08.11.1968
Sameinað þing: 9. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 6 í D-deild Alþingistíðinda. (2919)

45. mál, aðild að Fríverslunarsamtökum Evrópu

Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. Á þeim rúmlega tveim áratugum, sem liðnir eru síðan lauk mesta hildarleik í sögu Evrópu og alls heimsins, hafa verið stigin fleiri og stærri spor til aukinnar samvinnu milli ríkja í Evrópu en nokkru sinni fyrr. Upphaf þessarar auknu Evrópusamvinnu var stofnun Efnahagssamvinnustofnunar Evrópu árið 1948. Megintilgangur þeirra samtaka var að stuðla að efnahagsendurreisn Evrópu eftir eyðileggingu styrjaldarinnar. Bandaríkjamenn áttu frumkvæðið að þessum samtökum og veittu Evrópuþjóðunum stórfellda efnahagsaðstoð, Marshallaðstoðina svonefndu, til endurreisnarstarfsins. Jafnframt beitti Efnahagssamvinnustofnunin sér fyrir því, að endurreisnarstarfið færi fram á grundvelli síaukins viðskiptafrelsis og frjálsari gjaldeyrísviðskipta, þar sem það var eitt aðalmarkmið hennar að afnema hvers konar höft á viðskiptum og koma á fót marghliða greiðslukerfi. Þessi starfsemi Efnahagssamvinnustofnunarinnar bar mikinn og góðan árangur þegar á fyrri hluta áratugsins 1950–1960.

Skömmu eftir lok styrjaldarinnar hafði einnig verið gerður allsherjarsamningur um lækkun tolla, hið svonefnda „Almenna samkomulag um tolla og viðskipti“ eða GATT. Viðleitnin til að ná miklum og almennum tollalækkunum, samkv. þessu samkomulagi, bar þó ekki eins mikinn árangur og vænzt var. Hins vegar kom samkomulagið í veg fyrir tollastyrjaldir og verulegur árangur náðist í fyrra í lækkuðum tollum á iðnaðarvörum við lok margra ára viðræðna innan GATT, viðræðna, sem nefndar hafa verið „Kennedy“–viðræðurnar.

Þeirri skoðun óx smám saman fylgi á árunum eftir styrjöldina, að enn nánara samstarf Evrópuríkja í viðskipta– og efnahagsmálum en komið hafði verið á fót með Efnahagssamvinnustofnun Evrópu væri nauðsynlegt til þess að efla efnahagsþróun álfunnar og stjórnmálaeiningu. Án slíkrar samvinnu gætu Evrópuríkin ekki keppt á efnahagssviði við stórveldin tvö, Bandaríkin og Sovétríkin og þá ekki heldur varðveitt stjórnmálaáhrif sín á gang heimsmála. Evrópuþjóðum bæri því að stofna til enn nánari samvinnu eða dragast ella æ meira aftur úr. Fyrsta raunhæfa niðurstaða þessarar stefnu var sú, að ríkin sex, sem nú mynda Efnahagsbandalag Evrópu, komu sér saman um stofnun kola– og stálbandalags Evrópu, er tók til starfa 1952, en með því var komið á fót sameiginlegum markaði fyrir kol og stál innan þessara ríkja. Árið 1955 efndu þessi rík til ráðstefnu í Messína á Ítalíu og var þá tekin ákvörðun um að halda áfram á sömu braut og stofna til víðtæks efnahagsbandalags, er hafa skyld að uppistöðu sameiginlegan markað fyrir öll við skiptalöndin. Bretar tóku í fyrstu þátt í við ræðunum um þessa nýju og stórauknu efnahagssamvinnu, en hættu þeirri þátttöku í árslok 1955 Sexveldin héldu hins vegar samningum sínum áfram og náðu samkomulagi rúmlega ári síðar. Í marz 1957 var undirritaður í Róm samningur mill Frakklands, Ítalíu, Þýzkalands, Belgíu, Hollands og Lúxemborgar um stofnun Efnahagsbandalags Evrópu og tók bandalagið til starfa 1. janúar 1958. Kjarni þessa samnings er, að í aðildarríkjunum er komið á fót sameiginlegum vörumarkaði. Á 12–15 árum skyldi komið á algeru tollabandalag aðildarríkjanna. Þetta þýddi, að fella skyldi niður alla tolla og öll höft milli aðildarríkjanna, en taka jafnframt upp sameiginlegan toll gagnvart löndum utan bandalagsins. Síðustu leifar tolla milli aðildarríkjanna voru felldar niður 1. júlí s.l. eða alllöngu fyrr, en upphaflega hafði verið ráð fyrir gert. Þegar samningurinn kemur til fullra framkvæmda á að gilda sú almenna regla, að hreyfing vinnuafls og fjármagns sé ekki heft af þjóðernisástæðum og réttur ríkisborgara bandalagsins til atvinnurekstrar og þjónustu sé viðurkenndur.

