18.04.1969
Sameinað þing: 41. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 152 í D-deild Alþingistíðinda. (3061)
151. mál, rannsóknir á loðnugöngum
Vilhjálmur Hjálmarsson:
Herra forseti. Ég vil leyfa mér að láta í ljós þakklæti yfir því, að það hefur verið boðað til fundar í Sþ. á föstudegi, þ.e.a.s. tekinn aukafundartími. Það hefði mátt vera búið að því fyrr. Dagskrá Sþ. er þegar orðin nokkuð löng, eins og sjá má hér á borðunum, þar sem nú eru 19 mál á dagskránni.
Sú till., sem ég mæli hér fyrir, er á þskj. 281. Flm. hennar er Tómas Árnason, 1. varamaður Framsfl. í Austurlandskjördæmi. Tómas sat á þingi í febrúar og aftur um mánaðamótin marz–apríl og þessi till. er lögð fram 24. febrúar að ég ætla. Og varaþm. fékk hvorki tækifæri til að mæla fyrir henni þann hálfa mánuð, sem hann sat á þingi hér í febrúar, né heldur, þegar hann tók sæti á Alþ. um mánaðamótin marz–apríl. Hann var þá einnig hálfan mánuð inni eða þar um bil. Þetta er þó ekki fyrir það, að till. sé á nokkurn hátt tekin út úr röð eða tafin sérstaklega, heldur hefur afgreiðsla mála í Sþ. gengið svona hægt af ástæðum, sem okkur eru öllum kunnar. Þetta er því áreiðanlega ekkert einsdæmi og ég tek eftir því núna, að t.d. 18. mál á dagskrá hefur verið afgreitt úr n. fyrir um það bil mánuði. Það sjá allir, að þetta er ekki hægt og þetta er alls ekki það, sem til er ætlazt. Það getur ekki verið ætlazt til þess, að alþm. eigi þess ekki kost að koma málum sínum til n. og fá þau athuguð á þinglegan hátt. Það er annað mál, að auðvitað á enginn rétt á því, að hans mál verði samþ. sem ályktun þingsins eða sem l., það er annað mál.
Ég veit, að það er æskilegt að hafa festu í störfum og það er kannske ekki æskilegt út af fyrir sig að hringla með fundardaga Sþ. Hér verður þó að vera einhver hreyfing. Það er ekki endalaust hægt að sigla sama bóg og þetta verður að íhuga. Ég veit raunar, að þeir, sem tilnefndir hafa verið til þess að athuga starfshætti Alþ. ásamt með hæstv. forsetum þingsins, munu ígrunda þetta vel á milli þinga. En annars vil ég mega vænta þess, að það verði gert meira af því þann stutta tíma, sem væntanlega er eftir af þessu þingi, að halda aukalega fundi í Sþ., heldur en gert hefur verið til þessa. Það held ég verði ekki um deilt, að t.d. á dagskránni, sem hérna liggur fyrir í dag, eru ýmsar till., sem geta verið þýðingarmiklar. Ég vil t.d. halda því fram, að sú till., sem ég mæli hér fyrir, geti, ef samþ. yrði, haft mjög mikið gildi og þannig er auðvitað um mörg fleiri mál, sem hér eru til meðferðar. Ég sé, að hér eru m.a. á dagskrá tvö mál, sem varða skólanema, atvinnumál þeirra og lánamál og þau eru áreiðanlega ekki að ófyrirsynju fram komin. Það er öllum ljóst, hversu erfiðlega horfir um sumaratvinnu fyrir skólafólk. Einnig er hér till. um lánasjóð og vafalaust er eitthvað hægt að liðka til á þeim sviðum. Þörfin er einnig orðin brýn fyrir einhverjar aðgerðir í þeim efnum.
Ég sakna þess mjög, að hæstv. sjútvrh. hefur ekki séð sér fært að sækja þennan fund, því að þessi till. varðar vissulega hans verksvið. En við því get ég auðvitað ekki gert og hlýt að flytja mitt mál eftir sem áður.
