07.11.1968
Neðri deild: 11. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 285 í D-deild Alþingistíðinda. (3147)
29. mál, rannsóknarnefnd vegna kaupa á Sjálfstæðishúsinu
Landbrh. (Ingólfur Jónsson):
Herra forseti. Það er nú ekki mikið, sem ég tel ástæðu til að segja í sambandi við þessa síðustu ræðu hv. 1. flm. Hann var að tala um, að það væri eðlilegt og sjálfsagt, að Alþ. tæki þetta mál til nákvæmrar athugunar og gerði það í fullri alvöru. Úr því að þessi tillaga er fram komin, þá er ég honum algjörlega sammála um, að Alþ. taki þetta mál til alvarlegrar athugunar. Ég beinlínis óska eftir því, að þessi tillaga verði afgreidd, fái afgreiðslu. En hvort n. heitir rannsóknarn. eða allshn. Alþ. skiptir ekki máli, nema hv. allshn. fái ekki þau gögn, sem hún óskar eftir, nema hún hafi rannsóknarnefndar heimild. Þetta er aðeins orðaleikur, sem hv. 1. flm. er með og sé ég ekki, hvað fyrir honum vakir til þess að komast að réttri niðurstöðu í þessu máli. Enda hygg ég, að það sé ekki það, sem um er að ræða frá hans hendi. Ég veit, að hann hefur sjálfur skapað sér skoðun á því og gert sér grein fyrir því, að Landssíminn hefur gert góð kaup, þegar hann keypti þessa lóð. Enda talar hann um, að líklega muni þessar eignir hækka í verði, en telur það út af fyrir sig vera bölvald og kennir þar um núverandi stjórnarstefnu. Hitt vita þó allir, að hverjir sem hafa verið í ríkisstjórn á Íslandi, hvaða flokkar og hvaða stefna, sem hefur verið ráðandi, þá hafa fasteignirnar í miðbænum stöðugt farið hækkandi og ekki síður, þótt flokkur fyrra flm. hafi stutt ríkisstj. Þetta veit hann.
Hv. fyrri flutningsmaður talar einnig um, að það opinbera eigi ekki að ýta undir hækkun á lóðum eða fasteignum í miðbænum. Þetta má kannske segja, að sé rétt, en studdi ekki þessi háttv. þm. og hans flokkur kaupin í Kirkjustræti? Það eru fyrstu kaup hins opinbera á þessu svæði. Það fór fram eftir mati. Það samþykktu allir flokkar. En þau kaup, sem Landssíminn gerði 1967 og á þessu ári eru miðuð við það og þeir, sem voru að hugsa um hagsmuni Landssímans, tryggðu, að þessi kaup, sem Landssíminn gerði, væru hagstæðari en kaup Alþ. Og ástæðan til þess, að kaupin á Kirkjustrætislóðunum voru borin undir alla þingflokka, var ekki sú, að Sambandið átti þessar eignir, því að vitanlega skipti það ekki neinu máli, hvort Sambandið átti eignirnar eða einhver annar, heldur það, að verið var að taka ákvörðun um, hvort Alþ. ætti að kaupa þessar lóðir fyrir sig og hvort það passaði fyrir framtíðaráætlanir Alþ. að eignast þessar lóðir. Það var það, sem um var að ræða. En þarna kom hv. 1. flm. upp um sig, eins og stundum er sagt, þegar hann talar um, að það hafi verið vegna þess, að Sambandið átti eignirnar, að það hafi þurft að tala við alla flokka. Það er vegna þess, að Sjálfstfl. átti Thorvaldsensstræti 2, að þessi till. er flutt. Það var ekki talað neitt um það, þegar Landssíminn keypti lóðina í fyrra fyrir sunnan Landssímahúsið á þó hærra verði en Thorvaldsensstræti 2. Það er af því, að það var Sjálfstfl., sem seldi þessar eignir, að hv. flm. sér ástæðu til að fara með þetta inn í Alþ.