Samkomulagið um stofnun Efnahagsbandalagsins þótti auðvitað miklum tíðindum sæta í Evrópu og heiminum öllum. Að undirlagi Breta hófust innan Efnahagssamvinnustofnunarinnar í París víðtækar umr. um viðskiptamál Vestur–Evrópu yfirleitt. Hugmynd Breta var sú, að öll ríki Efnahagssamvinnustofnunarinnar skyldu gera með sér viðskiptasáttmála þess efnis, að felldir yrðu niður tollar og höft af viðskiptum ríkjanna innbyrðis, en hverju ríki skyldi hins vegar frjálst að ákveða tolla sína gagnvart þeim ríkjum, sem ekki stæðu að samkomulaginu. Þessar viðræður báru ekki árangur og lauk þeim seint á árinu 1958. Þá hófust viðræður milli sjö landa í Vestur-Evrópu, — Austurríkis, Bretlands, Danmerkur, Noregs, Portúgals, Sviss og Svíþjóðar, — um stofnun viðskiptabandalags sín á milli og lauk þeim með stofnun Fríverzlunarsamtaka Evrópu, sem svo hafa verið nefnd, í janúar 1960.

Sáttmálinn milli ríkjanna, sem gerður var í Stokkhólmi, fjallar fyrst og fremst um afnám tolla og viðskiptatálmana milli aðildarríkjanna. Ákvæði hans taka eingöngu til viðskipta með iðnaðarvörur, en hvorki til viðskipta með landbúnaðarafurðir né óunnar eða lítt unnar sjávarafurðir. Unnar sjávarafurðir, svo sem freðfiskur, mjöl, lýsi og niðursuðuvörur, teljast hins vegar til iðnaðarvarnings, þó að nokkrar sérreglur gildi að vísu um innflutning freðfisks til Bretlands. Þá er gert ráð fyrir, að sérstakir samningar milli einstakra aðildarríkja séu gerðir um viðskipti með þær vörur sem samningurinn nær ekki til, þ.e.a.s. landbúnaðarafurðir. Voru slíkir samningar t.d. gerðir milli Svía og Dana og milli Dana og Breta þegar í upphafi.

Tilgangurinn með stofnun Fríverzlunarsamtaka sjöveldanna var tvíþættur: Annars vegar vildu aðildarríkin styrkja aðstöðu sína í samkeppni við Efnahagsbandalagsríkin með því að veita hvert öðru tollalækkanir, sem sexveldin yrðu ekki aðnjótandi. Hins vegar vildu þau styrkja sameiginlega samningsaðstöðu sína, ef til þess kæmi, að reynt yrði að koma á allsherjarsamkomulagi um viðskiptamál Vestur–Evrópu. Tollalækkanirnar innan Fríverzlunarsamtakanna hafa, eins og í Efnahagsbandalaginu, orðið hraðari, en upphaflega áætlunin gerði ráð fyrir. Hafa nú allir tollar í viðskiptum milli ríkja Fríverzlunarsamtakanna verið afnumdir.

Reynsla af starfsemi viðskiptabandalaganna tveggja hefur orðið mjög jákvæð fyrir aðildarríkin. Viðskiptin milli ríkjanna innan hvors bandalags um sig hafa stór aukizt og er talið, að starfsemi þeirra hafi átt verulegan þátt í þeim efnahagsframförum og þeirri lífskjarabót, sem átt hefur sér stað í þessum ríkjum. Hins vegar hefur viðskiptaaðstaða aðildarríkja hvors bandalags um sig í aðildarríkjum hins bandalagsins versnað verulega. Þetta hefur leitt til þess, að hvert af öðru af ríkjum minna bandalagsins, Fríverzlunarsamtakanna, hefur tekið að leita eftir aðild að stærra bandalaginu, Efnahagsbandalaginu. Hófu Bretar könnun á hugsanlegri aðild að Efnahagsbandalaginu þegar sama árið og Fríverzlunarbandalagið var stofnað eða 1960 og formlegar viðræður hófu þeir ári síðar. Þessar tilraunir Breta til aðildar að Efnahagsbandalaginu strönduðu, eins og kunnugt er, á andstöðu Frakka í ársbyrjun 1963. Fleiri ríki Fríverzlunarsamtakanna æsktu aðildar að Efnahagsbandalaginu, en viðræður um það féllu niður um leið og samningar strönduðu milli Breta og Efnahagsbandalagsins. Þá sóttu Bretar aftur formlega um inngöngu í Efnahagsbandalagið á s.l. ári, og hið sama gerðu Danmörk, Noregur og Svíþjóð auk Írlands. Það er kunnara, en frá þurfi að segja, að þær aðildarviðræður strönduðu enn á ný á andstöðu Frakka í desember s.l. Ekki er að sjá, að neinar þær hugmyndir, sem uppi hafa verið um gerð einhvers konar viðskiptasamkomulags milli Bretlands og Efnahagsbandalagsins, muni bera árangur. Efnahagsbandalagið samþykkti hins vegar fyrir nokkrum árum, að Grikkland og Tyrkland gerðust aukaaðilar að Efnahagsbandalaginu. Fríverzlunarsamtökin hafa og stækkað við aukaaðild Finna að því bandalagi. Í stórum dráttum er staða mála því sú nú, að Evrópa er klofin í tvær viðskiptaheildir, sem ætla verður, að starfi sjálfstætt, nú um skeið a.m.k.

