12.12.1968
Efri deild: 27. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 291 í B-deild Alþingistíðinda. (318)
89. mál, ráðstafanir í sjávarútvegi vegna breytingar gengis íslenskrar krónu
Páll Þorsteinsson:
Herra forseti. Þetta frv., sem hér er nú til síðustu umr. í þessari hv. deild, ber þá fyrirsögn, að það sé frv. til l. um ráðstafanir í sjávarútvegi vegna breytingar gengis íslenzkrar krónu. Það er staðreynd, að gengi íslenzkrar krónu hefur verið skráð að nýju. Það vald, sem hæstv. ríkisstj. á sínum tíma tók í sínar hendur með brbl., vald, sem Alþ. hafði áður haft, hefur verið notað á þann veg sem kunnugt er orðið. Menn segja, bæði hæstv. ríkisstj. og stuðningsmenn hennar, að þetta hafi verið nauðsynleg ráðstöfun og sumir taka svo til orða, að nú sé gengið rétt skráð. En það er nú ekki lengra síðan en eitt ár, að okkur var sagt hér á hv. Alþ., að þá væri gengið rétt skráð, þá væri búið að lagfæra það eins og réttmætt væri. Ég held, að það sé ástæða til þess fyrir þm. yfirleitt, en þó ekki sízt fyrir þá, sem skipa meiri hl. og bera ábyrgð á þeirri lagasetningu, sem hér er stefnt að, að íhuga það, hve lengi það gengi, sem nú er talið rétt, muni reynast það, ef fram er haldið sömu stjórnarstefnu og fylgt hefur verið að undanförnu. Þetta frv. er afleiðing að vissu leyti af þeirri staðreynd, að gengisskráningunni hefur verið breytt. Og við höfum við 2. umr. þessa máls komizt að raun um, að sú rökstudda dagskrá, sem minni hl. hv. sjútvn. bar fram og felur í sér nokkra viðvörun um það, að þessi löggjöf, sem á að setja samkv. þessu frv., kunni að leiða af sér ófrið á vinnumarkaði — að þessi dagskrá hefur verið felld. Þetta sýnir, að þau viðvörunarorð, sem sjómannasamtökin hafa látið koma fram og hér hefur verið bent á í umræðum um þetta mál, eru ekki tekin til greina af hv. meiri hl. í þessari deild. Menn segja: Sjávarútvegurinn verður að starfa, flotinn verður að sigla. Ég get tekið undir þetta. En löggjöf, sem stríðir gegn því, sem er almennt álit í sjómannasamtökunum, leiðir ekki til heilla, það höfum við dæmi um. Ég vil í því efni minna á atvik, sem gerðist fyrir nokkrum árum á stjórnartíma núverandi hæstv. ríkisstj., að sett voru brbl., sem áttu að dómi þeirra, sem þá löggjöf settu, að vera réttmæt og nauðsynleg eins og þá stóð á í sjávarútvegi, en þau lagaákvæði leiddu til þess - jú, að flotinn sigldi, en hann sigldi bara í aðra att heldur en löggjafarnir höfðu hugsað sér, því að síldarflotinn kom hingað inn á Reykjavíkurhöfn. Og lagaákvæði eins og þau leiða áreiðanlega ekki til heilla.
Nú virðist mér eins og haldið er á þessu máli, að það muni ekki bera árangur að bera fram brtt. við þetta frv. Og ég mun því ekki gera það. En ég vildi ekki láta málið fara svo úr þessari hv. deild, að ég léti ekki í ljós þá skoðun, að það sé varhugavert að ganga mjög langt í því, þegar slík tilfærsla fjármuna er gerð, sem ákvæði þessa frv. miða að, að mismuna hinum einstöku þáttum sjávarútvegsins mjög mikið. Við, sem höfum setið hér a þingi alllangan tíma, höfum vitanlega á okkar þingmannsferli fjallað um löggjöf um margháttaðar ráðstafanir til stuðnings atvinnuvegunum og þá ekki sízt sjávarútvegi. Stundum hefur hér verið fjallað um löggjöf, sem hefur kveðið á um uppbætur úr ríkissjóði eða uppbætur af almannafé til framleiðsluatvinnuveganna, og þegar staðið er að málum á þann hátt, að þm. setja reglur um greiðslur af almannafé, þá finnst mér ekki óeðlilegt, að því sé miðlað mismunandi eftir þörfum og aðstöðu hinna einstöku greina innan sjávarútvegsins. En hér er í raun og veru um tilfærslu fjármuna að ræða samkv. þessu frv. á miklu þrengra sviði. Hér er fyrst og fremst verið að ráðstafa fjármunum milli hinna ýmsu þátta sjávarútvegsins. Og þeir, sem segja, að nú sé gengið rétt, þeir munu sennilega telja, að þá sé lagður grundvöllur til þess, að hinir einstöku þættir sjávarútvegsins eigi að keppa sín á milli og haga rekstrinum á þann hátt, að þeir geti skilað sæmilegri afkomu á þeim grundvelli, sem lagður er með gengisskráningunni. En með þeirri tilfærslu fjármuna, sem hér er stefnt að, þá er gert ráð fyrir því að mismuna hinum einstöku greinum allmikið í þessu efni. Ég minni í þessu sambandi á ákvæði, er snerta síldveiðar. Ég minni fyrst á ákvæði í 2. gr. frv., þar sem segir, að þegar fiskiskip selur afla í innlendri höfn eða afhendir afla sinn til vinnslu án þess að sala hafi farið fram, skal fiskkaupandi eða fiskmóttakandi greiða gjald til Stofnfjársjóðs fiskiskipa, er nemi 10% fiskverðs, eins og það er ákveðið