Um þetta eru flestir ef ekki allir sammála. Og þá jafnframt, að eigi megi draga úr hömlu að gera sameiginlegt meginátak til þess að ráða þar bætur á. Þegar rætt er um húsnæðismál eða einstaka þætti þeirra, þá er ekki unnt að ganga fram hjá þessu mikilvæga atriði né láta hjá líða að minna á þá miklu nauðsyn að duga verður betur í þessu efni en nú um nokkurt árabil hefur verið. Áður hefur þó sæmilega verið að gert og ber sízt að lasta það, heldur viðurkenna. Skal ég svo ekki frekar fjölyrða um þennan þátt húsnæðismálanna og koma að efni þess frv., sem hér er á ferð.

Í frv. því, sem hér er fram lagt og við flytjum, hv. 11. þm. Reykv. og ég, felst nokkurt nýmæli og varðar lánakerfi byggingarsjóðsins. Hér er hreyft hugmynd, sem hefur verið annars staðar með vestrænum þjóðum reynd að nokkru, eftir því sem okkur er tjáð og í frv. okkar er þessi hugmynd mótuð, að vísu í stórum dráttum, en ég vona nægilega greinilega. Við flm. frv. teljum það fráleitt, að ekki sé komið fram með till., sem gætu m. a. leitt til undankomu úr þeim vítahring, sem mál þessi eru komin í, og hér er bent á eina af þeim leiðum, sem freista mætti að fara til aukningar fjármagns til útlána hjá byggingarsjóði. Það er kunnara en frá þurfi að segja, hversu alvarlega skortir á um þá fjármögnun, sem með þarf í húsnæðislánakerfinu, en nauðsynlegt fjármagn til útlána af hálfu byggingarsjóðs er undirstaða þess, að fólki sé yfirleitt og almennt kleift að standa undir stofnkostnaði og rekstri íbúðarhúsnæðis. Sérfræðingar segja okkur, að hér á landi þurfi að byggja á ári hverju ca. 1700–1800 íbúðir næstu 5–10 árin. Sé miðað við byggingarkostnað, eins og hann er talinn vera í dag, munu 1700 íbúðir kosta minnst ca. 2000 millj. kr. í fjárfestingu. Eftir því, sem við flm. frv. höfum getað aflað upplýsinga um, eru lánamöguleikar byggingarsjóðs áætlaðir þetta ár, árið 1969, um 300 millj. kr. Auk þessa koma svo inn í þetta að sjálfsögðu ýmsir lífeyrissjóðir, sem engan veginn er hægt að áætla, hve mikið geti af mörkum lagt í þessu skyni. En kunnugustu menn telja, að vart geti það orðið meira en í kringum 800 millj. á ári. Í ár, 1969, er talið, að þannig muni vanta um 420–460 millj. kr., til þess að hægt sé að veita þau hámarkslán, sem húsbyggjendur eiga nú rétt á, og þá eru þarna fyrir utan fjármagnsmöguleikar byggingaráætlunarinnar, en áður hefur þessi áætlun dregið til sín fjármagn frá hinu almenna veðlánakerfi og þannig, að til algjörra vandræða hefur horft fyrir fjölda þeirra húsbyggjenda, sem af eigin rammleik, bæði í Reykjavík og víða úti um land, byggja sér íbúðir eða hafa byrjað á byggingu íbúða og treystu á lán, sem þeir fengu ekki og fóru annað.