Ísland gerðist aðili að stofnun Efnahagssamvinnustofnunarinnar í Evrópu í París og tók þátt í endurskipulagningu hennar 1960, er stofnuninni var breytt í Efnahags– og framfarastofnunina og Bandaríkin og Kanada gerðust beinir aðilar að henni. Þessi aðild hefur reynzt okkur mikilvæg og gagnleg á margan hátt. 1948–1953 urðu Íslendingar aðnjótandi hinnar rausnarlegu efnahagsaðstoðar Bandaríkjanna. Íslendingar höfðu margvíslegt hagræði af greiðslukerfi því, sem stofnendur komu á fót.

Fyrir forgöngu Efnahagssamvinnustofnunarinnar afnámu smám saman öll aðildarríki hennar innflutningshöft á öðrum sjávarafurðum, en nýjum fiski. Að sínu leyti framkvæmdu Íslendingar skuldbindingar aðildarríkjanna um afnám innflutningshafta og aukið frelsi í gjaldeyrisviðskiptum á árunum upp úr 1960. Að till. Íslendinga hefur stofnunin gert margvíslegar athuganir á sjávarútvegsmálum Vestur-Evrópu, og innan stofnunarinnar var á sínum tíma, einnig að till. Íslendinga, komið á fót sérstakri sjútvn., sem starfa skal stöðugt að athugunum á sjávarútvegsmálum aðildarríkjanna og stuðla að því, að viðskipti með sjávarafurðir verði sem frjálsust. Þá má geta þess, að Evrópusjóðurinn, sem er ein af stofnunum þessara samtaka, veitti Íslandi yfirdráttarlán í sambandi við þá endurskoðun efnahagsmála, sem fram fór 1960, en einmitt slík starfsemi er höfuðhlutverk þessa sjóðs. Þetta lán var endurgreitt á árunum 1961 og 1962.

Þá hefur Ísland á fyrri árum orðið aðnjótandi margvíslegrar tækniaðstoðar frá Efnahagssamvinnustofnuninni og arftaka hennar, Efnahags– og framfarastofnuninni. Íslenzk stjórnvöld tóku þátt í þeim viðræðum, sem fram fóru innan Efnahagssamvinnustofnunarinnar árið 1957 og 1958 um stofnun fríverzlunar svæðis allra aðildarríkja stofnunarinnar. Þær umr. fóru út um þúfur í árslok 1958. Íslendingar tóku hins vegar engan þátt í undirbúningsviðræðum að stofnun Fríverzlunarsamtakanna, sjöveldanna, enda ekki til þeirra viðræðna boðið. Þegar Bretar hófu viðræður sínar við Efnahagsbandalagið árið 1961 og fleiri þjóðir í Fríverzlunarsamtökunum sóttu um tengsl við það, var almennt búizt við, að Efnahagsbandalagið og Fríverzlunarsamtökin rynnu saman í eina stóra viðskiptaheild í framhaldi af þeim viðræðum. Af þessum sökum þótti ríkisstj, á sínum tíma eða seint á árinu 1961, einsýnt að kanna yrði til hlítar með hvaða hætti Íslendingar gætu bezt tryggt viðskiptahagsmuni sína, ef til slíkrar sameiningar viðskiptabandalaganna kæmi og var hinu háa Alþingi gerð grein fyrir viðræðum fulltrúa Íslands á erlendum vettvangi um þau mál á sínum tíma.

Þegar Kennedy–viðræðurnar svonefndu hófust á vegum GATT árið 1964, var augljóst, að niðurstaða þeirra viðræðna gæti haft þýðingu fyrir viðskiptahagsmuni Íslands, en í Kennedy–viðræðunum var rætt það frumkvæði Bandaríkjanna, að allar þjóðir lækkuðu tolla sína um allt að 50% með þeim hætti, að hver þjóð um sig fengi jafnmikil tollfríðindi hjá öðrum þjóðum og hún lækkaði tolla sína. Til þess að geta orðið aðili að þessum mikilvægu viðræðum, gerðist Ísland árið 1964 bráðabirgðaaðili að GATT og hefur nú gerzt fullgildur aðili að þeim samtökum. Í Kennedy–viðræðunum náðist nokkur árangur fyrir Íslendinga, einkum afnám tolls á freðfiskblokk í Bandaríkjunum og lækkaður síldarlýsistollur í Bretlandi. Hins vegar fólu þessar viðræður ekki í sér neina lausn á almennum viðskiptavandamálum Íslendinga, enda aldrei við því að búast, að svo gæti orðið.

