18.04.1969
Sameinað þing: 41. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 201 í D-deild Alþingistíðinda. (3110)
204. mál, Stofnlánadeild landbúnaðarins
Jónas Jónsson:
Herra forseti. Ég fagna þeirri yfirlýsingu hv. 4. þm. Norðurl. v. um, að þetta geti ekki orðið á nokkurn hátt til þess að draga úr stuðningi við ræktun landsins, enda verð ég að játa, að ég mundi alls ekki gruna hann um það beinlínis, en ég vildi samt vara þarna við einstökum atriðum. Ég vil aðeins leiðrétta þann misskilning, sem kom fram hjá hæstv. þm., að í minni till. eða till. okkar framsóknarmanna um þetta efni, væri ekki lögð til heildarendurskoðun á starfsemi Landnáms ríkisins. Það er gert, því að þar stendur, með leyfi forseta:
„Alþ. ályktar að fela landbrh. að skipa 5 manna n. til að endurskoða ákvæði um starfssvið Landnáms ríkisins með tilliti til breyttra aðstæðna.“ Síðan kemur: „N. taki m.a. til athugunar og geri till. um eftirfarandi atriði.“
Ég benti fyrst og fremst á ný atriði, sem ég teldi æskilegt, að yrðu falin Landnámi ríkisins til framkvæmda, vegna þess, sem ég rakti í minni framsöguræðu, að nokkuð bæri á því, að þau verkefni, sem Landnámið hafði upphaflega, væru minni en áður, m.a. stofnun nýbýlahverfa, sem nú er ekki unnið að.
Ég vil svo aðeins benda á, að það er kannske ekki svo gott, þó að frómt sé hugsað, að segja, að það eigi að afnema hámark á framlagi, - ákvæði fyrir aukaframlag — og segja, að allir bændur eigi að fá hámarksframlag. Það er hætt við, að þá yrði bara minna á hvern. En þetta atriði að reyna að hjálpa fram þeim jörðum, sem hafa minni ræktunina, það hefur ábyggilega haft stuðning hjá bændasamtökunum, enda er hægt að benda á, að það er þjóðhagslega rétt, vegna þess að þá verður þjóðarframleiðslan í heild hagkvæmari.
Ég vil einnig benda á, að ég álít, að þar munu flestir forystumenn bænda vera mér mjög sammála, að tryggast sé við endurskoðun á þessum lögum, að þar eigi þeir sína fulltrúa, eins og almennt hefur tíðkazt við endurskoðun á landbúnaðarlöggjöf.