11.11.1968
Neðri deild: 13. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 87 í B-deild Alþingistíðinda. (33)
52. mál, ráðstafanir vegna nýs gengis
Frsm. minni hl. (Vilhjálmur Hjálmarsson):
Herra forseti. Það þarf sjálfsagt engum hv. alþm. að koma það á óvart, þó að rekið sé á eftir þessu máli hér, enda fundir í því aðeins til málamynda, ekki hægt að fá fram neinar upplýsingar á nefndarfundum o.s.frv. Það þarf sjálfsagt engum að koma það á óvart, þeim, sem fylgdust með gangi mála á þingi s.l. vetur, þó alveg keyrði um þverbak í þinglokin, þegar fleygt var inn ótal stórmálum, jafnvel málum, sem viðurkennt var af hæstv. ráðh., að hefði átt að fylgja fjárlagafrv., þegar það var fram, og þetta allt afgreitt í einni kássu í kringum páskahelgina. Það þarf engum að koma það á óvart, þó að þetta mál verði nú afgreitt á þann hátt, sem meiningin er að gera hér í kvöld.
Íslendingar standa frammi fyrir miklum vanda. Það hefur oft verið sagt í þessum umr. Hæstv. forsrh. sagði það sjálfur og lagði á það þunga áherzlu. Þær yfirlýsingar koma í framhaldi af því, sem sagt var í fréttum nú fyrir fáum kvöldum, að gjaldeyriseign þjóðarinnar væri gengin til þurrðar. Þess háttar fréttatilkynningu hefur áreiðanlega enginn heyrt fyrr í íslenzka útvarpinu frá því, að það tók til starfa. Enda hefur aldrei þurft að birta slíkar yfirlýsingar frá íslenzka ríkinu fyrr né síðar. Hæstv. forsrh. sagði, að Íslendingar hefðu aldrei á þessari öld staðið frammi fyrir öðrum eins vanda. Það er þess vegna hans mat og ríkisstj. hans, að þannig sé þessum málum komið nú í dag. Það er háttur stjórnarliða að verja sitt skinn með verðfalli á erlendum mörkuðum og aflatregðu, sem vissulega hvort tveggja er til staðar. En það tekur engu tali, og það er vonlaust fyrir hæstv. ríkisstj., að ætla að telja nokkrum heilvita manni trú um það, að með eðlilegri stjórn á hlutunum á undangengnu góðæristímabili væri svo illa komið nú þegar, þó að nokkuð hafi bjátað á um hríð. Það er ofætlan að telja nokkrum lifandi manni trú um, að það sé eðlilegt.
En menn eru sammála hæstv. ráðh. um það, að ástandið sé alvarlegt, sjálfsagt bæði alþm. og þjóðin öll. Því hefur þegar verið lýst hér, hvernig ástandið er, hvernig komið er fyrir sjávarútveginum, að jafnvel beztu fyrirtæki og þær útgerðir, sem rekið hafa toppbáta á undanförnum árum, hvernig þau nú berjast í bökkum og liggur við stöðvun hjá vinnslufyrirtækjunum mörgum hverjum. Því hefur verið lýst og það eru stöðugt að berast fréttir um það, hvernig margar greinir íslenzks iðnaðar dragast saman, og að er alllangt síðan byrjað var að segja upp fólki í ýmsum greinum. Það er og kunnugt öllum og hefur einnig verið drepið á hér, hvernig landbúnaðurinn berst í bökkum. Það sést augljóslegast á þeirri skuldasöfnun, sem þar hefur orðið og okkur er vel kunnugt um í stórum dráttum, þó að ekki hafi enn fengizt um það nákvæmar skýrslur, en unnið er að söfnun fyllri upplýsinga, eins og kunnugt er. En þannig sem sagt standa málin og það nálega hvar sem litið er í íslenzku atvinnulífi nú í dag. Og þá fylgir auðvitað með, að ástandið er einnig bágborið á öðrum sviðum. Ríkissjóður er rekinn með halla. Hann hefur yfirdregið meira en nokkru sinni í Seðlabankanum. Hann hefur og, sumpart samkv. sparnaðarfjárl., sem samþ. voru hér seint á þingi í fyrra, gert æ meira af því en áður að standa undir framkvæmdum innanlands með lántökum, og allur hagur ríkisins er þannig mjög bágborinn. Gjaldeyrisstaðan er eins og fyrr var að vikið, og atvinnuleysi er skollið á sums staðar og annars staðar fyrirsjáanlegt.
