20.12.1968
Sameinað þing: 25. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 91 í D-deild Alþingistíðinda. (2951)

119. mál, frestun á fundum Alþingis

Dómsmrh. (Jóhann Hafstein):

Herra forseti. Það hvarflar ekki að mér að gefa yfirlýsingu um það, að ríkisstj. muni ekki gefa út brbl. í þinghléinu, því að þau atvik geta komið, að brbl. verði gefin út og það á fullkomlega þingræðislegan hátt. En ég endurtek það, sem ég sagði, að ríkisstj. mun ekki nota þessa heimild til þess að fara á bak við þingið og koma aftan að því eða beita bráðabirgðalagaheimild, sem talin yrði óþingræðisleg.