Ég vil mega segja það í byrjun, að síldarævintýrið svo kallaða er raunar ekki nema einn hlekkur í keðju fjármunalegra happdrættisvinninga, sem íslenzku þjóðinni hafa hlotnazt á undangengnum áratugum. Það er oft talað um það og það er auðvitað rétt, að síldargróðanum hafi verið misjafnlega vel varið og af misjafnlega mikilli forsjá. En það kemur ekki með þessu tungli og þannig hefur það verið áður, þegar þjóðinni hafa hlotnazt stórir vinningar, að mönnum hafa orðið mislagðar hendur um margt í þeim efnum. En raunverulega kemur það kannske heim við ríkjandi stefnu, að síðustu árin hefur verið farið nokkuð gálauslega með fjármuni, líka af einstaklingum. En þrátt fyrir allt held ég, að enginn neiti því og það sé ómótmælanlegt, að á síldarárunum var bjargað á land mjög miklum verðmætum fyrir þjóðarbúið og þess sér nú víða stað í atvinnulífinu, atvinnutækjunum og í bættum hag heimilanna og ýmsum umbótum á hinu persónulega sviði. Það hefur oft verið á það bent og réttilega og lögð á það mikil áherzla, að af síldarævintýrinu hefði raunar ekkert orðið, ef ekki hefðu komið til stærri og meiri veiðiskip og ekki síður alveg ný og áður óþekkt veiðitækni, sem gerði mögulegt að veiða síldina við allt önnur skilyrði en áður þekktust. En mér finnst stundum í slíkum umr., — þó að því sé auðvitað ekki gleymt, — þá finnst mér því ekki nægur gaumur gefinn, að síldarævintýrið hefði aldrei getað gerzt, nema á undan hefði farið mjög mikil, harðsótt og skipuleg leit að síldinni og margs konar rannsóknarstarfsemi í sambandi við það. Það er ekki fyrr en farið er að fylgjast með göngum síldarinnar og lifnaðarháttum hennar í ríkum mæli, að veiðisvæðið er fært út og veiðitíminn lengist. Þetta hefur komið ákaflega greinilega í ljós. Það varð að fylgjast með göngu síldarinnar frá ári til árs og kunna skil á lifnaðarháttum hennar og styrkleika síldarstofnanna, hitastigi sjávarins, átumagni og margvíslegum öðrum aðstæðum á veiðisvæðunum og raunar á vegum síldarinnar yfir höfuð, þar sem hún fer um hafsvæðin. Þetta er ofur eðlilegt. Það er varla hægt að hugsa sér, að einstakir útgerðarmenn eða skipstjórar geti lagt í þá áhættu að leita nýrra miða á mjög fjarlægum slóðum og jafnvel ekki heldur að prófa sig áfram með nýja veiðitækni, nema að takmörkuðu leyti. En það var þó að vísu gert að ýmsu leyti í sambandi við síldina. Þetta vil ég leggja alveg sérstaka áherzlu á.
Nú hefur það gerzt, eins og allir vita, að dregið hefur stórkostlega mikið úr síldveiðunum. En ég vil þó aðeins í því sambandi leyfa mér að minna hv. alþm. á, að það er álit fiskifræðinga, að það sé ekki varanlegt ástand, heldur tímabundið. Ég vil í því sambandi vitna til ummæla dr. Jakobs Jakobssonar fiskifræðings í Ægi, 3. hefti þessa árs, þar sem hann ræðir um þessa hluti í grein, sem hann kallar
Bræðslufisk og ég mun síðar vitna til, en hann segir: „Áður en lengra er haldið, verður þó ekki hjá því komizt að benda á, að ég tel minnkandi síldarafla tímabundið fyrirbæri og þá svartsýni, sem nú ríkir hjá mörgum um framhald síldveiða, vart á rökum reista.“
Mér finnst ástæða til þess að minna á þetta og ég held, að þeir, sem mest fordæma það, sem gert hefur verið og hversu lagt hefur verið mikið fé í að taka á móti síldinni, ættu að hugleiða málið betur, áður en svo harðir dómar eru felldir.
En þó að menn trúi ekki í blindni á álit fiskifræðinga, þá held ég, að augljóst sé, að það verður að halda áfram síldarleit og síldarrannsóknum af fullum krafti eftir sem áður, þó að nokkuð hafi dregið úr síldveiðum um stund.