Það er stundum sagt, að það skipti ekki máli, hverjum það sé að kenna, að svo er komið í íslenzku þjóðlífi og íslenzkum efnahagsmálum. Og það má vel vera, að það sé satt að nokkru leyti. En það er a.m.k. ekki sama, hverju það er að kenna, því ef gera skal úrbætur, hvort það er í efnahagsmálum eða á öðrum sviðum, þá þurfa menn að komast fyrir orsakirnar, áður en hægt er að búast við, að gerðar verði ráðstafanir, sem að haldi koma. Það kemur sjálfsagt mörgum á óvart, að þannig er komið nú. En ég held þó, að þeim, sem hafa fylgzt með þróuninni undir stjórn núverandi hæstv. ríkisstj., komi þetta ekkert á óvart. Við fengum að vísu margra ára góðæri og stundum alveg veltiár í útflutningsframleiðslu landsmanna. En þjóðin hefur á þessum tímum verið í mjög þýðingarmiklum atriðum forystulítil ef ekki forystulaus og þó fyrst og fremst í tveimur greinum, í tvíþættum skilningi. Annars vegar hefur skort forystu um uppbyggingu íslenzks atvinnulífs til frambúðar og hins vegar hefur skort allar raunhæfar aðgerðir í efnahagsmálum. Á þessum sviðum virðist mér, að forystuleysið hafi verið algert og um það vitni glöggt og einfaldlega ástandið eins og það er í dag, því eins og ég sagði í upphafi, það er engan veginn hægt að koma því heim og saman, að eftir 7 góðærisár og aðeins tvö erfið þá sé svo komið, að sjálfur hæstv. forsrh. lýsi því yfir á Alþ., að Íslendingar hafa aldrei verið verr staddir fjárhagslega á þessari öld. Þessu verður ekki komið heim og saman.
Það sé fjarri mér að gera lítið úr þeim erfiðleikum, sem verðfall á erlendum mörkuðum og minnkandi sjávarafli hafa valdið Íslendingum. Þó er ekki hægt að loka augunum fyrir því, að verð á afurðum okkar er ekki lægra nú en það hefur oft og einatt verið áður, og mikill afli er dreginn að landi, þó hann sé minni en á metárunum. Aflabrestur og verðfall segir því aðeins brot af sögunni. Stjórnleysið í fjárfestingarmálunum og í gjaldeyrismálunum, sú ótímabæra aðför, sem gerð var að íslenzkum iðnaði með breyttri tollalöggjöf og á fleiri vegu. og engin raunhæf forysta um alhliða uppbyggingu atvinnulífsins, þetta eru að mínum dómi stærstu þættirnir, óumdeilanlega mjög mikilvægar forsendur þess, að svo er komið sem komið er. Og það má minna á það, og það gefur líka glögga bendingu um það, hvernig stjórnin hefur verið á þessum málum öllum við núverandi forystu, að á aflaárunum, meðan allt var í toppi, hver var þá afkoma útgerðarinnar? Eins og þá aflaðist gífurlega, hefði það verið eðlilegt, að hæstu skipin hefðu skilað ofsagróða og velflestar útgerðir komið vel út. En það var ekki þannig. Það var ekki um það að ræða. Og það er hægt að leiða mörg vitni að því frá forystu hinna ýmsu atvinnustétta, hvernig atvinnuvegirnir stóðu raunverulega á ýmsum sviðum áður en fór verulega að þrengja að vegna minnkandi afla og fallandi verðlags. Og hvað var það þá á þeim árum, sem olli því, að ekki stóð með meiri blóma atvinnureksturinn heldur en var? Fyrst og fremst sú verðbólgustefna, sem ríkisstj. fylgdi þvert ofan í gefin loforð.
Þegar vinstri stjórnin fór frá, hafði hún án árangurs glímt við vandamál verðbólgunnar í landinu. Hún hafði sett sér það mark að gera í þeim málum raunhæfar aðgerðir í samráði við hinar vinnandi stéttir og þeirra samtök. Henni tókst það ekki. Hún náði ekki samstöðu um aðgerðir og þá baðst hún lausnar, eins og siður er ríkisstjórna í lýðræðislöndum og gaf kost á því að aðrir glímdu við vandann. Það var vitanlega mynduð ný ríkisstj. „Viðreisnarstjórnin“. Og samkv. hennar stefnuyfirlýsingum var höfuðviðfangsefni hennar, eitt af hennar stærstu viðfangsefnum að koma atvinnuvegum landsmanna á traustan og öruggan grundvöll. En síðan hafa liðið ár, og það hafa liðið heil kjörtímabil, og það hefur alltaf þokazt fjær þessu marki en ekki nær því og við höfum aldrei verið fjær því en nú í dag, á þeim degi, þegar gengi íslenzku krónunnar hefur verið fellt um nærri 35%. En framkoma þeirrar stjórnarsamsteypu, sem tók við völdum, þegar vinstri stjórnin fór frá og setið hefur æ síðan að völdum, framkoma þessarar stjórnarsamsteypu í efnahagsmálunum er í engu samræmi við lýðræðisvenjur í nálægum löndum. Ýmis §tærstu áföllin, sem hent hafa þessa stjórnarsamsteypu varðandi efnahagsmálin og atvinnuvegina, hafa verið það stór að eðlilegt og sjálfsagt hefði verið, að ríkisstj. legði málin í dóm þjóðarinnar þá og þá. En það gerði hún ekki. Þess í stað var setið. Og við tvennar kosningar hefur öllum blaðakosti stjórnarflokkanna — og blaðakostur Sjálfstfl. er eins og kunnugt er margfaldur á við aðra flokka — öllum blaðakosti flokkanna og útvarpinu eftir því, sem fært var, yfirleitt öllum ráðum var beitt til þess að blekkja og reyna að dylja fyrir þjóðinni, hvernig ástatt hefur verið. Og þetta hefur tekizt í tvennum kosningum. Einkum er sú blekkingarsaga ljót í síðustu alþingiskosningum, vegna þess að þá sáu allir sjáandi menn, hversu komið var. En einnig þá var reynt með öllum tiltækum ráðum að leyna sannleikanum fyrir kjósendum. Og það er mikið hægt að gera með nútímatækni á þessu sviði, eins og á svo mörgum öðrum.