Hv. 1. flm. talar um, að það hafi komið gagnrýni í Tímanum í sumar. Það er rétt. En þeir hættu að skrifa um þetta mál í Tímann, eftir að þeir fengu grg. frá póst– og símamálastjórninni. Og hv. framsóknarmenn fluttu enga till. hér á Alþ. Veit ég þó ekkert um það, nema þeir séu eitthvað óánægðir með þessi kaup. Ég skal ekki segja það, en þeir hættu að skrifa og þeir létu að minnsta kosti hv. 6. þm. Reykv. og hv. þm. Geir Gunnarssyni eftir, að vera einir að till. í staðinn fyrir að vera með þeim. Ég tel nú, að það sé eðlilegra, að ef menn sannfærast, þá láti þeir gagnrýnina niður falla, en það gat ekki þessi hv. þm. gert eða hans flokksbróðir, af því að hann vildi setja þetta mál á pólitískt svið, af því að það var Sjálfstfl., sem átti þá eign, sem Landssíminn keypti.
Og enn segir hv. þm., að það sé vítavert af mér að hafa ekki leitað til annarra til þess að taka þessa ákvörðun. En hv. þm. veit þó, að ég leitaði til hinna fróðustu mann, hlutlausra manna, um þetta, sem töldu, að Landssímanum væri nauðsyn ein að fá þessa eign og þetta verð, sem um var að ræða, mætti telja hagstætt.
Hv. þm. undrast, að miðstjórn Sjálfstfl. fékk tvo mæta menn, sem kunnir eru fasteignasölum hérna í bænum, til þess að gera sér grein fyrir því, hvers virði þessi eign væri og — ef til kæmi, að hún væri seld, — hvað það verð mætti lægst vera til þess að flokkurinn fengi það, sem eðlilegt væri. Ja, til hverra átti að leita, nema manna, sem voru kunnugir slíkum málum, — verðmæti fasteigna hér í miðbænum? En það eru þeir, sem við fasteignasölur fást. Ég veit ekki um pólitískar skoðanir allra þessara manna, sem hv. þm. nefndi. Ég veit ekkert um, hvar þeir eru í flokki Sveinbjörn Jónsson, Haukur Þorleifsson eða yfirverkfræðingur Landssímans og því síður veit ég í hvaða pólitískum flokki landssímastjóri er. En hitt veit ég, að allir þessir menn, hvar í flokki sem þeir standa, þessir trúnaðarmenn Landssímans, bera hag hans fyrir brjósti. Og það voru óviðeigandi orð, sem hv. 6. þm. Reykv. viðhafði hér áðan um Landssímann og forráðamenn Landssímans, því að hv. þm. sagði eitthvað á þá leið, að þeim mætti standa á sama, þessari stofnun mætti standa á sama, hvort þeir keyptu dýrt, hvort þeir keyptu einnig á óhagstæðu verði, vegna þess að þeir hugsuðu ekkert um annað en bara að velta því yfir á viðskiptamennina. Landssíminn hefði einokunaraðstöðu og gæti borið þetta uppi, þótt vitlaus kaup væru gerð. Landssíminn stæði stöðugt í miklum framkvæmdum og mátti skilja, að það væri jafnvel af fyrirhyggjuleysi og óþörfu. Það er rétt, Landssíminn hefur staðið í miklum framkvæmdum. Landssíminn hefur komið síma inn á næstum hvert heimili í landinu, byggt sjálfvirkar stöðvar í kaupstöðum og kauptúnum og veitt góða þjónustu í okkar fámenna og strjálbýla landi. Það er þess vegna illt verk að koma hér með ásakanir í garð mætra manna, sem leggja sig fram um að stjórna stofnuninni vel og veita almenningi þá beztu þjónustu, sem auðið er að veita.