Nú blasir við, að eftir þessi miklu síldarár er hér mjög stór floti ágætra skipa, sem er vel til þess fallinn að veiða ýmsar aðrar tegundir af þeim fiskum, sem dr. Jakob hefur kallað bræðslufisk. Og hitt er ekki síður vitað mál, að í landi eru ákaflega stórvirk atvinnutæki, þar sem eru allar síldarverksmiðjur okkar, sem byggðar hafa verið víðs vegar um landið eftir því, hvar síldin lagðist að þá og þá. Þessi tæki eru meira og minna ónotuð. Og þessi tæki eru svo stórvirk, að þau munu geta afkastað um 20 þús. smálestum hráefnis á sólarhring. Fram hjá þessu verður ekki gengið og menn hljóta að leita allra úrræða til þess að nýta sem bezt afkastagetu bæði flotans og allra þessara verksmiðja.
Ég álít, að hér hafi ekki ríkt af hálfu valdhafa nægileg árvekni í þessu máli. Við höfum gert það, Íslendingar og það er ekki að ástæðulausu, að það hafa verið byggðar bræðslur í mjög stórum stíl, síldarverksmiðjur víðs vegar á ströndinni, allt eftir því, hvar síldin hefur verið við land þá og þá. En það hefur undarlega lítið verið gert til þess og athugaðir möguleikar á því að tryggja þessum miklu vinnslufyrirtækjum verkefni. Þó má ekki gleyma síldarflutningunum í þessu sambandi. Það eru vissulega markverðar tilraunir og ég hygg, að það þurfi miklu frekari athugunar við og rannsókna, hvort ekki er hægt að skipuleggja víðtækari starfsemi að því leyti, sem færi yfir á víðara svið, næði til fleiri fiskistofna og væri víðtækari. Hef ég, ásamt þremur öðrum þm. Austf., flutt till. um þetta efni á þskj. 407, — um athugun á flutningaspursmálinu, — hvort ekki sé hægt að brjóta þar nýja leið.
Um annað en þetta hefur varla verið að ræða, sem unnið væri í þá stefnu að afla hráefnis til verksmiðjanna og að nota þeirra afköst, þegar dregið hefur úr síldinni á hinum ýmsu stöðum og nú síðast svo mjög í heild, eins og öllum er kunnugt. En ef litið er á árangur þann, sem varð á sínum tíma, þegar hafin var öflug rannsókn og skipulögð síldarleit, þá hlýtur að vakna spurningin um aðrar fiskitegundir, hvort ekki er hugsanlegt að veiða aðrar fiskitegundir, sem vel væru til þess fallnar að vinnast í bræðslum í miklu ríkara mæli en gert hefur verið hér.
Í þeirri grein fiskifræðingsins, Jakobs Jakobssonar, sem ég vitnaði til áðan, er rætt um ekki færri en 4 tegundir fiskjar, sem veiðanlegar kynnu að vera með góðum árangri til vinnslu í bræðslu. Mér virðist álit fiskifræðingsins svo vel rökstutt, að óhjákvæmilegt megi kalla að taka ábendingar hans til nánari íhugunar af hálfu hins opinbera. Þurfa menn þá einnig að hafa í huga hina miklu ónotuðu afkastagetu síldarverksmiðjanna, sem ég áðan vék nokkuð að. Á þingskjali 404, hef ég, ásamt 7 öðrum þm., lagt fram till. um þetta efni í nokkuð öðru formi en þá, er ég mæli hér fyrir, þó að hún fjalli um einn þátt þessa máls. Í þeirri till. segir svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Alþingi ályktar að kjósa 5 manna nefnd, er undirbúi í samráði við Hafrannsóknastofnunina tillögur um skipulagða og samræmda fiskileit, rannsóknir og veiðarfæratilraunir í því skyni að auka veiðar á bræðslufiski og gera þær veiðar fjölþættari.“
Hvað snertir 3 af þeim fiskistofnum, sem um er fjallað í greininni Bræðslufiskur, er það svo, að þeir hafa ekki verið veiddir hér til nytja og eigi að taka upp rannsóknir á því sviði, álít ég, að meiri undirbúning þurfi en til þess að framkvæma þá athugun, sem þessi afmarkaða till. fjallar um og því er það, að hún er flutt sérstaklega.
Þessi till., sem hér liggur fyrir, fjallar aðeins um einn þáttinn, um eina fiskitegundina, þ.e.a.s. um loðnuna. Hún fjallar um þann þáttinn, sem mest er aðkallandi að rannsaka, og um leið um þann þáttinn, sem er þannig vaxinn, að hægt er að snúa sér að honum vafningalítið nú þegar.