Síðan síðustu kosningar fóru fram, hefur raunverulega ekkert óvænt gerzt í efnahagsmálum þjóðarinnar, heldur hefur orðið framhald á þeirri þróun, sem þá var byrjuð og að verulegu leyti a.m.k. fyrirsjáanleg. En nær allt árið eftir kosningarnar og raunar allt fram á þennan dag hefur hver vandræðaráðstöfunin rekið aðra hjá hæstv. ríkisstj. Sá loddaraleikur, sem þessi hæstv. ríkisstj. hefur löngum leikið, hefur að mínu viti náð hámarki sínu á síðustu vikunum eða frá því í haust, að núverandi stjórnarflokkar boðuðu aðra stjórnmálaflokka til viðræðna um vandamálin og um hugsanlegt samstarf um lausn þeirra. Þær viðræður byrjuðu raunverulega með því, að ríkisstj. skellti á 20% innflutningsgjaldinu. Aftur á móti hafði hún ekki fyrirliggjandi neinar nothæfar upplýsingar um ástandið, hvernig það var, og að mati ríkisstj. sjálfrar mundi það taka hálfan til heilan mánuð að afla nauðsynlegra upplýsinga, sem og reyndist. Hvað höfðu hæstv. ráðh. fyrir stafni í sumar, meðan óðfluga stefndi að því, sem nú er komið fram, svo nauðsynlegt, að þeir ekki gætu látið undirbúa og hafa tiltækar nauðsynlegar upplýsingar til þess að vinna úr þegar í haust? Það er svo margt, sem fram hefur komið á þessum síðustu vikum, sem vekur furðu manna, að það yrði of langt að rekja það allt saman, en nefna má dæmi. Það var einhvern tíma snemma á þessu tímabili, sem Sjálfstfl. hélt sinn stórráðsfund hér í Reykjavík, og sá fundur samþykkti margt um nauðsyn þess að breikka grundvöllinn og fól sínum forystumönnum að halda áfram viðtölum og vottaði þeim traust til þeirra hluta. Nokkru síðar heldur Alþfl., hinn stjórnarflokkurinn, flokksþing sitt og birtir langa stjórnmálaályktun eins og venja er á flokksþingum. En í stjórnmálaályktun flokksins kom ekki fram einn stafkrókur um viðræðurnar. Aftur á móti er tekið þar fram með fögrum orðum, hversu ánægjulegt og árangursríkt samstarf stjórnarflokkanna hafi orðið á undangengnum árum og hversu mikil nauðsyn það sé fyrir Alþfl. og alla alþýðu manna í þessu landi, að það samstarf geti haldið áfram. Þar með var raunverulega annar stjórnarflokkurinn búinn að stöðva þær viðræður, sem fram höfðu farið, því að það er varla hugsanlegt, ef sá flokkur, þm. hans, hefðu hugsað sér að halda áfram viðræðum í alvöru um samstarf á breiðari grundvelli, þá hefði ekki eitthvað verið vikið að þeim málum í ályktum flokksþingsins. Samt er málamyndaviðræðum haldið áfram. Nei, svona virðist þetta hafa verið, allt einn loddaraleikur frá upphafi vega. Og eftir því, sem ég bezt fæ séð, hafa raunverulega engar samningsumleitanir um samstarf á breiðari grundvelli átt sér stað. Eftir að loksins var búið að safna þeim upplýsingum, sem bæði stjórnarliðar og stjórnarandstæðingar töldu nauðsynlegan grundvöll undir frekari samningaviðræður, þá voru tiltölulega mjög fáir fundir haldnir og mjög stuttir. Ég hef áður, og oftar en einu sinni, haft tækifæri til þess að fylgjast með því, þegar samið hefur verið um stjórnarmyndanir á milli flokka. Þau vinnubrögð, sem þá voru viðhöfð, voru með allt öðrum hætti heldur en þau, sem nú áttu sér stað. Enda er það, eins og ég hef þegar tekið fram, augljóst orðið, að stjórnarflokkarnir hafa aldrei meint neitt með þessum viðræðum. Þegar það fréttist út um land, að stuðningsflokkar núv. ríkisstj. hefðu óskað eftir viðræðum um samstarf og stjórnarmyndun við fulltrúa frá öðrum stjórnmálaflokkum, þá tóku menn þeirri frétt með ýmsu móti. Ýmsir töldu, að þetta væru tilgangslausar viðræður þar sem svo mikið bæri á milli. En þeir voru líka margir, sem tóku þessu sem merki um það, að nú vildu stjórnarflokkarnir raunverulega endurskoða sína stefnu og þá um leið freista þess að fá, á alvarlegum tímum, samstarf við aðra flokka, samstarf á breiðari grundvelli en áður um lausn vandamálanna. En þeir, sem þannig hugsuðu, hafa sjálfsagt orðið fyrir vonbrigðum nú, þegar það er komið í ljós, að meiningin hefur aldrei verið önnur en sú, að vinna tíma, fá örlítið meira næði til þess að undirbúa nýjar ráðstafanir, en í nákvæmlega sama forminu og áður. Það hefur sem sagt komið í ljós, að ríkisstj. hefur enn ekkert lært af mistökum sínum. Hún hefur verið einráð í 10 ár og löngum í einhverju mesta góðæri í útflutningsframleiðslu, sem hér hefur komið. Hún hefur raunverulega alveg ráðið stefnunni. Það er ekki vitað til, að verulegur ágreiningur hafi verið milli stjórnarflokkanna á undangengnum árum. Og stjórnin hafði það rífan meiri hl. á Alþ., að hún þurfti um ekkert að sækja til stjórnarandstæðinga til þess að