Það er því svo skýrt sem auðið er, að þjóðfélaginu er þannig hin brýnasta nauðsyn, að allt verði gert, sem auðið er, til þess að stórauka útlánamöguleika byggingarsjóðs. Ekki er hægt að hugsa sér að gera það með öðru móti en því t. d. að leggja út í nýja skatta, eða í öðru lagi að ná í fé til fjármögnunar í gegnum sparnað sem almennastan í þjóðfélaginu, bæði hjá einstaklingum og fyrirtækjum, og fá þannig út úr því sparnaðarfé verulega lánsmöguleika. Og það er einmitt í þessu frv., sem er bent á þessa leið, að byggingarsjóður nái fjármagni til sín með sparnaði einstaklinga og félaga gegnum verðbréfasölu. Við vitum það ósköp vel allir, að það er yfirleitt ekki hægt að ná fjármagni til nauðsynlegra framkvæmda, nema til staðar sé verulegt magn af sparnaðarfé. Skattaálagningaraðferðir eru óæskilegar að minni hyggju og margra annarra, fram yfir það, sem er brýnust þörf. En sannarlega hefur ekki verið girnilegt í okkar þjóðfélagi undanfarið að liggja uppi með sparifé, hvorki fyrir einstaklinga né fyrirtæki, þegar hver gengisfellingin á fætur annarri hefur ráðizt á það og það þannig eyðzt í verðbólgueldinum, sem lengi hefur þjakað okkar þjóð. Þannig og þess vegna hefur verið lömuð verulega öll sparnaðarviðleitni fólks í þessu landi og jafnvel komið í veg fyrir, að sparnaður og sparnaðarhvötin fengju að nokkru marki að njóta sín. Það er því eigi annað brýnna verkefni en með öllum ráðum að vinna gegn þessari óheillastefnu, sem að þessu leyti hefur alltaf lengi ríkt. Það verður að snúa hjólinu við og efla sparnaðarhvötina og tryggja sparifjáreigendur sem bezt má verða. Það þarf mikils við til þess að eyða þeirri tortryggni, sem ríkir meðal fólks að því er varðar að eiga peninga eða önnur þess háttar verðmæti stundinni lengur. Ef vel á að fara, verðum við að fara þá leið að hvetja einstaklinga og félög til þess að fara þannig með fjármagn, sem þeir hafa fengið á hverjum tíma fram yfir nauðsynlega eyðslu til nauðþurfta og annars slíks, að það sé hægt að treysta á slíka eign, en hún eyðist ekki jafnóðum í eldi verðbólgu og gengisfellinga. Eins og ég gat um áðan, þá hefur svipuð fjáröflunarleið og gerð er till. um í þessum frv. verið farin annars staðar í þágu íbúðarlánakerfis, og eftir því, sem við flm. vitum bezt, hefur sú leið gefizt vel. Það mun hafa verið í V.-Þýzkalandi eftir heimsstyrjöldina síðari eða upp úr árunum 1945–1947, þegar V.-Þjóðverjar þurftu að byggja upp svo að segja allar sínar borgir að nýju, að þessi leið m. a. var farin eða eitthvað í líkingu við hana. Í frv. segir, með leyfi hæstv. forseta:

„Byggingarsjóður eða veðdeild skal gefa út og selja skuldabréf til 35 ára. Kaupendur slíkra bréfa skulu hafa rétt til að draga andvirði þeirra frá skatt- og útsvarsskyldum tekjum það ár, sem þeir kaupa bréfin af byggingarsjóði (veðdeildinni). Þó skulu ekki frádráttarbær meiri bréfakaup ár hvert en sem nemur 100 þús. kr. hjá einstaklingum og kr. 300 þús. hjá fyrirtækjum. Bankavaxtabréf þessi skulu vera ríkistryggð, og 1/35 hluti hvers lánaflokks dreginn út ár hvert. Vísitöluuppbót skal greidd á þessi bréf við útdrátt á sama hátt og af lánum byggingarsjóðs “

