16.12.1968
Neðri deild: 30. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 326 í B-deild Alþingistíðinda. (329)
89. mál, ráðstafanir í sjávarútvegi vegna breytingar gengis íslenskrar krónu
Félmrh. (Eggert G. Þorsteinsson):
Herra forseti. Ég skal ekki lengja að óþörfu þessar umræður. Þær hafa svona að langmestu leyti verið málefnalegar og ekkert yfir þeim að kvarta á einn eða annan hátt. Flest hefur verið endurtekið hér af hv. stjórnarandstæðingum, sem sagt var í hv. Ed., sem hafði málið fyrr til meðferðar.
Það eru þó hér tvö atriði, sem ég vildi aðeins minnast á og svara um leið fsp., sem hv. 4. þm. Vestf. beindi til mín. Hann spurði: Hverjar voru þær reglur, sem ráðh. setti um úthlutun fjár til bolfiskvinnslunnar á s.l. vetri samkv. heimild, sem þá var í lögum? Ég man, eins og hann gerði nú reyndar ráð fyrir, ekki nakvæmlega þessar einstöku reglur, en sú meginstefna var viðhöfð við þessa reglugerðarsamningu alla að hafa samband og samráð við hlutaðeigandi aðila, sem greiðslunnar áttu að njóta, og ég hygg, að svo hafi einnig verið gert við samningu þessara reglna. En ég skal gera ráðstafanir til þess, að þær geti legið fyrir við síðari umræðu málsins, eins og hann fór reyndar fram á.
Hv. þm. Lúðvík Jósefsson gat nú ekki neitað sér um þá ánægju að víkja örfáum orðum að mér persónulega í þessum umræðum og reyndist nú sá eini, sem sá sig knúðan til þess. En áður en ég vík að því atriði, sem hann lagði mikinn þunga á í sinni ræðu varðandi viðskipti okkar, mín og hæstv. fjmrh., þá vildi ég enn endurtaka það, sem ég sagði í minni framsöguræðu, að það stendur óhaggað, að það var og hefur um áraraðir verið stór mismunur – mismunandi mikill – á því skiptaverði, sem sjómenn hafa fengið greitt, og því, sem til útgerðarmanna hefur runnið af fiskverðinu. Það stendur óhaggað, eins og ég sagði í upphafi, enda hafði ég góðar upplýsingar um það, að munurinn er frá 15% og upp í 24% á mismunandi tímabili. Þetta er staðreynd, sem hv. þm. kemst ekki hjá að viðurkenna, enda í það vitnað af þeim, sem enn kunnugri eru þessum málum af eigin raun heldur en ég er, og ég hygg a.m.k. eins kunnugir eins og hv. þm., þannig að þetta liggur fyrir staðfest.
Það, sem hv. þm. Lúðvík Jósefsson lagði mikla áherzlu á, var það, að ég hefði látið fjmrh. hlunnfara mig í sambandi við þær tekjur, sem gert er ráð fyrir í a-, b- og c-lið l7. gr. frv., — að því hefði verið yfirlýst af fjmrh. í umræðum við stjórnmalaflokkana á þessu hausti, að hann ætti nægjanlegt fé til þess að standa straum af þeim útgjöldum, sem ríkissjóður hefði beint og óbeint boðið upp á. Ég greip tækifærið strax að þessum atriðum sögðum í ræðu hans og talaði við fjmrh. um þetta. Hann sagðist þveröfugt hafa tvítekið fram á þessum samningafundum, að eftir væri að afla fjár til þessara hluta allra. Ég verð nú að gefa þá frómu yfirlýsingu, að ég treysti yfirlýsingu hæstv. fjmrh. betur og bíð með hliðsjón af reynslunni eftir frekari sönnunum af hendi hv. þm. um þetta efni. Þetta eru þungar sakir, sem hv. þm. hefur í frammi og honum er nauðsynlegt að finna þeim stað. Ég harma það hins vegar mjög, að viðræður á óbókuðum fundum séu dregnar inn í jafnalvarlegar umræður og þetta mál er hér.
Um málið almennt vildi ég segja þetta: Að sjálfsögðu er þetta frv. engin heilög kýr, sem ekki má hreyfa til, ef menn hafa aðrar till. uppi. Ég lýsti því yfir í umræðum í hv. Ed., að allar till. í þá átt að leysa þennan vanda með einhverjum öðrum hætti, yrðu vel þegnar. Þær hafa þrátt fyrir mjög rólega meðferð málsins þar ekki komið fram. Ég lýsi enn eftir þessum till., því að þrátt fyrir langa ræðu, t.d. hv. 4. þm. Austf., örlaði hvergi á neinni lausn. Það var bara síendurtekin krafan um, að málið yrði leyst með einhverjum öðrum hætti. Slíkar kröfur eru gerðar út í loftið og leysa ekki slíkan vanda, sem hér er um að ræða. Hv. þm. benti á tvö atriði, sem áttu að leysa allan vandann að því er mér skildist. Í fyrsta lagi að lækka vexti, í öðru lagi helzt að afnema með öllu útflutningsgjöldin — ég hygg nú, að það þyrfti að finna einhverja tekjustofna á móti því og veit ég þó, að þm. er ekki reiðubúinn til að leggja niður þá gjaldstofna, sem þar er um að ræða — og svo enn fremur lækkun á olíuverði. Ég hef ekki fyrir mér neinar tölur, enda nefndi hann það ekki, hvað hann legði til í hinum einstöku liðum, en ég þori að fullyrða hér á staðnum, að jafnvel þótt hann afnæmi þessa útgjaldaliði með öllu, gæfi olíuna til útgerðarinnar og legði niður útflutningsgjaldstofninn og lækkaði vexti um eitthvert smáræði, þá kæmist hann ekki hálfa leið í að leysa þennan vanda. Þetta veit þm., enda er gripið til þess arna sem hálmstrás, þegar menn skortir till. til lausnar þeim vanda, sem við er að etja.
Það er meginefni þessara umræðna allra, eins og í hv. Ed., að menn viðurkenna vandann, sem við er að etja. Það segja allir: Við skulum fúslega viðurkenna, að hér er við mikið og stórt vandamál að etja, sem með einhverjum hætti verður að leysa. En það verður bara að leysa það með einhverjum öðrum hætti. — Ég lýsi eftir till. um það.