koma fram sínum málum. Og það var löngum tiltölulega betri starfsfriður en oft áður, og það byggðist náttúrlega m.a. á því, að gott var í ári. En það er sama, það er engin stefnubreyting sjáanleg. Það eru sömu úrræðin, fjórða gengisfellingin og sú stærsta og væntanlega sömu hliðarráðstafanir, a.m.k. hefur hæstv. ríkisstj. ekki enn boðað neinar nýjungar að því leyti. Það er þess vegna útilokað að reikna með því, að núv. hæstv. ríkisstj. njóti lengur þess trausts og þess álits meðal þjóðarinnar, sem nauðsynlegt er hverri ríkisstj. og ekki sízt á alvarlegum og erfiðum tímum. Undir svona kringumstæðum hefði stjórnin auðvitað átt að gera það eitt að leggja málin undir dóm þjóðarinnar. Síðar hefði mátt vænta þess, að freistað hefði verið að leysa vandann á breiðari grunni en verið hefur nú um sinn, e.t.v. undir nýrri forystu, en þó fyrst og fremst, að leitað hefði verið nýrra úrræða.
Það þyrfti langan tíma til þess, ef rekja ætti öll afglöp þessarar ríkisstj. í efnahagsmálum og greina frá ringulreiðinni, eins og hún hefur verið, og það verður ekki gert hér. En ég vil aðeins minna á það, hvernig þetta hefur gengið til síðustu 12 mánuðina. Þeir skera alveg úr um þetta. Þá hefur ringulreiðin komizt á hærra stig og hraðinn orðið meiri en nokkru sinni áður. Í október í fyrra kom fram efnahagsfrv. Það var rætt hér og rætt af töluverðri hörku á þinginu þá og varð raunar aldrei komið í gegn, þegar Bretar felldu gengið, og ríkisstj. gat þar fengið sér nokkra afsökun í því að fella einnig gengi íslenzkrar krónu. Og það var gert og okkur var sagt, að það hefði verið gert að vandlega athuguðu máli og eftir vandlegan undirbúning, enda tók það viku að koma gengisbreytingunni í kring, en aðrar þjóðir, sem breyttu gengi síns gjaldeyris, eftir að Bretar felldu pundið, komu því í verk á örstuttum tíma. Síðan fóru þm. heim í jólaleyfi, og strax þegar komið var til þings aftur, var gengislækkunin orðin ónóg að dómi ríkisstj., og voru gerðar viðbótarráðstafanir í janúar vegna útgerðarinnar. Síðan ráku aðgerðirnar hver aðra. Mánaðarlega komu fram ný og ný vandræðafrv. frá hæstv. ríkisstj. allan veturinn: Málamyndasparnaður á fjárl., hækkun á vegaskatti, nýr skattur vegna vátrygginga fiskibáta, og svo þegar sumraði nýjar aðgerðir vegna síldveiðanna. Síðan byrjar á þessu hausti svipuð saga og í fyrra. Núna kemur 20% gjaldið á sama tíma og „efnahagsfrumvarpið“ þá og svo gengislækkunin áður en ár er liðið frá þeirri síðustu, aðeins allt í stærri og stærri skömmtum. Það verður aldrei nógsamlega undirstrikað, að svona getur engin ríkisstj. í lýðræðisþjóðfélagi unnið. Hún á að leggja málin undir dóm þjóðarinnar, þegar svona er komið, og leita nýrra úrræða. Og bara þetta, þessi ringulreið, bara það eitt út af fyrir sig, að enginn veit. hvar hann stendur í fjármálalegu tilliti, hlýtur auðvitað að grafa undan öllu heilbrigðu fjármálalífi í hvaða landi sem væri, enda hygg ég, að það væri erfitt að finna fordæmi eða hliðstæðu fyrir þessari þróun í öðrum nálægum löndum og hjá þjóðum, sem eru okkur skyldar. Og alveg sérstaklega vil ég segja það, að háttalagið í haust er ljótur blettur á íslenzku stjórnarfari og sá ljótasti á lítið lánsömum ferli hæstv. ríkisstj. Þegar stjórnin gaf út sinn boðskap í haust og innflutningsskattinum var skellt á og reyndar nokkru áður, hófst kaupæði hér í höfuðborginni og kannske víðar um land. Og það er rétt, sem kom hér fram hjá einhverjum hv. þm, áður í dag, að menn hafa haft tvo til þrjá mánuði til umráða, þeir, sem einhver fjárráð höfðu, til þess að gera sínar ráðstafanir. Á þessum tíma hefur spariféð flætt út úr bönkunum í stríðara straumi en nokkru sinni áður og í síharðnandi straumi, því að aldrei mun það hafa verið meira en síðustu vikurnar og síðustu dagana. Menn hafa gert allt, sem þeim var unnt, til þess að klófesta á einhvern hátt lánsfé til þess að eignast eitthvað, sem menn töldu að hefði varanlegra gildi en peningarnir. Verzlanir, sem selja tiltölulega dýra hluti, hafa keppzt við að auglýsa góð afborgunarkjör og sumar tekið upp alveg ný kerfi til þess að ýta sem mest undir söluna, í því trausti, að menn þá síðan mundu, þó að erfiðlega gengi, reyna að standa í skilum. En það mun nú þeirra reynsla, sem þannig verzla, að það geri menn í lengstu lög. Nú, á sama tíma hefur svo að sjálfsögðu, eins og hefur verið margtekið fram, gjaldeyririnn flætt út úr bönkunum og út úr landinu, þangað til hún kom, hin einstæða yfirlýsing, að gjaldeyriseign þjóðarinnar væri með öllu til þurrðar gengin.