Þegar hv. þm. er að tala um einokunaraðstöðu og okur hjá Landssíma Íslands, þá tel ég rétt fyrir hv. þm. að vita á hvaða verði Landssími Íslands selur sína þjónustu borið saman við verð í nágrannalöndunum. Það er ákaflega fróðlegt að kynnast því, því að þetta er náttúrlega ekki eina röddin, sem er með ásökun í garð Landssíma Íslands fyrir, að hann reki okurstarfsemi í skjóli einokunarinnar. Ef við tökum afnotagjöld, sem eru miðuð við 2.300 samtöl á ári, þá er afnotagjald í Noregi 7.656 kr., en á Íslandi 3.000 kr. Hvert samtal, sem er yfir 2.300 samtöl, kostar í Noregi 2,16 kr. en á Íslandi 1,30 kr. Símskeyti innanlands kosta í Noregi 40 kr., en 24 kr. á Íslandi. Ef við tökum bréf, þá er það í Noregi 5,20 kr. undir einfalt bréf, en 4 kr. á Íslandi, prentað mál 3,20 kr. í Noregi, 2,50 kr. á Íslandi, bögglar 1 kg 28 kr. í Noregi, 8,50 kr. á Íslandi, póstávísanir innanlands 8 kr. í Noregi, 6 kr. á Íslandi, póstkröfugjald 8 kr. í Noregi, 4 kr. á Íslandi. Þetta eru aðeins sýnishorn og ég hef ekki nefnt nema Noreg, en ef við nefnum afnotagjöldin í öðrum nágrannalöndum án þess að nefna umframsímtölin, sem eru yfirleitt einnig talsvert hærri en hér, að þá voru, eins og ég áðan sagði, afnotagjöldin í Noregi 7.656 kr., 3.000 kr. á Íslandi, í Danmörku 6.470 kr., í Finnlandi 4.522 kr., í Svíþjóð 3.784 kr., í Bretlandi 5.257 kr., í Frakklandi 11.180 kr., í Vestur-Þýzkalandi 8.930 kr., í Sviss 4.228 kr. og í Bandaríkjunum 10.417 kr. Hér er miðað við 2.300 samtöl á ári og tveggja mínútna samtöl. Ég held við Íslendingar séum ein af þeim þjóðum, sem nota mikið síma og síminn er óvíða eins útbreiddur og hjá okkur. Aðstaðan til þess að koma símanum hér inn á hvert heimili er vitanlega miklu erfiðari og það er miklu dýrara hér í okkar strjálbýli, en í þéttbýlu löndunum. Samt hefur þetta gerzt og þjónusta Landssíma Íslands er miklu ódýrari heldur en, hjá milljónaþjóðunum, þéttbýlu þjóðunum. En það gerist eigi að síður hér á hv. Alþ. Íslendinga árið 1968, að einn af þm. kemur í rauninni með ákæru á hendur ráðamönnum þessarar stofnunar og telur, að þeir í fullkomnu samvizkuleysi með einokunaraðstöðu velti óþarflega þungum byrðum yfir á almenning, vegna þess að þeir geri ráðstafanir, sem íþyngja almennum borgara. Það er þó mat verkfræðinga og þeirra, sem þessum málum eru kunnugir, að síðustu kaupin við Landssímahúsið, bæði Thorvaldsensstræti 2 og Thorvaldsensstræti 6, verði til þess að spara millj., jafnvel milljónatugi, — verði til þess, að afnotagjöld Landssímans geti á næstu árum orðið talsvert ódýrari, en ef þeir hefðu látið það vera að kaupa þessar lóðir. En svo gerist það eigi að síður, að menn, sem annaðhvort gefa sér ekki tíma til þess að setja sig inn í þessi mál eða láta aðrar óeðlilegar hvatir ráða, koma hér á hv. Alþ. til þess að strá fræjum tortryggni og niðurrifs aðeins í því skyni að reyna að gera pólitískan andstæðing tortryggilegan. Þetta er starfsemi, sem ég hygg, að ekki margir þm. vilji taka þátt í og niðurstaðan verði sú, að á hv. Alþ. sitji yfirleitt þm., sem vilja skoða þetta mál eins og önnur á hlutlægan hátt og vilji fara eftir því sem í ljós kemur við nákvæmlega hlutlaust mat, eftir að öll gögn í málinu hafa verið fram lögð.