Það er langt síðan menn fóru að veiða loðnu hér við land, og má lesa um sögu þeirra veiða í ágætri grein, sem Friðrik Steinsson skipstjóri ritaði í aprílhefti Ægis fyrir nokkrum árum. Ég skal ekki fara langt út í að rekja þá sögu, en aðeins drepa á örfá atriði.
Það er um 1920, sem menn byrja að nota loðnu til beitu á Hornafirði og í byrjun er á svo frumstæðan hátt að þessu unnið, að loðnan er hreinlega týnd upp af söndunum. Það höfðu menn nú raunar áður gert í þeim landshlutum sér til bjargar, þegar hart var í ári og kannske hefur ekki þurft harðindi til. En síðan tóku menn að veiða loðnuna í háf og nokkru síðar taka menn upp loðnunæturnar og 1924 er talið, að loðnuveiði sé orðin almenn þarna austurfrá. Það er svo ekki fyrr en löngu seinna, þegar farið er að veiða loðnuna við Suðurlandið, ekki fyrr en eftir 1938, — að eitthvað er veitt úti á rúmsjó, en þó aðallega á grunnu vatni og upp við sanda. En það er alveg til 1964, sem menn veiða loðnu eingöngu til að nota hana sem beitu. Eftir það taka menn að veiða hana í bræðslu og strax 1965 hefur loðnuveiðin töluvert gildi. Þá eru veiddar um 50 þús. lestir. Síðan hefur verið veitt eitthvað i kringum 100 þús. lestir á ári, stundum meira og stundum minna. Núna á þessum vetri nær loðnuveiðin hins vegar hámarki, eins og mönnum er kunnugt. Það veiddust rúmlega 170 þús. tonn að ég ætla, en mesta veiði áður hafði orðið um 125 þús. tonn. Hér er um veiðar að ræða, sem hafa mjög verulega þýðingu fyrir þjóðarbúskapinn, því að útflutningsverðmæti loðnunnar í vetur hefur verið áætlað hátt í 350 millj. kr. Þannig standa sem sagt málin í dag varðandi loðnuna, að það er búið að sýna sig svo ekki verður um villst, að þarna er um að ræða fisk, sem getur haft mjög verulega þýðingu sem hráefnisgjafi fyrir hin afkastamiklu vinnslutæki okkar og einnig mjög mikla þýðingu í þjóðarbúskapnum sem útflutningsvara.
Í grein fiskifræðingsins í Ægi, sem ég hef áður margsinnis vitnað til, er nokkuð rakið, hversu loðnan hefur hagað sér hér við land. Hún hrygnir einkum við Suður– og Suðvesturland síðari hluta vetrar. Göngurnar eru oft tvær og stundum fleiri og þeirra verður oft fyrst vart við Suðausturland, sem ljóst er af því, sem ég hef áður sagt, að loðnuveiði hér byrjar á Hornafirði og þar um kring. Stundum gengur loðnan upp að suðurströndinni um Dyrhólaey, Vestmannaeyjar og Selvogsgrunn o.s.frv. Nú er mikil ástæða til að ætla, að veiða megi loðnuna víðar við land og lengja megi veiðitímann og jafnframt fá feitari og verðmætari fisk, en algengast er að veiða nú.
Í grein dr. Jakobs er rakið, hversu oft hefur orðið vart við loðnuna fyrir norðan land á sumrin og ég ætla að leyfa mér að lesa hérna orðrétt kafla úr grein fiskifræðingsins, með leyfi hæstv. forseta. Hann segir:
„Þannig urðu síldarleitarskipin öðru hvoru vör við loðnu djúpt út af Norðurlandi á árunum 1960—1967. Hinn 7. júlí 1961 var v/s Ægir t.d. við síldarleit á svæðinu NV af Kolbeinsey eða nánar tiltekið á milli 19. og 20.° v.l. og um 67° 45' n.b., þ.e. um 90—100 sjm. N af Siglufirði. Er skemmst frá því að segja, að þarna fundust margar stórar torfur. Allmörg síldveiðiskip komu á þessar slóðir skömmu síðar, fjögur þeirra köstuðu og fengu öll loðnu. Ári síðar eða í júlí 1962 var v/s Pétur Thorsteinsson í síldarleit um 90— 100 sjm. norður af Melrakkasléttu og fann þar stórt torfusvæði. Allmörg síldveiðiskip komu, en fengu eingöngu loðnu. Hinn 27. júní 1963 var v/s Ægir enn í síldarleit á svæðinu NV af Kolbeinsey. Margar góðar torfur fundust. Eitt síldveiðiskip kastaði þar daginn eftir og fékk loðnu. Rúmum mánuði síðar eða hinn 8. ágúst 1963 fundum við á Ægi mikið torfusvæði norður af Strandagrunnshorni eða nánar tiltekið á 67° 30' n.b. frá 21°—22° v.l. Þegar rennt var í torfurnar hljóp þorskur þegar á færið. Hver einasti fiskur var þarna úttroðinn af loðnu.“
Og hann heldur enn áfram og nefnir nokkur fleiri dæmi, þegar vart hefur orðið við loðnuna að sumarlagi fyrir norðan og norðaustan land.