Þetta er ljót saga, ég endurtek það, og þannig er hvergi unnið í víðri veröld, að hafa þannig undirbúningstímabil undir gengislækkanir og önnur slík bjargræði í efnahagsmálum, ég held, að það sé hvergi gert. Og það er nokkurt vorkunnarmál, þótt maður heyri stundum að því spurt, hvort þetta hafi verið með vilja gert hjá hæstv. ríkisstj.
En samhliða þessari alröngu stefnu í efnahagsmálum þjóðarinnar kemur svo það, sem ég nefndi áðan, vanmat hæstv. ríkisstj. á innlendri framleiðslu og innlendu framtaki og vanræksla hennar við að stuðla að uppbyggingu og endurnýjun innlendra bjargræðisvega. Þetta ásamt alrangri stefnu í efnahagsmálum að öðru leyti álít ég vera stærstu syndir hæstv. ríkisstj. Á fjölmörgum sviðum hefur stjórnarstefnan verið íslenzkum atvinnuvegum fjötur um fót. Það er svo margt, sem þar má til nefna fleira en það almenna, þ.e. verðbólguþróunina, sjálfa verðbólgustefnuna. Það hefur oft og mörgum sinnum og ár eftir ár verið rætt um vaxtaokrið. Þegar ríkisstj. hækkaði vextina, var það gert svo hressilega, að hún þurfti um leið að breyta lögum um okur. Það þurfti að breyta lögum um okur, sem höfðu verið í gildi árum saman, til þess að það væri hægt að framkvæma vaxtahækkunarpólitík ríkisstj. Og það var þá auðvitað gert. Maður hefur stundum séð útreikninga frá hálfu stjórnarliðsins um vextina, útreikninga, sem eiga að sýna fram á það, að vextirnir séu svo lítill hluti í rekstrarkostnaði atvinnuveganna, að þeir skipti þar engu meginmáli. En sannleikurinn er sá, að slíkir útreikningar eru meira og minna falskir, vegna þess að vextirnir hafa áhrif í gegnum svo margt og margt. Það eru ekki aðeins vextir af beinum lánum til atvinnuveganna sjálfra, af stofnlánum þeirra og af rekstrarlánum, sem þar koma til greina, heldur verka háir vextir til ógagns fyrir framleiðsluna eftir mörgum hliðarleiðum. Vaxtaokrið grípur alls staðar inn í. Rekstrarvörurnar hækka fyrir það og öll þjónusta. Það er augljóst mál, þegar nánar er að gætt.
Þá hefur einnig hér, eins og svo oft áður, verið á það minnzt, hvernig haldið hefur verið á lánamálum atvinnuveganna, rekstrarlánum þeirra og raunar stofnlánum líka í mörgum greinum. Hvernig halda menn, að það hafi verið fyrir landbúnaðinn t.d. og fyrirtæki hans að búa við það, að rekstrarlán væru óbreytt að krónutölu árum saman frá 1958, á sama tíma og allur tilkostnaður stórhækkaði, dýrtíðin bókstaflega flæddi yfir á öllum sviðum? En þetta var það, sem var gert, og alveg sama gildir auðvitað um annan atvinnurekstur, að ónóg rekstrarlán eru ævinlega fjötur um fót. Það hefur sannarlega ekki verið við lamb að leika sér, t.d. fyrir þá, sem útgerð stunda, að koma bátum sínum á flot og búa þá á þann hátt til þess, að þeir gætu hafið veiðar með eðlilegum hætti.
Það hefur verið bent á margs konar ringulreið og stjórnleysi. Það hefur verið minnt á olíudreifinguna, sem er á höndum þriggja aðila hér í þessu fámenna landi og hlýtur því að vera óhagkvæm. Og vátryggingar fiskiskipa hafa líka verið nefndar hér til. En það er vissulega margt og margt fleira. Það hefur t.d. áreiðanlega bakað íslenzkum útvegi mikla erfiðleika, að ekki hefur verið neitt gert til þess, að skipasmíðastöðvarnar gætu haft næg verkefni og eðlileg verkefni með því að gera þeim mögulegt að vinna að byggingu nýrra fiskiskipa. Um árabil hafa þau nálega öll verið byggð utanlands. Og af þessu leiðir það, að verkefni hefur oft og tíðum skort hjá þessum stöðvum á þeim tíma, þegar ekki er unnið að viðhaldi skipanna, með þeim afleiðingum að sjálfsögðu, að rekstur þeirra allur hefur orðið fyrir það óhagkvæmari og erfiðari en ella.