Í íslenzkri löggjöf er verðbréfasala með þessum hætti nýmæli. Hér á landi hafa verðbréf eða veðskuldabréf verið með öllu óseljanleg á frjálsum markaði, nema þá í mjög óverulegum mæli og þá með gífurlegum afföllum, jafnvel 40–50% afföllum, en víðast hvar í vestrænum heimi hefur verðbréfasala þjóðhagslega mikilvæga þýðingu á fjölmörgum sviðum efnahagslífsins og gerir það kleift, að þar er hægt með þessu móti að fjármagna stærri og smærri nauðsynjafyrirtæki. Hjá okkur hefur ekki reynt á verðbréfaviðskipti, a. m. k. ekki svo að heitið geti, enda er það afleiðing af því, hversu verðgildi krónunnar okkar hefur farið hraðminnkandi á undanförnum árum og ekkert fast undir fæti í því efni. Í frv. er gert ráð fyrir, að þessi verðbréf, eða veðskuldabréf, skuli vísitölutryggð, og með þeirri ákvörðun er að því stefnt, að menn almennt sjái sér hag í því að kaupa slík bréf að öðru jöfnu. Og ef menn gætu það, þá yrði síður hlaupið til þess alveg án nokkurrar fyrirhyggju og af hinu mesta handahófi að festa fjármuni sína í miður þörfum hlutum, svo ekki sé meira sagt, því að það vitum við allir jafn vel, að á mörgum undanförnum árum hefur verið mjög mikið um ónauðsynlega eyðslu í okkar þjóðfélagi, sem að sjálfsögðu stafar af þessum sama ótta við að eiga peninga stundinni lengur. Þetta vantraust á íslenzku krónunni hefur leitt til alvarlegs vanmats á gildi sparnaðar, bæði með einstaklingum og félögum. Þá mætti það verða nokkur hvatning til kaupa á þessum verðbréfum, ef andvirði bréfanna fengist að nokkru leyti frádregið skattskyldum tekjum og útsvarsálagningu. Í okkar þjóðfélagi, sem þarf sannarlega á öllu sínu vinnuafli að halda til uppbyggingar á velflestum sviðum til sífellt bættrar aðstöðu þjóðarinnar, er það að sjálfsögðu nauðsynlegt, að hver og einn verkfær borgari hafi tækifæri til þess að inna af hendi hin hagnýtu störf og iðki um leið nokkra sparsemd, bæði sín vegna og þjóðfélagsins. Við höfum ekki efni á því, að fjöldi einstaklinga leiði hjá sér að vinna ýmiss konar aukastörf, sem full þörf er á, bæði fyrir einstaklinga og þjóðfélagið. að unnin séu, og að sagt sé, ef slíkt er í boði, að allt fari þetta í skatta og útsvör og þess vegna sé engin ástæða til þess að inna þessi störf af hendi. Við flm. þessa frv. teljum núverandi atvinnuleysisástand aðeins tímabundið og að atvinna verði meiri en nægileg fyrir alla landsmenn, þegar því ástandi linnir, sem allir vona, að verði sem fyrst.

Í frv. er sleginn sá varnagli, að gert er ráð fyrir hámarksfjárhæð í sambandi við frádráttarhæfi veðskuldabréfanna, þannig að einstaklingur fær ekki meiri frádrátt heldur en 100 þús. kr. frá tekjuskatts- og útsvarsálagningin og fyrirtæki allt að 300 þús. kr. Það má að sjálfsögðu búast við því, að sagt verði á sambandi við þessar frádráttarbæru fjárhæðir til skatts, að þetta fyrirkomulag geti orðið til þess að rýra mjög tekjumöguleika sveitarfélaga og ríkissjóðs, og satt er það, að ef um veruleg kaup á þessum veðskuldabréfum yrði að ræða, þá mundi sjálfsagt draga úr þessari tekjuöflunarleið ríkis og sveitarfélaga, en þá kæmi nokkuð í staðinn, sem ekki síður er rétt að festa auga á, sem er stórmikil og aukin fjármögnun byggingarsjóðs. Í sambandi við þetta vil ég benda á, að það mætti gera ráð fyrir því, að frá framtölum