20.12.1968
Sameinað þing: 25. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 89 í D-deild Alþingistíðinda. (2947)

119. mál, frestun á fundum Alþingis

Dómsmrh. (Jóhann Hafstein):

Herra forseti. Till. þessi til þál. um samþykkt til frestunar á fundum Alþ. samkv. 23. gr. stjskr. er flutt í samræmi við venju, sem tíðkazt hefur. Það hefur verið svolítið mismunandi sá tími, sem þingi hefur verið frestað samkv. slíkum þáltill., en af hentugleika ástæðum hefur núna þótt rétt að miða við, að þingið komi ekki saman síðar en 7. febr., en hins vegar, eins og segir í till., er opið, að það yrði kallað saman fyrr, ef það þætti nauðsynlegt.

Ég vil leyfa mér að vænta þess, að ekki þurfi að vera ágreiningur um þessa þáltill. Ég hygg, að það sé reynsla þm. almennt, að það sé nokkuð hagkvæmt og hentugt að hafa svipað hlé og hér er ráðgert á fundum Alþ. um áramótin. Ég vil því mega mælast til þess, að þessi till. fái afgreiðslu með þeim hætti, sem venja er, að hún fari ekki til n. og fari fram um hana atkvgr. að lokinni umr. um hana, en ef hv. Alþ., — sem ég leyfi mér að vænta, — samþykkir þessa till., yrði sá háttur á hafður, að forsetaúrskurður um frestun þingsins yrði gefinn út á mánudaginn kemur.