Þannig mætti lengi rekja hér fjölmörg atriði, sem sýna það, hversu stjórnarstefnan hefur vanmetið íslenzkan atvinnurekstur, sýna það, að á þessum árum hefur ekki verið sérstaklega mulið undir íslenzka atvinnuvegi, hvorki útveg eða landbúnað. Og ekki er iðnaðurinn bezt leikinn. Það er fásinna að halda það, þó að hér hafi verið rekinn ýmis iðnaður um áraskeið, að íslenzkur iðnaður sé nú í dag kominn á það stig, að hann geti keppt við háþróaðan iðnað milljónaþjóða. Það er fásinna.
Eins og ég hef komið að áður, hefur, til viðbótar við það, algerlega lagzt undir höfuð að fullnægja því meginloforði þessarar stjórnarsamsteypu, sem gefið var, þegar hún tók við völdum, að koma atvinnuvegunum á traustan rekstrargrundvöll. Til viðbótar við það hefur svo vantað raunverulega forystu frá hæstv. ríkisstj. um uppbygginguna. Við eigum nú engan nýtízku togara. Við áttum þá á sinni tíð, skip, sem þá hentuðu vel. En það er eins og stjórnarvöld hafi álitið það, að upp á þá atvinnugrein þyrfti ekki framar neitt að púkka. Og það hefur ekkert teljandi átak verið gert af hálfu stjórnarvalda til þess að greiða fyrir endurnýjun og að koma á hagkvæmari rekstri hinna ýmsu vinnslustöðva, sem vinna úr innlendum hráefnum. Það hefur engin forysta verið höfð um þetta af hálfu ríkisvaldsins. En hvort sem litið er á iðnað, sem vinnur úr hráefnum landbúnaðarins eða sjávarútvegsins, þá eru þau fyrirtæki velflest byggð upp fyrir tveim til þrem áratugum, oft án teljandi reynslu. Og það er engin von til þess, að ekki þurfi að gera stórátak til þess að endurbyggja þau og auka hagræðingu í rekstri þeirra. En forystu í þeim efnum hefur skort.
Hæstv. ríkisstj. hefur stært sig af því að hafa komið hér á erlendri stóriðju. Það er kunnugt, að við samninga um þá hluti voru hinum erlendu aðilum gefin loforð um fríðindi, um lægra rafmagnsverð o.fl., fríðindi, sem innlendir aðilar áttu ekki kost á. Og það er einnig kunnugt, að í þeim samningum eru ákvæði um málsmeðferð þannig, að slík þekkjast ekki í hliðstæðum samningum sömu hringa við aðrar þjóðir. Annars ætla ég ekki að fara að ræða hér stóriðjumál. Við þurfum að sjálfsögðu á erlendu fjármagni að halda til að byggja upp okkar atvinnuvegi, eins og við höfum raunar alltaf gert meira og minna nú um langt árabil. En það er áreiðanlegt, að við verðum að ganga uppréttir til slíkra samninga allra og gæta þar í hvívetna hagsmuna Íslendinga. Það líður nú að því, að álbræðslan taki til starfa. Og eru þá ekki þessar áhyggjur allar óþarfar? Leysast þá ekki vandamálin, þegar álbræðslan við Straumsvík verður tekin til starfa? Verður þá ekki nóg atvinna í landinu á eftir og myndast þá ekki sjálfkrafa nýr gjaldeyrisvarasjóður o.s.frv.? Það skyldi nú vera, að það yrði svo. Ég veit, að þar fær hópur manna atvinnu og, eins og ég sagði, ég ætla ekkert að fara að ræða um þá hluti út af fyrir sig. En þetta nægir bara skammt eitt saman. Það sjá allir, hvað yfir vofir og hversu uggvænlega horfir á mörgum sviðum. Og enginn hefur lýst því með sterkari orðum en hæstv. forsrh. sjálfur. Þetta er sem sé ekki nóg.
Nei, það er dýrt að hafa við völd í áratug stjórnarsamsteypu með alranga efnahagsmálastefnu, stjórn, sem hefur vikizt undan því að hafa forystu um uppbyggingu íslenzks atvinnulífs.
Það hefur mörgum virzt, að núv. hæstv. ríkisstj. byggði stefnu sína í efnahagsmálum allt of mikið og gagnrýnislaust á erlendum kennisetningum og hagfræðiformúlum. Ég hef heyrt sögu um mann einn, sem hér var uppi fyrir nokkrum árum. Hann var maður fjöllesinn og fróður og vissi margt og reyndi að tileinka sér allt það, sem hann sá og heyrði. Viljann vantaði ekki, en skilningurinn var takmarkaður. Hann var bóndi, þessi maður. Hann hafði séð í Búnaðarritinu ráðleggingar ráðunauta um það, hvernig fóðra ætti búfé, og hann tók upp þá fóðrun. Hann fóðraði nákvæmlega eftir töflunni. Nú, það bar ekkert til tíðinda framan af. En undir vorið fóru ærnar að verða þunnar og einhverjar geispuðu golunni, þegar fór að nálgast sauðburð. Og menn fóru að athuga málið. Hinn fjöllesni maður bar fyrir sig bókstafinn, töfluna. Það var farið að skoða töfluna, en það var þá í henni prentvilla, ærnar höfðu sem sagt drepizt úr prentvillu. En það er nú bara, að það hafi ekki verið prentvilla í þeirri uppskrift að aðgerðum í efnahagsmálum, sem hæstv. ríkisstj. hefur farið svo dyggilega eftir og er ákveðin í að fara eftir áfram, hvað sem tautar og raular? Þetta frv., sem hér liggur fyrir, segir út af fyrir sig lítið. Þar er að mestu fylgt þeim venjulegu formum, sem notuð eru, þegar gengislækkun hefur átt sér stað. Þó eru þar atriði, sem kunna að þurfa nánari athugunar við. En eins og ég gat um áðan, var ekki hægt á nefndarfundi að fá neinar nánari upplýsingar um málið, en það má vera, að hægt verði að skoða einhver þessara atriða nánar á milli umræðna. En það er óhjákvæmilegt, að reyna að gera sér nokkra grein fyrir því, af hvaða rótum ráðstafanir hv. ríkisstjórnar eru runnar og hverjar orsakir eru til þess, að svo er komið sem komið er.
