21.11.1968
Sameinað þing: 14. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 269 í D-deild Alþingistíðinda. (3137)
62. mál, vantraust á ríkisstjórnina
Hjalti Haraldsson:
Herra forseti. Þar sem ég tel, að stefna núv. hæstv. ríkisstj. leiði til upplausnar í þjóðfélaginu og í viðræðum stjórnmálaflokkanna nú nýverið var enginn viðhlítandi grundvöllur undir víðtækara stjórnarsamstarf fundinn, þá tel ég, að þjóðin eigi tvímælalaust heimtingu á því að ganga til kosninga. Að öðru leyti vísa ég til grg. Björns Jónssonar, 4. þm. Norðurl. e., sem hann flutti hér áðan og segi já.