Á s.l. ári taldi ríkisstj. orðið tímabært, að kannað yrði, hvort hagkvæmt væri fyrir Ísland að gerast aðili að Fríverzlunarsamtökum Evrópu, EFTA. Gerði hún það að till. sinni við þingflokkana, að stofnuð yrði n. til þess að kanna þetta mál. Í n. voru tilnefndir Magnús Jónsson fjmrh., Helgi Bergs framkvæmdastjóri og sem varamaður hans Tómas Árnason hrl., Pétur Benediktsson bankastjóri og Lúðvík Jósefsson alþm. og sem varamaður hans Haukur Helgason bankafltr. Gylfi Þ. Gíslason viðskrh. var formaður n. Ritarar hennar voru Þórhallur Ásgeirsson ráðuneytisstj. og Einar Benediktsson deildarstj. Á vegum n. hefur viðskrn., í samvinnu við ýmsa aðila, samið skýrslu um Fríverzlunarsamtök Evrópu og hefur alþm. öllum verið afhent hún. EFTA–nefndin hefur hingað til haldið alls 19 fundi og rætt þar skýrsluna og önnur atriði varðandi hugsanlega aðild að EFTA. N. hélt einnig fund með norskum sérfræðingi, sem hingað kom á vegum ríkisstj. og Félags ísl. iðnrekenda, um þessi mái. Þá hefur n. ráðgazt við fulltrúa útvegsmanna og útflutningssamtaka landbúnaðar, iðnaðar og verzlunar og við fulltrúa frá A.S.Í. og atvinnurekendum. N. lítur þannig á, að með þessari skýrslugerð og með þeim viðræðum, sem n. hefur átt, hafi þeim áfanga verið náð, að hægt sé að taka ákvörðun um, hvort sækja eigi um aðild að EFTA og fá úr því skorið, hvort og með hvaða kjörum Ísland gæti gerzt aðili að samtökunum. Fulltrúar stjórnarandstöðuflokkanna, sem sátu í EFTA–nefndinni, hafa af ýmsum ástæðum talið æskilegt, að ákvörðun um umsóknaraðild að EFTA væri frestað. Ríkisstj. telur hins vegar rétt að hefja nú þegar könnun á því með hvaða kjörum Ísland gæti gerzt aðili að samtökunum. Endanleg afstaða til þessa máls verður auðvitað ekki tekin fyrr en niðurstöður af væntanlegum samningaviðræðum við EFTA liggja fyrir. Þótt stjórnarandstöðuflokkarnir standi ekki að flutningi þessarar till. og umsókn um aðild verði því eingöngu á ábyrgð ríkisstj., ef þessi till. verður samþ., mun ríkisstj. samt áfram æskja eftir samstarfi við stjórnarandstöðuna um málið og láta hana fylgjast með því, sem í því gerist.

Meginrök fyrir því, að ríkisstj. telur nú rétt að hefjast handa um könnun á því með hvaða kjörum Ísland geti gerzt aðili að Fríverzlunarsamtökunum, eru þessi: Um það bil 40% heildarviðskipta Íslendinga eru við Fríverzlunarsamtakalöndin. Í þessum löndum má búast við mjög aukinni eftirspurn á næstu árum og áratugum eftir ýmsum helztu útflutningsafurðum Íslendinga. Ef við stöndum utan samtakanna, mundu aðrar fiskveiðiþjóðir og þá fyrst og fremst Noregur, Danmörk og Bretland, fullnægja þessum auknu þörfum, en Íslendingar enga hlutdeild eiga þar að eða verða að sætta sig við lægra verð fyrir útflutning sinn til þessara landa. Við mundum þá missa af þeim skilyrðum til aukins útflutnings. Slíkrar þróunar hefur raunar gætt á áberandi hátt undanfarin 2–3 ár. Enn fremur er á því enginn vafi, að í aðildarríkjum Fríverzlunarsamtakanna er nú markaður, er mun vaxa á komandi árum, fyrir iðnaðarvörur, sem nú er unnt eða væri í framtíðinni unnt að framleiða á Íslandi á samkeppnisfæru verði bæði vegna skilyrða Íslands til orkuframleiðslu og hagnýtingar fossaafls og jarðhita og vegna annarra aðstæðna. Ef Íslendingar standa til frambúðar utan Fríverzlunarsamtakanna, gætu þeir að sjálfsögðu enga aðild átt að slíkum markaði eða vexti hans. Það er enn fremur hugsanlegt, að Íslendingar gætu innan Fríverzlunarsamtakanna með sérstökum samningum við einstök aðildarríki og þá fyrst og fremst Norðurlandaþjóðirnar, hlotið markað fyrir sauðfjárafurðir á hagstæðara verði, en þeir eiga nú kost á erlendis. Þá er þess að geta, að meðan Íslendingar standa utan Fríverzlunarsamtakanna, verða þeir að greiða tolla af öllum vörum, sem þangað eru fluttar, meðan framleiðendur samkeppnisafurða, t.d. í Noregi og Danmörku, geta selt sínar afurðir tollfrjálst, þ.e.a.s. fyrir mun hærra verð. Þannig hlýzt bein verðhækkun á íslenzkum útflutningsafurðum af aðild að Fríverzlunarsamtökunum. Mundi það t.d. hafa veruleg áhrif á síldarlýsisverðið. Einnig mundi það t.d. hafa hagstæð áhrif á freðfiskmarkaðinn í Bretlandi.