Það er óhætt að slá því föstu, að ríki loðnunnar er ekkert kostaríki hafdjúpanna. Jakob Jakobsson kemur aðeins að því. Hann segir hér, með leyfi hæstv. forseta:
„Heimkynni loðnunnar eru fyrst og fremst í köldum sjó allt frá Barentshafi um Ísland til Austur-Grænlands og þaðan allt vestur að ströndum Ameríku við Labrador. Vafalaust er hér þó um a.m.k. fjóra sérstaka loðnustofna að ræða.“
Síðan ræðir hann nánar um þetta og er auðséð af því, að hann álítur, að þarna sé um mjög mikið magn að ræða af þessum fiski. Það má þess vegna vera alveg ljóst, að loðnan er það stórveldi, sem vert er fyrir okkur Íslendinga að gefa gaum og auka heldur viðskiptin við. Ég vil enn — og það skal verða mín síðasta tilvitnun í grein dr. Jakobs, — vitna í niðurlagsorðin í kaflanum um loðnuna, en þar segir:
„Veiðitímabilið hefur verið fremur stutt eða frá miðjum febrúar til marz loka og veiðisvæðið hefur jafnan verið við suður– og suðvesturströndina. Ég tel nú alveg augljóst, að unnt sé að lengja loðnuvertíðina til mikilla muna. Athuganir þær, sem gerðar voru á loðnugöngum út af Austur– og Norðausturlandi núna í vetur, sýndu, að loðnan getur verið í ágætum torfum á leið sinni suður úr kalda sjónum. Það ætti því ekki að vera neitt því til fyrirstöðu að hefja loðnuveiðar allt að tveimur mánuðum fyrr en gert hefur verið til þessa. Þá er ljóst af því, sem áður var sagt um lífshætti og uppeldisstöðvar loðnunnar, að allar líkur benda til þess, að unnt sé að stunda loðnuveiðar að sumarlagi út af Norðurlandi. Þar er þó nauðsynlegt að gera nánari athuganir á loðnusvæðunum, sérstaklega með tilliti til breyttra aðstæðna í sjónum, áður en hafizt verður handa um almenna veiði. Þannig er líklegt, að unnt sé að stunda loðnuveiðar allan síðari hluta ársins fyrir Norðurlandi og síðar úti af Austfjörðum einmitt á þeim árstíma, þegar hún er feitust og gefur mestar afurðir.“
Og hann bætir við, að sú loðna, sem leiðangursmenn á Árna Friðrikssyni veiddu í hafi úti af Austurlandi í s.l. mánuði, þ.e.a.s. í janúar, reyndist vera 14% feit, en það er miklu meiri fita en venja er á loðnuvertíð hér syðra.
Ég hygg, að þessar niðurstöður séu þannig, að vart verði gengið fram hjá þeim þegjandi og að óathuguðu máli. Loðnuveiðin í vetur hefur, eins og ég vék áðan að, orðið mjög þýðingarmikil búbót og — eins og ég einnig hef áður komið að — höfum við mikinn veiðiskipaflota og við höfum gnægð vinnslustöðva í landi til þess að vinna loðnuna á hinum ýmsu árstímum án þess að teppa þær fyrir annarri og arðvænlegri vinnslu þá, en síldin er miklu dýrari fiskur en loðnan, einnig í bræðslu. En til þess að unnt verði að útfæra veiðisvæðið og veiðitímann er alveg áreiðanlegt, að það þarf að framkvæma hörkuleit ásamt tilheyrandi rannsóknum og veiðarfæratilraunum, alveg eins og gert var við síldina og þessa starfsemi þarf að hefja strax í sumar.