Mér þóttu ræður hæstv. ráðh. beggja, sem töluðu hér, þegar þetta frv. var lagt fram hér í dag, næsta merkilegar, og þó hvor á sinn hátt. Hæstv. forsrh. bað um gott veður. Hann hét á menn að ganga nú til samstarfs við ríkisstj. Maður hefur heyrt áður þann tón frá hæstv. forsrh. og ekki sízt um áramót og á hátíðum og tyllidögum. En í framkvæmdinni virðist hann ekki hafa mikinn hug á því að laða til samstarfs stjórnarlið og stjórnarandstöðu, heldur að knýja fram sín sjónarmið af lítilli tillitssemi í krafti meirihlutavalds.
Hæstv. viðskmrh. talaði hér fyrir sinn flokk, enda er hann formaður Alþýðuflokksins. Það var óhugnanlegt að heyra þá ræðu frá formanni Alþfl., sem einu sinni var flokkur hinna lægst launuðu í þjóðfélaginu. Hv. ráðherra kynnti fjórðu gengisfellinguna, boðaði óbreytta stefnu, og klykkti svo út með því, að þetta væri áreiðanlega það bezta, sem hægt væri að gera fyrir þá lægst launuðu! Já, hæstv. forsrh. bað um samstarf. Það má ekki taka upp stjórn á fjárfestingarmálum. Gjaldeyriseyðslan verður að vera hömlulaus áfram, nema að svo miklu leyti sem neyðin dregur úr eyðslu þeirra fátækustu, þegar fram í sækir. Og linun á vaxtaokri eða breyting á lánastefnu til atvinnuveganna kemur heldur ekki til greina. Innlendan iðnað má helzt ekki styðja. Ef hann ekki getur borið sig án stuðnings, á hann ekki rétt á sér. Ég held þess vegna, að það verði stutt í samstarfi ríkisstj. og stjórnarandstöðu um þetta mál, eins og nú er komið, eftir að stjórnarflokkarnir hafa haldið uppi fölskum viðræðum í tvo mánuði og eftir að það er komið berlega í ljós, að þeir eru gersamlega lokaðir fyrir breyttri stefnu.
Þetta frv. verður áreiðanlega samþ. Ríkisstj. hefur vafalaust tryggan þingmeirihluta fyrir því, þó að e.t.v. hafi ekki allt stjórnarliðið verið sammála um málið í upphafi. Nú, það segja ýmsir, að þegar svo er komið sem nú, þá sé gengislækkun raunverulega ekki annað en það, að menn viðurkenni staðreyndir, viðurkenni það, sem orðið er. En það er nokkurn veginn vist, það sýnir okkur reynslan frá löngu árabili, að með óbreyttri stefnu sækir enn í sama farið. Það var sagt hér í fyrra við umræður um gengislækkunina þá, að ef ríkisstj. breytti ekki stefnu sinni, væri hún þegar byrjuð að safna í nýja gengislækkun. Sú spá er nú orðin augljós staðreynd.