Það er á hinn bóginn fjarri mér að gera lítið úr þeim erfiðleikum, sem aðild að Fríverzlunarsamtökunum mundi hafa í för með sér. Þeir erfiðleikar lúta að þrennu. Við yrðum á einhverju tilteknu tímabili að afnema alla verndartolla. Öllum tollum, sem eingöngu er ætlað að afla ríkissjóði tekna, eða svonefndum fjáröflunartollum, mættum við halda. Afnám þeirrar tollverndar, sem íslenzkur iðnaður hefur notið, jafnvel þótt á tiltölulega löngum tíma væri, mundi að sjálfsögðu hafa ýmsa erfiðleika í för með sér. Um leið ber að geta þess, að tollvernd íslenzks iðnaðar er minni, en margir telja og samtök iðnaðarins sjálfs telja afnám allra verndartolla enga frágangssök, ef hún gerist á löngum tíma samkv. fyrirfram gerðri áætlun, og henni fylgir mótun alhliða stefnu í iðnaðarmálum, sem tryggir vöxt og viðgang iðnaðarins á grundvelli jafnræðis við aðrar atvinnugreinar og út á við. Í þessu sambandi er og þess að geta, sem ég nefndi áðan, að í stað verndaðra iðngreina, sem sumar hverjar mundu e.t.v. verða að leggjast niður, a.m.k. í núverandi mynd, þá skapast skilyrði fyrir stofnun nýrra iðngreina til útflutnings. Ég held, að óhætt sé að fullyrða, að þegar á heildina er litið, mundi aðild að Fríverzlunarsamtökunum ekki leiða til minnkaðs iðnaðar, heldur þvert á móti til aukins iðnaðar á Íslandi og þá fyrst og fremst til fjölgunar stórra fyrirtækja í iðnaði, en hins vegar hlutfallslegrar fækkunar smáfyrirtækja, sem mörg hver hafa þróazt í skjóli tollverndar og innflutningshafta.

Í EFTA–skýrslunni er frá því greint, að miðað við árið 1966 sé áætlað, að um 3.800 manns hafi unnið við iðnaðarframleiðslu, þar sem mætti ætla, að beinna áhrifa mundi gæta af afnámi tolla og hafta samfara aðild að EFTA. Eru það tæp 5% alls vinnandi fólks á Íslandi og um 19% þeirra, sem þá störfuðu í iðnaði. Þær framleiðslugreinar í matvælaiðnaði, sem einkum eru taldar verða fyrir áhrifum af breytingu verndar, eru kex– og súkkulaðigerð, drykkjarvöruiðnaður, kaffibrennsla og matarefnagerð. Ýmsar aðrar greinar í matvælaiðnaði skipta hér ekki máli, þar sem þær falla ekki undir ákvæði EFTA–sáttmálans, svo sem smjörlíkisgerð og vinnsla íslenzkra landbúnaðarafurða. Reyndar á þetta einnig við um kaffibrennslu, þar sem kaffið er ekki EFTA–vara. Aðrar iðngreinar, sem ákvæðin um fríverzlun taka til og mundu verða fyrir beinum áhrifum af niðurfellingu tolla, þótt í mjög mismunandi mæli sé, eru gólfdreglagerð, prjónlesiðnaður, skógerð, fataiðnaður, húsgagnasmíði, innréttingasmíði, skinna– og leðuriðnaður, málningargerð, sápugerð, sementsframleiðsla, raftækjasmíði, sútun, spuni og vefnaður. Með hliðsjón af þeim breytingum, sem gera má ráð fyrir á næstu áratugum á tölu atvinnufólks og skiptingu þess milli atvinnugreina, verður ekki talið, að vandamálið varðandi atvinnu 3.800 manns á næstu áratugum sé alvarlegt.

Efnahagsstofnunin hefur gert ráð fyrir því, að atvinnufólki muni fjölga um 45% á árunum 1965-1985 eða um 34 þús. En á þessu tímabili verður fyrirsjáanlega um að ræða örari aukningu, en áður hefur átt sér stað. Hinn mikli mannfjöldi, sem bætist á vinnumarkaðinn á komandi árum, hlýtur að hafa grundvallarþýðingu fyrir allt mat á þróun efnahagsmála á Íslandi og aðgerðir á því sviði. Samkv. áætlun Efnahagsstofnunarinnar er gert ráð fyrir, að mannfjöldi, sem stundar fiskveiðar, muni standa í stað og vera um 5.000 manns. Í landbúnaðinum muni verða lítils háttar fækkun, hækkun í beinum tölum, en hlutfallsleg lækkun úr 19% árið 1965 í 13% 1985. Jafnhliða þessu er gert ráð fyrir nokkurri hlutfallslegri aukningu í úrvinnslugreinum eða úr 49% í 50%. Það mundi þýða beina aukningu þessa atvinnufólks úr 37 þús. í 55 þús., þ.e.a.s. um 18 þús. manns. Í þjónustugreinum er gert ráð fyrir hlutfallslega mestri aukningu eða úr 31% árið 1965 í 37% árið 1985. Þá eykst fjöldi þessa atvinnufólks úr 23 þús. í 40 þús. eða um 17 þús. manns. Þessar tölur um atvinnudreifinguna eru að sjálfsögðu ekki spádómur Efnahagsstofnunarinnar, heldur er með þeim gefið til kynna við hverju verði að búast, ef takast á að ná æskilegri aukningu þjóðartekna. Með hliðsjón af þessum breytingum verður, eins og ég sagði áðan, atvinnuvandamál þessa fólks, sem nú starfar í tollvernduðum iðnaði, óverulegt samanborið við þá möguleika, sem ættu að skapast fyrir þróun iðnaðarins og aukna atvinnu, ef Ísland gengur í Fríverzlunarsamtökin. Reynsla annarra þjóða hefur verið sú, að lækkun tolla og afnám hafta, leiði til örari hagnýtingar á tæknilegum umbótum og nýjungum, meiri aukningar á framleiðni og betri nýtingar framleiðsluþátta en ella.

