14.05.1969
Sameinað þing: 50. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 148 í D-deild Alþingistíðinda. (3053)

149. mál, veðurathugunarstöðvar í grennd við landið

Frsm. (Matthías Bjarnason):

Herra forseti. Allshn. hefur haft þessa till. til meðferðar og athugunar og leggur n. til. eins og fram kemur á þskj. 487, að till. verði samþ. með nokkurri breyt., þannig að fyrirsögn till., sem var upprunalega um „veðurathugunarstöðvar á fiskimiðum,“ verði breytt þannig, að till. til þál. verði um „veðurathugunarstöðvar í grennd við landið“, og í tillgr. sjálfri verði þessu sama breytt, að í stað „úti á fiskimiðum“ komi „veðurathugunarstöðvar í grennd við landið“ og svo aftur í lok till. „að gefa skipstjórnarmönnum sem nákvæmasta veðurlýsingu og upplýsingar um veðurhorfur“. Þessar breytingar, sem n. leggur til, að verði gerðar á till., eru komnar fram frá Veðurstofu Íslands eða veðurstofustjóra, sem var sent málið til umsagnar. Hann segir í sinni umsögn, að á síðasta áratug hafi allmikið verið unnið að því að kanna og framleiða sjálfvirkar veðurathugunarstöðvar og eru einstaka framleiðendur nú farnir að bjóða þær til sölu. Fyrir 2–3 árum leitaði Alþjóðaveðurfræðistofnunin upplýsinga meðal aðildarríkja sinna um framleiðslu sjálfvirkra veðurathugunarstöðva á sjó. Af 5 þjóðum, sem svöruðu, framleiddu tvær stöðvar, sem ætla má, að hentuðu hér við land, Noregur og Vestur-Þýzkaland. Verð þessara stöðva frá framleiðanda er áætlað 700 þús. til 1 millj. og 60 þús. kr. að veðurathugunartækjum og útvarpssendi meðtöldum. Auk þess hafa Veðurstofunni borizt upplýsingar um japanska bauju, sem ætluð er fyrir veðurathugunarstöð. Samkvæmt tilboði er verð hennar kominnar hingað til lands 1.240 þús. án veðurathugunartækja og sendis. Öllum þessum stöðvum er ætlað að vera 3—4 mánuði úti á sjó, án þess að um þær sé vitjað, en að þeim tíma liðnum þarf að skipta um rafgeyma í þeim, svo að rekstrarkostnaður þessara stöðva er mjög lítill.

Veðurstofan mælir mjög eindregið með samþykkt þessarar till. þannig breyttrar, eins og allshn. leggur til, og allshn. telur, að hér hafi verið hreyft gagnlegu máli, sem sé þess virði, að þessi till.samþ. og þetta mál sé athugað, því að á þessu er mikil nauðsyn að gera úrbætur og það sem allra fyrst.