30.04.1969
Sameinað þing: 45. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 162 í D-deild Alþingistíðinda. (3067)

151. mál, rannsóknir á loðnugöngum

Forsrh. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Það er þó gott, að einhver saknar manns, eins og einu sinni var sagt. Ég vildi geta þess út frá því, sem hv. 5. þm. Austf. sagði áðan, að þannig vildi til, að ég heyrði þá umræddu ræðu, sem hann var að vitna í og hann sagði, að enginn ráðh. hefði heyrt, að ég skildi svo, en hitt er rétt, að við erum oft óstöðugir hér.

Út úr efni málsins vildi ég taka fram, að auðvitað er stöðugt unnið að því í þeim rannsóknastofnunum, sem þessi mál heyra undir, að kanna þau mál, sem þessar tili. fjalla um og því fer fjarri, að þeim sé ekki sinnt. Hitt er annað mál, að ef menn vilja, að tilteknar ráðstafanir séu gerðar, þá er eðlilegt, að um það séu bornar fram ákveðnar till. Í sjálfu sér hefur mér skilizt, bæði af tillögugerð hv. þm. og ræðu hans, að það væri meira og minna um vitaðar staðreyndir að ræða, sem þegar er unnið að könnun á. En ætíð er gott að fá brýningu um að sinna góðum málum og ég hygg, að augu allflestra séu nú opin fyrir því, að það þurfi að nýta betur þá fiskistofna, sem umhverfis landið eru. Um það er ég hv. þm. mjög sammála og met hans mikla áhuga í þeim efnum.

Varðandi aftur á móti athugasemdir hv. 4. þm. Reykv., þá vil ég ekki kannast við, að það sé algild regla, að ráðh. séu ekki viðstaddir umr. Ég hygg þvert á móti, að allir ráðh. reyni eftir því sem föng standa til að vera við, þegar þau mál eru rædd, sem undir þá heyra. Hitt vitum við og getum sagt alveg ádeilulaust, hver á annan, að umr. – og þá ekki sízt í Sþ. – fara svo mjög á dreif og eru með þeim hætti, að það er ákaflega erfitt fyrir starfsbundna menn að fylgjast með þeim til hlítar. Við skulum taka sem dæmi, að nú er það þannig, að hálfur sá tími eða nærri því, sem er búinn af þessum þingfundi, fór í umr. um mál, sem var ekki á dagskrá. Þetta er auðvitað ekki góður máti til starfa. Ég skil, að menn vilji hreyfa hér mikilsverðum málum. Við því er ekkert að segja, en þetta eru ekki góðir starfshættir.

Oft er það þannig, að mikill hluti þinghalds í Sþ. fer í fsp., sem aðrir ráðh. sitja ekki yfir með eðlilegum hætti, en þeir eða sá, sem hverju sinni á að standa fyrir svörum og ekki er hægt að ætlast til þess. Varðandi aftur á móti tillöguflutning þann, sem nú er kominn til umr. þá er þetta mest svo almenns eðlis, — það er ekki undantekningalaust, — en mest og oftast er þetta svo almenns eðlis, að það er illa varið tímanum, hvort heldur fyrir ráðh. eða þm. að hlusta á það. Ég segi þetta alveg eins og það er. Þm. hafa rétt til þess að flytja þessar till., en margar þeirra eru svo almenns eðlis, að það er ákaflega lítill vinningur fyrir nokkurn mann að sitja undir þeim umr. Málin eru send til athugunar í n. og ef um ákveðnar till. er að ræða, eru þær teknar þar til athugunar og eftir atvikum felldar eða samþ. Þetta er eðlileg þingleg meðferð. Ef menn hins vegar telja sig eiga sérstaklega vanmælt við ráðh., alveg eins og ráðh. telur sig eiga vanmælt við einhvern hv. þm., þá er ekki nema eðlilegt, að boðum sé komið til aðila um það, hvort heldur ráðh. eða þm. Við getum sagt, að formlega hvílir á okkur öllum sú skylda að vera viðstaddir á þingfundum, en við vitum, að það fer eftir atvikum, hvort við getum fullnægt þeirri skyldu eða ekki. Oftast nær er það þó þannig, að við erum í kallfæri eða hægt er að ná í okkur og þá er það ekki nema eðlilegt, að það sé gert og sérstök boð eftir mönnum send. Ég kannast ekki við, að ef þess er sérstaklega óskað eða um mál þess eðlis er að ræða, að eðlilegt sé, að ráðh. fylgist þar sérstaklega með eða láti til sín taka, þá standi á þeim að vera staddir við umr. Ég kannast ekki við það.