Hér á landi hefur á undanförnum áratugum verið fylgt allhandahófskenndri verndarstefnu gagnvart iðnaðinum og hefur hún ekki tryggt, að hér kæmust á fót þau fyrirtæki, sem hagkvæmust væru frá þjóðhagslegu sjónarmiði. Hæfileg erlend samkeppni og frjáls aðgangur að stórum markaði mundi eflaust stuðla að því, að hér kæmust á fót þjóðhagslega hagkvæmari fyrirtæki, en starfa mundu í skjóli verndarstefnu. Auðvitað þarf að gera margs konar ráðstafanir og taka margs konar tillit, ef iðnaðurinn hér á landi á að geta lagað sig að þeim breytingum, sem eiga sér stað í iðnaði vestrænna landa. Í fyrsta lagi yrði að ráða sérstaka bót á þeim fjárhagsvandamálum, sem verða á vegi iðnaðarins vegna aðlögunarinnar. Í annan stað er ljóst, að láta verður iðnaðinum í té aukna leiðbeiningaþjónustu að því er varðar rekstrartækni og sölumál. Við þetta má bæta því, að aukin samvinna eða jafnvel samruni íslenzkra fyrirtækja gæti orðið til hagsbóta. Samstarf við erlend fyrirtæki, sem svo mjög hefur gætt á Norðurlöndum undanfarin ár, mundi og geta haft aukna þýðingu. Slík atriði yrði að athuga vandlega af hálfu ríkisvaldsins og iðnaðarins sjálfs í sambandi við aðild Íslands að EFTA, ef af henni yrði. Í þessu sambandi er nauðsynlegt að geta þess, að lengd aðlögunartímans veitir verulegt svigrúm. Ekki verður nein skyndileg breyting á aðstöðu íslenzks iðnaðar, þótt gengið yrði í EFTA. Hráefnis– og vélatollar eru nú svo háir, að nettóverndin þyrfti ekki að minnka til muna í mörgum tilvikum fyrstu árin. Þann tíma er hægt að nota til þess að endurbæta rekstur eldri fyrirtækja og afskrifa fjármagn í fyrirtækjum, sem þurfa að leggja út á nýja braut. Ef verndar–, hráefnis– og vélatollar eru afnumdir á t.d. 10 ára tímabili í ákveðnum stigum samfara því, að iðnaðurinn fengi strax frjálsari aðgang að stóru markaðssvæði, mundu viðhorf öll í iðnaðarmálum breytast. Þá yrði hægt að hefja undirbúning iðnþróunar á ákveðnum forsendum, en einmitt óvissan um stefnuna í tolla– og viðskiptamálum hlýtur að draga úr áhuga manna á því að leita að nýjum verkefnum. Aðild að EFTA gæti því orðið til þess, að alhliða stefna í iðnaðarmálum yrði mótuð, en þar er um að ræða brýnt hagsmunamál íslenzks iðnaðar.

Annað aðalvandamálið í sambandi við aðild að Fríverzlunarsamtökunum eru þau áhrif, sem tollalækkunin hefur á fjármál ríkissjóðs. Íslendingar hafa nú hærri tolla, en nokkur nálæg þjóð og þeir afla sér hærri hundraðshluta af ríkistekjunum, með innheimtu tolla, en nokkur önnur þjóð, sem um er vitað. Afnám verndartolla mundi því hafa gagngerð áhrif á fjármál ríkisins, en það mundi að sjálfsögðu draga úr áhrifunum, ef samkomulag fengist um, að afnám verndartollanna ætti sér stað á tiltölulega löngum tíma. Í EFTA– skýrslunni er þess getið, að tekjutap ríkissjóðs við, að allir verndartollar, svo og hráefnis–, véla– og orkutollar iðnaðarins hefðu ekki verið lagðir á 1967, hefði að öðru óbreyttu numið nær 1.000 milljónum króna. Er það nær 1/5 hluti heildartekna hins opinbera á rekstrarreikningi á því ári. Þetta er þó ekki vandamál, sem mundi bera að í náinni framtíð. Hugsanlegur aðildarsamningur að EFTA gæti þýtt, að tollalækkanir okkar hæfust árið 1970. Þó ekki sé gert ráð fyrir lengra aðlögunartímabili, en 10 árum, yrðu íslenzkir tollar enn tiltölulega mjög háir fyrstu 2–3 árin eftir gildistöku aðildarsamningsins og tekjur því ekki verulega skertar. Engu að síður er að sjálfsögðu tímabært, að tekið verði til gagngerðrar athugunar, hvernig bregðast megi við því vandamáli, sem ríkissjóði verður á höndum vegna hugsanlegrar aðildar landsins að fríverzlun.

Tveir möguleikar eru fyrir hendi til að bæta ríkissjóði tekna missinn vegna afnáms verndartollal. Annars vegar kæmi til greina hækkun á söluskatti, en hann er víða um lönd mun hærri en hér. Hins vegar kæmi til greina hækkun fasteignagjalds, sem alls staðar í nálægum löndum er miklu hærra, en hér tíðkast, þótt yfirleitt sé þar um að ræða tekjustofn sveitarfélaga, en ekki ríkissjóðs. Í því sambandi væri þó til athugunar að tekjuskattur yrði fyrst og fremst skattur fyrir ríkissjóð, en hins vegar fengju sveitarfélögin fasteignagjöldin sem tekjustofn fyrir sig.