Þessi till. er, eins og ég áðan vék að, flutt strax í febr. og síðan hefur aðalloðnuvertíðin gengið yfir og orðið með þeim ágætum, sem raun ber vitni. Mér sýnist að allt, sem skeð hefur síðan þessi till. var flutt, mæli með skjótum aðgerðum í þessu efni. Þessi till. er almennt orðuð og er um það, almennt talað, að láta rannsaka og fylgjast með göngum loðnunnar að landinu og með ströndum fram. En mér finnst með tilliti til þeirra atburða, sem gerzt hafa á tæplega tveimur mánuðum, síðan þessi till. var flutt, — mér sýnist það eðlilegt, að ríkisstj. verði veitt ákveðin heimild til aðgerða og ég mun leggja fram brtt., sem hv. fjvn., sem væntanlega fær þessa till. til athugunar, tekur þá einnig til skoðunar um leið og aðaltill.
Þessa brtt. hafði ég hugsað mér að orða eitthvað á þá leið, að Alþ. heimilaði ríkisstj. að taka á leigu skip í allt að 6 mánuði til að framkvæma leit og athuganir vegna loðnunnar allt að 6 mánuði umfram það, sem þegar hefur verið ákveðið að verja til fiskileitar. Ég legg ríka áherzlu á nauðsyn þess, að nokkrar veiðarfæratilraunir verði einnig gerðar. Loðnan hefur að undanförnu fyrst og fremst verið veidd á grunnu vatni, þar sem vel hentar að veiða hana í nót, en til þess að veiða hana með árangri á dýpra vatni mun þurfa að taka upp önnur veiðarfæri. Norðmenn veiða mikið af loðnu og þeir munu veiða um helming af sínu loðnumagni í vörpu. Þetta þarf að athuga annað hvort á þann hátt að búa væntanlegt leitarskip þannig, að það geti sjálft framkvæmt þessar tilraunir ellegar senda annað skip með veiðarfæri, ásamt leitarskipinu, en það yrði náttúrlega dýrara. Ef svo færi hins vegar, að einhverjar útgerðir sæju sér fært og teldu ástæðu til þess að fara af stað á þessar veiðar án athugunar og fylgja eftir leitarskipinu, þá þarf auðvitað ekki þessar tilraunir. Þetta er það, sem gerist á síldveiðum, eins og við vitum. Veiðiskipin fylgja leitarskipunum og eru komin á vettvang, þegar þau geta vísað á síld. En mér þykir fremur ólíklegt, að af því gæti orðið í sumar varðandi loðnuna og þess vegna legg ég áherzlu á nauðsyn þess, að einhverjar byrjunarveiðarfæratilraunir gætu farið fram um leið. Það virðist, eftir því sem ég kemst næst, ekkert því til fyrirstöðu að hefja slíkt starf í sumar, ef fjármunir fást til þess, því að svo mikið er þegar vitað um loðnuna, að það á að nægja til þess, að unnt sé að skipuleggja gagnlegar aðgerðir. Jafnhliða því, sem leitað yrði veiðanlegrar loðnu, yrði auðvitað hlutverk leitarinnar að fylgjast með göngum hennar og rannsaka hennar lifnaðarhætti.
E.t.v. dettur einhverjum til hugar, að hægt væri að framkvæma leit og athuganir vegna loðnunnar fyrir það fjármagn, sem ákveðið hefur verið að verja til fiskileitar nú þegar og taka að einhverjum hluta skip frá síldarleitinni í því skyni, en því miður er það alveg tómt mál að ætla sér það. Það var horfið að því óheillaráði árið 1968 að draga verulega úr síldarleitinni. Þetta var aftur gert núna í ár frá því, sem lagt var til af hálfu Hafrannsóknastofnunarinnar. Það var dregið úr fjármagni til síldarleitarinnar, sem svarar þriggja mánaða úthaldi eins leitarskips. Það er þess vegna alveg augljóst, að það fjármagn gerir ekki betur en hrökkva, sem henni hefur verið ætlað og raunar hrekkur það ekki, því ef á að halda uppi eðlilegri síldarleit í sumar í samræmi við þær kröfur, sem gerðar eru, þá verður lítið eftir til þess að hefja aftur leit hér á suðursvæðinu í haust, sem þá er talið nauðsynlegt að athuga.