Ég held hins vegar, og ég er ekki í nokkrum vafa um það, að Ísland er nú, eins og það hefur áður verið, land möguleikanna, og það er hægt að búa vel í þessu landi. ef skynsamlega er á málum haldið og tekizt á við erfiðleika, hvort sem þeir mæta mönnum úti í náttúrunni eða í stjórnarsölum. En það verður ekki gert nema með nýrri stefnu. Við getum ekki, það er reynslan búin að sýna, við getum ekki rekið okkar þjóðfélag án þess að hafa stjórn á fjárfestingarmálum og peningamálum yfirleitt sem og gjaldeyriseyðslu. Og við verðum að ganga í það að létta byrðum af atvinnurekstrinum, eftir því sem mögulegt er og með ýmsu móti, eins og hér hefur aðeins verið vikið að. Það verður vafalaust að horfast í augu við það, nú eða alveg á næstunni, að ganga til uppgjörs í skuldamálum atvinnuveganna, bæði til lands og sjávar. Það verður að ganga til uppgjörs og nákvæmrar athugunar á þeim málum. Og þá er það einnig eðlilegt, að athugað verði um eignir, gerð verði eignakönnun og á þann hátt reynt að gera sér grein fyrir því, hvar arður hinna góðu ára hefur saman safnast. Það verður óhjákvæmilegt að ganga til gagngerðra aðgerða í ríkiskerfinu. Það er í sjálfu sér svo augljóst mál, að um það þarf ekki að fara mörgum orðum, að þjóð eins og Íslendingar, sem ekki telur nema 200 þúsund manns, hlýtur að verða að sýna aðgát, og það mikla aðgát, í byggingu síns stjórnkerfis og gæta ýtrustu hagsýni við margháttaða þjónustustarfsemi, sem rekin er í sérhverju nútímaþjóðfélagi. Það hlýtur að vera miklu meiri vandi á höndum fyrir svo fámenna þjóð að fara með sín efnahagsmál heldur en þær þjóðir, sem telja tugmilljónir og að mörgu leyti standa á gömlum merg með sína atvinnuvegi og með sinn iðnað og markaðsmál o.fl. o.fl. Við höfum ekki — og þar eigum við kannske allir hlut að máli að meira eða minna leyti — við höfum ekki á undangengnu árabili sýnt nægilega aðgát í þessum efnum og það er ekki hugsanlegt annað en að að því komi, að við verðum að gera það. Við þolum ekki þunga yfirbyggingu í þessu fámenna þjóðfélagi. Og það mun einnig sýna sig, að eins og kringumstæður eru hér hjá okkur, þá getum við ekki haldið uppi stórum hópi manna, sem hefur aðstöðu til að sópa að sér fjármunum og eyða þeim í óhófi, en slíkrar þróunar hefir gætt í vaxandi mæli í þjóðfélagi okkar um árabil. Það verður að horfast í augu við þennan vanda, það er áreiðanlega enginn barnaleikur, eins og hæstv. ráðh. oft lýsa, að skera niður ríkisútgjöld, það er enginn hægðarleikur, því að víða er þá komið nærri því, sem kalla mætti þjónustu og snertir fjölda manna, en enginn vafi er þó á því, að þetta er hægt og þó er enn þá augljósara, að það verður að gera þetta að vissu marki.
Það verður einnig að ganga til þess og vinna að því á skipulegan hátt og markvíst að efla atvinnulíf í þeim byggðarlögum, sem höllustum fæti standa; samtímis því, sem gerð verði stórátök til þess, að atvinnutækin almennt séu endurnýjuð og að byggðar séu upp nýjar starfsgreinar. Það er vissulega hægt að útfæra þetta allt miklu nánar. Og þó að ég ekki geri það nú, þá verður það vafalaust gert síðar. En það hlýtur a.m.k. alltaf að verða meginstefnan og það, sem aldrei má víkja frá að keppa að því að næg atvinna sé fyrir alla landsmenn, og að allir þegnar þjóðfélagsins búi við lífvænleg kjör. Starfslausar hendur eru í senn einhver mesta sóun og eitthvert versta böl, sem hent getur eitt þjófélag. Það á alls staðar við, en þó kannske hvergi fremur en þar sem þjóðfélagið er smávaxið og þegnarnir fáir. Og ég vil líka segja það, að Íslendingar standa á það háu menningarstigi, að skortur og eymd fleiri eða færri einstaklinga, slíkt ástand í því landi allsnægta, sem Ísland vissulega er, þegar á allt er litið, það verður ekki þolað hér til lengdar. Það er útilokað.
Gengi ísl. kr. hefur ennþá verið fellt, erlendur gjaldeyrir hækkaður um hvorki meira né minna en 54,4%, en gengið lækkað um nær 35%, og dollarinn er nú kominn upp í 88 kr. Þjóðin veit vel, hvað kemur á eftir svona ráðstöfunum, hún veit það vel af reynslu undangenginna ára. Það koma og fyrr en varir nýjar og stórfelldar hækkanir, ný dýrtíðarskriða skellur yfir landsfólkið. Menn geta sjálfsagt ekki sagt um það með vissu, hversu miklar hækkanirnar verða almennt, en það er álitið, að í heild verði kjaraskerðing ekki undir 20%, en hækkanir einstakra vara verði allt að 50%. Og það er ætlazt til þess af hálfu ríkisstj., að þessar hækkanir taki menn á sig með litlum bótum. Ég vil taka undir það, sem fram kom hér hjá síðasta ræðumanni við 1. umr., hv. 2. landsk. þm., að þetta er eitt af því, sem ekki er hægt, og ég held, að hæstv. ríkisstj. ætti að hugsa sig vel um, áður en hún heldur lengra. Því að enn þá á hún eftir að leggja hér fram mörg mál, og hún getur vel gefið sér tíma til þess að hugsa sig aðeins um. Hún gerði það í fyrra. Ef ég man rétt, var hún að tína fram fylgifrv. með gengislækkuninni í margar vikur. Þetta frv., sem hér liggur fyrir, er sem sagt aðeins fyrsta mál ríkisstj. í sambandi við þá gengislækkun, sem nú hefur verið gerð. Þetta mál verður áreiðanlega knúið hér fram og síðan hvert af öðru. Og eftir því, sem okkúr hefur verið boðað, situr svo allt í sama farinu og áður, allt verður framkvæmt með óbreyttri stjórnarstefnu. Minni hluti fjhn. er á móti þessum aðferðum og á móti þessari stjórnarstefnu og leggur til, að þetta frv. verði fellt.