Í þriðja lagi mundu viðskiptin við Austur-Evrópu verða nokkurt vandamál. Þó er þetta vandamál ekki erfitt og miklu síður, en áður var. Kemur þá hvort tveggja til, að þessi viðskipti eru nú ekki eins mikilvæg og áður og fara ekki að öllu leyti fram á jafnkeypisgrundvelli. Austur–Evrópuþjóðirnar geta nú einnig háð miklu harðari samkeppni, hvað snertir verð og vörugæði, en áður var. Á það má einnig benda, að bæði Austurríkismenn og Finnar hafa getað haldið áfram miklum viðskiptum við Austur-Evrópu þrátt fyrir þátttöku í Fríverzlunarsamtökunum.

Samningurinn gerir ráð fyrir, að innflutningshöft séu afnumin, en um 89% alls innflutningsins til landsins eru nú frjáls, 11% háð leyfum. Verulegur hluti þeirra vörutegunda, sem háðar eru leyfum, er skráður á landbúnaðarvörulista EFTA, en fríverzlunar ákvæðin taka alls ekki til hans og mætti því beita innflutningshöftum að því er snertir þær vörur, þótt Ísland væri orðið aðili að samtökunum. Langstærsti flokkurinn, sem háður er leyfum enn, er olíur og benzín, en nauðsynlegt er að viðhalda óbreyttu fyrirkomulagi varðandi viðskipti með þær vörur vegna viðskiptanna við Sovétríkin. Um þetta atriði yrði væntanlega að semja sérstaklega við EFTA. Aðrir vöruflokkar, sem háðir eru leyfum og falla undir fríverzlunar ákvæðin, eru yfirleitt ekki mikilvægir fyrir austurviðskiptin.

Gefa þarf enn fremur sérstakan gaum að þeim áhrifum, sem tollalækkun gagnvart EFTA–löndum hefði á jafnkeypisviðskiptin við Austur–Evrópu. Árið 1967 námu kaup okkar á þeim vörum frá Austur–Evrópulöndum, þar sem um tollamismun yrði að ræða, um 163 millj. kr. Af þeirri upphæð námu skipakaup frá Austur–Þýzkalandi 111 millj. kr. Innflutningur skipa er tollfrjáls, þannig að sala þeirra frá löndum utan EFTA mundi á engan hátt torveldast, þótt Ísland gerðist aðili að samtökunum. Þau vörukaup, sem sætt hefðu tollamismunun, ef Ísland hefði verið aðili að EFTA árið 1967, námu því raunverulega aðeins um 50 millj. kr. eða rúml. 6% af heildarinnflutningnum frá þeim löndum, en hann var 1.814 millj. kr. á þessu ári. Þessi 50 millj. kr. innflutningur var svo að segja allur frá öðrum Austur–Evrópulöndum en Sovétríkjunum, þ.e.a.s. Póllandi, Austur–Þýzkalandi og Tékkóslóvakíu. Jafngildir þetta því, að breyting tolla vegna aðildar Íslands að EFTA mundi engin áhrif hafa á viðskipti okkar við þá þessara þjóða, sem langmestu máli skiptir, Sovétríkin. Helztu vörutegundirnar, sem hér er um að ræða frá þrem fyrrnefndum löndum, eru vefnaðarvörur, en það er um 40% tollur, fatnaður með 65% toll, skór með 60–65% toll og súkkulaðivörur, ferðabúnaður o.fl. með 90–100% toll. Augljóst er, að jafnhár tollur og er á þessum vörum mundi torvelda mjög sölu þeirra hingað frá löndum utan EFTA. En Ísland hefur að sjálfsögðu fullt frjálsræði til þess að lækka þessa tolla og aðra verndartolla að vild gagnvart löndum utan Fríverzlunarsamtakanna. Væri eflaust rétt, að þessir tollar væru ekki hærri en svo, að þeir torvelduðu ekki austurviðskiptin.