af Verðlagsráði sjávarútvegsins. Síðan segir: þó skal greiða 20% af verði síldar og humars. Hér er greinilega mikill mismunur á milli hinna einstöku greina sjávarútvegsins. Og þar sem kveðið er á um útflutningsgjöld af sjávarafurðum, þá verður hið sama uppi á teningnum. Það eru ýmsar stórar greinar sjávarútvegsins, sem ekki bera hærra útflutningsgjald en 3% eða 5%, en síldarafurðirnar eru sumar í 6% flokki og mjög mikið af síldarafurðunum í 8% flokki. Hér er mjög mikill munur á. Nú eru samsvarandi ákvæði og þetta að sönnu ekki ný, og ég hygg, að þau hafi nú á sínum tíma komið inn í löggjöfina, þegar síldveiðarnar þóttu sérstaklega arðvænlegar. En við getum ekki lokað augum fyrir því, að einmitt á síldveiðunum og þeim afrakstri, sem þær hafa skilað, hefur orðið mjög mikil breyting til hins lakara nú á allra síðustu tímum, og ég vil láta þá skoðun koma fram hér, áður en að málið verður afgreitt úr deildinni, að ég fyrir mitt leyti tel, að hér sé of langt gengið, þó ég flytji ekki um það brtt. Það er viðurkennt, að sjómannastéttin er sú stétt, sem styður þjóðarbúið jafnvel umfram aðrar stéttir með gjaldeyrisöflun, og sjómönnum ber að hafa háar tekjur miðað við það, sem gerist meðal fólks, sem stundar aðra vinnu. Og það er einnig viðurkennt, að sjómenn leggja mikið á sig til þess að afla þess gjaldeyris, sem þjóðarbúið nýtur góðs af. En ég hygg þó, að aðrir sjómenn leggi ekki meira í sölumar heldur en þeir, sem hafa sótt á síldarmiðin langt norður í Íshaf að undanförnu.
Þá vil ég, áður en ég lýk máli mínu, víkja okkrum orðum að því, hvernig þetta frv. er úr garði gert í ýmsum greinum, og vil með því taka undir og leggja áherzlu á það, sem fram hefur komið í því efni hjá hv. 3. þm. Norðurl. v. Það er mjög eftirtektarvert, þegar þetta frv. er lesið grein fyrir grein, hvað víða eru ákvæði á þá leið, að framkvæmd þessarar lagasetningar fari eftir reglum, sem sjútvmrn. setur, og sums staðar er tekið svo til orða, að framkvæmdin fari eftir nánari ákvörðun sjútvmrn. Þetta frv. eða sú löggjöf, sem kann að verða sett samkv. því, ef um breytingar verður ekki að ræða, þá er það ákaflega opið fyrir ríkisstj. að haga seglum eftir vindi, vil ég segja, með framkvæmdina. Ég skal þessum orðum til stuðnings minna á, að greiðsla vátryggingargjalda fiskiskipa á að fara samkv. reglum, sem sjútvmrn. setur. Greiðsla til samtaka sjómanna á að fara samkv. reglum, sem sjútvmrn. setur. Gengishagnaði á að ráðstafa, m.a. til Fiskveiðasjóðs vegna gengistaps skipa, samkv. reglum, sem sjútvmrn. setur. Og um greiðslur til síldveiðibáta, sem stunduðu veiðar sumarið og haustið 1968 og þurfa að fá aðstoð til að standa í skilum með vexti og afborganir, þá á sjútvmrn. að setja reglur um þessar greiðslur. Þegar talað er um greiðslur til þess að auðvelda síldarverksmiðjum, sem starfræktar voru til móttöku síldar af norðausturmiðum sumar- og haustvertíð 1968, að standa í skilum með greiðslu vaxta og afborgana af stofnlánum, þá á það að fara eftir nánari ákvörðun sjútvmrn. Og þegar kemur að Síldarverksmiðjum ríkisins, vegna reksturs leiguskipa, þá eiga þær greiðslur að fara eftir ákvörðun sjútvmrn. Og þegar kemur að síldarverksmiðjum ríkisins, vegna reksturs leiguskipa, þá eiga þær greiðslur að fara eftir ákvörðun sjútvmrn. Og svo afgangurinn af gengishagnaði – þegar hinir föstu liðir eru teknir til greina, á afgangurinn að renna í til veitingar stofnlána, til bolfiskvinnslu, eftir reglum, sem sjútvmrn. setur. Nú höfum við sérstaka löggjöf um Fiskveiðasjóð, og hann veitir lán samkv. þeirri löggjöf. Út af þessu leyfi ég mér að spyrja: Á Fiskveiðasjóður að lána þetta fé, sem hann fær til ráðstöfunar samkv. e-lið 17. gr., eftir nýjum og öðrum reglum heldur en löggjöf sjóðsins segir til um? Á að halda þessum lánveitingum aðgreindum frá öðru fé sjóðsins og lána það eftir sérstökum nýjum reglum?
Ég vil ljúka þessum orðum með því að beina þeirri spurningu til hæstv. sjútvmrh., hvernig þær reglur muni verða í stórum dráttum a.m.k., sem framkvæmd þessarar löggjafar eða þessa frv., ef að lögum verður, á að fara eftir í mjög veigamiklum atriðum. Ég vænti þess, að hæstv. sjútvmrh. geri þd. grein fyrir þessu, áður en málið fer hér út úr d.
Og af því að í þessum umræðum hefur verið minnzt á fimleika, þá vil ég segja, að ég held, að hæstv. núverandi ráðh. séu alveg sérstakir fimleikamenn í því að fella gengið og þá að ráðstafa gengishagnaði, og þar af leiðandi mun það vera auðveldara en ella fyrir hæstv. sjútvmrh. að gefa nokkur svör við þessum spurningum.