17.05.1969
Sameinað þing: 53. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 187 í D-deild Alþingistíðinda. (3090)

181. mál, vegáætlun 1969--1972

Frsm. minni hl. (Halldór E. Sigurðsson):

Herra forseti. Eins og fram kom í ræðu hv. 2. þm. Vesturl., þá stendur fjvn. óskipt að till. til vegáætlunar fyrir næstu 4 árin eða þeim brtt., sem gerðar voru í fjvn. N. stóð frammi fyrir þeim vanda í upphafi, er hún fór að vinna í vegamálunum, að ekki yrði um teljandi vegagerð næstu 4 árin að ræða í landinu, nema það, sem lagt var til, að gert yrði í hraðbrautum. Nm. var ljóst, að þannig gat fjvn. ekki staðið að afgreiðslu þál. um vegáætlun, og því var samstaða innan n. að leggja til í þingflokkunum, að lagður yrði á vegaskattur, að benzínskatturinn yrði hækkaður um 1 kr. og jafnhliða yrði ríkissjóður að greiða af vegalánum þeim, sem greiða ætti af á vegáætlunartímabilinu, að undanteknu því, sem fellur undir árið í ár. Þetta varð niðurstaða n. og eru þær brtt., sem gerðar eru til skiptingar fjárins, miðaðar við þá tekjuöflun, sem þar var gerð. Eins og kemur fram í nál. okkar og fram var tekið í ræðu frsm. meiri hl., hv. 2. þm. Vesturl., þá varð samstaða, að því er við bezt vitum, meðal allra þm. í kjördæmunum um skiptingu fjárins innan þeirra, fjvn. hafði ekki önnur afskipti af því máli, en staðfesta það samkomulag. Í sambandi við afgreiðslu vegáætlunarinnar vil ég svo fyrir hönd minni hl. leggja áherzlu á það, sem hefur komið fram í sambandi við vegasjóðinn og áætlun um vegagerð í landinu, að það, sem er undirstaða undir því, að áætlunargerð sem þessi hafi varanlegt gildi er, að verðlag í landinu og gengi peninganna sé stöðugt. Fjárhagserfiðleikar vegasjóðs, sem voru orðnir og eru miklir, þar sem sjóðurinn skuldaði yfir 500 millj. kr. í lok síðasta árs, stafa af þeirri verðhækkun, sem hefur orðið á framkvæmd verka og svo því, að sjóðurinn tapaði vegna gengisbreytinga 150 millj. kr. á tveimur síðustu árum, og er það hrikaleg fjárhæð. Skuldir vegasjóðs voru í árslok 1968 meiri fjárhæð, en varið hafði verið til þeirra stórframkvæmda, sem gerðar hafa verið á síðustu árum, eins og Keflavíkurvegar, Siglufjarðarskarðs og Ólafsvíkurennis. Það er líka ljóst af þessu, að það verður að gæta fullkominnar varfærni í að taka erlent fé til vegagerðar í landinu og svo þess, að alltaf verður að vera samband á milli ríkissjóðs og vegasjóðs, svo að ríkissjóður geti jafnað metin á milli þessara sjóða. Annars fer eins og nú hefur farið. Það er líka nauðsynlegt, þegar vegáætlun er gerð til 4 ára, að möguleikar séu til þess, að ríkissjóður aðstoði vegasjóðinn með framlagi vegna þeirra hækkana og þess kostnaðar, sem verður við viðhald, snjómokstur og annað í sambandi við vegagerð í landinu, sem aldrei er hægt að sjá svo vel fyrir um langan tíma, að ekki reynist meiri en áætlað er.

Ef átt hefði að afgreiða vegáætlunina, eins og hún var lögð fyrir í upphafi, hefði ekki orðið um aðra vegagerð að ræða í landinu næstu 4 ár, svo teljandi sé, annað en það, sem hefði verið gert í hraðbrautum, því að framkvæmdir í vegunum, bæði þjóðbrautum og landsbrautum, voru fyrst og fremst miðaðar við það, samkvæmt till., að leggja vegi að og frá þeim brúm, sem gerðar yrðu á tímabilinu. Og jafnhliða var ekki lagt til að byggja eina einustu nýja brú á fjögurra ára tímabilinu. Hins vegar átti að endurbyggja nokkrar brýr á þjóðbrautum og landsbrautum. Þessi svipur hefur nú allur breytzt við þá ákvörðun, sem tekin var í fjvn., að afla nýs fjár til vegagerðarinnar. Þá viljum við í minni hl. leggja áherzlu á og lýsa okkar skoðun um það, að eðlilegt sé, að vegagerðin sjálf annist framkvæmdir í vegagerð að svo miklu leyti, sem hún getur gert það vegna þeirra tækja, sem hún hefur yfir að ráða, en ef aðrir aðilar eiga að sjá um verk fyrir vegagerðina, þá verði að bjóða það verk út og taka hagstæðasta tilboði, sem sé til staðar, en ekki að láta það ráða, eins og dæmi eru til um, að þeir fái að vinna verkið í tímavinnu, sem lofa vegagerðinni því, að hún geti dregið greiðslur. Þetta er mjög hættuleg stefna, sem við viljum mjög vara við og vildum láta koma fram við þessa áætlun vegagerðarinnar.

Þá viljum við að lokum undirstrika, að þar sem enn er gert ráð fyrir því að taka lán til framkvæmda í hraðbrautum og okkur er það ljóst, að þrátt fyrir þær tekjur, sem gert er ráð fyrir, að vegasjóður hafi yfir að ráða á tímabilinu, þá verður ekki verulegt átak gert í hraðbrautum, nema með lántöku. Við gerum ráð fyrir, að í þessari lántöku verði að einhverju leyti um erlent lán að ræða og það er enn þá brýnna en nokkru sinni fyrr fyrir valdhafa landsins, hverjir sem þeir verða á þessum tíma, að stöðugt gengi peninga er forsenda þess, að þetta sé í raun og veru framkvæmanlegt. Þá teljum við, að það hafi sýnt sig, að nauðsynlegt sé, áður en til afgreiðslu þessa máls komi, að vegagerðin hafi meira samband við þm. um undirbúning málsins, því að það mundi flýta störfum, þegar til afgreiðslu kemur.

Hins vegar vil ég taka það fram að vegagerðin, bæði vegamálastjóri og verkfræðingar vegagerðarinnar, voru mjög fúsir og unnu mjög gott verk í samstarfi við þm. um að koma þessu til afgreiðslu þó ekki seinna en í dag, því að vegna þeirra breytinga, sem urðu fyrir áhrif fjvn., varð að vinna það verk allt upp. Ég skal svo, herra forseti, ekki lengja tímann til umr. að þessu sinni, en undirstrika, að við stöndum að þessari till., en leggjum áherzlu á þau atriði í sambandi við framkvæmd í vegamálum, og fjármálum vegasjóðs, sem fram eru tekin í nál. okkar á þskj. 773.