Sjálfsagt er að gera á engan hátt lítið úr erfiðleikum þess fyrir Íslendinga að tengjast Fríverzlunarsamtökunum. Engu að síður er það skoðun ríkisstj., að viðskiptahagræði, sem af því mundi hljótast bæði í nútíð og þó einkum í framtíð, væri mun þyngra á metunum. Auk þess má ekki meta þetta mál, sem hér er um að ræða, út frá þröngum stundarhagsmunum. Hér er um stærri sjónarmið að tefla. Íslendingar eru hluti af Vestur–Evrópu. Þar er ekki aðeins stærsta viðskiptasvæði þeirra, heldur er menning Íslendinga grein vestur–evrópskrar menningar. Íslendingar hafa komið á í ríki sínu þjóðfélagsháttum, sem eru grundvallaðir á sömu hugsjónum um frelsi og mannhelgi og mótað hafa iðnaðarríki Vesturlanda og landið liggur miðsvæðis í þeim heimshluta, sem lýðræðisríkin báðum megin við Atlantshaf hafa bundizt órjúfandi samtökum að vernda. Allt bendir þetta til þess, hversu ríka hagsmuni Íslendingar hafa af því, að sú mikilvæga þróun, sem nú á sér stað í Vestur-Evrópu, verði ekki til þess að losa um tengslin milli ríkjanna, sem eru miðdepill þessarar þróunar, ekki aðeins vegna þess að viðskiptahagsmunir séu í hættu í bráð, heldur einnig vegna hins, að þegar til lengdar lætur er um að ræða allsherjartengsl okkar, menningarsamstarf og stjórnmálasamstarf við þær þjóðir, sem okkur eru skyldastar og búa við líkt þjóðfélag því, sem hér er og við höfum öldum saman haft saman við að sælda. Framhjá þessum atriðum er ekki hægt að horfa. Hér er, að þessu leyti, alls ekki um dægurmál að ræða og er það í sjálfu sér annars eðlis en þau mál, sem skipt hafa mönnum í stjórnmálaflokka í lýðræðisríkjum. Nauðsynlegt er, að við höfum opin augun fyrir þeirri þróun, sem nú er að eiga sér stað í Vestur–Evrópu, hvort sem okkur líkar hún betur eða verr. Þessi þróun má ekki verða til þess að skilja milli Íslands og Vestur–Evrópu og þar með milli Íslands og vestrænna landa yfirleitt. Íslendingar eiga að stefna að því að vernda tengsl sín við lýðræðisríkin báðum megin við Atlantshaf, efla þessi tengsl og bæta þau. Aukið samstarf við hin Norðurlöndin á sviði efnahagsmála er og mjög æskilegt, en aukið samstarf Norðurlandanna innan EFTA er nú mjög á dagskrá. Íslendingar gætu ekki orðið aðilar að slíku Norðurlandasamstarfi án þess að eiga aðild að EFTA, svo að leiðin til þátttöku í því er þátttaka í EFTA. Íslenzkt þjóðfélag hlýtur framvegis, eins og hingað til, að mótast á sömu grundvallarsjónarmiðum og þjóðfélög nálægra lýðræðisríkja og hlýtur því í aðalatriðum að þróast á svipaðan hátt og þau gera. Þess vegna er nauðsynlegt, að Íslendingar geri sér grein fyrir því, með hverjum hætti Ísland geti tekið þátt í þeirri þróun í viðskipta– og efnahagsmálum álfunnar, sem nú á sér stað. Hér er hins vegar ekki um einfalt mál að ræða. Þótt tengsl Íslands við nágrannalönd og skyldleiki þjóðfélags þess við þjóðfélag þeirra sé augljós, er hitt jafnljóst, að vegna smæðar þjóðarinnar, fjarlægðar frá öðrum löndum og einhæfni náttúruauðlinda, hefur Ísland að mörgu leyti algera sérstöðu. Jafnframt þeirri stefnu að halda tengslum við nágrannalönd okkar og efla þau og fylgjast með þjóðfélagsþróun þeirra, hljótum við að halda fast við mikilvæg sérkenni hvers þjóðfélags, sem við höfum komið á og leggja áherzlu á að halda í eigin höndum úrslitavaldi yfir þróun efnahagsmála okkar og hagnýtingu náttúruauðlinda landsins. Íslendingar hljóta að treysta því, að fyrir þessum sjónarmiðum sé fullur skilningur hjá stjórnvöldum allra þeirra ríkja, sem við mundum þurfa að semja við um þessi mál. Í rauninni skiptir nú ekkert meira máli fyrir framtíð Íslendinga, en einmitt, hvernig okkur tekst að finna réttan meðalveg milli einangrunar og of náinna tengsla við umheiminn, milli stöðnunar og of skjótra breytinga. Hvernig eiga Íslendingar annars vegar að keppa að því að gera Ísland kleift að vera þátttakandi í þeirri þróun viðskipta– og efnahagsmála álfunnar, sem nú á sér stað, en tryggja þjóðina hins vegar fyrir þeirri hættu, sem þessi þátttaka getur falið í sér vegna smæðar hennar og einhæfni náttúruauðlinda landsins?

Ef till. þessi, sem hér er til umr., verður samþ., mun ríkisstj. þegar í stað senda beiðni til Fríverzlunarsamtakanna um aðild. Æskilegast er, að aðildar beiðnin geti legið fyrir ráðherrafundi samtakanna, sem halda á í Vínarborg 21.–22. þ. m. Er því æskilegt, að hið háa Alþ. hraði afgreiðslu þessarar till.

Ég legg áherzlu á, að ríkisstj. mun áfram hafa samstarf við stjórnarandstöðuflokkana í þessu máli og sérstaka áherzlu legg ég á, að aðildarumsóknin jafngildir að sjálfsögðu ekki aðild. Aðildarumsóknin er leið til þess að kanna með hvaða kjörum Ísland getur orðið aðili að Fríverzlunarsamtökunum. Þegar samningaviðræður hafa leitt það atriði í ljós, kemur að því, að Íslendingar taki ákvörðun um það, hvort þeir vilji gerast aðilar eða ekki. Mun þá málið í heild verða lagt fyrir Alþ. og það taka endanlega ákvörðun.

Að svo mæltu leyfi ég mér, herra forseti, að leggja til, að málinu verði vísað til síðari umr. og til hv. utanrmn.