Ég held, að það hafi verið mjög mikil mistök að draga úr fiskileitinni. Þvert á móti held ég, eins og ég hef sagt, að það hefði átt að auka hana og færa hana yfir á víðara svið. Hér á árunum voru 3 skip starfandi í síldarleitinni yfir aðalannatímann og þannig var það um nokkur ár eða fram til 1967. Síðan hafa þau verið færri. Nú er engin ástæða til að draga nokkra dul yfir það, að með tilkomu Árna Friðrikssonar batnaði aðstaða síldarleitarinnar mikið. Árni Friðriksson getur haft helmingi lengri úthaldstíma en Ægir gat haft áður og það er ekki lítill tími, sem fer í að sigla heim og út aftur, eftir að síldin er komin í mörg hundruð mílna fjarlægð frá landinu. En svo er á hitt að líta, að leitarsvæðið hefur færzt svona gífurlega út, kannske frá því að vera áður um 100 mílur upp í að vera nú 8—900 mílur út frá landinu. Það gefur auga leið, að þó að til komi ágætt og nýtt skip, sem er afkastameira en hin fyrri, þá gerir það auðvitað ekki einu sinni að vega upp á móti útfærslu leitarsvæðisins, hvað þá, að það geri fært að minnka þann skipakost, sem hafður hefur verið í þessari þjónustu áður. Það er ákaflega nauðsynlegt, ef síldarleit og rannsóknir eiga að koma að fullu gagni á djúpmiðum lengst austur í hafi, að skipin geti stöðugt skipzt á, þannig að ekki verði eyða, þegar aðalleitarskipið þarf að fara til lands, en sú sigling fram og til baka tekur ekki minna en 10 daga að ég hygg. En eins og nú er komið, þá er nokkur hætta á því, a.m.k. ef á að dreifa síldarleitinni yfir allt árið og sjá fyrir leit hér við Suðurlandið, — þá er hætta á þessu. Árni Friðriksson gæti þá orðið einskipa í leitinni og það yrði áreiðanlega til mikils skaða. En ég vildi alveg sérstaklega undirstrika, því það rökstyður þessa till. og einnig mína brtt., að það er alveg útilokað, að síldarleitin geti að nokkru verulegu marki færzt yfir í leit að loðnu og rannsóknir á henni, þó hún að sjálfsögðu, eins og hún hefur áður gert, reyni að fylgjast með loðnunni eftir því, sem hægt er. En það sér náttúrlega hver maður, að þegar t.d. farið er að leita að síld á fjarlægum miðum, þá er ekkert komið nálægt þeim slóðum, sem þarf að kanna með tilliti til loðnunnar.
Ég vil svo að lokum aðeins árétta, að ég álít, eins og flm. þessarar till., að það sé mjög nauðsynlegt að halda áfram fiskileit og tilheyrandi rannsóknum af fullum krafti og færa leitina út á víðara svið. Reyna á þann hátt að bæta þann skaða, sem hlotizt hefur af þverrandi síldveiðum, með nýjum veiðum. Þó að þar komi margt fleira til en loðnuveiði, þá er loðnan nærtækust. En þó að nú þegar sé töluvert vitað um hátterni loðnunnar og göngur hennar, þá fer því fjarri, að með því hafi verið fylgzt á sama hátt og göngum síldarinnar. Og með hliðsjón af því, sem ég hef leitazt við að rekja hér að framan og með hliðsjón af nytsemi loðnunnar og þýðingu loðnuveiða fyrir íslenzkt efnahagslíf, þá virðist mér til þess fyllsta ástæða að ráðast hið allra fyrsta í rannsóknir á göngum og lifnaðarháttum loðnunnar, í leit og í veiðarfæratilraunir, enda mun það vera viðurkennt meðal allra erlendra fiskveiðiþjóða, að langarðbærasta fjárfestingin, sem hugsanleg er, til þess að efla fiskveiðarnar og fiskiðnaðinn sé öflug fiskileit ásamt tilheyrandi rannsóknum og nauðsynlegum veiðarfæratilraunum.
Ég vil svo, herra forseti, leyfa mér að leggja til, að þessari till. verði vísað til hv. fjvn. og umr. frestað.