yrði þá verulega betur gengið, og er þá reiknað með mannlegum veikleika, ef framteljendur gætu með slíkum bréfakaupum lækkað skatta sína og þá um leið svolítið létt á eigin samvizku, ef um það væri að ræða, að hún væri ekki nægilega góð. Fleira mætti tína til, sem mundi valda því, að ríki og viðkomandi sveitarfélög myndu ekki tapa svo mjög á þessu fyrirkomulagi, þannig að þetta yrði með öllu hættulaust, nema slík sala yrði á veðskuldabréfum, að fram úr hófi væri, en það er nú gert ráð fyrir því í frv., að miða við hámarksfjárhæðir þar. Það þarf varla að búast við því, að sala veðskuldabréfanna verði það mikil, a. m. k. ekki fyrsta kastið og eins og nú standa sakir í þjóðfélaginu. Það er sem sagt mjög erfitt að segja fyrir um það, hversu mikið fjármagnið yrði, ef slíkt frv. sem þetta yrði að l. Þrátt fyrir ýmsa kosti þess fyrir einstaklinga og fyrirtæki að festa fé í verðbréfum sem þessum og brátt fyrir ríka þegnskapartilfinningu margra, þá mætti náttúrlega búast við því, að sumum þætti ekki vænlegt mjög að festa fé sitt til allt að 35 ára, ef það þætti rétt að hafa lánstímann svo langan. En á hitt ber þó að líta, að slík verðbréf gætu verið mætagóð handveð í lánastofnunum, ef viðkomandi eigandi þeirra þyrfti á að halda og skyndilega að grípa til. En vísitölutryggingin og frádráttur til skatts hlýtur að höfða til fjölmargra, enda þótt bréfin verði að telja til eignar og grunnvexti til tekna. Svo verða þessi bréf dregin út að 1/35 hluta ár hvert. Þetta er nokkurs konar happdrætti um leið. Við Íslendingar forsmáum nú ekki þátttöku í ýmiss konar happdrætti, og það gæti vel farið svo, að bréfaeigendur gætu oftar en einu sinni notað sömu fjárhæðina til þess að taka þátt í verðbréfakaupunum á þessu 35 ára tímabili. Ég hef lítillega og í stórum dráttum rætt um efni þessa frv., og það er vissulega nokkurt nýmæli, sem í því felst, ekki aðeins vísitölutryggingin, heldur hitt, sem er þó að mínu áliti ekki minna um vert og höfðar meira til fólks, sem getur á annað borð lagt í að kaupa slík bréf, ef til kemur, og það er frádrátturinn við framtöl á sköttum og útsvari. En sem sagt, enginn okkar veit, hversu mikið fé fengist inn með þessum hætti, sem frv. greinir. Það fer allt eftir atvikum. En við teljum, flutningsmennirnir, að það sé tilraunarinnar virði að stofna m. a. með þessum hætti til fjáröflunar í þessu skyni, þ. e. a. s. til að fjármagna fjárvana byggingarsjóð. Alvarlegur fjármagnsskortur þessa sjóðs og hin brýna lánsfjárþörf, sem eykst með hverjum deginum, svo að kalla, þeirra mörgu, sem brjótast í því að koma þaki yfir höfuð sér og sinna, hvort tveggja þetta knýr svo fast á, að það verður alls ekki komizt hjá því fyrir ríkisvaldið að leysa úr þessum mikla og margþætta vanda með öllum eðlilegum, tiltækum ráðum, og að áliti okkar flm. er þetta m. a. eitt ráðið. Okkur flm. er það ljóst, að það má breyta ýmsu í þessu frv. og við erum sjálfsagt reiðubúnir til þess, en í höfuðdráttum erum við vissir þess, að í þessa stefnu beri að fara m. a.

Herra forseti. Ég hef þá lokið máli mínu um þetta frv., sem hér liggur fyrir, og ég vil að lokum óska þess, að því verði vísað til 2. umr. og hv. heilbr.- og félmn. að lokinni þessari 1. umr.